Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 66

Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 66
1. Almennar upplýsingar um þau bókasöfn sem þátt tóku í könnuninni 2. Áhrif notkunar LIBIS-netsins á uppbyggingu safnkosts 3. Áhrif samskránna (CCB og Antilope) á uppbyggingu safn- kosts 4. Samvinna um uppbyggingu safnkosts 5. Conspectus 6. Áhrif beinlínuaðgangs að tölvutækum upplýsingum, þar sem fá má það efni sem þörf er á samstundis yfir í eigin tölvu, á uppbyggingu safnkosts. 1 þessari grein er eingöngu fjallað um annan og fjórða hluta og lítillega um fyrsta hlutann. Svörun Miðað við stofnanir var svörun 81.3% (13 af 16 svara) og miðað við bókasöfnin var svörun 84.1% (37 af 44 svara). Urvinnsla gagna Meira en helmingur þeirra bókasafna sem fengu send könnunargögn eru innan sömu stofnunar Kaþólska háskól- ans í Leuven. LIBIS-netið var upphaflega þróað fyrir þá stofnun (Borm, J. Van, 1991, s. 26) og þar hafa flestar færsl- ur í bókfræðigagnasafninu verið skráðar (LIBIS-net, 1994). Viðbúið þótti að svör frá bókasöfnum innan Kaþólska há- skólans í Leuven yrðu frábrugðin svörum frá bókasöfnum utan þeirrar stofnunar. Því er unnið sitt í hvoru lagi úr svör- um frá bókasöfnum innan Kaþólska háskólans og utan hans. Einnig er unnið sameiginlega úr öllum svörum. Trúnaður Svarendur voru beðnir um að gefa til kynna hvort þeir óskuðu eftir því að með svör þeirra yrði farið sem trúnaðar- mál. Niðurstöður má sjá í eftirfarandi töflu. Óskir svarenda um trúnað Fjöldi % af ÍKUL Aðrar bókasnfna 37 22 % af stofnanir % af 37 (100%) (100%) 22 15 (100%) 15 Ekki gefið tii kynna 4 10.8% 2 9.1% 2 13.3% Trúnaðar óskað 9 24.3% 5 22.7% 4 26.7% Trúnaðar ekki óskað 24 64.9% 15 68.2% 9 60% Ails: 37 100% 22 100% 15 100% Athygli vekur hve litlu munar hér á svörum bókasafna innan Kaþólska háskólans í Leuven og bókasöfnum utan hans. Ég átti von á því að mikill meirihluti bókasafna utan KUL óskaði eftir því að með svör þeirra yrði farið sem trún- aðarmál og að því yrði öfugt farið með bókasöfn innan skól- ans. Abyrgð á vali nýrra aðfanga Misjafnt er eftir bókasöfnum hvaða aðilar ráða vali nýrra aðfanga. Öll bókasöfnin 37 sem þátt taka í könnuninni svara spurningu um það atriði. Og eru niðurstöður sem hér grein- ir: • 5 (13.5%) segja bókasafnsfræðingar • 13 (35.1%) segja prófessorar • 14 (37.8%) segja bókasafnsfræðingar og prófessorar sam- eiginlega • 3 (8.1%) segja bókasafnsfræðingar og notendur • 1 (2.7%) segir bókasafnsfræðingar og bókasafnsnefnd • 1 (2.7%) segir bókasafnsfræðingar og aðrir. Prófessorar taka þátt í vali nýrra aðfanga í 27 eða 73% bókasafna. Þegar þeir og notendur (annarra bókasafnateg- unda en háskólabókasafna) eru settir undir sama hatt taka þeir þátt í vali nýrra aðfanga í 30 bókasöfnum eða 81.1% bókasafna. Bókasafnsfræðingar taka hins vegar þátt í vali nýrra aðfanga í 24 eða 64.9% bókasafna. Könnunargögn voru send til bókasafnsfræðinga. Enda þótt þeir séu ekki þeir aðilar sem oftast taka þátt í vali nýrra aðfanga eru það þeir sem sjá um framkvæmd samvinnuverk- efna svo sem millisafnalána. Viðhorf þeirra til samvinnunnar getur ráðið úrslitum um það hvernig til tekst með slík verk- efni. Bókasafnsfræðingar hafa auk þess yfirsýn yfir öll aðföng og þróun uppbyggingar safnkosts á sínu bókasafni og eru því í mörgum tilvikum betur í stakk búnir til þess að svara könn- un sem þessari enda þótt þeir ráði formlega e.t.v. minna um val efnis en prófessorar í háskólabókasöfnum. Notkun LIBIS-netsins við uppbyggingu safnkosts Athugað var hvort og hvernig starfsfólk bókasafna hugðist nota LIBIS-netið við val nýrra aðfanga, þegar það var tekið í notkun á bókasöfnunum og hvað taldir eru helstu kostir og gallar við að nota netið. Ennfremur var athugað hve mikil- vægt LIBIS-net er sem tæki við val nýrra aðfanga hjá þeim bókasöfnum sem nota það og tóku þátt í könnuninni. Niðurstöðurnar eru dregnar saman í töflur hér fyrir neðan: Fyrirhuguð not á LIBIS-netinu við val nýrra aðfanga Svörun 89.2% (33 svör) Fyrirhuguð not bókasafna á LIBIS-neti við val nýrra aðfanga við inngöngu í netið Við inngöngu í LIBIS- netið hugðust söfn nota það til: Fjöldi hókasafna % af 1 KIIL % af Aðrar stofnanir % af 29 29 21 21 8 8 Að forðast að afla þess sama og til var í öðrum bókasöfnum 24 82.8% 20 95.2% 4 50% Að afla þess sem tiltekin söfn höfðu þegar aflað 6 20.7% 3 14.3% 3 37.5% Að afla þess sem ekki er fyrsta val, ef það vantar í LIBIS-söfnin 10 34.5% 7 33.3% 3 37.5% Á annan hátt 5 17.2% 2 9.5% 3 37.5% Margir þættir gætu hafa haft áhrif á fyrirhuguð not LIBIS- netsins við val aðfanga þegar það var tekið í notkun, svo sem stærð bókasafns, tegund þess, efnissvið, staðsetning bókasafns miðað við önnur bókasöfn á netinu, hvort önnur bókasöfn sömu stofnunar notuðu netið, hvenær safnið tengdist því og að sjálfsögðu samspil þessara og annarra þátta. Ekki er hægt að ráða það af svörunum að neinn þessara þátta hafi haft af- gerandi áhrif á fyrirhuguð not LIBIS-netsins við val nýrra að- fanga. Eins og við var búist skera bókasöfn K.U. Leuven sig úr að þessu leyti því um 91% þeirra 22 bókasafna innan KUL sem hafa sjálfstæð aðföng og tóku þátt í könnuninni hugðust nota LIBIS-netið við val aðfanga. I því sambandi verður að hafa í huga að netið var sett á fót til þess að stuðla að samvinnu meðal KUL bókasafna, sem næstum því öll eru staðsett mjög nálægt hvort öðru, það er því í raun undarlegt að þau skuli ekki öll hafa stefnt að því að nota netið við val aðfanga þegar þau tengdust því. 1 'il viðbótar við þau 29 bókasöfn sem hugðust nota LIB- IS-netið við val aðfanga þegar þau tengdust því sögðu 3, í at- hugasemd, að þau hefðu ekki hugað á slík not við tengingu en að nú notuðu þau netið við val aðfanga. Frá einu bóka- safni barst það svar að tenging við LIBIS-net hefði engin áhrif 66 Bókasafnið 19. árg. 1995
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.