Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 mpmmm mpfMgmm MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ VEIÐIKASSAR OG STANGAHOLKAR Fást í nœstu sportvöruverslun. Einkaumboð I. Guðmundsson & Co hf Símar: 91-11999-24020 Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Hákon Pétursson sigraði í eldri flokki unglinga á Limbó frá Sauðárkróki auk þess sem hann var valinn knapi mótsins. Hestamót Harðar: Þrymur frá Brimnesi efstur í A-flokki og annar í 250 metra skeiði, knapi er Erling Sigurðsson. FÓTBOLTI kr.495 KAUPFÉLÖGIN Í LANDINU Háar einkuiinir í gæðingakeppmmii kr.285 ÞAÐ viðraði vel á félaga i Herði á laugardag þegar þeir héldu hestamót sitt á Arnarhamri á Kjalarnesi. Kjalarnesið er reynd- ar þekkt fyrir annað en lygnt veður en nú brá svo við að varla bærðist hár á höfði mótsgesta. Reyndar hyrjaði mótið með því að gæðingar voru dæmdir á fimmtudagskvöld á nýju svæði félagsins við hesthúsahverfið á Varmárbökkum í Mosfellssveit og unglingar einnig. A laugardeginum fóru síðan fram úrslit fimm efstu úr forkeppninni. Er það í fyrsta sinn sem sá háttur er hafður á félagsmóti Harðar. Reyndar er aðstaðan á Amarhamri ekki nógu góð fyrir gæðingakeppni þar sem hringvöllurinn er mjög mishæðóttur, munar sennilega milli tveimur til þremur metrum á hæð langhliðanna. Einnig er hlaupa- brautin sem hér á árum áður gaf góða tíma orðin frekar léleg vegna þess hversu gróin hún er orðin. En Harðarfélagar geta litið björtum augum til framtíðarinnar því þeir eru langt komnir með uppbyggingu nýja svæðisins. Gerð var tilraun með að breyta hinni hefðbundnu dagskrá og voru kappreiðar fyrstar á dagskrá en síðan voru úrslit í gæðingum og unglingakeppni. Erling Sigurðsson var afkasta- mikill í að hirða verðlaun þau sem þama voru veitt en hann sigraði á Þrym frá Brimnesi í A-flokki, var með Hvin í Ijórða sæti, sigraði í 250 metra skeiði á Vana og annar með Þrym, sigraði í 150 metra skeiði á Hvin. Hákon Pétursson sem sigraði í eldri flokki unglinga var valin knapi mótsins og Lord sem varð annar í A-flokki var valinn glæsilegasti hestur mótsins og glæsilegasti gæðingurinn. Kappreiðar Harðar eru lokaðar þ.e. að eingöngu félagsmönnum er heimilt að keppa í kappreiðunum og hefur svo verið um árabil. Væri vel athugandi fyrir Harðarmenn að Ungdómurinn sækir í verðlaunagripina sem eru veglegir og Erling Sigurðsson hirti góðan hluta þeirra. opna kappreiðamar á nýjan Ieik þegar nýja brautin á Varmárbökk- um verður tekin í notkun. Kappreið- ar Harðar buðu oft á tíðum upp á mikla spennu og góða tíma. Að lokinni verðlaunaafhendingu var sameiginleg ferð ríðandi manna í Mosfellssveit og var staldrað við á Leiðhömrum þar sem kveiktur var eldur og seldar veitingar. Átti mannskapurinn þar saman góða stund þar sem var sungið og sólsk- inið sleikt en veðrið var hreint frábært og voru menn frekar tregir á að koma sér heim svo vel sem öllum leið þama. En úrslit mótsins urðu sem hér segir: A-flokkur gæðinga: 1. Þrymur frá Brimnesi, eigandi og knapi Erling Sigurðsson, 8.49. 2. Lord, eigandi Jóhann Oddsson, knapi Trausti Þór Guðmunds- son, 8.38. 3. Freyja, eigandi og knapi Birgir Hólm, 8.10. 4. Hvinur frá Vallanesi, eigendur Steindór Steindórsson og Erling Sigurðsson, knapi Erling Sig- urðsson, 8.06. 5. Haukur frá Húsavík, eigandi Hinrik Gylfason, knapi Trausti Þór Guðmundsson, 8.12. B-flokkur gæðinga 1. Ægir frá Skeggstöðum, eigandi Hreinn Ólafsson, knapi Garðar Hreinsson, 8.38. 2. Faxi, eigandi og knapi Jón Ás- bjömsson, 8.31. 3 .Snillingur, eigandi Pétur Jökull Hákonarson, knapi Trausti Þór Guðmundsson, 8.24. 4. Drottning 6359 frá Enni, eig- andi Ottó B. Ólafsson, knapi Valdimar Kristinsson, 8.27. 5. Víkingur, eigandi og knapi Pétur Jökull Hákonarson, 8.27. Ástæða er til að benda á að í skránni var ekki getið um fæðingar- stað gæðinganna og er það orðinn töluvert útbreiddur ósiður við gerð mótskráa að geta ekki hvaðan hross eru upprunnin. Unglingar 12 ára og yngri 1. Theódóra Mathiesen á Baldri frá Svanavatni, 8.05. 2. Guðmundur Jóhannesson á Grá- manni frá Dalsgarði, 7.83. 3. Alfreð Mounir á Garpi frá Saur- um, 7.93. 4. Guðmar Þór Pétursson á Vini, 7.92. 5. Guðrún Bjamadóttir á Draumi, 7.57. Unglingar 13—15 ára 1. Hákon Pétursson á Limbó frá Sauðárkróki. 2. Hulda Þórðardóttir á Glófaxa. 3. Ólöf Kristjánsdóttir á Eldingu. 4. Berglind Bjamadóttir á Skeifu frá Hraðastöðum. 5. Kristinn Már Þorkelsson á Glað frá Hörgshóli. Unghross í tamningu 1. Darri frá Rangá, eigandi Sig- valdi Haraldsson, knapi Harald- ur Sigvaldason. 2. Leistur frá Meðalfelli, eigandi Gísli Ellertsson, knapi. 3. Torfi frá Helgadal, eigandi Hreinn Ólafsson, knapi Ragnar Ólafsson. 150 metra skeið 1. Hvinur frá Vallanesi, eigendur Steindór Steindórsson og Erling Sigurðsson, 16.4 sek. 2. Röst frá Gufunesi, eigandi Þor- geir Jónsson, knapi Þorgeir Guðlaugsson, 17.5 sek. 3. Jörð frá Reykjum, eigandi og knapi Jón M. Jónsson, 18.2 sek. 250 metra skeið 1. Vani frá Stóru-Laugum, eigandi og knapi Erling Sigurðsson, 16.1 sek. 2. Þrymur frá Brimnesi, eigandi og knapi Erling Sigurðsson, 26.7 sek. 3. Stóri-Jarpur frá Reykjum, eig- andi og knapi Guðmundur Jónsson 31.5 sek. 300 metra brokk 1. Skuggi, eigandi og knapi Reynir Ö. Pálsson, 43.5 sek. 2. Douglas frá Varmadal, eigandi og knapi Jón Jónsson, 62.6 sek. 350 metra stökk 1. Nestor, eigandi Hjördís Bjartm- ars, knapi Sveinn Hauksson, 27.4 sek. 2. Léttir, eigandi og knapi Ragnar Ólafsson, 27.5 sek. 3. Spóna, eigandi Ámi Andreassen, knapi Sigurður Narfí Birgisson, 28.0 sek. VEIÐISETT kr. 1.390 HANDSLATTUVEL KR. 6.350,- SLÁTTUVÉL KR. 19.935,- ^ W 'ki &// 'jy._Á_- j'y/ W iJílh SÍPr KAUPFÉLÖGIN j LANDINU BAR-DANS-ORIENTAL MATUR. S10312. Laugav. 116. OPIÐ ALLA DAGA- ÖLL KVÖLD. OPNUM Á MORGUN Sjá nánar í Morgunbladinu á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.