Morgunblaðið - 29.09.1989, Qupperneq 35
- -MORGUNBLÁDll) Í'ÖSTUDAGUK 29. SEÍ’ÍEMBEK 1989
35
SÍMI 78900 - ÁLFABAKKA 8 - BREIÐHOLTI
FIUJMSYNIR TOl’PMYNIIINA:
ÚTKASTARINN
PATRIGK S
Dalton lives like a linier,
fights like a professional.
Anil Inves
like there's no tomorrow.
ÞAÐ ER HINN FRÁBÆRI FRAMLEEÐANDI )OEL
SILVER (DIE HARD, LETHAL WEAPON) SEM ER
HÉR KOMINN MEÐ EITT TROMPIÐ ENN HINA
ÞRÆLGÓÐU GRÍN-SPENNUMYND „ROAD HO-
USE" SEM ER ALDEILIS AÐ GERA ÞAÐ GOTT VÍÐS-
VEGAR í HEIMINIIM í DAG. PATRICK SWAYZE
OG SAM ELLIOTT LEIKA HÉR Á ALLS ODDI OG
ERU í FEIKNA STUÐI. „ROAD HOUSE" ER FYRSTA
MYND SWAYZE Á EFTIR „DIRTY DANCING".
ROAD HOUSE EIN AF TOPPMYNDUM ÁRSINS!
Aðalhlutvcrk: Patrick Swayze, Sam Elliott,
Kelly Lynch og Ben Gazzara.
Framl.: Joel Silver. — Leikstj.: Rowdy Heeringotn.
Sýnd kl. 5,7.05.9.05 og 11.10. — Bönnuð innan 16 ára.
. ME TA ÐSOKNA RM YNÐIN
★ ★★ SV.MBL. - ★★★ SV.MBL.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
TVEIR ATOPPNUM 2 LEVFID AFTURKALLAÐ
Sýnd 5,7.05,9:05,11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
aöET
Sýnd kl. 5,7.30 og10.
Bönnuð innan 12 ára.
GUÐIRNIRHUOTAAÐ
VERA GEGGJAÐIR 2
Sýnd kl. 5 og 9.05.
MEÐALLTÍLAG!
Sýnd kl. 7.05 og 11.10.
LAUGARÁSBÍO
Sími 32075
„DRAUMAGENGIÐ
ERSTÓR-
MYND
ÁRSINS!
Loksins
hjartfólgin
grínmynd".
Bob Thomas,
Associated prcss.
MICHAEL CHRISTOPHER PETER STEPHEN
KEATON LLOYD BOYLE FURST
DRAUMAGENGIÐ
Fjórir á f lakki til raunveruleikans
Sá sem hefur ckki gaman af þessari stórgóðu gamanmynda
hlýtur sjálfur að vera léttgeggjaður.
Michael Kcaton (Ratman), Peter Boyle (Taxi Dri-
ver), Christopher Lloyd (Back to the Future) og
►Stephen Furst (Animal House) fara snilldarlega veP
með hlutverk fjögurra geðsjúklinga sem cru einir á ferð í
New York eftir að a hafa orðið viðskila við lækni sinn.
Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11.10.
TALSYN
„James Woods og Sean
Young eru frábær".
★ ★ ★1/2 AI. MBL.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
K-9
Kynnist tveim hörðustu
löggum borgarinnar. Onn-
ur er aðcins skarpari.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
Bönnuð innan 12 ára.
Samúræi sóðakránna
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin
Útkastarinn — Road House
Leikstjóri: Rowdy Herring-
ton. Aðalleikendur: Patrick
Swayze, Ben Gazzara, Sam
Elliott. Bandarísk. UA
1989.
Nýjasta hetja bandarískra
kvikmynda kemur úr röðum
heldur óvinsællrar stéttar
útkastara. Hver sótraftur
virðist á sjó dreginn í hug-
myndabönkum Hollywood-
borgar. í þessari sparifata
B-mynd fer Swayze með hlut-
verk tiltektarmanns sem
breytir sorabúlum í sælureiti.
Fær verkefni niður í Kansas
að koma röð og reglu á enn
eina sóðakrána og verður það
næstum um megn er hann
rekur barþjón nokkurn. Er
hann skyldur Gazzara, sem
leikur glæpamann sem búinn
er að leggja undir sig bæinn.
Þegar líða tekur á breytist
Útkastarinn úr hinni hressile-
gustu slagsmálamynd í að-
kenningu að japanskri sam-
úræamynd, Swayze er sem-
sagt kominn til að sópa göt-
urnar í þorpinu að hætti Mif-
une og síðar Eastwood. Þetta
gengur ékki upp, jafnvel þó
klínt sé heimspekigráðu á
dyravörðinn og hann leiti sér
bólfanga meðal akademískra
borgara. Því þó fimur sé, er
og verður Swayze aldrei ann-
að en góður slagsmálahundur,
útlitið og áran heldur skugga-
leg. Reisnina vantar, við erum
aðeins að horfa á '89 árgang-
inn af vel gerðum
B-slagsmálum, ofbeldi og
yfirgangi. Gazzara, sá mæti
leikari, rennir létt í gegnum
hlutverk skúrksins, en Elliott
er hálf-ankannalegur sem
vinur útkastarans, grár og
feyskinn á hann að vera
margra manna maki, það
gengur ekki pent upp. En
hvað sem öðru líður þá skort-
ir aldrei hraðann og ofbeldið,
sem er hrikalegt, en hvort
tveggja er einkar eftirsóknar-
vert í augum ungra áhorf-
enda. Svo Útkastarann mun
ekki skorta aðdáendurog ekki
minnkar handagangurinn er
á myndbandaleigurnar kem-
ur.
C23
19000
FRUMSÝNIR ÓSKARSVERÐLAUNAMYNDINA:
PELLE SIGURVEGARI
Eftir sögu MARTIN ANDERSEN NEXÖ.
„Pelle sigurvegari sýnir að Danir eru hinir sönnu
sigurvegarar í kvikmyndaheiminum,,. AI.Mbl.
„Pelle sigurvegari er meistaraverk..."
„Myndin er upplifun sem ekki má fara fram
hjá kvikmyndaáhugamönnum..."
★ ★ ★ ★ Þ.Ó. Þjóðv.
Leikstjóri er BILLIE AUGUST.
Sýnd kl. 5 og 9.
DÖGUN
„Ein af hinum vel-
kunnu, hljóðlátu en
dramatísku smáperl-
um sem Bretar eru
manna leiknastir í að
skapa í dag."
★ ★ ★ SV. Mbl.
Sýnd kl. 5,7,9,11.15.
BJÖRNINN
Sýnd kl. 5,7,9,11.15.
SHERLOCKOGÉG
Sýnd kl. 5,7 og 11.15.
Sýnd kl.5,9,11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 9.
MÓDIR FYRIR RÉTTI
GESTABOD BABETTU
Sýnd kl. 7. — 10. sýningarmánuður!
f
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
Hnignun og fall uppans
Kvikmyndir
Arnaldurlndriðason
Tálsýn („The Boost“).
Sýnd í Laugarásbíói.
Leikstjóri: Harold Bec-
ker. Aðalhlutverk: James
Woods og Sean Young.
Hér er mynd sem óhætt
er að segja að sé afsprengi
sinna tíma. Tálsýn er vænt
kjaftshögg á uppaáratug-
inn, á peningahyggjuna og
kókaínsukkið, á drauminn
um að verða ríkur og „meik-
aða“ í Ameríku sama hveiju
þú þarft að fórna til að ná
á toppinn. Hún er hvöss og
harkaleg og miskunnarlaus
og á endanum dúndur
áhrifamikil um fólk sem
hugarfar peningahyggjunn-
ar gleypir og hrækir útúr
sér í rennustein hinna mis-
heppnuðu. Þetta er mynd
sem á mikið erindi í dag,
sérstaklega til þeirra sem
halda að hamingjan fáist í
seðlabúntum.
Tálsýn er Dagar víns og
rósa kókáratugarins én það
er meira í henni. Sjálfseyð-
ingarhvöt persóna hennar
tengist víðari mynd, þjóð-
félagsgerð og hugsunar-
hætti sem ríkt hefur allan
þennan áratug í Banda-
ríkjunum og kristallast í
orðum Gordons Gekkos í
myndinni „Wall Street" —
annarri en ekki eins per-
sónulegri um taumlausa
gróðahyggju níunda áratug-
arins: „Græðgi er góð.“ Tál-
sýn er ekki aðeins gagnrýni
á þessa hugsun og lífsstílinn
sem hún skapar, myndin
tekur hana og jarðar undir
sex fetum af kóki.
Tálsýn, sem Harold Bec-
ker leikstýrir af innsæi og
þekkingu, er borin uppi af
meistaralegum leik James
Woods sérstaklega. Hinn
æsti, hraðmælti og örgeðja
Lenny Brown — hátt-
stemmdur Woods er fæddur
til að -leika hann — þarf
ekki kókaín til að koma sér
í stuð. Hann er eins og
hundrað manns í að koma
sér áfram og græða, græða,
græða. Hann er fátækur
sölumaður í New York,
menntunarlaus og giftur
gullfallegri konu (Sean Yo-
ung), sem hann dýrkar.
Hann slær til þegar hann
fær tækifæri til að selja
fasteignir í Los Angeles,
verður sölukóngur þar og
kemst í töluverðar álnir,
kynnist ríka liðinu og kók-
aíni í leiðinni. Ekkert kemst
að hjá honum nema græða
peninga, hann hefur fengið
smjörþefinn af ríkidæmi og
það verður honum hættu-
legra en nokkurt dóp. Ef
hann gæti sniffað dollara
mundi hann gera það. Brátt
.tekur að halla undan fæti,
eitrið tekur völdin, gróða-
plönin tvístrast en hið kald-
hæðnislega er að hann fær
aldrei séð hið fornkveðna
að eina raunverulega ham-
ingjan í lífinu kostar ekki
krónu.
Þessi boðskapur verðúr
aldrei hallærislegur af því
hann verður svo sannur og
hann er alltaf í seilingarfjar-
lægð frá Lenny. Var þetta
allt þess virði bara til að fá
besta borðið á einhvetjum
veitingastaðnum? Bestu
stundir sínar á leikstjórinn
Becker þegar hann fer með
okkur um heim hins efnaða,
um merktu borðin á mat-
sölustöðunum, um vinina
sem aðeins meta þig eftir
þykkt seðlaveskisins. Á
sama hátt er kaflinn um
hnignun og fall Lennys sér-
lega sannfærandi, hrikaleg-
ur og aumkunarverður.
En sjáið Tálsýn. Hún er
ein af bestu myndunum
þetta árið og sannarlega sú
mynd sem á hvað mest er-
indi við okkur í dag.