Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 54
T'-Vl.E »:a 54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987 „ O-f ab þai erkomiá OÁ pér cÁ 5ldpt<x um bleiu"?" L> ásí er... ... þaö sem heldur á þér hita á ísköldum vetrarmorgni TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved © 1986 Los Angeles Times Syndicate Með morgnnkaffirtu ÍGt. _ ^ Pabbi. Hér er kominn sölumaður sem ætlar að selja eitthvað, en skoðaðu það vel áður... HÖGNI HREKKVISI o ), HAMW HATAfZ BlAUTA HUNDAÍ" Salem ísafirði: Markmiðið að efla kristna trú og menningu Til Velvakanda Allir ísfirðingar og fleiri kannast við þetta gamla og virðulega hús hér í bæ. Það hefír verið heimili og kirlq'a Salemsafnaðarins í 40 ár. Markmiðið er að efla kristna trú og menningu, sem byggist á orði Guðs, heilagri ritningu, „Því að annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagð- ur er, sem er Jesú Kristur." 1. Kor. 3:11. Þama hafa því verið haldnar reglubundnar guðsþjónustur viku- lega og stundum oftar. Einnig biblíu- fræðsla eftir því sem tök hafa verið á hveiju sinni. Þá er hin vikulega bænaþjónusta mjög mikilvæg. Þar er fólki gefíð tækifæri til að leggja fram hin margvíslegu bænarefni sín, og þakkarefni, og einnig að vera sjálft með. Það gefur huggun og styrk. Við vitum og höfum oft sann- reynt að Guð heyrir bænir, sem beðnar eru í Jesú nafni. Þetta er biblíulegt eins og allt annað, sem hér fer fram. Ég vil svona í leiðinni leið- rétta þann misskilning að hér sé um einhveija sértrú að ræða, svo er alls ekki, þegar Biblían er höfð að leiðarljósi, svo sem hún á að vera. „Þitt orð er lampi fóta minna, og ljós á vegi mínum." Sálm 119:105. Þá hefír bamastarfíð mikla þýðingu fyrir þennan bæ. Það er mikið rætt og ritað um vandamál æskunnar, en það er eins og allt of margir viti ekki að Biblían gefur svarið við því, sem öðm er okkur viðkemur. „Með hveiju getur ungur maður (og stúlka) haldið vegi sínum hreinum? að orði þínu.“ Sálm 119:9. Það viljum við gera, og beina þvi að bömunum svo sem hvert foreldri er áminnt um að gera. „Fræð þú sveininn um veginn, sem hann á að halda." Orðskv. 22:6. Ekki má gleyma sjó- mannastarfinu, sem þekkt er að góðu um aUt land og víða erlend- is. Margt er ótalið, sem ekki verður nefnt hér. En Guð hefir i gegnum árin, og honum ber heið- urinn og dýrðin fyrir allt. Nú er verið að endurbyggja þetta hús bæði utan og innan. Mun það kosta mikið. Margir hafa spurt: „Færist ekki svo lítill söfn- uður of mikið i fang, og getið þið klofið þetta?“ Þvi er til að svara, að þó að við séum fá og smá, þá eigum við ríkan föður á himnum, sem hefir sagt: „Ég mun fylla hús þetta dýrð, segir Drottinn hers- veitanna. Mitt er silfrið, mitt er gullið.“ Haggai 2:8. Það eru þessi auðæfí sem við treystum á. Við erum viss um að Guð mun hræra við mörg- um vinum, einstaklingum og fyrir- tækjum til að leggja þessu máli lið á einhvem hátt. „Guð elskar glaðan gjafara." 2. Kor. 9:8, og launar þeim ríkulega. Við munum endurbyggja veglegt Guðshús, þar sem fagnaðar- erindi Jesú Krists verður boðað. Á meðan þær framkvæmdir standa yfír, njótum við kærleika Hjálpræðis- hersins, sem hefír boðið okkur afnot af samkomusal sínum. Verða því Guðsþjónustur safnaðarins þar og önnur starfsemi um óákveðinn tíma. Allir eru því velkomnir þangað. Komið og heyrið Guðsorð. Sigfús B. Valdimarsson Víkverji skrifar Um þessar mundir er nýtt hótel að koma til sögunnar við Sigt- ún hér í Reykjavík. Hefur verið unnið að smíði þess af miklu kappi undanfama daga, vikur og mánuði. Hótelið verður rekið á gmndvelli staðla frá hinni frægu bandarísku eða líklega réttara sagt alþjóðlegu hótelkeðju Holyday Inn. Er ekki að efa, að það viðurkennda vörumerki eigi eftir að laða ferðamenn til landsins, sem ella hefðu ekki einu sinni leitt hugann að því að sækja okkur heim. Verður fróðlegt að fylgjast með því, hvemig samstarf á þessum gmndvelli gengur hér á landi. Af eðlilegum ástæðum hlýtur nýja hótelið að vera kennt við hinn alþjóðlega hótelhring, þegar það höfðar til viðskiptavina hans víða um lönd. Víkveiji minnist þess ekki að hafa heyrt neitt íslenskt nafn á hótelinu. Ef til vill á það aðeins að heita Hótel Holiday Inn. Að mati Víkveija væri illa að málum staðið, ef hótelinu yrði ekki valið íslenskt nafn til notkunar innanlands. Við rekum fyrirtæki, sem heita íslensk- um nöfnum hér á landi en erlendum í útlöndum og nægir þar að nefna Flugleiði, sem heita Icelandair gagnvart erlendum viðskiptavinum. Raunar hefur Víkveiji svo oft orðið var við, að útlendingar muna nafn- ið Loftleiðir, að hann er sannfærður um, að með markvissu starfí er unnt að gera íslensk heiti gjaldgeng á alþjóðamarkaði, þar sem sam- keppni er hörð. XXX Flestum fínnst líklega, að borið sé í bakkafullan lækinn, þegar tíunduð em málglöp í fjölmiðlum. Menn fá leið á umræðum um jafn sjálfsögð atriði og það, að þeir sem hafa atvinnu af því að nota íslenska tungu, kunni það. Deilumar um burðarþol húsa og hatrömm átök verkfræðinga um, hvað sé rangt og rétt í því efni, minna okkur á, að sérfræðiþekking eða viðurkennd kunnátta leysir ekki allan vanda. Oft og tíðum leiðir aukin þekking til meiri vafa um, hvað sé rétt og rangt. í daglegum störfum blaða- manna koma upp margvísleg vafaatriði við beitingu málsins. Þeim mun einfaldari og skýrari sem reglumar em, því minni líkur em á villum. Reyndur útvarpsmaður hafði samband við Víkveija á dögunum og benti honum á misfellur í frá- sögn Morgunblaðsins af því, þegar útvarpsmenn fluttu í nýtt húsnæði. Til dæmis var sögnin að hvetja rit- uð með k og heiti á alkunnum sönglögum vom ekki kórrétt. Eftir samtalið kom það upp í huga Víkveija, að í fréttatímum hljóð- varps ríkisins og Bylgjunnar fyrir skömmu, á svo til sama klukkutí- manum, heyrði hann þannig tekið til orða: f/ölgunin hefur minnkað eða fjölgunin er minni en ætlað var. Sögnin að fækka á ekki upp á pallborðið um þessar mundir, þegar útvarpstöðvunum fjölgar. XXX á hefur verið upplýst, að á sumum veitingastöðum geta menn svalað sér á gosdrykkjum, sem seldir em með allt að 950% álagningu. Þessar tölur em af þeirri stærðargráðu, að Víkveiji á erfítt að átta sig á þeim. Á meðan eftir- spumin er jafn mikil á skemmtistöð- um og raun ber vitni kann þessi álagning enn að hækka og einnig aðgöngumiðamir. Hafa aðgöngu- miðamir hækkað um 300 til 350% frá 1984. Framboðið af skemmtistöðum og alls kyns afþreyingarefni hér hjá okkur virðist flestum nóg og jafn- vel meira en það. Verðlagningin á veitingastöðunum bendir hins vegar til annars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.