Morgunblaðið - 29.09.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1989
BORCARA
FLOKKURINN
Við fjölmennum á landsfund Borgaraflokksins
Kjördæmisfélögnn.
Sinfóníuhljómsveit Æsk-
unnar flytur Bruckner
Sinfóníuhljómsveit æskunnar flytur Sinfóníu nr. 2 i c-moll eftir
Anton Bruckner, undir stjórn Paul Zukofskys á inorgun, laugardag-
inn 30. september.
Þessir tónleikar eru afrakstur
námskeiðs sem Sinfóníuhljómsveit
æskunnar hefur staðið fyrir síðustu
tvær vikurnar, en á þessu nám-
skeiði hafa 60 tónlistarnemendur
komið saman á hveijum degi og
æft að miklu kappi. Er þetta í 10
skiptið sem Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar heldur námskeið, frá því að
hún hóf starfsemi sína, en hljóm-
sveitin hefur starfað síðan á ári
æskunnar 1985.
Tónleikarnir verða sem fyrr segir
á morgun, laugardaginn 30. sept-
ember, klukkan 14 og verða þeir í
Háskólabíói. Forsala aðgöngumiða
fer fram í Bókaverslun Eymunds-
sonar en einnig verður hægt að
kaupa miða við innganginn.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar.
BORCARA
FLOKKURINN
Laufey Sigurðardóttir, fiðluleik-
ari.
Selma Guðmundsdóttir, píanó-
leikari.
Tónleikar á þremur stöðum
LAUFEY Sigurðardóttir, fiðlu-
leikari og Selma Guðmundsdótt-
ir, píanóleikari munu á næstu
dögum leika á þrennum tónleik-
um.
Fyrstu tónleikarnir verða í Fé-
lagsheimilinu á Hvammstanga á
morgun, laugardaginn 30. septem-
ber, klukkan 16, þeir næstu í Tón-
listarskólanum á Sauðárkróki,
sunnudaginn 1. október klukkan
15 og að lokum munu þær leika í
Menningarmiðstöðinni í Hafnar-
borg í Hafnarfirði, þriðjudaginn 3.
október klukkan 20.30.
Á efnisskránni eru sónötur fyrir
fiðlu og píanó eftir W.A. Mozart
og Leos Janacek, Slavneskir dansar
eftir Dvorák í útsetningu Kreisler
og Tveir þættir eftir ítalska tón-
skáldið Berio.
Við komnm l'ljúgandi
Við lyftum okkur til flugs frá
Reykjavíkurflugvelli og hefj-
um sérstakt kynningarátak
utan borgar á starfseminni
og ferðum þeim sem við
höfum að bjóða.
Við komum á Dornier-vélinni
okkar sem jafnframt verður
til sýnis að utan og innan á
meðan á hverri heimsókn
stendur.
Vetraráætlun okkar
Við ætlum að kynna fyrir-
tækið, vetraráætlun okkar,
borgirnar sem við fljúgum til
og ferðamöguleika út frá
þeim. Auk sölufólks verða á
staðnum tveir flugmenn og
ein flugfreyja sem ætla að
kynna störf sín.
Frúin í Hamborg
Sú ágæta frú verður með í
för og mun hefja upp raust
sfna og syngja fyrir við-
stadda og eflaust gera
eitthvað fleira óvænt og
skemmtilegt. Henni til að-
stoðar verður stúlka af yngri
kynslóðinni.
Ferðatilboð - ferðagetraun
Við gerum ykkur líka sér-
stakt ferðatilboð sem gildir
aðeins þann dag sem kynn-
ingin stendur. Þar að auki
efnum við einnig til ferða-
getraunar á öllum sjö
stöðunum með farmiðum til
Amsterdam í vinning.
lífiiiík
Félagsheimili
Húsavíkur
30. september
Kl. 10:00-13:00
Méíjéi
30. september
Alexandersflugvelli
Kl. 15:00-16:00
Hótel Mælifelli
Kl. 16:00-18:00
Spnte
m-
Spríte
ARNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477
íþróttamannvirki
vígð í Garðabæ
NY íþróttamannvirki Iþróttamið-
stöðvarinnar Ásgarðs í Garðabæ
verða vígð á morgun, laugardag-
inn 30. september, klukkan 15.
Vígt verður nýtt íþróttahús með
fimleikagryfju, 1.680 fm, sem rúm-
ar 1.100 áhorfendur. Einnig ný
sundlaug þar sem aðallaug er
15x25 m og barnalaug 15x6,5 m
og ný þriggja hæða tengi- og þjón-
ustubygging, sem tengir saman
framantalin mannvirki, 1.298 fm.
Auk þessa er verið að leggja
gervigras á völl við íþróttamiðstöð-
ina, sem er 21x44 m.
Heildarkostnaður hinna nýju
mannvirkja er um 260 milljónir.
Arkitekt er Manfreð Vilhjálmsson,
Almenna verkfræðistofan hf. sá um
burðarþol og lagnir. Rafhönnun hf.
sá um rafmagn og SH verktakar
um framkvæmdir.
Að lokinni formlegri afhendingu
mannvirkja og ávörpum sýna nem-
endur úr grunnskólum Garðabæjar
leikfimi. UMF Stjarnan verður með
sýningaratriði og starfsemi deilda
félagsins verður kynnt.
Kvenfélag Garðbæjar sér um
veitingar í boði bæjaryfirvalda. Öll-
um bæjarbúum er boðið til vígslunn-
ar til að samfagna þessum merka
áfanga.
Með tilkomu nýju íþróttamann-
virkjanna mun öll íþróttaaðstaða í
Garðabæ stórbatna jafnt fyrir
keppnisíþróttir sem almenna
líkamsræktun.
Fyrirlestur
um popptón-
list og klass-
íska tónlist
Dr. Konrad Boemer, prófess-
or við tónlistarháskólann í
Haag í Hollandi, heldur fyrir-
lestur á morgun, laugardag,
um tengsl popptónlistar og
klassískrar tónlistar í gegn-
um aldirnar. Hann er hér í
boði Stefs, Samtaka eigenda
flutningsréttar.
Fyrirlesturinn verður haldinn
í tengslum við málþing, sem
Félag tónskálda og textahöf-
unda gengst fyrir á morgun að
Ilótel Loftleiðum. Málþingið er
lokað öðrum en tónlistarmönn-
um og útvarpsfólki. Á mál-
þinginu verður fjallað um stöðu
íslenskrar dægurlagatónlistar.
Fyrirlestur Dr. Boemers er
öllum opinn og hefst hann um
kl. 16.00 að Hótel Loftleiðum.