Morgunblaðið - 29.11.1986, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
Tilraun borgaryfirvalda í Róm:
„Umf erðarlaus
föstudagur“
I>_ A D
Róm. AP.
ÞÚSUNDIR Rómarbúa skildu
bíla sína eftir heima i gær og
gengu eða tóku almenningsfar-
artæki i vinnuna. Var þetta liður
i eins dags „tilraun" með að
fækka ökutækjum á aðalum-
ferðartímunum. Fjöldi manns
daufheyrðist þó við beiðni borg-
aryfirvalda og umhverfisvernd-
arsamtaka.
Fyrir þennan „umferðarlausa
föstudag" fóru yfirvöld þess á leit
við borgarana, að þeir ækju ekki
til vinnu. Var almenningsvögnum
fjölgað, afnuminn vikulegur skyldu-
fiídagur leigubílstjóra, Qölgað í
umferðarlögreglunni og sérstakar
akreinar teknar frá fyrir almenn-
ingsvagna og leigubíla.
Nicola Signorello borgarstjóri ók
frá heimili sínu í suðausturhluta
Rómar að Árelíusar-múmum við
inörk miðborgarinnar og gekk það
það sem eftir var leiðarinnar, um
fjóra kílómetra, til skrifstofu sinnar
á Kapitolshæðinni.
„Þetta var mjög ánægjuleg
gönguferð," sagði borgarstjórinn
við fréttamenn, „og reynslan af
þessum degi mun gefa okkur mik-
ilsverðar upplýsingar, sem við
getum byggt á, þegar ákvörðun
verður tekin um langtímalausn
umferðarvandans."
Öll helstu dagblöð Rómar studdu
tilraunina dyggilega. Aðalfyrirsögn
dagblaðsins Messaggero var:
„Framtíð borgarinnar í veði“. í II
Tempo sagði: „Allir skilji bílana
eftir heima". Og La Republica hafði
sem aðalfyrirsögn: „Róm reynir að
ná andanum".
Borgaryfirvöld hafa verið að
reyna að andæfa síversnandi um-
ferðaröngþveiti og loftmengun. Dag
einn í síðasta mánuði báru um-
ferðarlögreglumenn hvítar skurð-
læknagrisjur fyrir vitum sér til að
minna á mengunarvandann.
Nýlegar mælingar á aðalá-
lagstímum dagsins sýndu, að
kolsýrlingsinnihald andrúmsloftsins
á fjöifömustu stöðum miðborgar-
innar var átta sinnum hærra en
áætluð hættumörk.
Borgaryfirvöld gáfu til kynna,
að þau mundu e.t.v. neyðast til að
grípa til ótiltekinna skyldutakmark-
ana, ef tilraunin færi út um þúfur.
Dómari í Róm hefur hótað að
loka miðborginni fyrir bílum, fínni
yfirvöld ekki lausn á mengunar-
vandanum. Signorille borgarstjóri
hefur verið á móti slíkri lokun á
þeim forsendum, að hún auki aðeins
á umferðarvandann og mengunina
í nærliggjandi íbúðarhverfum.
Hin sögufræga miðborg Rómar
er miðdepill stjómsýslu, verslunar
og menningar. Fá leikhús, nætur-
klúbba, söfn eða listsýningarsali er
að fínna utan Árelíusar-múrsins.
Neðanjarðarlestakerfið hjálpar
lítið til að draga úr umferðinni, því
að það er mjög takmarkað.
Dýrt spaug
at/ oimtuny uu
íranir hafa rekið þrjá ítalska embættismenn úr landi vegna sjónvarpsþáttar í ítalska ríkssjón-
varpinu þar sem gert var grin að trúarleiðtoganum Ayatollah Khomeini. Menningarmálaskrifstofu
Ítalíu í Teheran var jafnframt lokað. Myndin sýnir eitt atriðið sem fór svo mjög fyrir brjóstið á
írönunum. Lengst til vinstri er Tullio Solenghi, sem greinilega er í hlutverki Khomeinis, þá Pippo
Baudo, sem stýrði sjónvarpsþættinum, og loks leikarinn Masimo Lopez.
Heimsókn Gorbach-
evs til Indlands lokið
Mikhail Gorbachev og Raisa kona hans ásamt Rajiv Gandhi, forsætis-
ráðherra Indlands og Sonju konu hans.
Nýju Delhí, Reuter.
MIKHAIL Gorbachev og Raisa
kona hans fóru í gær frá Delhí
að aflokinni fjögurra daga heim-
sókn til Indlands. í heimsókn
sinni lagði sovézki leiðtoginn sig
fram við að sýna, að Sovétríkin
væru hinn eðlilegi bandamaður
þróunarríkjanna og að Sovét-
stjórnin kostaði kapps um að
tryggja stöðugleika i Asíu.
Gorbachev varð hins vegar ekki
margorður um stríðið í Afganistan
í heimsókn sinn og varaðist að for-
dæma Pakistan, Bandaríkin, Kína
Nýfundnaland:
Rannsóknastofnun kannar
haffærni skipa í stórsjó og ís
og íran fyrir að styðja baráttu
skæruliða gegn stjóminni í Kabúl.
Gaf Gorbachev í skyn, að samið
kynni að verða um frið í Afganistan
áður en langt um liði.
Stríðið í Afganistan hefur nú
staðið í nær 7 ár og hefur það orð-
ið til að rýra mjög álit Sovétríkjanna
á meðal þróunarríkjanna, en Sov-
étríkin hafa haft þar yfir 100.000
manna herlið, sem barizt hefur við
hlið hermanna Kabúlstjómarinnar.
Mikill meiri hluti aðildarríkja Sam-
einuðu þjóðanna hefur á hverju ári
samþykkt ályktun um, að allt erlent
herlið verði á brott frá Afganistan,
en með því er átt við herlið Sovét-
manna.
Heimsókn Gorbachevs til Ind-
lands nú er jafnframt fyrsta för
hans til Asíuríkis, frá því að hann
komst til valda. Á næsta ári er ta-
lið hugsanlegt, að hann heimsæki
Japan, þó að það sé allt óráðið enn.
Thomas Land, The Observer.
EIN bezt búna rannsóknastofnun
heims á sviði hreyfiorku sjávar
er tekin til starfa í St. John’s á
Nýfundnalandi í Kanada. Þar
verða rannsökuð áhrif öldugangs
og ísmyndunar á skip og olíubor-
palla. Tölvubúnaður stjómar
öldu- og ísmyndun og við tilraun-
imar em notuð líkön af skipum
og borpöllum. Smíði stofnunar-
innar og búnaður kostaði sem
svarar 55 milljónum US dollara
(um 2,24 milljarðar króna) og á
stofnunin að gegna forustuhlut-
verki í rannsóknum úthafanna.
Þá verður útgerðar- og skip-
asmíðafyrirtækjum og skólum í
hinum hungraða heimi veittur
aðgangur að niðurstöðum rann-
sókna stofnunarinnar.
Nýja stofnunin, Institute of Mar-
ine Dynamics, var sett á laggimar
á vegum kanadíska rannsóknar-
ráðsins, NRC (Canadian National
Research Council), og er betur
tækjum búin en þekkist annars
staðar. Ákveðið var að koma stofn-
uninni á fót eftir víðtækar rann-
sóknir á vegum NRC og norsku
vatnsorkustofnunarinnar í Þránd-
heimi á slysinu undan strönd
Nýfundnalands árið 1982 þegar
olíuborpallurinn Ocean Ranger
fórst og með honum 84 sem þar
störfuðu. Skipuð var sérstök rann-
sóknamefnd í Kanada til að kanna
orsakir slyssins árið 1983 og voru
fulltrúar stofnunarinnar í Þránd-
heimi fengnir til aðstoðar þar sem
Norðmenn voru þá þjóða fremstir
á þessu sviði.
Strandlína Kanada er löng og þar
er mikið af skipgengum ám og
skipaskurðum. Siglingar geta verið
erfíðar mikinn hluta ársins vegna
ísa, storma, bálviðris og ölduróts.
Vinnsla og flutningur náttúru-
auðæfa undan ströndum Kanada
eru háð þróun nýrrar tækni í sam-
bandi við rannsóknir og vinnslu, og
skipa til flutninga við þessi skil-
yrði. Rannsóknum hjá nýju stofnun-
inni er ætlað að flýta þróun þessarar
tækni.
Ríki þriðja heimsins fá aðgang
að niðurstöðum rannsókna stofnun-
arinnar með því að snúa sér til
annarrar nýrrar ríkisstofnunar, Int-
emational Centre for Ocean Deve-
lopment, sem hefur aðalstöðvar
sínar í Halifax á Nova Seotia. Sú
stofnun hefur hlotið 20 milljón doll-
ara (rúmlega 800 milljóna króna)
framlag frá ríkinu til að standa
undir rekstrinum næstu fimm árin.
Þar er reiknað með að þróunarlönd
geti orðið sér úti um nauðsynlega
tækni til að geta hagnýtt sér þær
miklu náttúruauðlindir sjávarins
sem þau hafa nú einkarétt á að
nýta samkvæmt hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna.
Stofnunin í Halifax verður mið-
stöð upplýsinga og þangað geta
þróunarlöndin sótt niðurstöður
rannsókna, tilsögn og ráðgjöf. Sjálf
hefur stofnunin aðgang að upplýs-
ingum frá öllum skóla- og tækni-
stofnunum landsins, þar með taldar
upplýsingar frá stofnuninni í St.
John’s.
Isþróin hjá stofnuninni á Ný-
fundnalandi er sú stærsta í heimi,
háþróað rannsóknatæki, 90 metra
langt, 12 metra breitt og 3 metra
djúpt inni í frystihúsi þar sem unnt
er að halda frostinu í -^25 gráðum.
Nákvæm skipslíkön eru sett í
þróna þar sem líkt er eftir sjólagi
og veðurfari Norður-íshafsins.
Líkönin eru dregin eða þeim siglt
eftir þrónni og skynjarar mæla
hæfni líkananna til siglinga í ís.
Rannsóknir á sviði hreyfíorku
sjávar og hæfni skipa til siglinga í
ís krefjast mikilla fjárfestinga í
tælqabúnaði. I rannsóknastofum
stoftiunarinnar eru meðal annars
Qölbreytt rafeindatæki, tankar til
að mæla sjóhæfni og stýrihæfni
skipa, dráttartankar til að mæla
áhrif sjógangs, göng til að kanna
bólumyndun við mismunandi hraða
og skurð skipsskrúfunnar og til-
heyrandi verkstæði til smíða á
líkönum og tækjabúnaði. Mæling-
amar sem gerðar eru á líkönum af
skipum og mannvirkjum á borð við
borpalla eru síðan bomar saman
við niðurstöður sem fást við
reynsluferðir skipanna, eftir að þau
hafa verið smíðuð. Sá samanburður
auðveldar aftur útreikninga í sam-
bandi við breytingar á líkönum.
Lokaniðurstaðan verður bezta fáan-
lega forspáin um væntanlega
sjóhæfni skipa.
Hjá stofnuninni er einnig fullbúin
rannsóknadeild á sviði rafeinda-
tækni þar sem unnið er að hönnun
og þróun nauðsynlegs tækjabúnað-
ar, tölvutengja og sérhæfðs raf-
eindabúnaðar sem ekki fæst á
almennum markaði — má þar nefna
fjarstýringar- og fjarmælitæki,
öldumæla og mælitæki til að skrá
hreyfingar skipa auk tölvubúnaðar
til gagnasöfnunar.
Bólivía:
Sex núll klippt
af gjaldmiðlinum
La Paz, Reutei.
BÓLIVÍA mun taka upp nýjan
gjaldmiðil á nýársdag og felur
hann í sér, að sex núll verða
tekin aftan af núgildandi gjald-
miðili landsins, sem heitir peso.
Hefur þjóðþingið nú endanlega
samþykkt frumvarpið um hinn
nýja gjaldmiðil, sem fær nafnið
„Boliviano" og á hann að jafn-
gilda einni milljón peso.
Miðað við núverandi gengi
verður verðgildi hins nýja gjald-
miðils nær hálfur Bandarílqadoll-
ar (um 20 ísl. kr.). Vonir standa
til, að með honum náist enn einn
áfanginn í baráttunni við verð-
bólguna í landinu. Hún varð mest
í september 1985 og nam þá
23.000% miðað við heils árs tíma-
bil. Ströng launa- og verðbinding,
sem stjórn mið- og vinstri flok-
kanna undir forvstu Victors Paz
Estenssoro forseta, kom á, hefur
orðið til að minnka verðbólguna
stórlega en hún verður þó um 92%
á þessu ári.