Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 23 3. Breyttar aðferðir við verktakaval Áhugi verktaka á því að koma á samræmdum og hertum reglum um verktakaval hefur aukist verulega á síðustu árum. Hið sama er að segja um ýmsa verkkaupa, bæði opinbera og aðra, enda eru miklir hagsmunir þeirra í húfí. í þessu sambandi má nefna Vegagerð ríkisins, Reykjavík- urborg og ýmsar stofnanir í eigu borgarinnar, Húsnæðisstofnun ríkisins o.fl. Þá hefur Fjárlaga- og hagsýslustofnun f.h. ríkisins látið þessi mál nokkuð til sín taka á und- anfömum mánuðum. Afstaða verktakanna til þessa máls er nokkuð mismunandi og ræðst af ýmsum þáttum s.s. stærð, staðsetningu og starfssviði fýrir- tækja. Stærri verktakafyrirtækin (sem flest eru staðsett á sv-homi landsins) virðast frekar kjósa hertar reglur en hin minni og áberandi er að mörg landsbyggðarfyrirtæki virðast áfjáðari í reglur sem hindrað geta utanaðkomandi fyrirtæki í að bjóða í verk í þeirra heimabyggð. Hér er því um vandasamt mál að ræða, sem erfítt getur verið að ná fullri samstöðu um. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að taka tillit til byggðasjónarmiða og að tryggja hagsmuni smærri fyrirtækja til jafns við þau stærri. Hér að neðan em settar fram nokkrar hugmjmdir sem gætu kom- ið til greina, þegar rætt er um að breyta þeim reglum sem nú em al- mennt notaðar við útboð og val verktaka. 1. Að forval fari fram við öll verk sem em stærri en 15—20 millj. kr. 2. Að opin útboð verði einungis notuð við minni verk (0—15 millj. kr.) 3. Að lokuð útboð verði ekki notuð í framkvæmdum ríkisins nema í sérstökum tilvikum. 4. Að takmörkuð útboð verði við- höfð þar sem hentugt þykir, enda verði samráð haft við hagsmuna- samtök verktaka, þegar þau em ákveðin. Atriði sem þessi gætu stuðlað að aukinni festu og þar með dregið úr þeirri ævintýramennsku og því fúski sem viðgengist hefur hér á landi í þessari starfsemi. Betri hagur verk- takaiðnaðaríns mun að sjálfsögðu skila þjóðinni bættum lífslqomm er fram líða stundir. Höfundur er verkfræðingur og framkvæmdastjóri Verktakasam- bands íslands. Hátí ðarguðsþj ónusta í Bæjarkirkju í Borgarfirði KIRKJAN á Bæ í Bæjarsveit í Borgarfirði verður 20 ára 2. júlí nk. Af því tilefni verð- ur hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni sunnudaginn 28. júní nk. kl. 14.00. Að henni lokinni verða kaffiveitingar í félagsheimilinu Brún. Að undanfömu hafa staðið yfir framkvæmdir við kirkjuna. Lokið hefur verið við gerð stauragirðing- ar umhverfis kirkjugarðinn og verið er að byggja sáluhlið, eftir teikningu arkitekts kirkjunnar, Halldórs H. Jónssonar. Lagðir hafa verið gangstígar í garðinn samkvæmt endurbættu skipulagi og frárennslislögnin hefur verið endumýjuð. Kirkjan hefur einnig verið máluð að utan. í Bæjarkirkju. EFÞÚ VIIIVERA VISS... Pú hefur tvær megin ástæður til þess að koma við í Lands- bankanum áður en þú ferð til útlanda. Sú fyrri er Gjaldeyrisþjónusta Landsbankans. Á yfir 40 stöðum á landinu afgreiðum við gjaldmiðla allra helstu viðskiptalanda okkar í seðlum, ferðatékkum og ávís- unum. Auk algengustu teg- unda, s.s. dollara, punda og marka, selur Landsbankinn t.d. hollenskarflórínur, portú- galska escudos, ítalskar lírur og svissneska franka í ferða- tékkum. Með því að kaupa gjaldeyri þess lands sem ferðast á til, sparast óþarfa kostnaður og fyrirhöfn. Síðari ástæðan fyrir heimsókn íLandsbankann er Ferðatrygging Sjóvá: Mörg óhöpp geta hent á ferðalögum, ferðatrygging Sjóvá ersvarið. Hún innifelur: - Ferðaslysatryggingu, - Ferðasjúkratryggingu, - Ferðarofstryggingu, - Farangurstryggingu, - SOS-neyðarþjónustu. Ferðatrygging Sjóvá er því einföld og örugg. Gjaldeyrir úr Landsbankanum - ferðatrygging frá Sjóvá, - eftir það getur þú verið viss. SJÓVfl £ íslands TRYGGT ER vel TRYGGT ÆtLJm Banki allra landsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.