Morgunblaðið - 21.09.1997, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýjar húðvörur framleiddar hjá Bláa lóninu
Kísileðja gegn
unglingabólum
RANNSÓKNIR íslenskra og franskra húðlækna
benda til þess að nota megi kísileðju úr Bláa lón-
inu meðjróðum árangri í baráttunni gegn unglinga-
bólum. Asa Brynjólfsdóttir, rekstrarstjóri og lyfja-
fræðingur, hjá Bláa lóninu hf. segir að snyrti- og
húðvörur frá fyrirtækinu hafi verið á markaði
hérlendis frá 1995 og nú sé verið að undirbúa
markaðssetningu erlendis.
Ása segir að verið sé að bæta við ellefu nýjum
vörutegundum sem seldar verði i gjafaumbúðum
til að byija með. Allar innihalda vörurnar hráefni
úr lóninu, þörunga, kísil, sölt og vatn. Við þróun
húðvara Bláa lónsins er miðað við fólk með við-
kvæma húð og húðkvilla, svo sem psoriasis, exem,
þurra húð og unglingabólur.
Öll framleiðslan miðast að því að fólk með við-
kvæma húð þoli vöruna. „Svokallað ísótónískt Blá-
alónsvatn er í framleiðslunni og inniheldur það
jafnmikið af salti og húðfrumurnar og er varan
því sérstaklega mild fyrir húðina," segir Ása.
Þróun á nýrri húðvörulínu er unnin í samstarfi
við franska og ítalska aðila með stuðningi frá Iðn-
tæknistofnun íslands og Iðnlánasjóði. Þróun á
húðkremi er unnin í samstarfi við Lyfjaverslun
íslands.
ÁSA Brynjólfsdóttir með sýnishorn
af framleiðslu Bláa lónsins.
Mikill áhugi erlendis
Ása segir að mikill áhugi sé á vörunum erlend-
is. „Við erum einmitt að gera mjög spennandi rann-
sóknir á áhrifum kísileðju á unglingabólur. Rann-
sóknirnar eru unnar í samstarfi við íslenska og
franska húðlækna. Við höfum fengið vísbendingar
um niðurstöðurnar og þær eru mjög spennandi.
Næsta skref hjá okkur er því ef til vill að þróa
vörulínu fyrir þá sem eru með unglingabólur. Við
bjóðum reyndar kisileðju á túbum og hefur hún
reynst vel á slíka húð,“ segir Ása.
Danir senda sjúklinga
í Bláa lónið til reynslu
HÓPUR danskra psoriasissjúklinga
dvelur nú í Bláa lóninu, en hann kom
hingað til lands í samráði við heil-
brigðisyfirvöld og sjúkrahús í Kaup-
mannahöfn. Grímur Sæmundsen,
framkvæmdastjóri Bláa lónsins, seg-
ir að ef dönsk heilbrigðisyfirvöld
telji að meðferðin hér skili viðunandi
árangri séu góðar líkur á að gerður
verði samningur um að danskir psor-
iasissjúklingar verði meðhöndlaðir
hér. Færeysk heilbrigðisyfirvöld
hafa þegar gert slíkan samning og
eru 11 Færeyingar núna í meðferð
í Bláa lóninu.
Hópamir tveir komu hingað í síð-
ustu viku og dvelja hér í íjórar vikur.
Með danska hópnum, sem í eru sjö
sjúklingar, er danskur hjúkrunarfræð-
ingur sem fylgist með meðferðinni.
Grímur sagði að sjúklingamir væru
aliir með slæm einkenni. Sjúkleiki
þeirra hefði verið metinn áður en þeir
fóm frá Danmörku og hann yrði
metinn aftur eftir að meðferð væri
lokið. Teldu dönsk heilbrigðisyfirvöld
að meðferðin skilaði viðunandi ár-
angri væru góðar líkur á að gerður
yrði samningur um að danskir sjúkl-
ingar yrðu meðhöndlaðir í Bláa lóninu.
Gjaldeyrisskapandi
heilbrigðisþjónusta
Bláa lónið kostar vem Dananna
hér á landi að vemlegu leyti, enda
er koma þeirra hugsuð sem kynning
á lækningarmætti Bláa lónsins. Verði
gerður samningur milli danskra heil-
brigðisyfirvalda og Bláa lónsins munu
Danir kosta meðferðina.
Fyrr á þessu ári var gerður samn-
ingur milli Bláa lónsins og heilbrigð-
isyfirvalda í Færeyjum um meðferð
20 psoriasissjúklinga á ár. Samning-
urinn er til tveggja ára. Fyrsti hópur-
inn frá Færeyjum kom í vor og í
síðustu viku kom annar hópur.
Grímur sagði að sjúklingamir
svöruðu meðferðinni vel og greinileg
batamerki væru þegar komin í Ijós.
Hann sagðist því vera bjartsýnn á
að samstarfi við Dani yrði komið á.
Hér væri á ferðinni gjaldeyrisskap-
andi heilbrigðisþjónusta.
Danir hafa sent sjúklinga til
Dauðahafsins. Grímur sagði að með-
ferðin hér hefði marga kosti fram
yfir Dauðahafið. Meðferðin hér væri
ódýrari og léttari fyrir sjúklingana.
Loftslag væri hagstæðara hér, ör-
yggi sjúklinganna væri tryggt og
styttra væri til íslands frá Danmörku
en til Dauðahafsins.
Yasmina Reza
U I 9 T tv'tHKl í>
Fyrstu sýningar á Litla sviðinu
26/9 Uppselt 15/10 Laus sæti
27/9 Uppselt 16/10 Laus sæti
1 /10 Uppselt 18/10 Laus sæti
3/10 Uppselt
4/10 Uppselt
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ á }j
Sendiherra Bangladesh á Norðurlöndum
Tollafríðindi
mikilvægust
Syed Noor Hossain
Samskipti Bangladesh
og íslands hafa ekki
verið ýkja sýnileg í
gegn um tíðina, en ísland
var meðal fyrstu ríkja til
að viðurkenna sjálfstæði
Bangladesh árið 1972 og
ríkin tvö hafa verið í stjórn-
málasambandi síðan. Syed
Noor Hossain er nýr sendi-
herra Bangladesh á íslandi
með aðsetur í Stokkhólmi,
en hann afhenti forseta
íslands trúnaðarbréf sitt
fyrir skemmstu og átti í
þessari fyrstu íslandsferð
sinni viðræður við hérlenda
ráðamenn og frammámenn
úr viðskiptalífinu.
I heimsókn sinni vakti
Hossain athygli á að ísland
væri eina landið á Norður-
löndum, sem ekki léti
Bangladesh njóta tollafríð-
inda fyrir helztu útflutningsfram-
leiðslu sína, vefnaðarvörur.
„íslenzkir innflytjendur sem ég
hitti lýstu miklum áhuga á að
flytja inn vörur beint frá Bangla-
desh. Einn þeirra flytur nú þegar
inn vörur sem framleiddar eru í
Bangladesh, en ekki beint þaðan,
heldur í gegn um milliliði í Dan-
rnörku," sagði Hossain í samtali
við Morgunblaðið.
„Hér er um að ræða vandamál
sem þarf að leysa. Samkvæmt
skilgreiningu Sameinuðu þjóð-
anna er Bangladesh meðal
minnst þróuðu landa heimsins,
en slík skilgreining aflar landinu
vissra sérkjara í utanríkisvið-
skiptum. Þannig er ekki lagður
tollur á vörur frá Bangladesh,
sem fluttar eru inn til landa Evr-
ópusambandsins, en til að mynda
Noregur lætur okkur líka njóta
þessara fríðinda, sem eru liður í
þróunaraðstoð. ísland, eitt Norð-
urlandanna, hefur engar slíkar
reglur í gildi.
Ég fór því fram á það við ís-
Ienzk stjórnvöld að þau gæfu
þessu atriði gaum, með það fyrir
augum að gera íslenzkum inn-
flytjendum kleift að flytja inn
vörur frá Bangladesh á hagstæð-
ara verði. Mikið myndi sparast
með þessu, bæði aðflutnings-
gjöldin og kostnaður sem verður
til við að flytja vörurnar í gegn
um danska milliliði. Þetta væri
því hagur íslenzkra neytenda,
sem ætti þar með þess kost að
nálgast vandaðan fatnað frá
Bangladesh á mjög hagstæðu
verði.“
- Er um fleiri vörutegvndir en
vefnaðarvöru að ræða, sem kæmi
til greina að þínu mati að flytja
hingað?
„Já, til dæmis teppi, leðurvörur
og fleira af því tagi, en einnig
niðursoðna matvöru svo eitthvað
sé nefnt. Við framleiðum jafnvel
vetrarklæðnað, sem fluttur er út
til Austurríkis.
ísland er fámennt
land en auðugt, hér er
velmegun mikil og inn-
flutningur stundaður
alls staðar frá. Iðnað-
arframleiðsla Bangla-
desh er mjög sam-
keppnishæf. Vörur frá Bangla-
desh standast fyllilega gæðakröf-
ur hinna Norðurlandanna - tals-
menn sænskra vefnaðarvöruinn-
flytjenda segja mér að þeir kjósi
vörur frá Bangladesh frekar en
til dæmis kínverskar."
- Sérðu samstarfsmöguleika á
fleiri sviðum?
„Já, til dæmis á sviði sjávarút-
vegs. Ég trúi því að útgerðaraðil-
► Syed Noor Hossain tók við
embætti sendiherra Bangla-
desh á Norðurlöndum síðastlið-
ið haust, en hann afhenti for-
seta Islands trúnaðarbréf sitt
11. september síðastliðinn.
Sendiherrann hefur aðsetur í
Stokkhólmi.
ar á íslandi gætu séð sér hag í
að efna til samstarfs við Bangla-
desh. Fiskveiðar eru mikilvæg
atvinnugrein hjá okkur, bæði í
fljótum og stöðuvötnum og í Ind-
landshafi. Útgerðartæknin er
hins vegar á frumstæðu stigi, við
höfum til að mynda engan tog-
araflota enn sem komið er.
Bangladesh býr því yfir miklum
fiskveiðiauðlindum, sem eru langt
í frá fullnýttar. Ennfremur tel ég
líkur á því að í Bangladesh finn-
ist markaður fyrir íslezkar rækjur
til dæmis, ef vilji er fyrir hendi
hér á landi að ráðast í slíkan
útflutning. Með samstarfi við ís-
lenzk fyrirtæki sé ég líka mögu-
leika á útflutningi íslenzkrar fisk-
verkunartækni til Bangladesh.
Vissulega gerir hin mikla fjar-
lægð milli landanna það að verk-
um, að mörgum finnst of langt
á milli þeirra til að þeir hugleiði
það af nokkurri alvöru að stunda
viðskipti. En heimurinn er alltaf
að verða minni með nútíma
tækni. Það eru líka þegar for-
dæmi fyrir því að Islendingar
beiti sér í viðskiptum fjarri
heimahögunum, til dæmis í Afr-
íku. Ég held þess vegna að sam-
starf aðila í einkarekstri á íslandi
við aðila í Bangladesh sé vel
hugsanlegur möguleiki. Vilji er
allt sem þarf. Þannig vonast ég
til að viðskiptatengsl ríkja okkar
aukist á næstu árum.“
- Hvað um pólitísk tengsl?
„Hvað varðar pólitísk tengsl
langar mig að nefna að verið er
að undirbúa fyrstu heimsókn for-
sætisráðherra Bangla-
desh, Sheikh Hasina
Wajed, til Norðurland-
anna. Víst er að hún
fer til Svíþjóðar, Nor-
egs og Finnlands, lík-
lega einnig Danmerk-
ur, en ég vona að hægt sé að
kanna möguleikann á því að hún
komi jafnframt til íslands.
Ég nefndi þessa hugrnynd_ á
fundum mínum með forseta ís-
lands og utanríkisráðherranum.
Ég held að heimsókn forsætisráð-
herrans, sem myndi verða í apríl
eða maí á næsta ári, yrði kærkom-
ið tækifæri til að gera tengsl landa
okkar eilítið „sýnilegri" en áður.“
Forsætisráð-
herrann hugs-
anlega til
íslands