Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 83

Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 83
þjónustu eða vissu ekki hvort af því yrði innan 5 ára frá könnunartíma. Fram kom að 60 þessara aðila áttu safnkost. Tilgátan var sú að þar sem safnkostur væri til væru meiri líkur á að tekin yrði upp bóksafns- og upplýsingaþjónusta. f svörum þeirra sem taka þátt í könnuninni en reka ekki bókasafn á könnun- artíma kemur fram að ekki er samband milli þess að aðili eigi safnkost og að til standi að hefja starfrækslu bókasafns. Þannig eiga ekki allir þeir sem hyggjast hefja rekstur bóka- safns innan 5 ára safnkost og dæmi eru um að þeir sem eiga safnkost noti bókasafnsþjónustu annars aðila. Eftirspurn eftir mannafla í framtíðinni 1 líkani Moore's er unnið með eftirspurn eftir mannafla, en ekki þörf. Mikil þörf getur verið á starfsfólki með tiltekna menntun og/eða starfsreynslu án þess að fjárveitingar leyfi ráðningu. Þar er eftirspurn eftir slíku starfsfólki engin enda þótt þörfin sé mikil og brýn (Moore 1986). Við gerð á áætlun um eftirspurn eftir mannafla fram í tím- ann er í líkani Moore's notast við upplýsingar frá bókasöfn- um um væntanlega eftirspurn og jafnframt reiknað með því að þróunin muni í náinni framtíð verða sú sama og áður. Fullvíst er að í framtíðinni mun þróun á mannafla bókasafna, hér á landi, ekki verða sú sama og verið hefur, því til skamms tíma var skortur á bókasafnsfræðingum en það mun ekki verða í framtíðinni. Bókasafnsfræðingar munu smám saman verða ráðnir í stöður sem kalla á fólk með slíka menntun, sem var ófáanlegt áður. Meðan það er að gerast mun tímabundið verða meiri eftirspurn eftir bókasafnsfræðingum en nýjar stöður og afföll starfsmanna gefa tilefni til að áætla og jafn- framt minni eftirspurn eftir starfsfólki með annars konar menntun en verið hefur. Þetta verður að hafa í huga þegar niðurstöður útreikninga á áætlaðri eftirspurn eftir mannafla bókasafna eru skoðaðar. Auk þess þarf að leggja fleiri en eina mannaflakönnun til grundvallar við gerð áætlunar um eftir- spurn eftir mannafla í framtíðinni. Nú eru að verða þáttaskil í mannaflaþróun á bókasöfnum á Islandi þar sem framboð bókasafnsfræðinga mun fullnægja eftirspurn. Enda þótt líkan Moore's henti ekki fullkomlega í þessari fyrstu áætlun á eftir- spurn eftir mannafla í bókasöfnum tel ég rétt að nota það nú því það mun að mínum dórni henta vel í framtíðinni við gerð áætlana um eftirspurn eftir mannafla á bókasöfn. Taka verður enn og aftur skýrt fram að svörun við könn- uninni var ekki nægileg og sumir starfshópar einstaka bóka- safnategunda voru of fámennir til þess að hægt sé að telja nið- urstöður marktækar fyrir efdrspurn eftir starfsfólki. Þó verð- ur ekki litið fram hjá því að þær gefa vísbendingu um þá þró- un að hlutfall bókasafnsfræðinga meðal starfsfólks bókasafna hækki stöðugt en hlutfall annarra faglærðra og ófaglærðra lækki að sama skapi. Niðurstöður benda til þess að markaður- inn fyrir bókasafnsfræðinga sé að mettast, og að undanfarin ár hafi bókasafnsfræðingar í einhverjum mæli ráðist í stöður sem aðrir faglærðir og jafnvel ófaglærðir gegndu áður. Að vissu marki er þetta eðlileg þróun miðað við þær sögulegu forsendur að til skamms tíma var skortur á bókasafnsfræð- ingum og í stöður ætlaðar þeim var ráðið fólk með annars konar menntun eða jafnvel ómenntað vegna þess að bóka- safnsfræðingar fengust ekki. Ef offramboð verður á bókasafnsfræðingum getur þessi þróun, að vísu, haldið áfram umfrarn raunverulega þörf á bókasafnsfræðingum, þannig að þeir verði ráðnir í störf sem eðlilegt er að aðrir faglærðir eða jafnvel ófaglærðir vinni. Þetta getur þó ekki haldið áfram endalaust. Þeir bókasafnsfræðingar sem sækja í störf á bókasöfnum eru bæði nýútskrifaðir og koma frá öðrum bókasöfnum og öðrum vinnustöðum en bókasöfnum. Mikil uppbygging mannafla virðist hafa átt sér stað árið eftir könnunarár, því það ár bættust helmingi fleiri störf við en árið áður og einnig fleiri en áætlun fyrir næstu ár á eftir segir til um. Aðeins 14% af nýjum stöðum var ætlað öðrum faglærðum og eru þær stöður flestar á grunnskólasöfnum, ætl- aðar fólki með próf frá Kennaraskóla Islands. Megnið af nýj- um stöðum eða 62% var ætlað bókasafnsfræðingum. Það styður þá kenningu að verið sé að ráða bókasafnsfræð- inga í störf sem ekki tókst að manna áður með bókasafns- fræðingum vegna skorts á þeim. Það gæti tekið mörg ár enn- þá, en jafnframt hafa væntanlega nú þegar verið ráðnir bóka- safnsfræðingar í störf sem áður voru ekki ætluð bókasafns- fræðingi með því að fá starfið endurskilgreint sem starf bóka- safnsfræðings. Um skeið verða því samtímis aðrir faglærðir og ófaglærðir í störfum ætluðum bókasafnsfræðingum og bókasafnsfræðingar í störfum sem e.t.v. væri eðlilegt að aðrir faglærðir eða ófaglærðir gegndu. Lítil hreyfing er á fólki á milli starfa. Starfsskiptahlutfall ófaglærðra og faglærðra annarra en bókasafnsfræðinga er þó innan æskilegra marka en undir þeim hjá bókasafnsfræðing- um. Niðurstöður sýna því kyrrstöðu bókasafnsfræðinga á vinnumarkaði bókasafna, þ.e.a.s. lítið er um að bókasafns- fræðingar sem starfa á bókasöfnum hætti og ráði sig á annað bókasafn. Ófaglærðir leita í báðar áttir, frá bókasöfnum og til þeirra. E.t.v. er eðlilegt að bókasafnsfræðingar skipti sjaldnar um starf en aðrir faglærðir eða ófaglærðir, því á bókasöfnum eru þeir að vinna störf sem þeir hafa sérstaklega menntað sig til. Niðurstöður benda til að á könnunartíma hafi verið jafn- vægi á milli framboðs og eftirspurnar bókasafnsfræðinga en offramboð á öðrum faglærðum og ófaglærðum. Strax árið eft- ir könnunarárið benda niðurstöður til þess að offramboð ætti að vera orðið á bókasafnsfræðingum sem nemur 2,5 störfum en eftirspurn eftir öðrum faglærðum sem nemur 6.7 störfum og ófaglærðum sem nemur 8.9 störfum. I lok ársins 1994 ætti offramboð á bókasafnsfræðingum að vera orðið sem nemur 45 störfum, en eftirspurn eftir öðrum faglærðum sem nemur 20.5 störfum og ófaglærðum sem nemur 24 störfum. Nú um áramótin 1994-1995 er það ekki reyndin að tugir bókasafns- fræðinga gangi atvinnulausir. A því er fleiri en ein skýring, hluti þeirra hefur væntanlega verið ráðin í störf sem annars konar starfsfólk gegndi áður, hluti hefur verið ráðin til starfa á öðrum vettvangi en á bókasöfnum, e.t.v. hefur störfum bóka- safnsfræðinga á bókasöfnum fjölgað meir en gert var ráð fyrir í áætluninni því Þjóðarbókhlaða var t.d. formlega opnuð 1. desember 1994 og fleiri ástæður gætu komið til. 2. Menntun Starfsfólk bókasafna hefur margs konar menntun allt frá barnaskólaprófi upp í meistara- og doktorspróf á hinum ýmsu fræðasviðum, þó algengasta menntunin sé á sviði bóka- safns- og upplýsingafræði. Starfsheitið bókasafnsfræðingur er lögverndað starfsheiti og hefur verið svo síðan 1984 er Lög um bókasafhsfrteðinga (nr. 97/1984) voru sett. Akvæði í íslenskum lögum og reglugerðum urn menntun starfsfólks bókasafna eru ekki mörg og ekkert þeirra er alveg afdráttarlaust. Akveðnast er ákvæði í Reglugerð um framhalds- skóla með áorðinni breytingu skv. reglugerð nr. 23/1991, þar sem segir í gr. 33: „yfirmaður skólasafns skal vera bókasafns- Bókasafrið 19. árg. 1995 83
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.