Morgunblaðið - 29.09.1989, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1989
*
Ukraína:
Stsjerbítskíj víkur
sem flokksleiðtogi
—Meira frelsis vænst af arftakanum
Knattspyrnubullur samar við sig
Svonefndar knattspyrnubullur voru samar við sig 'í þoldu ekki er gestirnir komust yfir í leiknum og
fyrrakvöld þegar fram fóru leikir í Evrópukeppninni kveiktu í blysum og sprengjum og vörpuðu alls kyns
í knattspyrnu. Efndu þær til skrílsláta á nokkrum drasli inn á leikvanginn. Dómarinn greip til þess
knattspyrnuvöllum. Myndin var tekin í Amsterdam ráðs að flauta leikinn af og eiga Hollendingar líklega
á leik hollenskra og austurrískra liða. Heimamenn eftir að súpa seyðið af framkomu skrílsins.
Sovétmenn vilja fund leið-
toga ríkja austurs og vesturs
Vínarborg. Reuter.
SOVÉTMENN hafa lagt til að
leiðtogar 23 rikja Austur- og
Vestur-Evrópu, Kanada og
Bandaríkjanna komi saman til
fúndar á síðari helmingi næsta
árs til að undirrita sáttmála um
niðurskurð á sviði hins hefð-
bundna herafla í Evrópu.
inn auk leiðtoga Kanada og Banda-
ríkjanna og ætti slíkur fundur sér
ekkert fordæmi. Aðspurður sagði
Grínevskíj að fulltrúar Bandaríkja-
stjórnar hefðu heitið því að skoða
tillögur þessar en að svar hefði enn
ekki borist. Sovétmenn litu hins
vegar svo á að hraða þyrfti Vínar-
viðræðunum og væru tillögur þess-
ar framlag þeirra í því skyni.
Tugþúsundir
manna hafa und-
anfarna mánuði
tekið þátt í mótmælafundum í
Sovétlýðveldinu til að krefjast auk-
ins sjálfstæðis og jafnframt að
úkraínska, sem er náskyld rúss-
nesku, verði hafin til vegs og virð-
ingar á ný. Ennfremur hafa Úkr-
aínumenn heimtað að kaþólska
kirkjan fái afnot af guðshúsum
sínum. átsjerbítskíj vísaði öllum
tilslökunum á bug en heimildar-
menn í landinu segja arftakann
hafa gefið í skyn að fjölmiðlar
fengju meira frelsi kæmist hann
til vaidá.
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA fréttastofan TASS skýrði frá því í gær að Vladímír
Stsjerbítskíj, flokksleiðtogi í Úkraínu, hefði beðið um lausn frá
störfum. Við stöðu hans tók varamaður hans, Vladímír Ivash-
ko. í síðustu viku var Stsjerbítskíj og Ijórum öðrum harðlínu-
mönnum vikið úr æðstu valdastofiiun Sovétríkjanna, stjórn-
málaráðinu. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti var viðstaddur
fiind úkraínska flokksins í gær þar sem mannaskiptin voru
ákveðin.
TASS sagði að valið hefði verið
með leynilegri kosningu milli
Ivashkos og Stanislavs Gurenkos
flokksritara eftir afsögn
Stsjerbítsíjs sem er 71 árs gamall
og verið hefur valdamesti maður
Úkraínu frá 1972. Hann hefur
sætt ámæli umbótasinna sem telja
hann eiga sök á því að lítið hefur
verið um breytingar í fijálsræði-
sátt í Úkraínu. Að auki er honum
kennt um efna-
hagslega stöðnun
en verkföll náma-
manna, sem ollu
gífurlegu uppn-
ámi í Sovétríkjun-
um í sumar, voru
mjög víðtæk í
Úkraínu.
Danmörk:
„Tölvuvírus“
veldur usla
Kaupmannahöfn. Reuter.
„Tölvuvírus" hefur herjað á
tölvukerfi dönsku póstgíróstof-
unnar og hefði hann getað eyði-
lagt öll forrit kerfisins ef starfs-
menn stofnunarinnar hefðu ekki
fundið hann í tæka tíð.
Bjarne Wind, forstjóri póstgíró-
stofunnar, sagði að sérstakar skip-
anir hefðu verið settar í eitt forrit-
anna og þær hefðu síðan átt að ber-
ast á milli forrita en vera óvirkar
þar til föstudaginn 13. október. Þessi
„tölvuvírus" hefði síðan átt að eyði-
leggja öll forritin.
Um tuttugu tölvusérfræðingar
þurftu að rannsaka um 200.000
disklinga, sem geyma forrit og gögn,
og notuðu bandarískt forrit til að
finna vírusinn og eyða honum. Ekki
er vitað hvernig hann komst í tölvu-
kerfið.
Oleg Grínevskíj, helsti samninga-
maður Sovétstjórnarinnar í afvopn-
unarviðræðunum í Vínarborg,
skýrði blaðamönnum þar í borg frá
þessu í gær. Kvað hann utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, Edúard
Shevardnadze, hafa kynnt þessa
hugmynd er hann ræddi við James
Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, um síðustu helgi. í máli
Grínevskíjs kom fram að hugmynd-
in væri sú að utanríkisráðherrar
ríkjanna funduðu snemma á næsta
ári til að undirbúa leiðtogafundinn.
í Vínarborg fara fram viðræður
16 aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) þ.á m. íslendinga
og sjö ríkja Varsjárbandalagsins um
niðurskurð á sviði hefðbundins her-
afla allt frá Atlantshafi til Úral-
fjalla. Á blaðamannafundinum
minnti Oleg Grínevskíj á að þátt-
tökuríkin hefðu lýst yfir því að
æskilegt væri að slíkur sáttmáli
yrði tiibúinn til undirritunar á næsta
ári. Lagt hefði verið til að leiðtogar
ríkja Evrópu undirrituðu samning-
Bretland:
Hlutabréf í vatns-
veitum seljast vel
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
UM EIN milljón manna hefur látið skrá sig vegna sölu á hlutabréfum
í vatnsveitum í Bretlandi. Ráðherrar segja að salan hafi heppnast vel.
Yfir ein milljón manna lét skrá
sig, að því er' kemur fram í The
Sunday Times sl. sunnudag. Michael
Howard, sá ráðherra sem fer með
sölu vatnsveitnanna, sagði að salan
hefði gengið mjög vel, mun betur en
búast hefði mátt við.
í skoðanakönnunum kemur fram
að auglýsingaherferð yfirvalda
vegna sölunnar hefur ekki heppnast
sem skyldi. Ýmis mistök hafa verið
gerð við undirbúning sölunnar og nú
síðast ákvað framkvæmdaráð Evr-
ópubandalagsins að höfða mál á
hendur Bretum vegna mengunar
vatns. Allt þetta virðist þó ekki hafa
haft áhrif á söluna.
Fyrir rúmri viku lýsti Bryan Gould,
talsmaður Verkamannaflokksins í
iðnaðar- og viðskiptamálum, því yfir
að Verkamannaflokkurinn myndi
ekki greiða arð af hlutabréfum í al-
menningsveitum. Neil Kinnock, leið-
togi flokksins, vísaði þessu ummæl-
um óbeint á bug degi síðar.
Yfirlýsing Kinnocks hafði þau
áhrif, að eftirspum eftir hlutabréfum
í vatnsveitum jókst verulega. Fyrir-
spurnir um afsláttarbréf jukust úr
25 þúsundum á dag í 80 þúsund á
dag eftir þau. En þeir, sem kaupa
vatn frá vatnsveitum, gátu keypt
hlutabréf í þeim á áfslætti, ef þeir
létu skrá sig fyrir síðustu helgi.
Ferdinand Marcos, íyrrum Filippseyjaforseti:
Drottnunarsjúkur ein-
ræðisseggur fallinn frá
FERDINAND Marcos, sem í tuttugu ár fór með völd í Filippseyjum,
lést í gær á Honolulu á Hawaii, 72 ára að aldri. Hann fæddist 11.
september 1917 og nam lögfræði við háskólann í Filippseyjum. I
síðari heimsstyijöld barðist hann með herjum Filippseyja og Banda-
ríkjanna, fyrst sem liðþjálfi en síðar sem höfiiðsmaður. Hann var
einn af stofhendum andspyrnuhreyfingar gegn hernámi Japana, en
opinberar bandarískar skýrslur draga reyndar mjög í efa að þessi
andspyrnuhreyfing hafi nokkurn tíma verið til. Marcos var fúlltrúa-
þingmaður á filippeyska þinginu 1949-’59 og öldungadeildarþingmað-
ur 1959-’66.1965 varð hann forseti Filippseyja og var tvívegis endur-
kjörinn í embættið, (1969 og 1981), sem hann gegndi til ársins 1986.
Áður en Filippseyingar kusu
Marcos forseta í fyrsta sinn höfðu
þeir vanist því að kjósa sér nýjan
forseta á fjögurra ára fresti. Heil
kynslóð Filippseyinga þekkti aðeins
Marcos sem forseta. Þegar hann
komst til valda ríkti mikil fátækt á
meðal alþýðunnar þrátt fyrir fijó-
samt land og auðug fiskimið. Fólk
úr sveitum landsins streymdi til
höfuðborgarinnar, Manila, í leit að
atvinnu og þar risu fátæktarhverfi,
glæpir jukust og vopnaðir ribbaldar
sáust oft á götum borgarinnar.
Fyrirheit Marcosar um að hegna
glæpalýðnum, gera umbætur á
spilltu embættismannakerfi og út-
vega fleirum atvinnu gáfu þjóðinni
nýja von.
1968 hittust nokkrir tugir fyrr-
verandi námsmanna á laun. Þeir
endurreistu hinn bannaða komm-
únistaflokk og mynduðu Her hinnar
nýju þjóðar, (NPA). Einum mánuði
eftir að Marcos var endurkjörinn
1969, fyrstur filippeyskra forseta,
gerðu 2.000 vinstrisinnaðir stjórn-
arandstæðingar árás á forsetahöll-
ina. Hermenn, hliðhollir Marcos,
skutu fjóra námsmenn til bana í
götubardögum. En Her hinnar nýju
þjóðar átti eftir að eflast og gera
stjórnarher Marcos marga skráveif-
una.
Að morgni 23. september 1972
<lét Marcos handtaka fjölda stjórn-
málamanna, blaðamanna og ann-
arra andstæðinga sinna. Hermenn
lögðu undir sig skrifstofur dag-
blaða, útvarps og sjónvarps. Sama
kvöld lýsti Marcos því yfir að hann
nyti „leiðsagnar Guðs“ og setti á
herlög í landinu. Hann kvað herlög-
in nauðsynleg til að hindra fram-
gang kommúnista og til að stuðla
að efnahagsviðreisn. Einn þeirra
fyrstu er Marcos lét varpa í fang-
elsi var fulltrúadeildarþingmaður-
inn Benigno S. Aquino, sem hafði
áunnið sér virðingu alþýðunnar fyr-
ir að afhjúpa afbrot og spillingu
embættismanna.
Marcos leysti upp þingið og
samdi nýja stjórnarskrá sem veitti
honum ótakmörkuð völd. Síðar við-
urkenndi Marcos að 70.000 manns
hefðu verið handteknir fyrstu fimm
árin sem herlög voru í gildi. Herlög-
in komu í veg fyrir að til átaka
kæmi á götum úti en efnahags-
batinn var að mestu leyti á yfirborð-
inu. Yfir 60% þjóðarinnar lifðu und-
ir fátæktarmörkum og verkfalls-
réttur var afnuminn. í stað
víðtækra efnahagsumbóta risu
fimm stjörnu hótel í höfuðborginni
hvert af öðru.
1981 aflétti Marcos herlögum og
Reuter
Ferdinand Marcos
sama ár bar hann sigurorð af lítt
þekktum frambjóðanda í forseta-
kosningum sem stjórnarandstæð-
ingar sniðgengu. Hann var kjörinn
forseti til næstu sex ára.
Benigno Aquino, sem hafði verið
leystur úr haldi þremur árum áður
og leyft að fara til Bandaríkjanna,
sneri heim til Filippseyja 1983 en
var skotinn til bana á flugvellinum
í Manila við komuna. Tilræðismað-
urinn, Rolánd Galman, sem til-
heyrði herlögreglunni, var sam-
stundis skotinn til bana af starfs-
bræðrum sínum. Eftir níu mánuða
réttarhöld komst hæstiréttur lands-
ins að þeirri niðurstöðu að Galman
hefði verið einn að verki þó flest
virtist benda til samsæris háttsettra
manna innan hersins.
Morðið á Aquino reyndist vendi-
punktur í filippeyskum stjórnmál-
um. Stjórnarandstæðingar samein-
uðust í andstöðu sinni gegn Marcos
og mótmæli gegn stjórn hans urðu
tíðari.