Morgunblaðið - 21.09.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997 11
Aukið sjálfstæði
í reynd en
lögin óskýr
BIRGIR ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri segist aðspurðurtelja
þörfina fyrir seðlabanka hér á
landi jafnvel enn brýnni en áður.
Frjáls fjármagnsviðskipti og markaðskerfi
séu alls staðar að ná yfirhöndinni og í því
sambandi séu seðlabankar farnir að gegna
mjög mikilvægu hlutverki við stjórn efna-
hagsmála. Eiríkur Guðnason seðlabanka-
stjóri tekur í sama streng. Hann segir
góða verkaskiptingu vera milli stofnana
sem annast hagrannsóknir hérlendis og
þess gætt að ekki sé um tvíverknað að
ræða.
Birgir ísleifur var spurður um sjálfstæði
bankans og lagaákvæði í þeim efnum.
„Við getum gert mun á annars vegar
lögunum um Seðlabankann eins og þau
eru núna, þau eru frá 1986. Þegar þau
eru lesin ofan í kjölinn hefur okkar seðla-
banki ekki mikið sjálfstæði miðað við seðla-
banka í ýmsum öðrum löndum. Markmið
hans eru auk þess dálítið óljós og þau eru
á tvist og bast, stangast jafnvel á.
Ef við hins vegar könnum hvernig þetta
hefur orðið í raun hafa málin þróast þann-
ig að sjálfstæði bankans er hér mjög
áþekkt því sem er í löndunum í kringum
okkur.
Að auki hefur Seðlabankinn haft í reynd
vald til að ákveða vexti á lánamarkaði,
vald sem t.d. Englandsbanki hefur ekki
haft þar til í sumar. Um þetta vald okkar
er þó ekki kveðið á í lögum, þetta er frem-
ur þróun sem hefur orðið og byggist ýmist
á skriflegu samkomulagi, þegjandi sam-
komulagi eða hefðum sem hafa verið að
skapast hér. Á hinn bóginn þyrfti auðvitað
að fara yfir lögin og fylgja þessu svolítið
eftir í þeim.“
Á móti tímans straumi
- Má ekki segja að ríkisstjórnin á hverj-
um tíma gæti umsvifalaust skipt um skoð-
un, sagt allt íeinu að nú vilji hún sjálfráða
vöxtum?
„Fræðilega er þetta alveg hugsanlegt
en ég held hins vegar að það þurfi mikið
að ganga á áður en menn hverfa aftur til
gámla fyrirkomulagsins sem er orðið úrelt
og þekkist hvergi í nálægum ríkjum. Menn
þyrftu að synda ansi sterklega á móti
tímans straumi til þess.
Þetta hugtak, sjálfstæði seðlabanka, er
stundum dálítið óljóst, stundum misskilið.
í rauninni er þetta einkum spurning um
að verkaskipting í efnahagslífinu sé alveg
klár, hver eigi að gera hvað.“
- Nú virðist oft vera
greinileg togstreita milli rík-
isstjórnar og seðlabanka í
Bandaríkjunum. Þarna er
eins og tvö stórveldi séu að
kljást; forsetinn og seðla-
bankastjórinn.
„Já á sínu afmarkaða sviði
hefur bandaríski seðlabank-
inn töluvert sjálfstæði, það
er enginn vafi á því. En lítum
á dæmigerðan seðlabanka í
Evrópu og helstu fyrirmynd:
ina, þýska seðlabankann. í
Maastricht-samningnum er
gert ráð fyrir að þýski bank-
inn verði fyrirmynd seðla-
bankanna í hverju aðildarríki
væntanlegs myntbandalags
og verið er að undirbúa lög-
gjöf til að tryggja það í lönd-
um sem hyggjast taka þátt
í bandalaginu,".
Birgir segir smæð hag-
kerfisins veita okkur nokkra
vernd gagnvart spákaup-
mennsku með krónuna en
leggur áherslu á að ekki
megi sofa á verðinum.
„Ástæðan fyrir slíkum
vandamálum er yfirleitt sú
að það verður til eitthvert
misvægi í efnahagslífinu
sjálfu, einhveijar mikilvægar
forsendur þess eru að bresta.
Sé efnahagsstjómin í lagi hjá
okkur er hættan mun minni
en ella.“
Verkaskipting i
gagnasöfnun
Hagrannsóknir og gagnasöfnun um íslensk
efnahags- og fjármál eru stunduð í Seðla-
bankanum og nokkrum öðrum stofnunum.
Er ekki hætta á tvíverknaði?
„Það er ágæt verkaskipting milli t.d.
Seðlabankans og Hagstofunn-
ar,“ segir Eiríkur Guðnason
seðlabankastjóri. „Við önn-
umst fyrst og fremst rannsókn-
ir og gagnasöfnun á því sviði
sem að bankanum snýr og þá
á ég við peningamálin og gjald-
eyrismálin. Hagstofan lætur
bankanum þetta eftir, fær
gögn á þessum sviðum frá
Seðlabankanum og safnar ekki
efnahagsreikningum frá bönk-
um og þess háttar. Þjóðhags-
stofnun beinir síðan athygli
sinni að þjóðhagsreikningum
og ýmsum almennum efna-
hagsmálum og segir auðvitað
sína skoðun á peningamálum."
- Hlutverk Seðlabankans
hefur breyst mikið. Einu sinni
var sagt að stofnunin hefði
upphaflega ekki verið nema ein
skúffa í Landsbankanum. . .
„Það var mjög snjall ræðu-
maður sem komst svona að
orði og ummælin hafa lifað.
En það er rétt, hlutverkin hafa
breyst. Við höfum lagt af af-
urðalánin og lækkað bindi-
skyldu. Gjaldeyriseftirlitið var
stór deild hjá okkur en var lögð
niður með auknu frelsi í þeim
efnum.
Aðrar deildir hafa hins vegar
stækkað, sérstaklega banka-
eftirlitið og sama er að segja
um deildir sem sinna mörkuð-
um.
Við höfum tekið mikinn þátt
í að byggja upp verðbréfa- og
peningamarkaðinn hér, fyrst
með því að stofna Verðbréfaþing. Fyrir
fjórum árum settum við á laggirnar milli-
bankamarkað fyrir gjaldeyri og þar byggj-
ast viðskiptin á reglum sem Seðlabankinn
setur í samstarfi við bankana.“
Birgir ísleifur
Gunnarsson
Eirikur
Guðnason
Stöðugleikinn er
pólitískt markmið
VALUR Valsson, banka-
stjóri íslandsbanka, segir
að eftir að fijálsræði og
samkeppni hafi leyst af
hólmi þvingaðar ráðstafanir og fyrir-
mæli stjórnvalda í efnahagslífinu
hafi hlutverk Seðlabankans ger-
breyst. Enn eimi þó eftir af gömlum
tíma, hann nefnir sem dæmi ákvæði
um lausafjárskyldu og bindiskyldu á
innlánsstofnanir sem voru hluti af
þessu gamla kerfi en eiga fáa for-
mælendur núna, að sögn Vals.
„Seðlabankinn ætti fyrst og
fremst að hafa það hlutverk sem
almennt á við um seðlabanka á Vest-
urlöndum núna, að vinna að því
pólitíska markmiði að halda verðlagi
stöðugu. Mér sýnist að seðlabankinn
hér hafi verið að færa sig inn á
þessa braut. Hann grípur núna inn
með almennum aðgerðum á mark-
aðnum til að hafa áhrif á vexti og
gengi og það á hann að gera.“
-Hörðustu markaðshyggjumenn
segja að það eigi að láta markaðsöfl-
in um að ákvarða vexti og gengi.
„Já en ef markmiðið er að halda
verðlagi stöðugu þá hefur Seðla-
bankinn hlutverki að gegna. Án að-
gerða til að halda verðlagi stöðugu
má gera ráð fyrir að sveiflur í gengi
og vöxtum yrðu meiri. Auk þess
má nú ekki gleyma að Seðlabankinn
hefur ákveðnu hlutverki að gegna
meðan við erum með sjálfstæðan
gjaldmiðil."
Veikleikinn verður augljósari
-Getur jafn lítið hagkerfi og
okkar verið með sjálfstæðan gjald-
miðil til frambúðar?
„Við þurfum að líta á málið í al-
þjóðlegu samhengi. Það stefnir allt
í sameiginlegt myntkerfi og einn
gjaldmiðil í stórum hluta Evrópu.
Þetta getur tekið einhvern tíma en
ég held að fáir efist um að þetta
verði lokaniðurstaðan.
Þegar þannig verður komið hef
ég miklar efasemdir um gildi eða
gagnsemi þess að íslendingar haldi
uppi sjálfstæðum
gjaldmiðli. Veikleiki
hans verður þá enn
augljósari en nú í sam-
anburði við stóru mynt-
svæðin og kostnaður-
inn við að halda uppi
slíkri mynt gæti orðið
óréttlætanlegur.
Annars vegar gæti
vaxtamunurinn orðið
of mikill, útlendingar
myndu áskilja sér svo
hátt áhættuálag í við-
skiptum með íslenskar
krónur og hins vegar
myndi krónan eiga á
hættu að á hana yrði
ráðist á alþjóðlegum
markaði. Miklu öflugri gjaldmiðlar
en íslenska krónan hafa lent í þeim
vanda.
Við njótum þess núna að aðrir
hafa til þessa ekki viljað eiga íslensk-
ar krónur, þær eru í stórum dráttum
í okkar eigin höndum. En við eru
búnir að opna fyrir það að útlending-
ar geti átt krónur og íslendingar
geta keypt gjaldeyri að vild á stund-
argengi eða framvirkt. Ef mál þró-
ast hér með sama hætti og gerist í
grannlöndunum mun koma sá dagur
að fátt geti verndað okkur fyrir sams
konar gengissveiflum og við höfum
orðið vitni að annars staðar.“
Valur segir að það myndi ekki
breyta heildarmyndinni þótt Bretar
og Danir stæðu utan við nýja kerfið.
Eftir sem áður yrði íslenska krónan
eins konar örmynt borið saman við
mynt stóru svæðanna. hann segist
telja að ekki verði komist hjá ákvörð-
un á næsta áratug um tengingu með
einum eða öðrum hætti við Evrópu-
myntina.
Sjálfstæði seðlabanka
Hann er spurður um seðlabanka-
lögin, hvort auka þurfi sjálfstæði
bankans gagnvart stjórnmálamönn-
um eins og gert hefur verið á Nýja-
Sjálandi og víðar.
„Ákvæðin um hlut-
verk bankans eru dálítið
óljós í gildandi lögum,“
segir Valur. „Þótt ekk-
ert annað væri gert held
ég að það væri mikil-
vægt fyrir bankann að
hlutverkið væri skil-
greint betur, starfsum-
hverfið og allt efna-
hagslífið hefur gjör-
breyst.
Það er rétt að bank-
inn getur á ýmsan hátt
lagað sig að breyttum
aðstæðum án laga-
breytinga og það hefur
hann gert. En eftir sem
áður hlýtur að vera
óþægilegt fyrir ráðamenn hans að
þetta skuli ekki vera skýrara en það
er.
Jafnvel þótt seðlabanki fái sam-
kvæmt lögum það hlutverk að halda
verðlagi stöðugu held ég að það
gerist ekki í raun án þess að um sé
að ræða pólitískt markmið sem
stjórn og þing á hveijum tíma hafa
orðið ásátt um að sé mikilvægt."
-Ætti að gera einhveijar breyt-
ingar á skipulagi bankaeftirlitsins?
„Ég hygg að það verði ekki umflú-
ið að sameina með einhveijum hætti
tryggingaeftirlit og bankaeftirlit.
Fyrirtæki á þessum sviðum eru hér
að sameinast og það væri
óskynsamlegt ef tveir aðilar ættu
að hafa eftirlit með sömu stofnun
eða fyrirtæki. Deilur gætu komið
upp milli eftirlitsaðila um verka-
skiptingu og misvísandi fyrirmæli
verið send til stofnananna.
Hvar sameiginlegt eftirlit ætti að
vera í kerfinu finnst mér aðallega
vera spurning um hagkvæmni. Sam-
vinna bankaeftirlitsins og seðla-
bankans hefur út af fyrir sig gengið
ágætlega en það er engin forsenda
fyrir starfsemi bankaeftirlits að það
sé í Seðlabankanum. Það getur vel
verið staðsett annars staðar eða ver-
ið alveg sjálfstætt."
Valur Valsson
Fitubrennslunámskeið
heima í
stofunni!
Við kynnum fyrir
til að ná aukakílóunum
í stofu. Þú færð sent heim
sem til þarf.
Æfingar á myndbandi tvö
æfingakerfi sem bera árangur.
áfe Ráðgjöf -fræðsla á hljóðsnældu se
tilsögn um hvernig þú getur loksins
náð að missa fitu fyrir fullt og allt
Q í formi til framtíðar - nýr frábr
um allt sem þú vilt vita um fituminna
staðreyndir sem þú þarft að vita til
Uppskriftir að léttum
slegið hefurígegn. 150 uppskriftir
kökum og eftirréttum.
:róðleiksmolar - Ýmsar góðar
ijálfun. Lesefni sem hjálpar þér að
iví til frambúðar.
Matardagbók - þú fyllir út
sendir okkur, og við sendum þ
athugasemdum svo þú getir
Leiðbeiningar -
þú áttað gera á
Einkaráðgjöf - við bjóðum þér svo að hringja til okkar og
fá persónulega ráðgjöf I gegn um síma.
® Allt þetta - fyrir aðeins kr. 6.790.-
Við höfum margra ára reynslu af því að hjálpa fólki að
ná af sér óvelkominni fitu og við getum líka hjálpað þér
þó að þú komist ekki til okkar.
antaðu
Hrinadu strax o
Mimim