Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 56

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 56
Hins vegar eru hinir tveir hóparnir (bókasafnsfræðingar í öðrum söfnum og ófaglærðir) miklu líkari almenningsbóka- vörðum á hinum Norðurlöndunum. f einni athugasemdinni var tekin afstaða til efnisins á eftir- farandi hátt: „Mér finnst siðferðilega rangt að hafa á almenn- ingssafni bækur sem „kenna að drepa“ bæði sjálfa sig og aðra. - Jakkaklæddur, fínn maður getur alveg eins drepið og stræt- isróni.“ Forgangsröð notenda Leitað var eftir viðhorfum bókavarða til einstakra notenda eða notendahópa. Flestir bókaverðir vilja telja sig hlutlausa í þeirri þjónustu sem þeir veita en eins og áður kom fram eru þó sumir tregir til að veita þeim þjónustu sem ætla má að hafi illt í huga. Kannað var hvort menn gætu metið hlutleysi sitt eða hvort menn gerðu greinarmun á milli notenda og uppiýs- ingaþarfa þeirra. Valdir voru einstaklingar sem gætu haft á- hrif á viðhorf bókavarða annað hvort í þá veru að þeir vildu fremur hjálpa við sérstakar aðstæður eða ekki. Ekki var spurt um í hvora áttina menn væru tilbúnir til að láta lánþega hafa „áhrif' á sig. Til þess að skoða viðhorf gagnvart einstaka not- endahópum var búin til eftirfarandi saga: Lánþegi kemnr inn í safnið og biður um aðstoð við aðfinna upplýsingar. Spurningin er erfið ogþú sérðfram á aðþað muni taka þig að minnsta kosti 30 mínútur að finna svarið. Hefur það áhrifá leitina að svarinu ef lánþeginn er: Bœjarstjórinn eða mikilvœgur maður í stjórnkerfinu Menntaskólanemandi „ Gunna gamla á elliheimilinu “ Sölumaður frá einu afstœrstufyrirtœkjum sveitarfélagsins 10 ára stelpa með hestadellu Besti vinur þinn Á þessari töflu eru settir saman allir sex aðilarnir og þeim raðað eftir því hvort menn töldu það skipta máli hverjir þeir væru. Valin voru dæmi sem gætu verið táknræn fyrir einstaka lánþegahópa. Bæjarstjórinn átti að vera tákn fyrir yfirmenn safnsins, menn sem gætu hugsanlega haft áhrif á fjárveitingar til bókasafnsins síðar. Því gæti hugsanlega verið gagnlegt að bjóða þeim sérstaka þjónustu. Menntaskólaneminn var full- trúi fyrir þann hóp sem oft reynir á þolinmæði almennings- bókavarða með endalausum beiðnum um alls kyns aðstoð við ritgerðasmíð og upplýsingaöflun. „Gunna gamla“ átti að vera táknræn fyrir eldra fólk sem gæti átt erfitt með að átta sig á skipulagningu bókasafnsins og væri farið að sjá illa. Sölumað- urinn er tákn fyrir þá aðila í samfélaginu sem ekki falla und- ir almenna Iánþega en eru í jaðri þeirrar þjónustu sem al- menn bókasöfn geta veitt. Stelpan með hestadelluna er full- Tafla 9 Áhrif á leit ef lánþegi er ... ■ 3-5 (jákvæðir) tU 0-2 (neikvæðir) Besti vinurþinn 10 ára stelpa Sölumaður "Gunna gamla" Menntaskólanemi Bæjarstjórinn 0 100 200 trúi þeirra sem eru með upplýsingaþarfir sem kallast gætu „ónauðsynlegar“ og auk þess eru hún fulltrúi barna í bóka- safninu. Besti vinurinn átti að sýna hvort bókaverðir gætu verið svo hlutlausir í þjónustu sinni að vinskapur og tengsl hefðu engin áhrif á þá. Langflestir telja það ekki skipta sig máli hver í hlut á en einna minnsta samúð hefur sölumaðurinn. „Bæjarstjórinn“ og „Besti vinurinn“ fá meiri tillitsemi, auk þess sem nokkrir nefna „Gunnu gömlu á elliheimilinu". Þótt ekki hafi verið beinlínis spurt um það, má reikna með því að í þessum tilvik- um væru menn tilbúnir til að eyða 30 mínútum í að leita að upplýsingum fyrir ofangreinda hópa fremur en að þessum þremur aðilum væri veitt verri þjónusta en hinum! Nokkrir tóku það sérstaklega fram að ef bæjarstjórinn kæmi í heimsókn væri það slíkt undrunarefni að menn yrðu að láta það hafa áhrif á sig! Menntaskólanemendur kalla á svipuð viðbrögð frá öllum þremur hópunum. Um 80% svarenda sem vinna í almenn- ingsbókasöfnum (79.5% bókasafnsfræðinga og 80.6% ófag- lærðra), láta það ekki hafa áhrif á sig að notandinn er menntaskólanemandi. Aðeins fleiri bókasafnsfræðingar í öðr- um söfnum (25%) eru fúsir að láta það hafa áhrif á sig. Þegar kemur að Gunnu gömlu eru þeir bókasafnsfræðing- ar í öðrum söfnum áberandi flestir fúsir til að láta aldur Gunnu hafa áhrif á sig. Þeir eru um 28.1% sem merkja við á- hrifaþáttinn en meðal þeirra sem starfa í almenningsbóka- söfnum eru aðeins 15.4% bókasafnsfræðinga á almennings- bókasöfnum sem láta Gunnu hafa áhrif á sig og 19.4% ófag- lærðra bókavarða eru sömu skoðunar. Sölumaður frá einu af stærstu fyrirtækjum sveitarfélagsins kallar ekki fram mikil viðbrögð hjá ófaglærðum bókavörðum og aðeins 12.9% þeirra eru fúsir að láta hann hafa áhrif á þjónustuna. Enn eru það bókasafnsfræðingar í öðrum söfn- um sem láta sölumanninn hafa áhrif á þjónustuna þar sem 22.9% þeirra telja sig verða fyrir áhrifum af komu hans en 15.4% bókasafnsfræðinga. Stelpa með hestadellu kallar fram svipuð viðbrögð meðal allra hópanna. Alls eru það 84% svarenda sem vilja veita henni jafngóða þjónustu og öðrum. Besti vinurinn fær svipaðar viðtökur og bæjarstjórinn svo draga má þá ályktun að það geti komið sér vel að þekkja bókasafnsfræðinga! Þeir eru betri vinum sínum en ófaglærðir bókaverðir svo um munar. Nálægt því þriðji hver bókasafns- fræðingur lætur besta vin sinn hafa áhrif á þjónustuna og hér er sáralítill munur á því hvar þeir vinna. 30.8% bókasafns- fræðinga í almenningsbókasöfnum og 32.3% þeirra sem starfa í öðrum söfnum láta besta vin sinn hafa áhrif. Ófag- lærðir bókaverðir eru ekki eins fúsir að láta í ljós þessa mis- munun og aðeins 22.6% þeirra telur besta vin sinn hafa á- hrif á sig. Þegar á heildina er litið virðast bókaverðir á Islandi gera ákaflega lítinn greinarmun á því hver notandinn er sem til þeirra leitar. Er þessi niðurstaða mjög í samræmi við það sem áður hefur komið fram um að útlit notenda hafi lítil áhrif á þjónustuna. Nokkrir bókaverðir tóku sérstaklega fram að „Gunna gamla“ myndi kannski hafa forgang vegna elli, hinir ekki. Einn taldi sjálfsagt að „viðkomandi yrði að bíða í 30 mínútur eða koma aftur næsta dag en þó ekki ellilífeyrisþeginn“. Það er athyglisvert að flestir nefna ellilífeyrisþegann og eru fúsir að gera eitthvað fyrir hann en þegar svörin eru skoðuð er „Gunna gamla“ á eftir bæði besta vininum og bæjarstjóran- um í vinsældum. Aðeins einn bókavörður telur sig mundi 56 Bókasafnið 19. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.