Morgunblaðið - 24.04.1993, Qupperneq 57
57
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
HANDKNATTLEIKUR
Knattspyrna:
Byggjum ekki
skýjaborgir
- segir þjálfari U-16
ára liðsins
„VIÐ berum væntingar til liðs-
ins en ætlum okkur ekki að
byggja neinar skýjaborgir,"
segir Þórður Lárusson, annar
þjálfari drengjalandsliðsins
sem hélt til Tyrklands í gærdag
þar sem liðið mun taka þátt í
sextán liða úrslitakeppni Evr-
ópumótsins.
Fyrsti leikur liðsins verður á
mánudag er liðið mætir N-
írum, á miðvikudag leikur liðið
gegn Póllandi og á föstudag gegn
Sviss. Tvö lið fara upp úr riðlinum
i 8-liða úrslitakeppni og þau mæta
tveimur efstu liðunum úr riðli
Tékka, Englendinga, íra og Belga.
„Stefnan er sett á átta liða úrslit-
in og ég held að það sé raunhæfur
mögueleiki. Það sem helst kemur
til með að há okkur er hve strákarn-
ir eru í lítilli leikæfingu eftir vetur-
inn. Hins vegar eru þeir í mjög
góðu líkamlegu formi eins og sást
í æfingaleikjunum í Skotlandi. Þá
hefur hópurinn haldið vel saman í
vetur og æft hálfsmánaðarlega,"
segir Þórður.
„Ég á von á því að við munum
notast við leikaðferðina 4-4-2 en
hún hefur hentað okkur ágætlega.
Við lékum við N-íra í fyrra og tel
okkur eiga ágæta möguleika gegn
þeim, Sviss hefur yfirleitt ekki átt
góð unglingalið og við þekkjum lít-
ið til þeirra. Pólveijar eru hins veg-
ar óskrifað blað.“
Mikil þátttaka í
Faxafióamótinu
Faxaflóamótið í knattspyrnu
hefst í dag með leikjum í þriðja
og íjórða flokki drengja. Tólf félög
senda lið á mótið þar af eru Grinda-
vík og UMF Bessastaðahrepps með
í fyrsta skipti.
Vegna fjölda þátttökuliða í
fimmta og sjötta flokki drengja
hefur verið ákveðið að leika með
fjölliðamótsfyrirkomulagi í þeim
flokkum. Keppt verður í a, b, og
c-liðum í þeim flokkum. í fjórða
flokki drengja er leikið hjá a- og
b-liðum en í öðrum flokkum verður
aðeins keppt hjá a-liðum. Mótið er
haldið fyrir 3.-6. flokk drengja og
í stúlknaflokki er leikið í öðrum,
þriðja og fjórða flokki.
Knattspyma:
Tindastöll.
sigraði
Unglingalandslið íslands í borðtennis, sem var skipað Guðmundi
Stephensen og Ingólfi Ingólfssyni, varð í 9. sæti af 15 liðurn
á heimsmóti skóla sem fram fór í Birmingham um páskana.
íslenska liðið vann einn leik í riðlakeppninni, gegn Mön 3:0, en tap-
aði fyrir Englandi 1:3, Belgíu 1:3, Skotum 0:3, Slóvakíu 1:3 og ísra-
el 0:3. Þá var leikið um sæti og fyrst gegn írum og vannst leikurinn
3:1. Þá lék liðið gegn Skotum um 9. sætið og vannst sá leikur 3:0.
í einstaklingskeppninni var keppt í riðlum. Bæði Ingólfur og Guð-
mundur unnu þijá leiki í en töpuðu tveimur og komust ekki í 16-
manna úrslit.
Morgunblaðið/Frosti
Valur - íslands- og bikarmeistari í 3. flokki kvenna í handknattleik. Aftasta
röð frá vinstri: Sigrún Hauksdóttir, Lilja Valdimarsdóttir, Eivor Pála Jóhannes-
dóttir, Margrét Jóhannesdóttir og Hrund Einarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Mika-
el Abkashen þjálfari, Ástrós Guðlaugsdóttir, Inga Rún Káradóttir fyrirliði,
Gerður Jóhannesdóttir og Sonja Jónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Dagný
Pétursdóttir, Sigríður Jónsdóttir og Kristjana Jónsdóttir.
Morgunblaðið/Frosti
KA - íslandsmeistari í 4. flokki karla í handknattleik. Aftari röð frá vinstri: Vilhelm A. Jónsson, Kári Jónsson, Anton
Þórarinsson, Guðmundur Brynjarsson, Axel Árnason, Arnar Árnason, Arnar Vilhjálnisson, Guðmundur Pálsson og Gunn-
ar Níelsson liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Jóhannes Bjarnason þjálfari, Heimir Árnason, Hlynur Erlingsson, Hafþór
Einarsson, Halldór Sigfússon, Hörður Flóki Ólafsson, Þórir Sigmundsson, Hákon Atlason og Smári Stefánsson.
LIÐ Tindastóls í fimmta flokki
í knattspyrnu sigraði á ísiands-
bankamóti sem haldið var í
nýja íþróttahúsinu á Blönduósi
fyrir skömmu. Fjögur knatt-
spyrnufélög sendu lið til keppni
og voru allt að þrjú lið frá sama
félaginu.
Liðin voru frá Tindastóli á Sauð-
árkróki, Þrótti í Reykjavík,
Fram frá Skagaströnd og Hvöt frá
Blönduósi. Eins og
fyrr greinir sigraði
lið Tindastóls lið
Þróttar í úrslitaleik
og var baráttan
mikil. í þriðja sæti varð einnig lið
frá Þrótti. íslandsbankaútibúið á
Blönduósi var styrktaraðili þessa
móts.
Jón
Sigurðsson
skrifar
Shellmót Týs
í tíunda sinn
íslenski hópurinn sem keppti á mótinu í Noregi.
Fimmtán krakkar á
norrænu móti fatlaðra
FIMMTÁN börn og unglingar
tóku þátt í norrænu barna- og
unglingamóti fatlaðra sem
f ram fór í Noregi fyrr í þessum
mánuði.
Samtök íþróttasambanda fatl-
aðra á Norðurlöndum, Nord
Hif, standa að þessu sameiginlega
verkefni annað hvert ár og fer
mótið fram til skiptis á hvetju Norð-
urlandanna. Árið 1995 verður slíkt
mót haldið á íslandi og er þá fyrir-
hugað að það standi í allt að viku
og verði í formi æfinga-/sumar-
búða.
Þátttakendur á mótinu eru jafn-
an byijendur í íþróttum fatlaðra á
aldrinum 12-16 ára sem valdir eru
af öllu landinu og úr öllum fötlunar-
flokkum.
Mótið var nú í fyrsta sinn haldið
í apríl en að öllu jöfnu fer það fram
um mitt sumar. Dagskrá var fjöl-
þætt; auk keppni í sundi og borð-
tennis fór fram kynning á vetrar-
íþróttum, boðið var upp á göngu-
skíði og sérstakar snjóþotur og
kunnu íslensku keppendurnir vel
að meta þetta tilboð en flestir þeirra
voru að stíga á skíði í fyrsta skipti.
Þátttakendur fengu að prófa hesta-
sleðaakstur á ís, farið var í skoðun-
arferð til Lillehammer þar sem
vetrarólympíuleikamir fara fram
árið 1994. Þá var haldið „norskt
páskakvöld“ og ýmislegt fleira var
til gamans gert en mikil áhersla
var lögð á að skemmta keppendum.
Þátttakendur sem valdir voru til
fararinnar nú voru eftirtaldir: Páll
Þórisson, Þorbjörg Guðmundsdótt-
ir, Jón Tryggvason, Ása B. Gísla-
dóttir og Érla Grétarsdóttir sem öll
eru frá íþróttafélaginu Ösg í
Reykjavik, María Jónsdóttir og Árni
Rafn Gunnarsson frá íþróttafélagi
BORÐTENNIS
fatlaðra í Reykjavík, Sigurður H.
Vilhjálmsson úr íþróttafélaginu
Björk, Óskar Adolfsson frá Firði,
Anna Rún Kristjánsdóttir úr Hvöt
á Blönduósi, Elfa Rún Árnadóttir
úr HSK, Hulda Pétursdóttir og Sig-
urrós Önundardóttir frá Nesi,
Harpa Sif Þráinsdóttir Þjóti frá
Akrapesi og Sigríður E. Eyjólfs-
dóttir úr Grósku á Sauðárkróki.
Aðildarfélög ÍF tilnefndu börn
og unglinga úr sínum röðum en
ávallt er reynt að finna nýja þátt-
takendur utan aðildarfélaganna og
svo var einnig nú. Margt af okkar
sterkasta íþróttafólki steig fyrstu
skrefin í keppni í íþróttum fatlaðra
á slíku móti, m.a. Haukur Gunnars-
son, Sigrún Huld Hrafnsdóttir og
Ólafur Eiríksson.
TÍUNDA Pollamót Týs í knatt-
spyrnu, Shellmótið, fyrir sjötta
flokk verður haldið dagana 23. -
28. júní. Á síðustu árum hefur þátt-
tökufjöldi verið um eitt þúsund með
fararstjórum og aðstandendum og
búast mótshaldarar við svipuðum
fjölda í sumar.
Uppselt er á mótið en þátttakend-
ur eru frá 24 félögum og senda þau
flest a-, b- og c-lið. Þátttökugjald
er það sama og í fyrra eða kr.
10.500 á mann og er þá innifalið í
verði ferðir með Heijólfi, skoðunar-
ferðir, minjagripir, grillveisla og
dansleikur auk þess sem forráð- -
menn Týs sjá mönnum fyrir mat og
gistingu.
Leiðrétting
Vegna mistaka við vinnslu Morgunblaðs-
ins sl. fimmtudag féll út hluti af texta und-
ir mynd af þriðja flokki KA. Á myndinni
eru talið frá vinstri í aftari röð: Halldór
Sigfússon, Óli Bjöm Ólafsson, Sverrir
Björnsson, 'Matthías Stefánsson, Tómas
Jóhannesson, Heimir Haraldsson og Ámi
Stefánsson þjálfari. f fremri röð frá vinstri:
Óskar Bragason, ísleifur Einarsson, Birkir
Magnússon, Atli Þór Samúelsson, Flóki
Ólafsson, Bjarni Bjamason og Arnar Árna-
son.
ísland í níunda sæti