Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 25 Markús Örn Antonsson, útvarpssljóri: Hækkandi hlutfall iiiulendrar dagskrár „UMMÆLI menntamálaráðherra á vígsluhátíðinni stangast á við það sem hann lét hafa eftir sér í sjónvarpsviðtali síðar, þar sem hann sagði að íslenska sjónvarpið hefði yfirburði í vandaðri dag- skrárgerð miðað við það sem hann hefði séð erlendis," sagði Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri í samtali við Morgunblaðið, um þau ummæli Sverris Her- mannssonar að íslensku sjón- varpsstöðvamar helltu yfir landsmenn efni úr erlendum lág- menningarruslafötum. „Ég tel að Sverrir hafi með þess- um ummælum átt við það ástand, sem almennt ríkir á markaðnum, en það er mjög erfitt fyrir litlar stöðvar og lítil lönd að standa und- ir eigin efni og er það almennt talið þolanlegt að ná 50% markinu," sagði Markús Öm. Að sögn Mark- úsar hefur hlutfall innlends dag- skrárefnis undanfarin ár verið 32-36%, en farið hækkandi undan- farið og að sögn hans vel yfir 40% síðasta ár. Markús gat þess einnig, að ráðherra hefði nýverið samþykkt hækkun afnotagjalda og um leið mælst til þess að hlutfall innlends dagskrárefnis yrði um 50%. Sagði Markús, að reynt yrði að verða við þeim tilmælum. „Ég tel hins vegar út í hött að álykta sem svo, að þótt dagskrár- eftii sé erlent, að það sé eitthvað lágmenningarrusl; margt af því er- lenda efni, sem við höfum haft á boðstólum, er afbragðsefni," sagði Markús að lokum. Jón Ottar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2: Ummæli menntamála- ráðherra dæma sig sjálf „ÞESSI ummæli eru fyrir neðan allar hellur hjá menntamálaráð- herra og dæma sig í raun sjálf. Vona ég að næsti menntamála- ráðherra hafi meiri skilning á því um hvað hlutirnir snúast i sjónvarpsmálum,“ sagði Jón Ótt- ar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri á Stöð 2 í tilefni af ummælum Sverris Hermannssonar mennta- málaráðherra. Jón Óttar sagði, að sem mennta- málaráðherra ætti Sverrir að vita það, að á auglýsingamarkaðnum væru um 300 milljónir fyrir sjón- varpsstöðvamar og ef því væri skipt í tvennt, kæmi ljós, að hvor stöð hefði um 150 milljónir í auglýsinga- tekjur. „Ef við gemm ráð fyrir því, að öllum auglýsingatekjunum sé Hassolíumálið: Rannsókn miðar vel HÆSTIRÉTTUR hefur stað- fest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einum þeirra þriggja manna, sem handteknir voru hér á landi fyrir smygl á has- solíu. Hinir tveir áfrýjuðu ekki úrskurðunum, sem í öllum til- vikum kváðu á um 30 daga gæsluvarðhald. Rannsókn máls- ins miðar vel. Á hvítasunnudag, 7. júní, vom tveir íslendingar og einn Englend- ingur handteknir í Reykjavík og fundust í fómm þeirra 750 grömm af hassolíu, að verðmæti um 2,5 milljónir króna. Er það mesta magn hassolíu sem fundist hefur í einu. Olíunni hafði Englending- urinn smyglað hingað til lands í verjum sem hann gleypti. Menn- imir þrír vom allir úrskurðaðir í 30 daga gæsluvarðhald og áfrýj- aði einn þeirra til Hæstaréttar, sem hefur nú staðfest úrskurðinn. Auk mannanna þriggja, sem handteknir vom hér á landi, var einn íslendingur handtekinn í Manchester í Englandi. Hann mun hafa séð um að kaupa hassolíuna í Marokkó og fengið Englending- inn til að smygla henni hingað til Náttfari seldi í Hull fyrir 63 krónur kg. NÁTTFARI RE seldi í HuU í gærmorgun afla sinn fyrir 6.3 milljónir kfona. Afli hans var 100 tonn og var meðalverð rúmlega 63 krónur. Fyrir helgi seldi Ásbjöm RE í Boulogne í Frakklandi 170 tonn fyrir 9.1 milljón króna. Meðalverð fyrir aflann var tæplega 54 krónur fyrir hvert kfló. lands. Maðurinn er enn í haldi lögreglunnar í Manchester, en ólíklegt þykir að farið verði fram á framsal hans. Að sögn starfs- manna fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavík miðar rannsókn málsins vel á veg. varið til innlendrar dagskrárgerðar, sem er náttúrlega út í hött, þá höf- um við annars vegar efni á því að framleiða um 3 kvikmyndir eða 300 klukkustundir af ódyrasta efni. Við sendum hins vegar út um 3.700 klukkustundir á ári, þ.a. þetta er ekki raunhæft." Taldi Jón Óttar að innlend dagskrárgerð gæti aldrei orðið meira en 10-20%. Að mati Jóns era það draumórar að auka innlenda dagskrárgerð um þetta, nema til komi erlent fjár- magn, þar eð Stöð 2 vilji ekki leita í vasa skattborgaranna. „Hvorki Sverrir Hermannsson né nokkur annar ráðamaður hafa ýtt þar úr vör og emm við sjálfir að kanna hvort við getum fengið erlent fjár- magn í dagskrárgerð. Jón vildi að síðustu vísa á bug að erlent efni Stöðvar 2 væri ein- hver lágmenning; um væri að ræða margverðlaunaða þætti, sem alls staðar hefðu hlotið viðurkenningu. Jeppinn varð alelda á skammri stundu og er gjöró- nýtur. Á innfelldu myndinni sést fólksbifreiðin, sem er einnig mjög illa farin. Árekstur á Kjalarnesi: Fólk bjargaðist naum- lega úr brennandi jeppa MJÖG harður árekstur varð á Kjalarnesi á laugardagskvöld og þykir mikil mildi að ekki varð stórslys. Áreksturinn varð með þeim hætti, að jeppabifreið og fólksbif- reið var ekið norður Vesturlands- veg. Jeppanum var síðan sveigt yfir veginn, að heimreið bæjarins Útkots. Ökumaður fólksbifreiðar- innar ætlaði sér að aka fram úr jeppanum, en þegar honum var sveigt til hliðar skall fólksbifreiðin í hlið hans. Báðar bifreiðamar köst- uðust út fyrir veginn og eldur kom samstundis upp í jeppanum, enda skall fólksbifreiðin beint á bensín- tank hans. í jeppanum vom fullorð- in hjón og bamabam þeirra og komust þau naumlega út úr bifreið- inni áður en hún varð alelda. Þau munu hafa fengið bmnasár, en meiðsli þeirra em þó ekki alvarleg. í fólksbifreiðinni var einn maður og hlaut hann einnig meiðsli, en ekki alvarleg. Bóndi úr nágrenninu kom fljót- lega á vettvang með tvö duft- slökkvitæki og reyndi að hemja eldinn í jeppanum, en fékk ekki við neitt ráðið. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var bifreiðin alelda og er gjörónýt. Fólksbifreiðin skemmd- ist einnig mjög mikið í árekstrinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.