Morgunblaðið - 21.09.1997, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Drukkinii
o g á lyfjum
Rannsóknin á bílslysinu, sem Díana, prins-
essa af Wales, og Dodi Fayed, fylgdarmað-
ur hennar, biðu bana í beinist nú einkum
að lífverðinum, sem lifði slysið af. Athygli
fjölmiðlanna hefur hins vegar snúið að bíl-
stjóranum Henri Paul, sem bera átti til
grafar í gær.
ERLEIMT
HENRI Paul (til vinstri) ásamt Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayed nokkrum augnablikum
áður en þau fóru af Ritz-hótelinu í Paris og héldu í bílferðina, sem lyktaði með því að þau létu
lífið eftir að hafa rekist á súlu í undirgöngaim undir ána Signu.
UTFÖR Henri Paul, öku-
mannsins í síðustu bíl-
ferð Díönu prinsessu og
Dodis Fayed, átti loks
að fara fram í gær, þremur vikum
eftir hið hörmulega slys í París.
Rannsóknin á slysinu beinist nú
fyrst og fremst að lífverðinum, sem
var eini farþeginn í Mercedes-Benz
bifreiðinni, sem komst lífs af úr
slysinu, en kastljós fjölmiðlanna
hefur hvílt mun meir á ökumannin-
um, sem í ljós kom að hafði verið
drukkinn og á lyfjum þegar hann
stýrði bifréið hinsta sinni.
Lík Pauls hefur verið krufið í
tvígang og fjölmiðlar hafa farið í
saumana á öllu, sem hann varðar,
en þó er ýmislegt óljóst um öku-
manninn, sem var aðstoðaryfirmað-
ur öryggisgæslu á Ritz-hótelinu í
París, en faðir Fayeds, Mohamed
al Fayed, er eigandi þess.
Ljóst er að þrefalt meira áfengis-
magn var blóði hans en leyfilegt
er þegar slysið varð. Einnig fund-
ust merki um tvö lyf, þunglyndislyf-
ið Prozae og tiapridal, sem er al-
gengt að notað sé í Frakklandi til
að draga úr árásargirni og skjálfta
áfengissjúklinga. Framleiðendur
þessara lyfja segja að þau megi
nota með áfengi.
Fjölmiðlar hafa fundið ýmsa, sem
eru reiðubúnir til að halda fram að
Paul hafí verið drykkfelldur, en
aðrir segja að það sé af og frá.
Vinir hans segja að hann hafí verið
frekar hlédrægur, en svo samvisku-
samur að verið gæti að hann hafí
ekki getað neitað þegar yfirmaður
hans skipaði honum að snúa aftur
í vinnuna að kvöldi laugardagsins
30. ágúst.
„Hann tók vinnuna mjög alvar-
lega,“ sagði Dominique Melo, vinur
Pauls, sem fölskylda hans fékk til
að taía máli sínu. „Það var rangt
af honum að aka bílnum, en ég
held að við þekkjum öll þá stöðu
þegar maður reynir að gera of mik-
ið.“
Melo gat ekki skýrt lyfin, sem
mældust í blóði Pauls, og kvaðst
ekki hafa haft á tilfinningunni að
hann væri þunglyndur eða áfengis-
sjúklingur.
Paul hafði unnið í öryggisgæslu
á Ritz-hótelinu í 12 ár. Umræddan
laugardag sótti hann Dodi Fayed
og Díönu á Le Bourget-flugvöll í
París og var það hluti af hans
skyldustörfum. Hann ók þeim
reyndar ekki frá flugvellinum, held-
ur farangri þeirra.
Fyrst var farið á Ritz-hótelið þar
sem ýmsir ónafngreindir starfs-
menn hafa samkvæmt tímaritinu
Time haldið fram að hann hafi feng-
ið sér anísdrykkinn Ricard á einum
hótelbarnum. Um sjöleytið um
kvöldið ók hann síðan farangri
þeirra til íbúðar Fayeds skammt frá
Sigurboganum og eftir það taldi
hann vinnudeginum lokið.
Kom bílstjórinn við á bar?
Virðist hann þá hafa gengið á
„Harry’s New York Bar“ skammt
frá. Sá, sem rekur barinn, hefur
hent öllum blaðamönnum á dyr og
segir að Paul hafi ekki komið þar
inn. Franskur blaðamaður kveðst
hins vegar hafa talað við tvo starfs-
menn, sem kváðust þekkja Paul og
halda fram að hann hafí verið á
barnum frá 7:30 til 9:45. Einn bar-
þjónn sagði að hann hefði drukkið
tvö til þijú viskíglös og farið eftir
að hringt var í farsíma hans. Á leið-
inni í bifreið sína kom hann við á
bar fyrir lesbíur þar sem hann var
reglulegur gestur, en drakk að
þessu sinni ekkert þar sem hann
var á hraðferð.
Myndband úr öryggismyndavéla-
kerfí Ritz-hótelsins sýnir þegar
Paul kom á bifreið sinni. Fyrir fram-
an hótelið var nógu stórt stæði fyr-
ir tvo sendiferðabíla, en engu að
síður ók Paul bifreið sinni fram og
til baka að því er virðist fullkom-
lega að óþörfu.
Þegar þarna var komið sögu var
klukkan 10:08 um kvöldið. Ekki er
vitað hvað hann gerði næstu tvær
klukkustundirnar, en samkvæmt
franska dagblaðinu Liberation fór
hann á Vendome-barinn á hótelinu
og drakk Ricard. Að sögn blaðsins
slagaði Paul þegar hann stóð upp
og rakst utan í viðskiptavin.
Samkvæmt heimildum Time er
frásögnin í Liberation hins vegar
orðum aukin. Sögðu starfsmenn
hótelsins að Paul kæmi af og til
við á hótelbörunum fengi sér einn
eða tvo drykki en væri ekki drykkju-
maður.
Paul var sérþjálfaður bílstjóri, en
hann hafði ekki rétta leyfið til að
aka Mercedes Benz-bifreiðinni, sem
hann ók um kvöldið. Hann settist
hins vegar undir stýrið þegar verið
var að reyna að afvegaleiða æsi-
fréttaljósmyndaranna, sem höfðu
beðið Díönu og Fayeds fyrir utan
hótelið.
Hver bað Paul um að aka?
Ekki er vitað hver átti upptökin
að því að láta Paul aka, en ökumað-
ur, sem starfar á hótelinu, sagði í
samtali við franska útvarpið
skömmu eftir slysið að þegar Fay-
ed-fjölskyldan kæmi þangað gripi
um sig skelfing og ringulreið.
En þá er eftir spurningin um það
hvers vegna hann hafi ekið á mann-
drápshraða um götur Parísar. Hann
hefði tæplega ekið svona gegn vilja
farþeganna og einn af ljósmyndur-
unum, sem eltu bifreiðina, kvaðst
hafa séð Dodi Fayed gefa örar
bendingar með annarri hendinni líkt
og hann væri að eggja Paul áfram.
Skömmu síðar hefði dregið sundur
milli ljósmyndaranna og bílsins.
Fayed-fjölskyldan varði Paul í
fyrstu, en segir nú að það sé óafsak-
anlegt ef rétt sé að hann hafi verið
jafndrukkinn og mælingarnar bendi
til. Tímaritið Newsweek hefur eftir
frönsku lögreglunni að hún telji að
Paul beri „99%“ ábyrgðarinnar á
slysinu.
Heimildir: Reuter, Time, Newsweek og The
Spectator.
Dýrast að
búa í Tókíó
ZUrich. Morgnnbladið.
ÞAÐ er hvergi dýrara að kaupa
inn en í Tókíó, Osló, Kaupmanna-
höfn, Stokkhólmi og Ziirich sam-
kvæmt nýrri verðlags- og launa-
könnun Union Bank of Switzer-
land, UBS. Launin eru hæst í
ZUrich, Genf, Kaupmannahöfn,
Tókíó og New York. Kaupgeta
launa er mest í Lúxemborg, Genf,
Zurich, Los Angeles og New
York. Reykjavík var ekki í hópi
56 borga sem könnunin náði til.
Könnunin gerir samanburð á
hvað það tekur margar mínútúr
að vinna sér inn fyrir hamborgara
f hinum ýmsum borgum. íbúar
Nairóbí þurfa að vinna í 193 mín-
útur, Moskvu 104 mínútur, Kaup-
mannahöfn 20 mínútur, Zurich
14 mínútur og Chicago og Tókíó
9 mínútur til að eiga fyrir ham-
borgara.
Hótelverð er hæst í London.
Það er ódýrast að gista í Montre-
al. Könnunin náði til launa 12
atvinnugreina, þar á meðal kenn-
ara. Grunnskólakennarar í
Moskvu hafa 60.000 kr. nettó á
ári fyrir 30 stunda vinnuviku og
60 frídaga, kennarar í Kaup-
mannahöfn 1,6 millj. kr. fyrir 37
stunda vinnuviku og 25 frídaga,
kennarar í Osló 1,5 millj. kr. fyr-
ir 36 stunda vinnuviku og 65 frí-
daga, kennarar í Stokkhólmi 1,3
miHj. kr. fyrir 40 stunda vinnu-
viku og 40 frídaga og í Helsinki
1,2 millj. kr. á ári fyrir 34 stund-
ir og 25 frídaga.