Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 JóhannesH. Guð- jónsson — Fæddur 28. júlí 1912 Dáinn 16. júní 1987 Elskulegi afi minn, Jóhannes H. Guðjónsson, lést þann 16. júní sl., eftir langvarandi veikindi. Síðan hefur ríkt tómleiki í huga mínum. Afi var ætíð léttur og kátur og þannig vildi hann hafa alla í kring- um sig. Mér er ætíð minnisstæður sá tími sem ég dvaldi sem mest á heimili þeirra ömmu og afa, sem bam. Þar fékk ég svo mikla ást og umhyggju. Mér er sérstaklega minnisstætt hvað mér þótti viðskilnaðurinn við afa og ömmu þungbær, er ég flutt- ist erlendis með foreldmm mínum og var fjarri þeim í nokkur ár. Afi hafði mikið dálæti á náttúm landsins okkar og hafði svo gaman af að taka okkur barnabömin með sér í göngutúra og .ferðalög. Hann naut þess að sýna okkur allt sem fyrir augu bar á ferðalögum okkar. Síðustu æviárin eyddi hann flestum frístundum sínum við að bæta aðstöðuna úti og inni í sumar- bústaðalandi sínu við Hafravatn. Þama gat hann dvalið öllum stund- um, og þangað vom allir velkomnir. Eg vil nú færa afa mínum hinstu alúðarþakkir fyrir ógleymanlegar samvemstundir. Elsku amma mín, ég vil biðja guð um að vera með þér og styrkja þig, nú þegar afi er horfinn frá okkur. Blessuð sé minning hans. Jóhanna Andrea Guðmunds- dóttir Hann afi er horfinn okkur um stund. Það er undarlegt okkur afa- börnunum að hann, sem alltaf var hinn hressasti, sé nú ekki hér til að gleðjast eða hryggjast með okk- ur í brambolti hversdagsins. Samvistimar við afa vom alltaf elskulegar. Hann sá yfirleitt hið jákvæða og ýtti undir sjálfstæðis- baráttu smáfólksins. Sjálfstæði afa var óhagganlegt. Að vera engum háður var hans stefna og við það stóð hann alla tíð. Avallt var gott að heimsækja afa og ömmu eða að fá þau hingað norður til okkar. Honum fylgdi hressileiki sem hreif alla og allir urðu einhvem veginn ánægðari með sig og sitt. Við biðjum Guð að geyma elsku afa og að gefa ömmu styrk. Jóhannes, Asta, Andrea og Ellert. Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, Sæbraut 1—2 á Seltjarnarnesi, fékk um daginn afhentar kr. 1100, en það var ágóðinn af hlutaveitu sem þessir krakkar héldu til stuðnings stofnuninni. Þau heita: Árni Þorsteinsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Harpa Thoroddsen, Hrefna Thoroddsen og Ásdís Erla Jónsdóttir. Þessar stöllur efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Rauða kross ís- lands og söfnuðu þær 600 kr. Þær heita Ámý Guðmundsdóttir, Helena Olafsdóttir, Margrét Kolbeinsdóttir og Sæimn Harpa Krist- jánsdóttir. Leiðrétting Stutt minningargrein um Jónas Sigurð Jónsson sem birtist eftir mig í Morgunblaðinu 12. júní sl. hefur ekki verið prentuð samvisku- samlega eftir handriti mínu. Orðalagi hefur verið breytt bæði í upphafi og endi greinarinnar, að vísu smávægilega, en nóg til að raska stíl höfundar. Fleira hefur brenglast í meðförunum á grein minni. í blaðinu stendur: „Ingveld- ur og Jónas dóu úr spönsku veikinni", en á að vera Ingveldur og Jón o.s.frv. Á öðrum stað er Ingveldur sú, sem tók Jónas Sig- urð í fóstur, nefnd Jóhannesdóttir, en á að vera Jóhannsdóttir. Fleira er athugavert við prentunina á texta mínum, en ég læt nægja að nefna það helsta sem ég rak augun í. Upphaf greinarinnar var þannig frá hendi höfundar: „Þegar ég kem heim eftir stutta dvöl í París, frétti ég að Siggi frændi sé dáinn.“ Og endirinn var ofurvenjuleg og til- gerðarlaus kveðja: „Farðu vel, Siggi frændi,“ eða nánar tiltekið, að það hefði mig langað að segja í stað verulegrar minningargrein- ar, þar eð tími var naumur. Ég vona að blaðamönnum Morgun- blaðsins sé ljóst, að þeir hafa ekki heimild til að breyta greinum manna, án samráðs við höfunda, jafnvel þótt þeir telji sig þeim fær- ari í máli og stíl. Brengl vegna slælegs prófarkalesturs eða mis- taka setjara eru annars eðlis og gerast nú algengari í blöðum en nokkru sinni fyrr. Þó vona ég að þessi leiðrétting komist óbrengluð gegnum prentverkið. Jón Óskar raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar m. Utboð Tilboð óskast í uppsteypu sökkla og kjallara fyrir félagsheimili á Hólmavík. Utboðsgagna má vitja á skrifstofu Hólma- víkurhrepps og á teiknistofunni Óðinstorgi gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hólmavíkurhepps mið- vikudaginn 8. júlí 1987 kl. 11.00. Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps. IH ÚTBOÐ Sjúkrahús á Akureyri Innanhússfrágangur Tilboð óskast í innanhússfrágang í rannsókn- ardeild í nýbyggingu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða nálægt 355 fm svæði. Verktaki tekur við húsrýminu múrhúðuðu með hitalögn að hluta og skal skila því full- gerðu. Innifalið er allt, sem til verksins þarf, þ.m.t., t.d. innréttingar, loftræsi- og raflagnir. Verkingu sé að fullu lokið 1. apríl 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Rvk. og á skrifstofu umsjónar- mans frakvæmdadeildar I.R., Bakkahlíð 18, Akureyri, gegn 5000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins þriðjudaginn 14. júlí 1987 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 i£& Útboð VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 30, 108 REYKJAVÍK SIMI 681240 Stjóm Verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir tilboðum í eftirtalda verkþætti í 16 fjöl- býlishús í Grafarvogi: 1. Ofna. 2. Gler. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B., Suðurlandsbraut 30, gegn 5000 kr. skila- tryggingu frá og með mánudeginum 22. júní. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 7. júlí kl. 15.00 á sama stað að viðstöddum þeim bjóð- endum sem þess óska. Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík. Laxveiðileyfi Til sölu laxveiðileyfi í Sæmundará í Skaga- firði. Upplýsingar gefur Jóhann í síma 95-5658 eftir kl. 18.00. Bátur 54 lesta eikarbátur til sölu. Upplýsingar í síma 95-6440 milli kl. 8.00 og 19.00. Frysti-/kæligámur 40 feta kæligámur með York frystikerfi til sölu. Tvær lokaðar pressur með aðskildum kerfum. 3 fasa. 380-440 volt. Til afhendingar strax. Upplýsingar í símum 666785 og 666107 eft- ir kl. 18.00. Ath! Verksmiðjuútsala Sólkjólarnir komnir aftur, verð frá kr. 600. Jogginggallarnir komnir aftur. Opið laugardag 10.00-16.00, aðra daga frá kl. 10.00-18.00. ^eres, Nýbýlavegi 12, Kóp. Skúr óskast Viljum kaupa lítinn skúr sem nota mætti sem skrifstofuaðstöðu. Sölu- og sýningartjaldið, Borgartúni 26, sími 626644. Verslunarhúsnæði óskast til leigu frá 1. ágúst nk. Stærð ca 100-150 fm. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 26. júní, merkt: „V — 4501“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.