Morgunblaðið - 21.09.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997 31
innar er áætlað 10 milljónir króna
og tvö flugfélög keppa um að fá
flugleiðinni úthlutað. Félögin gera
sér grein fyrir að ef þau leggja í
nokkurn kostnað við að kynna yfir-
völdum flugmála ágæti [sitt] auki
þau líkurnar á að fá úthlutað flug-
leiðinni. Hversu miklu skal til kost-
að? Það er vel hugsanlegt að félög-
in éyði samanlagt meira en 10 millj-
ónum í að kynna sig! Nú má að
sjálfsögðu líta á auðlindaarð með
sama hætti og flugleiðina í dæminu
hér á undan. Auðlindaríkidæmi
myndi þá kalla á umtalsverða
þrýstihópastarfsemi. I stað þess að
vinna að gagnlegri atvinnuupp-
byggingu er kröftum eytt í slags-
mál um hvort nota skuli sóknar-
mark eða aflamark, hvernig kvóta-
úthlutunarreglur skuli líta út, hvort
línutvöföldun skuli áfram virk,
hvaða stjórnkerfi skuli gilda gagn-
vart smábátum. Menn stofna félög
og ráða sér starfsmenn sem sitja
löngum stundum á göngum og
skrifstofum ráðuneyta og stofnana,
fréttastofa og dagblaða, og halda
fram sínum málstað. [...]
Kenningin um hollensku veikina
er flóknari. Nafngiftin er til komin
vegna atburðarásar sem átti upphaf
sitt í að jarðgas fannst í Hollandi
á sjöunda áratug þessarar aldar.
Þessu fylgdi mikil hækkun launa-
stigs í Hollandi og þá einnig hækk-
un raungengis hollenska gyllinisins.
Útflutningsgreinar áttu undir högg
að sækja, en vinnuafl fluttist í rík-
um mæli yfir til þjónustugreina.
Þessi tilflutningur á framleiðslu-
getu milli atvinnugreina er ekki
ókeypis. [...] Hins vegar er ekkert
undarlegt við þessa þróun, og hún
getur við fyrstu skoðun virst í hæsta
máta æskileg ef tekjurnar af auð-
lindinni, gasinu í þessu tilviki, eru
viðvarandi. En hér er ekki allt sem
sýnist. í fyrsta lagi kann að vera
að tekjurnar af auðlindinni endist
aðeins skamma hríð. Þá þarf að
endurstilla atvinnusamsetningu í
hagkerfinu,[...] Og það gerist ekki
ókeypis í það skiptið heldur. Það
má því færa rök fyrir því að heppi-
legra hefði verið að hægja á um-
skiptunum í fyrra skiptið og spara
sér þannig umskiptakostnað í
seinna skiptið. En þar með er ekki
öll sagan sögð. Það er nefnilega
þannig að tækniþróun er örari í
framleiðslugreinum en þjónustu-
greinum. Og því til viðbótar bendir
margt til þess að tækniþróun sé
þeim mun örari sem grein er
„stærri“ í einhveijum skilningi þess
orðs. Gasfundurinn í Hollandi varð
til þess að stækka þjónustugreinar
á kostnað framleiðslugreina. Minni
framleiðslugreinar gætu hafa haft
í för með sér hægari tækniþróun
en ella hefði orðið. [...]
Er þá nokkuð annað að gera en
að losa sig við þennan ógnvald
gagnvart hagvexti sem fiskimiðin
virðast vera? Já, ein leiðin er að
leggja á veiðigjald og láta andvirðið
renna til hins opinbera og lækka
aðra skatta á móti! Slík aðgerð ætti
í fýrsta lagi að draga úr rentu-sókn
(það er eftir minni peningalegum
ávinningi væri að slægjast þegar
veiðileyfum væri úthlutað). I öðru
lagi ætti slik ráðstöfun að geta
dregið úr óæskilegum áhrifum al-
mennrar skattheimtu á vinnufram-
boð. Þannig er hægt, sé skynsam-
lega staðið að málum, að hindra
sóun og njóta auðlindarinnar.“
Lokaorð
Ég vona að þeim lesendum Morg-
unblaðsins sem enn eru að lesa sé
ljóst að rök fyrir veiðigjaldi eru
þyngri og betur rökstudd en þeir
félagar Orri Hauksson og Illugi
Gunnarsson láta liggja að. Og að
mínu viti reyna þeir ekki að svara
þeirri grundvallarspumingu sem
sett er fram í grein minni: Hvers
vegna ætti almannavaldið á Islandi
að halda uppi umfangsmiklu fisk-
veiðistjómunar- og fiskveiðieftir-
litskerfi sem óumdeilanlega skapar
mikinn auð ef almenningur nýtur
þessara auðæfa í litlu sem engu?
Höfundur er lektor í hagfræði við
viðskipta- og hagfrteðideild
Háskóla íslands.
ARFTAKAR GUÐRÚNAR
EGGERTSDÓTTUR
UM aldamótin 1700 bjó kona
vestur á Rauðasandi sem fræg
hefur orðið í íslandssögunni fyrir
harðýðgi, grimmd og ágirnd. Þessi
kona hét Guðrún og var dóttir
Eggerts Björnssonar á Skarði og
Valgerðar Gísladóttur, Hákonar-
sonar, lögmanns í Bræðratungu
og brá Guðrúnu illu heilli meir til
Skarðverja um ágirnd og grimmd
en Bræðratungufólks um örlæti
og góðvild. Um hana farast Árna
Magnússyni svo orð í Jarðabók:
Jón Steingrímsson, sem þá var í
Siglunesi, tók til leigu hest af
Guðrúnu Eggertsdóttur. Sá hest-
ur dó í megurð vegna heyleysis.
Leigði hann so hestinn dauðan í
5 ár, og betalaði hann þar eftir
með 6 vættum, sumt í kaupstað,
sumt heim.
Hann hefur og í 17 ár leigt
dauðar 12 ær Guðrúnar, og svar-
að þeim út síðan öllum úngum.
Item 2 kýr dauðar í 4 ár, og
svarað síðan út úngum.
Víðar í Jarðabókinni má finna
athugasemdir Árna um Guðrúnu
og framferði hennar svo sem á
einum stað, þar sem hann bregður
sér yfír í frönsku og segir:
Quand le paisan, a cause des
imposts cruelles, n’est pas plus
solvendo, on le jette dehors,
pourquoi il est contraint a crever.1
So gengur það til á eignum
Guðrúnar Eggertsdóttur
1) Þegar bóndinn, vegna
ómannúðlegra álagna, getur ekki
lengur staðið í skilum, þá er hon-
um bygt út, og af þeirri ástæðu
verður hann að gánga sér til
húðar.2
Árni Magnússon var prúður
maður og settlegur svo sem fram
hefur komið í nýlegum rannsókn-
um og virðist hafa verið vandur
að virðingu sinni og enginn útslátt-
armaður um orð. Honum hefur
blöskrað framferði Guðrúnar við
leiguliða sína en líta má á frönsku-
slettur hans sem nokkurs konar
skrauthvörf.
Islendingar hafa með nokkru
stærilæti kennt í skólum, að átt-
hagafjötrar og ánauð hafi verið
afnumin í Rússlandi árið 1861 og
Rússar orðið síðastir manna í
Evrópu til slíkra frelsistilburða.
Menn ættu að líta sér nær. Með
afnámi vistarbandsins, sem segja
má að hafi ekki að fullu og öllu
komið til framkvæmda fyrr en
með lögunum frá 1934 um breyt-
ingar á kosningarétti, þar sem
þeim sem þegið höfðu af sveit var
fenginn fullur kosningaréttur, fór
samfélag nútímans að taka á sig
mynd á íslandi. Með afnámi vist-
arbandsins og upphafi þéttbýlis-
myndunar urðu fyrst til forsendur
nútímasamfélags þar sem heljar-
bönd landeigenda voru leyst af
landslýðnum. Velmegun Islend-
inga á 20. öld á allur rætur að
rekja til þess að lénsveldið var
afnumið og þróttur íslenzkrar al-
þýðu til átaka og sjálfsbjargar
fékk að njóta sín.
Sjálfstæðis
flokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn var
stofnaður árið 1929 með samruna
íhaldsflokksins og Fijálslynda
flokksins. Hann varð flokkur sjálf-
ráða og bjargálna fólks. Fólks sem
vildi hafa frelsi til athafna í háveg-
um og var andvígt hvers kyns
hömlum á atvinnu manna, búsetu
og atgervi til munns og handa.
Hann varð þess vegna stærsti
flokkur þjóðarinnar. Hann varð
aldrei flokkur okur-
karla og gróðapúnga
einna - hvað þá held-
ur einokunarlýðs og
sérgæðinga. Hann var
flokkur sjálfstæðs
fólks „. . .með hags-
muni allra stétta fyrir
augum. ..“ Með
breiðri skírskotun til
frelsis og sjálfstæðis
varð Sjálfstæðisflokk-
urinn það mikla
framfaraafl sem hann
hefur lengst af verið
og eindreginn mál-
svari atvinnufrelsis.
Það eru því óneitan-
lega dapurleg örlög
þess flokks að hafa í stafni fyrir
sig harðdrægan lénsaðal sem er
þegar búinn að skipta fiskimiðum
landsins upp í greifadæmi og
stefnir leynt og ljóst að forsjá og
fyrirhyggju í öllum þáttum mann-
lífsins.
Flokkur Guðrúnar
Eggertsdóttur
Framsóknarflokkurinn er hinn
eiginlegi flokkur Guðrúnar Egg-
ertsdóttur og arftaka hennar. Þar
Sameining sjálfstæðs
og fijálslynds fólks við
stuðningsfólk félags-
hyggju og mannúðar,
sefflr Bárður G. Hall-
dórsson, verður að vera
svarið við samruna ætt-
gengra sérhagsmuna.
hefur alla tíð gætt mjög sterkrar
tilhneigingar til forsjár og út-
hlutunar á lífsgæðum. Flokkurinn
á sér líka sterkar rætur í íslenzkum
landbúnaði sem hefur verið rekinn
eftir óðalskerfi Bændasamtakanna
með alls kyns framleiðslustýring-
um, kvótum og millifærslum sem
eru þegar búin að gera stóran hluta
bænda að örbjarga leigulýð á léns-
jörðum kvótaaðalsins í Búnaðar-
banka og Bændahöll. Alþýðu-
bandalagið hefur lengst af verið
sett saman úr ólíkum brotum
stjómlyndis- og fyrirhyggjufólks
og mannúðarfólks með hörð þjóð-
ernisssinnuð markmið, sem hefur
þó í seinni tíð nálgast sjónarmið
sjálfstæðis og frelsis. Alþýðuflokk-
urinn hefur undir stjórn Jóns Bald-
vins verið einhver helzti málsvari
frelsis og sjálfstæðis enda þótt
flokkurinn eigi sér misjafna fortíð
í þeim efnum. Hugsanlega á þó
frelsið sér hvergi nú eindregnari
málsvara en meðal krata og á rit-
stjórn Morgunblaðsins.
Nú hefur komið fram hugmynd
hjá helzta talsmanni arftaka Guð-
rúnar Eggertsdóttur um að sam-
eina Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokk. Þetta er athygliverð hug-
mynd og í rauninni skynsamleg-
asta uppstokkunarhugmynd í
seinni tíð í íslenzkum stjórnmál-
um. Með sameiningu íhaldshluta
Sjálfstæðisflokksins við Fram-
sóknarflokkinn með aðild fram-
sóknarhluta Alþýðubandalagsins
yrði til bersýnilegur flokkur kvót-
aliðsins og hægt yrði þá að takast
á fyrir opnum tjöldum um það sem
skiptir máli í íslenzkri pólitík -
frelsi og höft - kvóta og sérgæði
annars vegar en jafn-
stöðu, frjálslyndi og
samhjálp hins vegar.
Sameining sjálfstæðs
og frjálslynds fólks
við stuðningsfólk fé-
lagshyggju og mann-
úðar verður að vera
svarið við samruna
ættgengra sérhags-
muna. Þá fyrst verður
til vettvangur þar sem
tekizt er á af ein-
hveiju viti um það,
sem fólk greinir á um,
og þetta verður að
gera áður en lífeyris-
sjóðir landsins verða
notaðir til að bjarga
kvótaliðinu út úr Matadornum
sem leikinn er nú leynt og ljóst
og kallast hlutabréfamarkaður.
Það er aðeins um mjög skamman
tíma að ræða, því að raunveruleg-
ur hagvöxtur til lengri tíma er
ekki fyrir hendi eins og Þorvaldur
Gylfason hefur réttilega bent á,
en fáir hafa af meiri einurð og
viti en hann varað við því öng-
þveiti sem við stefnum í ef ekkert
verður að gert.
Vanheilög
þrenning
I bók sinni Haustskip sýnir
Björn Th. Björnsson afskaplega
vel fram á hvernig íslenzk höfð-
ingjastétt losaði sig við fram-
færsluhlutverkið með því að mis-
beita dómsvaldinu. Þessa bók ætti
að nota sem skyldulesningu við
sögukennslu í íslenzkum skólum.
Nú í seinni tíð hafa einstaklingar
hvað eftir annað risið upp gegn
úreltu og afturhaldssömu dóm-
skerfi og dregið það til ábyrgðar
í útlöndum. Fræg er barátta þeirra
Jóns Kristinssonar á Akureyri og
Þorgeirs Þorgeirssonar sem hafa
sýnt fram á sérdrægni og höfð-
ingsþjónkun íslenzks dómsvalds.
Framfarir undanfarinna ára í
dómsmálum hafa ekki á nokkurn
máta verið lögmönnum að þakka
eða stjórnmálamönnum heldur
hefur hreyfiafl þeirra komið úr
þjóðardjúpinu og fyrir þrýsting
einstakra manna sem hafa nennt
að leggja á sig erfiði og fjárútlát
til að draga afturhaldssaman
Hæstarétt íslands til ábyrgðar í
útlöndum, enda er svo komið, að
úrelt og ósjálfstætt dómsvald, sem
helst í hendur við kvótalið og okur-
karla er á góðri leið með að snúa
þessari eyþjóð, sem tók ákvörðun
fyrir ellefuhundruð árum um að
vera ekki Evrópumenn, til ein-
dregins fylgis við Evrópusam-
bandið. Þessi vanheilaga þrenning
dómara, kvótaliðs og okrara herð-
ir stöðugt þrælatökin á landslýð
og bersýnilegt er, að haldið verður
áfram þangað til landsmenn segja
hátt og skorinort: Hingað og ekki
lengra. Við viljum ekki hafa yfir
okkur lögleysu ykkar. Við viljum
ekki láta þjóðareignina í hendur
örfárra manna. Við viljum ekki
snúa aftur til lénsveldis.
Stuðningur við Evrópusam-
bandið vex hröðum skrefum og
það er ekki af sérstakri ást íslend-
inga til Evrópubúa heldur af því
að margir eygja þá von eina um
að franska stjórnarbyltingin kom-
ist loksins að landi hér og grund-
vallarlýðréttindi verði meiri á
borði en í orði að ganga í þetta
bandalag sem með miklum ann-
mörkum og ókostum gæti þó orð-
ið helzta von alþýðu manna um
að ná mannsæmandi rétti í skipt-
um við hinn nýja lénsaðal. 111 er
þá orðin ganga þeirra manna sem
tóku við kyndli frelsisins úr hönd-
um Ólafs, Bjarna, Jóhanns, Gunn-
ars og Geirs.
Arftakar
Árna Gíslasonar
Ekkert er brýnna nú en slík
uppstokkun í íslenzkum stjórnmál-
um. Allir flokkar eru ormsmognir
af afturhaldssömum einokunar- og
fyrirhyggjusérgæðingum, hvort
sem þeir kalla sig útgerðarmenn,
einkaleyfaheildsölubraskara eða
lögverndaða aðalsmenn af ein-
hveiju öðru tagi. Þetta fólk telur
sig borið til valda og veraldargæða
og hefur nú með tökum sínum á
löggjöf landsins komið ár sinni svo
fyrir borð, að_ fólki er bannað að
bjarga sér. Útvegsbændur, sem
eitt sinn voru uppáhaldsbörn Sjálf-
stæðisflokksins, eru nú hornrekur
og hundeltir af stjórnvöldum. Út-
vegsbændur, sem nú eru kallaðir
trillukarlar til að lítilsvirða þá og
gera sem minnst úr þeinij voru
burðarás allra framfara á Islandi
á 20. öld og fáir menn verðskulda
hærri sess en Árni Gíslason í sögu
íslendinga á 20. öld, en hann var
langafi Þorsteins Pálssonar, sjáv-
arútvegsráðherra. Hann ruddi
brautina fyrir fátæka vinnumenn
og sjómenn um allt land til sjálfs-
hjálpar með því að setja fyrstur
manna vél í bát á íslandi. Honum
hefði seint komið í hug, þegar
hann barðist undan vinnu-
mennskuáþján við Djúp vestur, að
mögulegt væri að afhenda fiskinn
í sjónum einhveijum útvöldum
gæðingum stjórnvalda. Hann var
maður sem braut leið íslenzkum
dugnaðarmönnum í gegnum múra
sérgæða og lénsveldis. Óskandi
væri að hann ætti sér fleiri andlega
arftaka í dag.
Alveg eins og Ámi Gíslason má
teljast einn af höfundum íslenzka
velferðarsamfélagsins verður að
telja þá, sem settu kvótalögin og
lögin um verðtryggingu fjárskuld-
bindinga, höfunda afturhvarfsins -
og mega þeir því með sanni kallast
arftakar Guðrúnar Eggertsdóttur
af því að þessi tvenn lög hafa í för
með sér sömu afleiðingar og hátt-
emi Guðrúnar Eggertdóttur - fá-
tækt, smán, vonbrigði og eymd
landslýðsins en sívaxandi veldi og
eignasöfnun fáeinna ætta svo að
nú stefnir í sams konar þjóðfélag
og varð til á 15du öld og var síðan
við lýði fram til síðustu aldamóta
- þjóðfélag grimmdar og mis-
kunnnarleysis, sérdrægni, frekju og
forréttinda.
Ef íslendingar ætla að lifa þess-
ar hörmungar af nú og koma á
mannúðlegu samfélagi réttsýni og
frelsis verða þeir að sameinast um
eitt afl - hvað svo sem þeir kjósa
að kalla það og undir hvaða for-
ystu sem þeir kjósa sér og ef Sjálf-
stæðisflokkurinn skilur ekki sinn
vitjunartíma og áttar sig á því að
fijálslynda fólkið fer frá honum
og eftir situr sérgæðafólkið sem
fæðist með kvóta í munni þá á
hann um tvennt að ræða - að vistr-
áða sig sem hjú hjá Framsóknar-
flokknum eða verða lítill og áhrifa-
laus íhaldsflokkur gamalla ætta
með enga framtíð en heilmikla
fortíðardrauma.
' Jarðabók Áma Magnússonar og Páls Vldallns.
VI. bindi, bls. 289. Kaupm.h. 1938.
* Sama heimild, bls. 335.
Höfundur er frjálslyndur
sjálfstæðisma ður.
Bárður G.
Halldórsson