Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 Smáþjóðir geta verið far- sælar í alþjóðaviðskiptum eftir Sigurð Signrðarson „Skóframleiðandi nokkur ætlaði að selja skó í ónefndu ríki í Afríku. Hann sendi þangað sölumann til að kanna markaðinn. Nokkru síðar sendi sölumaðurinn eftirfarandi skeyti til höfuðstöðvanna: „Hér notar fólkið ekki skó, en gengur berfætt. Hér er því enginn markað- ur.“ Framleiðandinn var ekki ánægð- ur með þetta svar og því sendi hann annan sölumann. Sá sendi nokkru síðar þetta skeyti: „Hér notar fólkið ekki skó, en gengur berfætt. Hér er þvf stórkostlegur markaður." Nú mætti spyrja. Hvor þessara sölumanna þekkti betur markaðinn. Svarið er að hvorugur þeirra hafði þá innsýn sem góður markaðs- fræðingur þarf að hafa. Góður markaðsfræðingur hefði sent eftir- farandi símskeyti til höfuðstöðv- anna: „íbúamir nota ekki skó, ganga berfættir. Slæmir fætur eru þjóðarkvilli, en skór geta komið að góðum notum. Hér eru þó allir mjög fátækir, en þeir framleiða ágætar matvörur. Hér þarf að sannfæra yfirvöld og einstaka ættarhöfð- ingja. Fjárfesting er nauðsynleg, en árleg sala getur hæglega haft mikinn hagnað í för með sér.“ í þessu Afríkulandi var ekki markaður, en þörfín var fyrir hendi, hægt var að skapa markað, sem gæti gefíð góðan arð. Það kostar þó talsvert í byijun. Þetta gátu sölumennimir ekki gert sér grein fyrir, jafnvel þó annar sæi að íbú- amir hefðu þörf fyrir skó. í þessu liggur meðal annars munurinn á sölu og markaðsfræði. Ástandið er víða mjög svipað og í þessu Afríkulandi. Skortur á gjald- eyri háir þó þessum löndum til að þau geti gert nauðsynleg innkaup." Þannig mæltist Philip Kotler á fyrirlestri sem höfundur þessarar greinar átti kost á að sælq'a í Osló á liðnu hausti. Ekki er víst að allir viti deili á Kotler, en hann er einn virtasti fræðimaður t markaðs- fræðum sem nú er uppi. Sumir taka svo djúpt í árinni að segja hann föður nútímamarkaðsfræði. Eitt er þó víst, að Kotler hefur haft gífur- leg áhrif á markaðsfræði nútímans. Kotler er prófessor í markaðs- fræðum við J.L. Kellogs Graduate School of Management sem er hluti af Northwestem University í Bandaríkjunum. Hann hefur ritað §ölda greina og bóka, einn eða með öðmm, og þær er ávallt að fínna meðal námsgagna í markaðs- og viðskiptafræðum og á borðum metnaðargjamra markaðsfræð- inga. Ein þekktasta bók hans er „Stjómað eftir markaðnum" eða „Marketing Management" sem kom fyrst út 1967, en hefur síðan verið endurskoðuð og endurútgefín fjór- um sinnum. Einn helsti kostur Kotlers sem fræðimanns er heiðskír hugsun og ályktunarhæfni hans. Hann ritar bækur sínar á mjög aðgengilegan hátt og sem fyrirlesari er hann mjög líflegur og áhugavekjandi. Hér verður nú sitthvað tíundað úr fyrirlestri Kotlers. Þess ber þó að geta að orðalag innan tilvitnun- armerkja er í mörgum tilvikum frekar höfundar þessarar greinar en Kotlers. Það skrifast því á reikn- ing höfundarins sé hér eitthvað missagt eða vansagt. Markaðsfærsla er ekki sala „Ef einhver heldur að salan sé mikilvægasti hluti rekstrarins, þá fer sá hinn sami villur vegar. Sá sem ætlar sér að markaðssetja vöm verður að vita hveijar þarfír mark- aðarins em. Þegar Japanir settu Mazda-bílinn á bandarískan markað þurftu þeir ekkert að hafa fyrir sölunni. Ungt fólk stóð í röðum til þess eins að geta lagt inn pöntun á bíl og síðan varð það að bíða í sex mánuði eftir afhendingu. Þetta var fyrst og fremst vegna þess hversu bíllinn var góður. Hann aug- lýsti sig sjálfur. En að sjálfsögðu lá mikil vinna að baki, markaðs- rannsóknir og notkun tilrauna- markaða. Japanimir vissu nokkum veginn hveijar þarfir markaðarins vom, hveijir vom hugsanlegir kaupendur og hvað þeir gátu greitt fyrir bíl af þessu tagi.“ Kotler var að sjálfsögðu spurður um álit sitt á norskum útflutnings- iðnaði, sem hann hafði fengið nokkurt tækifæri til að kynna sér lítillega. Fyrir íslendinga er auðvelt að draga lærdóm af eftirfarandi orðum Kotlers: „í Noregi er útflutningsiðnaður í heild sinni mjög vanþróaður. Kem- ur margt til, en þó má einna helst nefna það, að þeir sem að útflutn- ingi standa era flestir mjög litlir, samstarf milli þeirra er mjög lítið og viljinn fyrir samstarfí takmark- aður — enn sem komið er. Undan- tekningar em að sjálfsögðu frá þessu. Til að bæta ástandið þarf við- horfsbreytingu á tveimur vígstöðv- um hjá hinu opinbera og fyrirtækj- unum sjálfum. Hjá hinu opinbera þarf að koma til virkt ráðuneyti í utanríkisvið- skiptum. Verkefni þess er m.a. samhæfíng, að spara fyrirtækjun- um margvíslega fyrirhöfn. Hvar á að selja framleiðsluna; í þróunar- löndunum eða Ameríku og Evrópu? Hvað framleiðum við betur en aðrar þjóðir? Hvaða 10 fyrirtæki em best (stakk búin til að auka útflutning? Hér þarf þrautseigju og hvatn- ingu. Það kostar mikið að fínna markaði, komast inn á þá, halda sér inni á þeim o.s.frv. Þetta kostar stórfé og lítil þjóð getur ekki gert þetta án stuðnings ríkisvaldsins. Stærri þjóðir gera þetta þannig að leikurinn er þegar mjög ójafn, jafn- vel áður en hann hefst. Hér á undan var nefnt að fyrir- tækin kunni að vera of lítil til að þau geti náð hagkvæmni í útflutn- ingi, bæði framleiðslu og markaðs- setningu. Sameining fyrirtækja er skilyrði fyrir árangri í samkeppni á erlendum mörkuðum. Bæði veldur að stór fyrirtæki framleiða meira en smá og hjá þeim er meira fé fyrir hendi til dýrrar markaðs- færslu." Eru Frakkar vingjarnlegir? í framhaldi af þessu var Kotler spurður að því, hvort ímynd fram- leiðslulands hafí mikið að segja við sölu á erlendum mörkuðum og þá hyert hlutverk ríkisvalds sé að því leytinu til: „Verkefni ríkisvaldsins í mark- aðsfærslu á erlendri gmn er m.a. það að bæta ímynd landsins. Hvað er Noregur t.d. í augum Bandaríkja- manna? Þannig hafa aðrar þjóðir spurt sig. Belgar ætluðu sér talsvert á Bandaríkjamarkaði. Þeir settu í gang stóra könnun í Bandaríkjun- um og spurðu fólk hvað það vissi um Belgíu, hvað þar væri framleitt o.s.frv. Belgar urðu fyrir miklum vonbrigðum. Allir þekktu Belgíu á landakorti, en fæstir vissu hvað Belgar framleiddu. Sigurður Sigurðarson „Hér þarf þrautseigju og hvatningu. Það kost- ar mikið að finna markaði, komast inn á þá, halda sér inni á þeim o.s.frv. Þetta kost- ar stórfé og lítil þjóð getur ekki gert þetta án stuðnings ríkisvalds- ins. Stærri þjóðir gera þetta þannig að leikur- inn er þegar mjög ójafn, jafnvel áður en hann hefst.“ Hver þjóð hefur sitt auðkenni, en það þýðir ekki að reyna að villa á sér heimildir. Tökum sem dæmi Frakka. Þeir stöðluðu slagorð í álíka baráttu í Bandaríkjunum og sögðu „Friendly France", t.d. „Visit Friendly France". Þeir sem til þekktu (það em margir Bandaríkja- menn sem hafa komið til Frakk- lands) hlógu. Þetta var hreinlega ósatt. Frakkar em hreint ekkert vingjamlegir, það vita þeir sem hafa verið í Frakklandi og verslað þar. Þjónustulund franskra verslun- armanna er með ólíkindum lítil. „Hvað ert þú að gera hér inni ( búðinni minni?" segir augnaráðið. „Nei, hér tölum við alls ekki ensku." Nei, Frökkum væri nær að kenna sínum að vera vingjamlegir. ítalir gætu miklu frekar notað slagorðið, t.d. „Friendly Italy", um það em allir sammála. Það þýðir ekkert að látast. Hver þjóð hefur sína ímynd í augum ann- arrar. Frakkar em hátæknivædd þjóð — kjamorkutækni, Concord, tölvutækni o.s.frv. en ekki ( augum Bandaríkjamanna. Frakkland er í augum þeirra frekar matur, vín og jafnvel rómantík." Alþjóðaviðskipti Ekki fór hjá því að Kotler gagn- rýndi nokkuð Norðmenn, eftir því sem hann hafði þekkingu til. Hann fékk því þá skýringu að Norðmenn væm svo „lítil þjóð“. Hann sagði: „Eiga litlar þjóðir erfiðara upp- dráttar í alþjóðaviðskiptum en stórar? Nei, það er eitthvað annað. Lítum á Singapore, Hong Kong eða Taiwan. Það liggur við að leiðtogar stórþjóðanna fari hjá sér við saman- burðinn. Litlar þjóðir geta gert það mjög gott í alþjóðaviðskiptum ef hvatning er fyrir hendi innanlands. Spumingin er þó sú, hvemig geta Norðmenn markaðssett framleiðslu sína á erlendum mörkuðum og haft • • MYNDBONDIN sem þú hefur beðið eftir, koma á myndbandaleigur í dag THE BERLIN AFFAIR Louise kynnist japönsku stúlkunni Mitsuko í listmál- araskóla. Samband þeirra verður brátt mjög náið og fyrr en varir em þær komnar í ástarsamband. Eiginmaður Louise fellur fyrir kyntöfmm japönsku stúlkunnar, þegar hann reynir að slita sambandi kvennanna. En geta þrjár manneskjur lifað hamingju- sömu lífí í sl(ku ástarsambandi? THE COLOR PURPLE er gerð eftir samnefndri skáld- sögu, sem hefur komið út ( íslenskri þýðingu, (Purpura- liturinn). Myndin fjallar um Hf stúlkunnar Celie (Whoopi Goldberg), sem er ung gefin að heiman ekkli nokkrum, sem hún kallar „Mister“. Vist- in hjá „Mister" er sem víti á jörð fyrir Celie. En þegar Celie er alveg við það að brotna niöur, þá kemur blues söng- konan Shug Avery inn ( l(f hennar og stappar í hana stál- ínu. -Útnefnd til 11 Óskarsverðlauna. Leikið rétta leikinn — takið mynd frá TEFLI Armúla 36, 108 Reykjavík, sími 686250. hagnað af útflutningnum? í því til- felli má íhuga vandamál sem Norðmenn eiga oft við að etja, s.s. háa skatta á fyrirtæki, tíð verkföll o.s.frv." Sinn er siðurinn ... Kotler varð nokkuð rætt um vel- gengni Japana í viðskiptum og hvað valdi: „Markaðsfærslan verður að vera þaulskipulögð — á japanska vísu. Hvað gera Bandaríkjamenn? Jú, þeir senda einn mann í eina viku og hann skilar því næst fullkominni skýrslu. En Japanir? Jú, þeir senda tíu manns í tíu vikur — með mynda- vélar. Útsendaramir koma síðan heim og þeir vita allt. Japanir horfa ekki á landamæri, þeir horfa á hémð innan landa- mæra. Mexíkó er ríki, sem rambar á barmi gjaldþrots, þar er mikil fá- tækt og erfíð lífsskiljrrði. Sá sem ætlar að framleiða til útflutnings til Bandaríkjanna Ktur til Mexíkó og sér tollfijálst svæði („Free- zone“) við landamærin að Texas. Þar er háþróaður iðnaður. Sama er upp á teningnum í Sao Paulo í Brasilíu. Japanir einsettu sér að búa til betri bíl en Volkswagen og þeim tókst það. Hvað gerðu þeir næst? Þeir fóm ekki með bílinn til Banda- ríkjanna, vegna þess að þeir vissu, að ef hann fullnægði ekki kröfum Bandaríkjamanna þá ætti hann sér ekki endurkomu auðið. Þeir reyndu því fyrst fyrir sér í Ástralíu vegna þess að Ástralía er á margan hátt mjög svipað land og Bandaríkin og hentar því sem tilraunamarkaður. Kæmu gallar í ljós í Ástralíu væri lítil hætta á ferðum, aðeins þyrfti að bæta úr ágöllunum og halda áfram með markaðssetninguna. Bíllinn reyndist vel í Astralíu. En var hann nógu góður fyrir Bandaríkjamarkað? Já, en ekki ftill- komlega. Hvert var næsta skref? Japanir ákváðu að reyna fyrir sér innan tiltekinna svæða í Banda- ríkjunum, hætta ekki öllu, en velja það svæði sem væri best með tilliti til hugsanlegra áfalla. Hvar var hentugur markaður fyrir slíka til- raun? Vom það borgir eins og New York, Chicago, landshlutar, austur- ströndin, suðurríkin, miðríkin eða vesturströndin? Japanir völdu vest- urströndina og þá einkum San Fransisco og Los Angeles-svæðið. Ástæðan var einfaldlega sú að þar býr svo margt fólk af japönsku bergi brotið að þeir áttu vísan mark- að, sem hentaði (tilrauninni, en var ekki áhættumarkaður. Svipað var upp á teningnum þeg- ar hið fræga fyrírtæki Cannon ákvað að setja á markað ljósritunar- vél. Gallinn var bara sá, að aðrar ljósritunarvélar „áttu“ svo til allan markaðinn. En var það svo? Nei, ekki alveg. Japanimir „tíu með ljós- myndavélamar" kynntu sér markaðinn, lærðu hann utanað. Að ráði markaðsfræðinganna var lítil ljósritunarvél framleidd. Henni var ekki ætlaður markaður í stómm fyrirtækjum heldur fyrst og fremst þeim litlu. Einn eða tveir framleið- endur „áttu“ stóm fyrírtækin svo Cannon sá ekki ástæðu til að fram- leiða ljósritunarvélar fyrír stór fyrírtæki, heldur þau smærri. Og Japanimir miðuðu enn frekar. Þeir fóm ekki í stóm borgimar heldur þær litlu, sem Rolex hafði vanrækt að mestu leyti. Dag einn vöknuðu stórir fram- leiðendur ljósritunarvéla upp með andfælum. „Við emm umkringdir. Cannon er allt í kringum okkur og sækir nú með hraðbyri inn í stóm borgimar." Cannon varð stórveldi í ljósritunarvélaframleiðslu án þess að nokkur yrði þess var.“ Fjármögnun Þegar útflutningur stendur fyrír dymm verður að taka fjármálin föstum tökum. Hvaða möguleikar em fyrír hendi að mati Kotlers? „Hvemig er mögulegt að mark- aðssetja vömr án þess að hafa milljónir dollara í veganesti? Það er einfaldlega ekki hægt. Fjármag- nið er undirstaða alls. Það er svo annað mál að leiðimar inn á mark-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.