Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 Morgunblaðið/Úlfar Steypubílar Steiniðjunnar hf. á hafnarbakkanum á ísafirði. Steypustöðvamálið á Vestfjörðum: Borgað með steypu í Bolungarvík eða okrað í Reykjavík - segir Halldór Antonsson hjá Steiniðjunni „OKKUR var boðin steypa á svo hagstæðu verði að því var ekki hægt að hafna. Mér sýnist mis- munurinn á verði Steiniðjunnar og BM Vallár vera um 700-1000 krónur rúmmetrinn, eða alls nm ein milljón króna. En steypusala til okkar er aðeins helmingur af heildarsölu BM Vallár hér í Bol- ungarvík," sagði Stefán Vetur- liðason, verkfræðingur þjá Jóni Friðgeiri Einarssyni, verktaka í Bolungavík, sem sér um þær varnarliðsframkvæmdir á Bola- fjalli sem nú eru að hefjast. Steiniðjan á ísafirði hefur mót- mælt uppsetningu steypustöðvar BM Vallár í Bolungarvík. Heima- menn binda hins vegar vonir við að hin nýja steypustöð festist í sessi á staðnum. Eins og kunnugt er var skipað upp á ísafirði á laugardaginn hluta þeirrar steypustöðvar sem BM Vallá hyggst setja upp í Bolungarvík, en steypubílar frá steypustöðinni Steiniðjunni á ísafírði voru notaðir til að koma í veg fyrir að hægt væri að flytja búnaðinn þangað. Fimm steypubílar girtu af svæðið þar sem hluta steypustöðvarinnar var skipað upp og ekki fyrr en á sunnudagskvöld að hægt var að komast að svæðinu. Með þessu voru Steiniðjumenn á ísafírði að mót- mæla því að fyrirtæki frá Reykjavík setti upp steypustöð þar vestra rétt yfír sumartímann. „Við teljum það óeðlilegt að það sé hirt af okkur sumarvinnan, sú vinna sem við lif- um á,“ sagði Halldór Antonsson hjá Steiniðjunni í samtali við Morgun- blaðið í gær. Gagnrýnt hefur verið að verð Steiniðjunnar væri 6% hærra en skráð verð í Reykjavík, en ástæður þess sagði Halldór þær að markaðurinn væri lítill og fram- kvæmdatlmabilið stutt. „Það er rétt að við getum ekki boðið sama verð, eða jafnmikinn afslátt og margir aðrir, og það grundvallast á því að við framleiðum aðeins 3.600 rúm- metra á ári, en stöðvar eins og BM Vallá að minnsta kosti 30.000 rúm- metra. Hins vegar var verðið hjá okkur í fyrra 12% hærra en í Reykjavík en ekki nema 6% núna sem sýnir að við erum á leið í rétta átt, þótt ekki sé gott að segja hvað nú verður. En það vil ég leyfa mér að fullyrða að annaðhvort borgar BM Vallá með steypunni I Bolung- arvík, eða hún okrar á henni í Reykjavík, því kostnaðurinn við að flytja möl frá Reykjavík og setja upp steypustöð vegna 2000 rúm- metra steypusölu er slíkur að þetta er ekki raunhæft verð,“ sagði Hall- dór. „Við höfum ekki reynt neitt sér- staklega að ná samningum við Steiniðjuna, þeir gefa út verðskrá og hafa ekki verið til viðræðu um neitt annað hingað til,“ sagði Stefán Veturliðason í Bolungarvík. Hann sagði að BM Vallá hefði tilkynnt Jóni Friðgeiri Einarssyni, verktaka, að í bígerð væri að setja upp steypu- stöð í Bolungarvík vegna vegsvala, þar sem yfírbyggja ætti veginn sem verið væri að byggja í Óshlíðinni, milli Bolungavíkur og Hnífsdals. Því hefði verktökum á svæðinu ver- ið boðin steypa til sölu á mun lægra verði en þekktist frá Steiniðjunni á ísafírði. Hann sagði að steypusalan vegna radarstöðvarinnar væri innan við helmingur þess sem BM Vallá myndi steypa í Bolungarvík í sum- ar, aðrar framkvæmdir væru m.a. hafnargerð og skólabygging, auk vegsvalanna. Stefán sagði það von Bolvíkinga að hin nýja steypustöð festist í sessi á staðnum. Guðmundur Kristjánsson, bæjar- stjóri í Bolungarvík, sagði í samtali við Morgunblaðið að sveitarfélögin fyrir vestan hefðu unnið að upp- byggingu ákveðinnar byggðastefnu og atvinnumálastefnu á svæðinu og sú stefna samræmdist í raun ekki því að treysta á skammtíma- þjónustu. Hins vegar væri vöruverð og verð á þjónustu líka byggðamál og í þessu tilviki myndi það heldur ekki samrýmast byggðastefnu að byggja múr fyrir fyrirtæki sem ekki virtist með samkeppnisfært verð. Guðmundur sagði að bæjar- stjómin hefði úthlutað BM Vallá lóð undir steypustöðina, en kæmi að öðru leyti ekkert inn í þetta mál. AF INNLENDUM VETTVANGI eftir AGNESI BRAGADÓTTUR Slj órnarmy ndun: Deyfð og áhugaleysi einkennir viðræðurnar Vaxandi vantrú sjálfstæöis- og framsóknarmanna á að stjórnarmyndun takist SJÓNARMIÐ innan flokkanna þríggja, sem standa í stjóraar- myndunarviðræðum eru mismunandi til þess hvort það tekst um eða uppúr næstu helgi að mynda nýja ríkisstjórn. Sjálfstæðismenn segjast ekki sjá betur en áhugi framsóknar- manna sé afar takmarkaður. Steingrímur Hermannsson hafi látið sig hverfa úr bænum á sunnudag og faríð í laxveiði og við veiðar hafi hann verið áfram í gær. Halldór Ásgríms- son sé á hvalveiðiráðstefnunni í Bretlandi og Guðmundur Bjarnason sé því staðgengill beggja í viðræðunum, án þess að hafa fullt umboð til samn- inga. Alþýðuflokksmenn segjast aftur á móti hafa meira yfir vinnubrögðum sjálfstæðis- manna að kvarta en framsókn- armanna, en segjast engu að síður haga sínum störfum með þeim hætti að hægt verði að mynda nýja ríkisstjóm um næstu helgi. Þeir virðast þó einir á þeim buxunum, þar sem vaxandi vantrúar gætir nú í röðum sjálfstæðis- og fram- sóknarmanna á að það takist yfir höfuð að mynda ríkisstjórn þessara þriggja flokka. Það kom fram i máli sjálfstæðis- manna í gær að þeir eru mjög efins um að þessi tilraun takist og greinilegrar vantrúar gætti einnig í máli framsóknar- manna. Þeir sem fjallað hafa um hug- myndir um uppstokkun ráðuneyt- anna hittust á nýjan leik á fundi í gærmorgun og aftur síðdegis. Þar var meiningin að komast að sameiginlegri niðurstöðu til þess að leggja fyrir þingflokksfundi í dag, en það tókst ekki. Hittast þeir því á nýjan leik kl. 8 árdegis í dag, þar sem reynt verður til þrautar að komast að sameigin- legpn niðurstöðu til þess að kynna þingflokkunum síðar í dag. Greinilegt er að þreyta og pirring- ur er kominn í menn og telja margir þeirra að þessar viðræður dragist óhóflega á langinn, án þess að sýnilega miði í samkomu- lagsátt. Alþýðuflokksmenn segja að ekki bæti úr skák að samkomu- lag það sem tekist hafí á milli formannanna um fyrstu efna- hagsaðgerðir standi ekki lengur, og að þær ráðstafanir sem sam- komulag sé um að grípa til séu hvorki fugl né fískur. Efasemdir um að þetta takist fyrir vikulok Sjálfstæðismenn og framsókn- armenn töldu fyrir síðustu helgi að hægt yrði að halda flokksráðs- fundi á föstudag, þar sem mál- efnasamningur yrði lagður fyrir, en það var að heyra á máli þeirra í gær, að þeir teldu einsýnt að slíkt tækist ekki. Alþýðuflokks- menn halda fast við þann ásetning að ljúka störfum í vikunni, svo hægt verði að halda þessa fundi á föstudag og laugardag. Alþýðuflokksmenn telja súrt í broti að ekki hafi fengist á blaði tillögur Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokks um uppstokkun ráðuneyta og samein- ingu. Segjast þeir hafa beðið um slíkar tillögur skriflega þegar sl. miðvikudag, en þær hafí enn ekki borist. Þeir kynntu í gær tillögur sínar um uppstokkun og þar er, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, gerð tillaga um sérstakt atvinnumálaráðuneyti, sem sam- eini ráðuneyti landbúnaðar og sjávarútvegs, ásamt öðrum at- vinnugreinum sem ekki heyra undir aðra. Ekki er búist við því að Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur fallist á slíka til- lögu og gerir Alþýðuflokkur þá til vara tillögu um að sjávarút- vegsráðuneyti verði áfram sér- stakt ráðuneyti, en landbúnaður heyri undir byggðaráðuneyti, ásamt samgöngu- sveitarstjóma- og umhverfismálum. Fremur er búist við að samkomulag geti tek- ist um slíka tilhögun. Það samkomulag sem rætt var um að hefði tekist í grófum drátt- um um fyrstu aðgerðir í efnahags- málum virðist ekki vera jafn klappað og klárt og látið hefur verið að liggja. Eins og komið hefur fram í fréttum var sagt fullum fetum að formenn hefðu náð samkomulagi um efnahagsað- gerðir sem afla myndu ríkiskass- anum eins milljarðs, það sem eftir lifir árs. Nú munu menn hins veg- ar fallnir frá ákveðnum hugmynd- um um tekjuöflun, svo sem bifreiðaeignaskatti og að veruleg- um hluta frá afnámi undanþága frá söluskatti. Hugmyndir voru uppi um að afnema undanþágur frá söluskatti hjá þjónustufyrir- tækjum lögfræðinga, endurskoð- enda, verkfræðinga, arkítekta, ráðgjafa og fleiri, en fallið hefur verið frá þeim hugmyndum. Samskonar hugmyndir voru uppi um veitingarekstur, en það hefur einnig verið fallið frá þeim. Al- þýðuflokksmenn telja því að sjálfstæðismenn hafí horfíð frá samkomulagi sem þegar hafí ver- ið gert og framsóknarmenn einnig að hluta. Því fer fjarri að fyrstu aðgerðir eins og þær blasa við nú geti aflað ríkissjóði milljarðs það sem eftir er ársins. Gert var ráð fyrir að bífreiöaeignaskatturinn aflaði 300 milljóna á því hálfa ári sem eftir er og fækkun undan- þága frá söluskatti 400 milljóna. Nú er áætlað að einungis um helmingur undanþága frá sölu- skatti verði afnuminn, þannig að á næstu 6 mánuðum ætti slíkt að afla ríkissjóði 200 milljóna króna. Samkvæmt þessu hafa stjóm- málaforingjamir því einungis komið sér saman um aðgerðir sem hafa í för með sér að aflað verður hálfs milljarðs í stað eins. Steingrímur stingur upp á bensínskatti Foringjamir leita nú annarra fjáröflunarleiða og hefur morgun- blaðið heimildir fyrir því að Steingrímur Hermannsson hafí reifað hugmynd þess efnis að sér- stakur bensínskattur verði lagður á og að sjálfstæðismenn vilji láta kanna hvemig það kæmi út að leggja 5% söluskatt á alla mat- vöm og aðra þá vöm og þjónustu sem undanþegin er söluskatti. Telja menn af og frá að samkomu- lag geti tekist um slíkar aðgerðir, sem muni, að mati Alþýðuflokks- manna þegar leiða til hækkunar framfærsluvísitölu og þar með víxlhækkana verðlags og kaup- gjalds. Það er raunar vandkvæðum bundið að geta sér til um hvort eða hvenær ný ríkisstjóm lítur dagsins ljós og með hvaða hætti hún verður skipuð. Það er eins og viljinn til þess að ljúka þessu starfí sé heldur takmarkaður. Sjávarútvegsráðuneyt- ið í húsnæði útvarpsins Sjávarútvegsráðuneytið mun fá aðsetur í húsi þvi sem hingað til hefur hýst starfsemi Rikisút- varpsins. Helminginn af húsnæðinu fær sjávarútvegsráðuneytið undir skrif- stofur sínar en hinn helmingurinn skiptist jafnt á milli tveggja stofn- ana ráðuneytisins, Hafrannsóknar- stofnunar og Rannsóknarstofnunar fískiðnaðarins. Að sögn Gríms Valdimarssonar forstöðumanns Rannsóknarstofn- unar fískiðnaðarins er þetta mjög kærkomin stækkun á húsnæði þess- ara stofnana sem fá nú sameigin- legt bókasafn og mötuneyti. Ekki er ákveðið hvenær ráðu- neytið flytur en líklegt er að það verði í mars á næsta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.