Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 34
,N or ðurlandskj ördæmi eystra: Kjördæmisráð Borg- araflokksins stofnað STOFNAÐ var kjördæmisráð í Norðurlandskjördæmi eystra sl. laujfardag á vegum Borgara- flokksins. Formaður var kjörin Valgerður Sveinsdóttir, verslun- armaður á Akureyri, annar maður á lista flokksins í síðustu alþingiskosningum. Þetta er þriðja kjördæmisráðið sem stofnað _er á vegum Borgara- flokksins. Áður hafði Halldór Pálsson sölustjóri verið kjörinn formaður kjördæmisráðs Reykja- ness og Þórir Lárusson formaður kjördæmisráðs Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá Borgaraflokknum verða tvö kjör- dæmisráð væntanlega stofnuð fýrir nk. mánaðamót, á VestQörðum og á Norðurlandi vestra. í þeim þrem- ur kjördæmum sem þá eru eftir, Austflarðakjördæmi, Suðurlands- kjördæmi og Vesturlandskjördæmi, verður kjördæmisráðum að öllum líkindum komið á fót í næsta mán- uði. Golf í miðnætursól á Jaðri um helgina ALþJÓÐLEGT golfmót, Arctic Open, fer fram við golfskálann á Jaðri um helgina og verður leikið frá kl. 21.00 bæði föstu- dags- og laugardagskvöld. Leikið verður fram á morgun í miðnætursólinni. Þetta er í annað sinn sem Golf- klúbbur Akureyrar heldur slíkt mót. Það var fyrst haldið í fyrra og komu þá 120 keppendur. Vænst er jafnmikils fjölda nú, en meðal keppenda verða ritstjóri tímaritsins Golf World í Englandi og ljósmyndari blaðsins. Auk þeirra hafa keppendur frá Svíþjóð, Englandi og Bandaríkjunum látið skrá sig í keppnina. Leiknar verða 36 holur. Mótið er öllum landsmönnum opið og er hægt að láta að skrá sig í hin- um nýja golfskála Golfklúbbs Akureyrar fram á fimmtudags- kvöld. Eldur í verbúð ELDUR kom upp í verbúð við Sandgerðisbót á Akureyri Iaust eftir kl. 10.00 í gærmorgun. Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá rafmagni. Mikill eidur var í verbúðinni er slökkviliðið kom á staðinn og tók slökkvistarf um klukkutfma. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út og voru átján menn að störfum. Eldur hafði breiðst út í nærliggj- andi verbúðir, sem eru í sömu lengju og upp á aðra hæð þar sem einnig eru verbúðir. Miklar skemmdir urðu á þeim. Eigandi verbúðarinnar, sem kviknaði í, var fyrir utan hana þeg- ar eldurinn blossaði upp, en engin slys urðu á fólki. Rannsóknarlög- reglan á Akureyri rannsakar nú eldsupptök. Rólegt á Akur- eyri um helgina HELGIN var fremur róleg á Akureyri, að sögn lögreglunnar þar í bæ, en töluvert var um ölv- un í bænum. Lýst var eftir 21 árs gömlum Akureyringi í kvöld- fréttum útvarps í fyrrakvöld sem ekkert hafði spurst til allan dag- inn, en þegar betur var að gáð var hann niður kominn í Reykjavík og hafði tekið síðustu flugvél frá Akureyri á laugar- dagskvöld. Tveir minniháttar árekstrar urðu á Akureyri um helgina. Meiðsl urðu engin á fólki. Þá voru sex ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur og tveir ökumenn voru teknir, grunað- ir um ölvun við akstur. Hið nýja hús Sæplasts hf. Á innfelldu myndinni sést Hörður Túliníus, fram- kvæmdastjóri Hibýla hf., afhenda nýja húsnæðið sl. föstudag. Það var Dórótea Jóhannsdóttir sem veitti „lyklinum“ við- töku fyrir hönd Sæplasts hf. Dalvík: Morgunblaðið/Jóhanna Sæplast hf. flyt- ur í nýtt húsnæði SÆPLAST hf. á Dalvík fékk á föstudaginn afhent nýtt verk- smiðju- og skrifstofuhúsnæði á Gunnarsbraut 12 þar i bæ. Hús- bygginguna annaðist Hibýli hf. á Akureyri, en fyrsta skóflustung- an var tekin þann 31. júlí 1986 og hófst uppsteypa 10. október sama ár. Húsið er 840 fermetrar að gólf- fleti og 4.100 rúmmetrar. Það er fullfrágengið að innan sem utan og kostar rúmar 30 milljónir króna. Húsbyggingin er fjármögnuð með lánum frá Iðnþróunarsjóði, Iðnlána- sjóði og að hluta með eigin fé. Árkitekt var Bjami Reykjalfn, verk- fræðihönnun annaðist Verkfræði- stofa Sigurðar Thoroddsen og Raftákn hf. Sæplast hf. framleiðir fiskiker í fjórum stærðum auk vörubretta og kassabretta fyrir fiskikassa. Á aðal- fundi Sæplasts hf. í maí sl. var ákveðið að ráðast í enn frekari framkvæmdir á þessu ári. I fyrsta lagi var ákveðið að byggja strax annan áfanga á Gunnarsbraut 12 og verður hann 768 fermetrar að stærð. Hann verður væntanlega til- búinn til notkunar eftir fjóra mánuði og verkinu að fullu lokið fyrir áramót. í öðru lagi var ákveð- ið að fjárfesta í nýjum búnaði til að auka afköst og hagkvæmni verk- smiðjunnar. Verður sá búnaður kominn upp fyrir áramót og er reiknað með að framleiðslugetan verði rúmlega tvöföld frá þeim tíma. í heild er um að ræða fjárfestingu upp á um 50 milljónir króna. Til að auka fjármagn þetta hefur hluta- fé félagsins verið aukið um 10 milljónir króna og sótt hefur verið um lán til Iðnþróunarsjóðs og Iðn- lánasjóðs. Pétur Reimarsson, framkvæmdastjóri Sæplasts, sagði að fyrirtækið stefndi að því að að verða eitt af stærstu fyrirtækjum á sínu sviði í heiminum nú í kjölfar stækkunar húsnæðis og aukningu á framleiðslu. Pétur sagði að mikil eftirspum væri eftir framleiðsluvörum Sæ- plasts hf. bæði hér á landi og erlendis og ekki hefði verið unnt að anna henni allri. Eftirspumin hefur aukist jöfnum hömdum og er um þriðjungur af framleiðslunni fluttur út. Velta Sæplasts hf. árið 1984 var um 14 milljónir króna, 35 millj. kr. árið 1985, 71 milljón kr. árið 1986 og stefnir í um 140 millj. kr. á þessu ári. Afkoman hef- ur verið góð nema fyrsta árið en þá var tap á rekstrinum. Fyrirtækið var upphaflega stofnað í Garðabæ, en keypt til Dalvíkur árið 1983. Á þessu ári hefur verksmiðjan verið í gangi alla daga vikunnar, allan sól- arhringinn, nema nýársdag og 1. maí. Hjá fyrirtækinu starfa nú 23 menn. Ástæða þessarar aukningar er áhersla á aukin gæði fisks, að sögn Péturs. Sífellt fleiri bátar setja fisk í ker um borð og þarf þá ekkert að eiga við fiskinn fyrr en hann kemur til vinnslu. Gerðar hafa ver- ið tilraunir með ker um borð í togurum og hafa þau reynst vel. Auk þess skiptir hér máli aukin saltfiskverkun, loðnuhrognavinnsla og gámaútflutningur. Með góðan heimamarkað hefur fyrirtækinu einnig verið unnt að efla útflutning sinn og virðast möguleikar vera mjög góðir, að sögn Péturs. Raufarhöfn: Margt til skemmt- unar á þjóðhátíð Raufarhöfn. ** Félagar úr Austra tóku við friðarkyndlinum við brúna yflr Ormarsá. 17. JÚNÍ var haldinn hátíðlegur á Raufarhöfn með ýmsu móti. Gengið var frá félagsheimilinu suður á íþróttavöllinn þar sem Páll Þormar setti samkomuna sem haldin var á vegum Ung- mennafélagsins Austra á staðn- um. Ýmsar uppákomur voru til skemmtunar, meðal annars firma- keppni í knattspymu. Fyrst áttust við lið frá Sfldarverksmiðju ríkisins og trillusjómenn og endaði það með sigri sfldarverksmiðjunnar. Þá léku KNÞ og Jökull hf. með sigri Jökuls eftir framlengdan leik og víta- spymukeppni. Til úrslita léku svo sfldarverksmiðjan og Jökull og fór Jökull með sigur af hólmi. Einnig fór fram reiðhjólakeppni bama og boðhlaup karla sem var falið í því að hlaupa í poka að tunnu sem var full af vatni en í vatninu flaut epli sem þátttakendur urðu að ná upp með munninum. Þetta vakti mikla kátínu viðstaddra. Þegar líða tók á daginn komu unglingar úr Austra inn á völlinn en þeir höfðu um morguninn lagt af stað hlaupandi til Þórshafnar og til baka aftur. Tilefni þess hlaups var að safna áheitum til Qármögn- unar keppnisferðalags um Austur- land. Um kl. 19.00 tóku svo félagar úr Austra við friðarkyndlinum við brúna yfir Ormarsá og hlupu með hann sem leið liggur vestur yfir Melrakkasléttu, svokallaðan „Jörfa“, rúma 30 kflómetra. GENGIS- SKRANING Nr. 113 - 22. júní 1987 Kr. Kr. ToU- Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi Dollari 38,980 39,100 38,990 Stpund 62,775 62,969 64,398 Knn.dollari 29,145 29,235 29,108 Dönskkr. 5,6532 5,6706 5,6839 Norskkr. 5,7898 5,8076 5,7699 Sænskkr. 6,1040 6,1228 6,1377 Fi.mark 8,7546 8,7816 8,8153 Fr.franki 6,3672 6,3868 6,4221 Belg.franki 1,0257 1,0289 1,0327 Sv.franki 25,5607 25,6393 26,7615 Holl.gyllini 18,8719 18,9300 18,9931 V-Þ. mark 21,2628 21,3282 21,39% ítlira 0,02942 0,02952 0,02962 Austurr.sch. 3,0249 3,0342 3,0412 Port escudo 0,2726 0,2734 0,2741 Sp.peseti 0,3073 0,3083 0,3064 Jap.yen 0,26800 0,26882 0,27058 írsktpund 56,905 57,080 57,282 SDR(Scr8t.) 49,9036 50,0578 50,0617 Ecu,Evrópum. 44,1098 44,2456 44,3901
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.