Morgunblaðið - 06.08.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.08.1999, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rannsókn á vimuefnaneyslu í 10. bekk grunnskóla árin 1995-1999 Neysla nemenda minnkar Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, dómsmálaráðherra og áfengis- og vímu- varnaráð kynntu í gær niðurstöður ís- lenskra rannsókna á vímuefnaneyslu nem- enda í 10. bekk grunnskóla árin 1995-1999. Sigríður B. Tómasdóttir sat blaðamanna- fund og skoðaði niðurstöður rannsóknanna. Morgunblaðið/Ásdís NIÐURSTOÐUR íslenskra rannsókna á vímuefnaneyslu kynntar á blaðamannafundi. NIÐURSTÖÐUR rannsóknanna sýna að í fyrsta skipti frá árinu 1990, hefur dregið úr áfengis- neyslu, reykingum og neyslu ólög- legra vímuefna meðal nemenda í efsta bekk grunnskólans. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, lýsti á blaðamannafundinum yfir ánægju sinni með niðurstöðumar og sagði þær gefa vísbendingu um að að- gerðir þær sem gripið hefði verið til á sviði forvarna væru famar að skila árangri. Ingibjörg sagði einnig spennandi að sjá hvar ísland stæði í saman- burði við önnur Evrópulönd en rannsóknin er hluti af evrópski-i rannsókn, European School Project on Alcohol and other Dmgs (ESPAD), og verða heildarniður- stöður hennar kynntar á næsta ári. Árið 1995 var hliðstæð könnun gerð og voru íslensk ungmenni þá nokkurn veginn í meðallagi í neyslu áfengis, vímuefna og tóbaks. Könnunin var gerð í mars síðast- liðnum. Þá vom spurningalistar lagðir fyrir nemendur í 10. bekk gmnnskóla í marsmánuði 1999. Alls svöraðu 3.555 nemendur listunum, sem er 89,6% svarhlutfall nemenda sem skráðir vora í 10. bekk vorið 1999. Margir hafa drukkið heimabrugg Tæplega 79% 10. bekkinga hafa smakkað áfengi samkvæmt könn- uninni og um 62% hafa orðið drakknir um ævina. Þetta er örlítil breyting frá árinu 1995 en talsverð- ur munur er á fjölda þeirra sem sögðust hafa orðið ölvaðir á síðustu 30 dögum. Þeir vora 35,2% 1999 en 45,8% árið 1995. Töluvert dregur úr neyslu á sterku áfengi en bjór- drykkja hefur aukist lítillega. Sólveig Pétursdóttir, dómsmála- ráðherra, benti á að talsvert stór hluti nemendanna hefur drukkið heimabruggað og smyglað áfengi. Ráðherra sagði að toll- og löggæsla myndu taka höndum saman um að koma í veg fyrir þessa neyslu. Hlutfall nemenda sem drakkið höfðu heimabraggað eða smyglað áfengi síðastliðna 30 daga sveiflast reyndar mjög eftir því hvaða gerð áfengis er um að ræða. Ríflega fimmti hver unglingur í 10. bekk hafði drukkið heimabraggað sterkt áfengi síðustu 30 daga áður en könnunin var gerð. Þessi fjöldi er ríflega helmingur þess hóps sem drakk sterkt áfengi á sama tímabili. Hins vegar er lítill hluti bjórneyslu nemenda heimabragg. Hlutur létt- víns í áfengisneyslu er lítill en heimaframleiðsla er drjúgur skerf- ur hennar. Auðvelt að nálgast hass Samkvæmt könnuninni telja nemendur 10. bekkjar almennt auð- velt að kaupa hass og auðveldara en árið 1995. Af þeim hópi unglinga sem reykt hefur hass og ætti því að vera dómbær á framboð á efninu telja 84% sig auðveldlega geta út- vegað efnið. Um helmingur hópsins telur sig vita um heimahús þar sem efnið er til sölu og um fjórðungur telur sig geta keypt það á skemmti- stöðum og víðar. Um 15% telja sig geta keypt efnið í skólum og um 20% þeirra sem reykt hafa 10 sinn- um eða oftar. Langflestir unglingar hafa þó ekki prófað hass eða önnur ólögleg vímuefni. Heldur dregur úr hassneyslu unglinga árið 1999 frá árinu á undan. 15% höfðu prófað hass árið 1999 en 17% árið á undan. Neyslan árið 1999 er þó meiri en nokkra sinni fyrr að árinu 1998 undanskildu. Marktækt færri nemendur í 10. bekk höfðu reykt sígarettur ein- hvem tíma um ævina 1999 en 1995, tæplega 56% á móti liðlega 61%. Þeim sem reykt höfðu sígarettu á síðustu 30 dögum eða reykja dag- lega hefur einnig fækkað. Reyking- ar meðal þessa aldurshóps era því ámóta útbreiddar árið 1999 og þær vora árið 1990 en þá vora reyking- ar unglinga minnstar frá því að mælingar hófust. Vímuefni talin hættuleg Athygli vekur að langflestir ung- linganna telja að reykingar, drykkja og notkun annarra vímu- efna sé fremur eða mjög hættuleg. Þessi vitneskja virðist þó ekki koma í veg fyrir að unglingar prófi vímuefni. 96% nemenda telja t.a.m. hættu- legt að reykja pakka eða meira á dag. Ennfremur telja mun fleiri hættulegt að reykja öðra hvora ár- ið 1999 en 1995, eða rúm 67% miðað við 58% árið áður. í skýrslunni seg- ir að þessi viðhorfsbreyting gæti bent til þess að reykingar muni minnka, það sé þó alls óvíst því að reynslan sýni að unglingar byrji að reykja þótt þeir telji það óhollt. Þórólfur Þórlindsson, prófessor og formaður áfengis- og vímu- varnaráðs, sagði í samtali við Morg- unblaðið að það kæmi margt annað til hjá unglingum þegar þeir próf- uðu vímuefni í fyrsta sinn en hvort þau væra talin hættuleg eða óholl. Gildi upplýsinga í forvarnastarfi hefðu verið ofmetin hingað til og aðrir þættir þyrftu að koma til. Þórólfur benti einnig á að lífsstfll unglinga hefði mikið að segja um vímuefnanotkun. Þvl væri annars vegar mikilvægt að reyna að hafa áhrif á þennan lífsstfl, hins vegar væri hlutur foreldra afar mikilvæg- ur. Stórt samfélags- verkefni í sama streng tók Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri áfengis- og vímuvarnaráðs, og sagði að verið væri að skoða allar mögulegar leiðir til forvama, nýir tímar kölluðu á nýjar aðferðir. „Þetta er stórt samfélagsverkefni sem við stöndum frammi fyrir. Mikilvægt er að allir aðilar starfi saman, foreldrar, kennarar, þeir sem vinna að æskulýðsmálum og heilbrigðismálum og svo mætti lengi telja.“ Dómsmálaráðherra sagði á blaðamannafundinum að samstarf margra aðila hefði einmitt skilað miklum árangri nú um verslunar- mannahelgina. Lítið sem ekkert hefði verið af unglingum undir 16 ára aldri á útihátíðum. Þar hefði samstarf foreldra og þeirra sem standa að forvörnum skilað sér. Einnig hefði strangt eftirlit með fíkniefnum borið góðan árangur. Marel gerir samning við Hydro Seafood MAREL hf. gerði nýlega samning við norska fyrirtækið Hydro Seafood AS, sem er í eigu Norsk Hydro, um afhendingu á búnaði í þrjár af laxa- verksmiðjum íyrirtækisins í Noregi, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Samkvæmt samningnum mun Marel hf. ásamt Maritech A/S, um- boðsaðila sínum í Noregi, og Skag- anum hf. á Akranesi afhenda tvö laxaflokkunar- og pökkunarkerfi og tvö fullkomin laxavinnslukerfi. Verðmæti samningsins er nálægt 150 milljónum króna, segir Lárus Ás- geirsson iramkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Marel, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að laxeldi sé að vaxa sem iðnaður og nemur heimsframleiðslan nú tæplega einni milljón tonna. Láras segir að mjög sé að aukast að laxinn sé unninn að ein- hverju leyti áður en hann fer í versl- anir, til dæmis með því að laxinn sé skorinn í bita í ákveðinni þyngd. „Þessi vinnsla er orðin iðnaður út af fyrir sig og þar ætlum við að vera leiðandi í tækni til að mæta þessu með litlum mannafia," segir Láras. Flokkunar- og pökkunarbúnaður- inn er notaður til að meta gæði á laxi, flokka eftir vigt og pakka í fasta þyngd í kassa. Búnaðurinn merkir kassana, skammtar ís í þá eftir því hvar viðtakandi er staðsettur og af- greiðir sjálfvirkt eftir pöntunum. Fram kemur að Marel hafi sótt um einkaleyfi fyrir hluta af búnaðinum. Laxavinnslukerfin byggjast á vinnsluaðferðum úr bolfiskvinnslu en einnig era tengd vinnslurásinni lita- greinir frá Marel og sjálfvirk bein- hreinsivél frá dótturfélagi Marel í Danmörku, Carnitech A/S. Marel mun ásamt samstarfsaðil- um sýna hluta búnaðarins á Aqu- aNor-sýningunni í Þrándheimi í Noregi, sem er stærsta sýning á búnaði fyrir laxaiðnað og annan eld- isiðnað í heiminum. Bréf í Marel hækka Hlutabréf í Marel hf. hækkuðu um 6,7% í fyrradag en lækkuðu um 0,6% í gær. Samtals hafa hlutabréf í Marel hf. hækkað um 77,1% frá áramótum. ----------------- Björn Bjarnason um at- hugasemd borgarstjóra Snýst ekki um stærð lóðarinnar BJORN Bjarnason menntamálaráð- herra kveður svar Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur borgarstjóra við greininni „Bíó eða skóli í Laugar- dal?“ vera útúrsnúning. „Eg var ekki að tala um innri eða ytri lóð heldur um það hvort menn vildu að skóli yrði hluti af því um- hverfi sem er í Laugardalnum. Auk þess benti ég á að það þyrfti að huga að húsnæðismálum Menntaskólans við Sund og Vogaskóla," segir ráð- herra. Hann bendir einnig á að ekki sé hægt að slá þvl fram að lóðin sé of lítil fyrir skóla þegar fyrirhugað er að byggja samtals 20.000 fermetra hús í Laugardalnum. Ráðherra kveður það ekki nýmæli að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu hlynntir byggingaframkvæmdum í Laugardalnum, en borgarstjóri hafi gefið hið gagnstæða til kynna í svari sínu. „Það var hugmynd að þarna risi tónlistarhús og menn hafa verið að velta fyrir sér húsum sem falla vel að dalnum og því mannlífi sem þar er. Ég tel að það sé eðlismunur á skólahúsnæði og skrifstofuhúsnæði fyrir Landssímann eða kvikmynda- húsi,“ segir hann. Að lokum segir ráðherra að sé ekki vilji borgarstjórnar að úthluta lóð fyrir Menntaskólann við Sund, sé nauðsynlegt að það komi fram svo hægt sé að huga að næstu skrefum í húsnæðismálum skólans í því ljósi. Hlutfall nemenda í 10. bekk sem telja sig auð- veldlega geta keypt hass á tilteknum stöðum 70%-------------------------------------- 60- 50- 40- 30 H 20 10H o - Hafa aldrei reykt hass Hafa einhvern tíma reykt hass r- Hafa reykt fass 10 sinnum eða oftar Hvergi Einhvers (skólanum/ Áskemmti- Heimahjá staðar úti við á skólalóðinni staðeðabar einhverjum Hlutfall nemenda í 10. bekk sem drukkið höfðu heimabruggað eða smyglað áfengi síðastliðna 30 daga 50% ' — Öll neysla Léttvín Sterkt áfengi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.