Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 49 Minning: Eyrún Gunnarsdótt- ir, Bolungarvík Fædd 31. október 1956 Dáin 17. júní 1987 Kveðja frá Brautarkonum 17. júní rann upp bjartur og fag- ur yfir bæinn okkar, Bolungarvík, fánar voru hvarvetna dregnir að húni á þessum hátíðisdagi, en skyndilega var eins og ský drægi fyrir sólu, fánamir sigu niður í hálfa stöng, sú fregn barst á þess- um fagra degi að hún Eyrún væri dáin. Þrátt fyrir að við vissum öll um hennar hörðu baráttu undanfama mánuði kom höggið eins og reiðar- slag. Hún sem var svo ung, full bjartsýni og vonar og var svo ákveð- in í að láta sér batna, þessi glaða og elskulega stúlka, sem átti svo mikið til að lifa fyrir: stundum skil- ur maður ekki ráðstöfun guðs og spyijum í sífellu af hveiju hún. En vegir guðs em órannsakan- legir og hann einn veit um tilgang- inn, kannski er ekkert gott fyrir okkur mennina að vita hvað fram- tíðin ber í skauti sér. Við Brautar- konur þökkum henni samfylgdina og hvað hún var alltaf fús til starfa, hún var ein af þessum fáu er bera í sér sannan félagsanda og starfaði af hugsjón í anda félagsins. Það er gæfa að fá að kynnast og starfa með slíku fólki. Eftirlifandi eiginmanni, bömum, foreldmm og öðm venslafólki, send- um við innilegar samúðarkveðjur, algóður guð styrki ykkur og lýsi fram á bjartari veg. Mér finnst við hæfi að enda þess- ar fáu línur með nokkmm orðum úr lokasöng kvenfélagsins: „Megi alheims guð oss benda beina leið á takmarkið." Hafi Eyrún þökk fyrir allt og allt. Fyrir hönd Brautarkvenna, — Martha Sveinbjörnsdóttir í dag, 23. júní, verður til moldar borin elskuleg systir okkar Eyrún Gunnarsdóttir. Hún lést í Landspít- alanum 17. júní sl. Erfitt er að sjá á bak góðri syst- ur og erfítt er að skilja heiminn á svona stundu þegar ung kona er kölluð á brott frá eiginmanni og ungum bömum. Við þökkum henni samfylgdina og allar þær ánægjustundir sem við fengum að eiga með henni. Megi góður guð vemda og styrkja eigin- mann hennar og böm, foreldra okkar, bræður og aðra aðstandend- ur. Um leið og við biðjum algóðan guð að blessa allar minningar um hana, viljum við kveðja hana með bæn sem við lærðum í foreldrahús- um. erfíðleikum lífsins? Fátt verður um svör, en ég er ekki í nokkmm vafa um að fyrirbænir hafa þar mikið að segja. Hún Eyrún stóð ekki ein hér í heimi. Hún fékk ómetanlega hjálp og aðstoð frá foreldmm, tengdaforeldram og vinum sem segja má að hafi breitt sig yfir hana sem þau framast máttu. En fyrst og síðast var það ástkær eigin- maður hennar sem á einstæðan hátt stóð við hlið hennar og gerði allt sem í mannlegu valdi stóð til að létta sjúkdómsstríðið. í sjö langa og erfíða mánuði vék hann ekki frá henni að heitið geti. Það er dásam- legt að verða vitni að slíkum kærleika og þolgæði þegar á reyn- ir. Nú horfir hann á eftir eiginkon- unni frá þremur ungum bömum, slíkt er erfitt að sætta sig við og alls ekki hægt að skilja. En hvað kemur mér fyrst í hug þegar mig langar til að minnast Eyrúnar frænku minnar með fá- tæklegum orðum? Því er auðsvarað: Brosið. Ég minnist lítillar brosandi stúlku sem hoppaði niður Vitastíg- inn til að bætast í hóp frændsystk- ina sinna eða koma til ömmu. Ég minnist brosandi skólastúlku, ham- ingjusamrar eiginkonu og um- hyggjusamrar móður. Hún var svo sannarlega jákvæð manneskja í þess orðs fyllstu merkingu og skilur þess vegna eftir góðar minningar. Að leiðarlokum veit ég að hún gæti tekið undir með skáldkonunni breiðfirsku og sagt við ástvini sína: Guð minn, gefðu þinn frið gleddu og blessaðu þá, sem að mér lögðu lið. Ljósið kveiktu mér hjá. Guð blessi minningu Eyrúnar Gunnarsdóttur og gefí þeim sem syrgja styrk til að brosa gegnum tárin. Helga Svana Ólafsdóttir Nú legg ég augun aftur, ó, guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjöm Egilsson) Björk og Magga Ég trúi á Guð, þótt titri hjartað veika og tárin blindi augna minna ljós, ég trúi, þótt mér trúin finnist reika og titra líkt og stormi slegin rós, ég trúi, þvi að allt er annars farið og ekkert, sem er mitt, er lengur til, og lífíð sjálft er orðið eins og skarið, svo ég sé varla handa minna skil. (M. Joch. Dimmt hefur trúarskáldinu okk- ar verið fyrir augum þegar hann samdi þetta vers og dimmt er fyrir augum ástvina Eyrúnar Gunnars- dóttur þessa vordaga. Erfíðu stríði er lokið, stríði sem háð var af svo mikilli hugprýði og stillingu að aðdáun vekur. Hvaðan fær fólk þennan ólýsanlega kjark sem margir virðast öðlast í mestu Hver er tilgangurinn? Maður spyr sjálfan sig aftur og aftur þessarar spumingar, þegar ung kona í blóma lífsins er tekin burt frá eiginmanni og þremur ungum bömum. Það er ekki hægt að koma auga á nokkum tilgang, en við stöndum núna frammi fyrir þeirri staðreynd, að Eyrún er dáin. Staðreynd sem við verðum að sætta okkur við, hversu erfitt sem það er. Eyrún Gunnarsdóttir, tengda- dóttir okkar og mágkona, fæddist í Bolungarvík 31. október 1956. Foreldrar hennar em María Ólafs- dóttir og Gunnar Júl Egilsson, Völusteinsstræti 6, Bolungarvík. Eyrún er þriðja í röðinni af fimm bömum þeirra Maríu og Gunnars. Systkini hennar era: Björk, gift Matthíasi Kristinssyni. Þau búa ásamt fjóram bömum sínum á Borðeyri. Margrét, gift Asgeiri Sól- bergssyni. Þau búa hér í Bolung- arvík og eiga tvö böm. Bræður hennar, Egill og Hjálmar, búa enn í foreldrahúsum. 2. febrúar 1980 giftust þau Ey- rún og Jón Guðni Guðmundsson frá Sólbergi í Bolungarvík. Jón Guðni er sonur Fríðu Pétursdóttur og Guðmundar B. Jónssonar, eini son- urinn í hópi fimm dætra, sem era þær Björg, Elísabet, Asa, Ragna og Ingibjörg. Eyrún var því eina tengdadóttirin í okkar fjölskyldu og það skipaði henni dálítið sérstakan sess hjá okkur. Nonni okkar er hestamaður af lífí og sál og hann var svo einstak- lega heppinn, að Eyrún féll fyrir hestunum líka, þegar hann kynnti hana fyrir þessum göfugu skepnum, og saman eyddu þau flestum tóm- stundum sínum í hestamennskuna og hafa haft mikið jmdi af því. Eyrún og Nonni byggðu sér hús í Hjallastræti 16 í Bolungarvík og vora mjög samhent og dugleg við að koma sér upp fallegu heimili þar fyrir sig og bömin sín, en þau eign- uðust þijú yndisleg böm: Lindu, sem er 9 ára, fædd 29. maí 1977, Guðmund Bjama, 6 ára, fæddan 6. ágúst 1980 og Gunnar Má, sem varð eins árs 23. maí sl. Framtíðin blasti við þeim björt og fögur, eldri bömin mjög efnileg og nýfæddur lítill drengur, þegar allt í einu dró ský fyrir sólina. Tveim dögum eftir 30. afmælisdag Ey- rúnar veiktist hún mjög mikið og var flutt í sjúkrahús í Reykjavík. Tíminn sem liðinn er síðan, 7Ú2 mánuður, hefur verið erfiður fyrir hana og Nonna, bömin og okkur öll. í þessum miklu erfiðleikum hafa þau Eyrún og Nonni staðið saman, sterk og ótrúlega dugleg. Hann hefur setið hjá henni á sjúkrahúsinu þessa löngu mánuði og saman vora þau svo bjartsýn og ákveðin í því, að henni myndi batna og hún kæmi heim í sumar. En að morgni 17. júní kom kall- ið, það var ekki hægt að beijast lengur á móti, og þó við skiljum ekki tilganginn, fyrst ekki var hægt að lækna hana, þá verðum við að vera þakklát fyrir, að hún fékk að fara í friði og án þess að þjást leng- ur. Okkur langar að senda hjartans þakkir til lækna og starfsfólks á Landspítala og Landakoti og allra annarra, sem hjálpað hafa í veikind- um Eyrúnar. Elsku Nonni okkar. Þú ert búinn að reyna mikið undanfama mánuði og við dáumst að því, hve þú hefur staðið þig vel. Þú hefur gert allt sem hægt var til að hjálpa Eyrúnu og það hefur verið ómetanlegt fyrir hana að hafa þig hjá sér aílan tímann, sem hún var svona veik. Við biðjum guð að gefa þér styrk til að bera þessa miklu sorg og við eram viss um, að bömin ykkar þijú eiga eftir að hjálpa þér mikið. Núna verðum við að kveðja Ey- rúnu. Við, tengdaforeldrar hennar, mágkonumar og fjölskyldur okkar þökkum henni fyrir samverana og hvað hún var alltaf sönn og heil- steypt. Við munum sakna hennar mikið, en huggum okkur við að núna líði henni vel og að tekið hafí verið á móti henni í nýjum heim- kynnum. Minningin um góða eiginkonu og móður lifir í hugum okkar allra. Tengdaforeldrar og mágkonur, Sólbergi, Bolungarvík. Blómastofa Friðfinm Suðurtandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- éinnlg um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, GUÐGEIRS JÓNSSONAR, bókbindara, sem lést 7. júní sl., fer fram frá Dómkirkjunni þann 24. júní kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess. Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðgeirsdóttír, Eyjólfur Jónsson, Einar Guðgeirsson, Jóna Einarsdóttir, Sigrún Frederiksen, Willy Frederiksen, Ásbjörg Guðgeirsdóttlr, Guðrún Einarsdóttir, Jón Guðgeirsson, Guðrún Jóhannesdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. —m^—^—mmmmmmmmmmmmmm^^^^^^^—mmmmmmm^^—i Eiginmaöur minn, + SIGFÚS JÓHANNSSON, Sléttahrauni 15, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, þriöjudaginn 23. júní kl. 15.00. Bára Guðbrandsdóttir. t MABEL SIGURJÓNSSON, Hátúni 10 b, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni 29. júní kl. 13.30. Vandamenn. Mágur okkar, JENS VITKOV, Keldgárdvej 113, 9600 AARS, Danmörku, andaðist á heimili sínu 21. júní. Jaröarförin fer fram 23. júní. Fyrir hönd eiginkonu hans Lilly Vitkov og fjölskyldu, Einar, Björn og Alfhild Nielsen. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug viö andlát og útför eingimanns míns, föður okkar, tengdafööur, afa og langafa, KRISTINS ÞORSTEINSSONAR, fyrrv. deildarstjóra, Hamarsstfg 22, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Lovfsa Pálsdóttlr, Gunnlaugur P. Kristinsson, Gunborg Kristinsson, Guðrún A. Kristinsdóttlr, Margrát H. Kristinsdóttir, Erik Hákansson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir til allra vina okkar fyrir þá samúö og hjálpsemi sem þið auðsýnduð okkur við andlát og útför móður okkar, GUNNHILDAR RYEL. Sérstakar þakkir færum við systrunum í Framtíðinni, Hlíf, Zonta- klúbb Akureyrar. Drottinn blessi ykkur öll. Herlúf, Richardt, Hjördfs, Ottó og aðrir aðstandendur. Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.