Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 14

Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 14
er frumleg og skemmtileg þó að þetta sé ekki beint dæmi- gerður fulltrúi stéttarinnar. Reyndar er eiginkona Einars bókasafnsfræðingur og hann þekkir eflaust stéttina betur en margur annar rithöfundur. Núna fyrir jólin kom út bókin Grandavegur 7 eftir Vig- dísi Grímsdóttur. Þar les Þóra Hákonardóttir um sjálfa sig í spjaldskrá skáldsins Jóhanns að hún hafi starfað á Borgar- bókasafni og reyndar kemur einnig fram að hann starfi þar sjálfur (s. 130). Annað nýlegt dæmi um bókasafn er í HöfuiSskepnum, skáldsögu Þórunnar Valdimarsdóttur, rithöfundar og sagn- fræðings. Söguhetjan er stödd á lestrarsal Landsbókasafns, en þar sat Þórunn oft sjálf við iestur og skriftir. Hjá Þórunni hef- ur safnahúsið áhrif á tilfinningalíf fólks: Ástarsögur bókasafnsins eru eins og kúbískt málverk málað úr bókum, fötum, augum og hjörtum. Hér hefur fólk orðið ástfangið, heyrt hef ég þess mörg dæmi, kona réttir karli föt aftur og aftur, þær verða við það eins og forni heimilisengillinn .... Þetta affekterar stundum alla í húsinu .... Hér hittast þeir sem hafa verið hálfskotnir og verða alveg skotnir, því þeir styrkjast svo fyrir gaidur hússins, styrkjast svo í sjálfum sér. (Höf- uÖskepnur, s. 130) Söguhetjur barnabóka fara einnig á bókasöfn, meira að segja á sjálft þjóðbókasafnið. I Silfri Egils eftir Sigrúnu Dav- íðsdóttur held ég að hljóti að vera ein ítarlegasta og skilmerki- legasta lýsing á Landsbókasafni íslands sem birst hefur í ís- lenskri skáldsögu. 111. kaflanum er bæði að finna lýsingu á safnahúsinu sjálfu, aðkomunni og lestrarsalnum, en einnig bókavörðum og þjónustunni. Bræðurnir Gunnar og Snorri eru í fjársjóðaleit og halda á Hverfisgötuna til að athuga hvar bærinn Mosfell stóð í gamla daga: Gunnar leit í kringum sig. Enn var enginn sjáanlegur, sem leit út fyrir að vera bókavörður. Allt var tröllslegt þarna, hátt til lofts eins og ! leikftmi- húsinu í skólanum, borðin stór og þung og stólarnir næstum eins og sóf- ar. Einn var að lesa bók, sem var stór eins og borð og þykk eftir því. En rétt í því að Gunnar var að fara að örvænta, sté maðir inn um dyr bak við upphækkaða borðið. Hann var í stíl við allt þarna, tröllslega stór, með firna mikið yfirvararskegg, en alveg sköllóttur og í risastórum ullarjakka, þó sólin skini glaðlega úti. Hann leit hvasst á strákana um leið og hann hlammaði sér með skelli á skrifborðsstól með hjólum við upphækkaða borðið og dró upp dagblað, sem hann hvarf á bak við. (Silfur Egils, s. 96) Annað dæmi um barnabók er Jóra og ég eftir Guðlaugu Richter. Söguhetjan ræður sig sem aðstoðarstúlku á héraðs- bókasafn fyrir austan fjall til að komast yfir ástarsorg og rekst á stórmerkilega bók sem breytir lífi hennar þegar hún býðst til að flokka gamlar bókagjafir sem legið hafa í kössum árum saman. I lokin langar mig að rifja upp bókarkafla sem mér hefur verið minnisstæður alveg frá því ég las hann í barnæsku (bók- in var reyndar uppáhaldsbókin mín þegar ég var u.þ.b. 12-14 ára), en það er kafli í þýddri skáldsögu Gróður ígjósti eða A Tree Grows in Brooklyn eftir ameríska rithöfundinn Betty Smith. Sagan fjallar um fátæka fjölskyldu í Brooklyn í upp- hafi aldarinnar. Elsta dóttirin Fransí, ellefu ára, er bókhneigð og hefur ásett sér að lesa allar bækur sem til eru í heiminum. Hún heldur að hverfisbókasafnið eigi þær allar og byrjar að lesa eina bók á dag í stafrófsröð höfunda, skemmtilegar jafnt sem leiðinlegar. A laugardögum lætur hún þó eftir sér að lesa eitthvað annað, samkvæmt ráðleggingu bókavarðarins. Fransí hlakkar alltaf til að koma á bókasafnið, finnst það yndislegur staður og kemur þangað daglega. Allt við það heillar hana, lyktin af bókalími og slitnu skinnbandi, skrifborð með þerri- pappír og nýydduðum blýöntum og lítill gulbrúnn blóma- vasi þar sem skipt er um plöntur eftir ársu'ðum. Á sunnudög- um biður hún bókavörðinn að benda sér á góða bók fyrir ell- efu ára stúlku og þó að bókavörðurinn líti aldrei upp, mæli alltaf með sömu bókunum og brosi aldrei til hennar eyðilegg- ur það ekki lestraráhuga Fransí því það er nú einu sinni svo að fólk fer á bókasöfn til að eiga stund með bók en ekki bókaverðinum (s. 23-25). HEIMILDIR: Ásgerður Kjartansdúttir. Maí 1982. Sögulegtyfirlit um bókasöjh á íslandi og skrá yfir almenningsbókasöfh á íslandi 1790—1982. [BA-ritgerð: Háskóli íslands]. Casanova, Giacomo. 1943-1944. Ástir ogavintýri Casanova. Reykjavík : Hringur. Eco, Umberto. 1984. Nafn rósarinnar. Reykjavík : Svart á hvítu. Einar Kárason. 1981. Þetta eru asnar Guðjón. Reykjavík : Mál og menning. Flagg, Fannie. 1992. Steiktirgrxnir tómatar. Reykjavík : Skjaldborg. Guðlaug Richter. 1988. Jóra og ég. Reykjavík : Mál og menning. Gyrðir Elíasson. 1990. Svefiihjólið. Reykjavík : Mál og menning. Gyrðir Elíasson. 1991. Heykvísl oggúmmískór. Reykjavík : Mál og menning Halldór Laxness. 1987. íslandsklukkan. Reykjavík : Vaka-Helgafell. Halldór Laxness. 1978. Sjömeistarasagan. Reykjavík : Helgafell. Halldór Laxness. 1986. Ungur ég var. Reykjavík : Helgafell. Huizing, Klaas. 1994. Der Trinker. Múnchen : Albrecht Knaus. Jerome, Jerome K. 1946. Þrír á báti. Reykjavík : Spegillinn. Jón Helgason. 1948. Úr landsuðri. Reykjavík : Heimskringla. Jón Stefánsson. 1949. Úti í heimi. Endurminningar. Reykjavík : Bókfellsút- gáfan. King, Stephen. 1994. Bókasafiulöggan. Reykjavík : Fróði. Kristján Kristjánsson. 1993. Fjórða haðin. Reykjavík : Iðunn. Lewis, Sinclair. 1923. Main Street. London : Cape. MacNeice, Louis. 1966. The Collected Poems ofLouis MacNeice. London : Faber and Faber. Parsons, Rich & Keaveny, Tony. 1993. Colin the Librarian. London : Mich- ael O'Mara Books. Roth, Philip. 1994. Vertu sœll, Kólumbus. Reykjavík : Bjartur. Saroyan, William. 1946. Leikvangur lífiins. Reykjavík : Akranesútgáfan. Sigrún Davíðsdóttir. 1989. Silfitr Egils. Reykjavík : Almenna bókafélagið. Smith, Betty. 1946. Gróður ígjósti. Reykjavík : Bjarkarútgáfan Stefán Jónsson. 1987. Að breyta jjalli. Reykjavík : Svart á hvítu. Sveinn Skorri Höskuldsson. 1993. Benedikt á Auðnum. Reykjavík : Mál og menning. Vigdís Grímsdóttir. 1994. Grandavegur 7. Reykjavík : Iðunn. Þórbergur Þórðarson. 1940. Ofvitinn. l.b. Reykjavík : Heimskringla. Þórunn Valdimarsdóttir. 1994. Höfuðskepnur. Reykjavík : Forlagið. SUMMARY „She ivas a Librarian, but He uias a Weaver“: Libraries and Librarians in Literature The article discusses, how libraries, their activities and personnel are represented in Icelandic literature and in foreign literature translated into Icelandic as well. The author gives a brief outline of the history of Icelandic public libraries, with the first founded in 1790 as a reading society. It is argu- ed that, with more and better libraries in the country and increased use of the libraries, they a^e more frequently mentioned in Icelandic literature. Examples are cited from Icelandic literature and from foreign translations into Icelandic as well. Fræðsl uskr if stof a Vesturlands Bjarnarbraut 8 • Borgarnesi Sími 437 1418* Myndsendir 437 1048 14 BókasafniS 19. árg. 1995
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.