Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Side 91

Bókasafnið - 01.04.1995, Side 91
Brynhildur Friðriksdóttir nemi í bókasafns- og upplýsingafræði Bókasafnsþjónusta fyrir fanga á Islandi YFIRLIT Eftirfarandi grein er byggð á ritgerð sem unnin var sl. haust í áfanganum bókasafn og samfélag við félagsvísindadeild Háskóla íslands. Við söfnun efn- is rak greinarhöfundur sig á hversu litla athygli bókasafnsþjónusta fyrir fanga hefur fengið hér á landi; innan bókasafnsfræðinnar hefur nánast ekkert ver- ið skrifað um þessa þjónustu. Inngangur Það var aðallega af forvitni sem ég valdi mér ritgerðarefn- ið „Bókasafnsþjónusta fyrir fanga". Mér er það nefnilega minnistætt þegar ég var einu sinni á Amtsbókasafninu á Ak- ureyri sem krakki, að verið var að setja bækur í kassa. Ég vissi að svona fór þetta fram fyrir skipin þar sem faðir minn er sjó- maður en ég heyrði útundan mér að þessi kassi ætti að fara í fangelsið. Sem krakka fannst mér þetta vera mikil frétt - að verið væri að senda bækur í fangelsið til vondu mannanna. I gegnum árin hefur þetta alltaf setið svolítið í mér og ég hef stundum velt þessu fyrir mér. Hvernig fer þetta fram? Hver velur bækurnar? Hversu oft ætli þetta sé gert? Ætli fang- arnir Iesi ekki mikið, þar sem þeir hafa ekki mikið annað að gera? Og fleiri og fleiri spurningar hafa þotið í gegnum huga mér. En þegar ég fór af stað til að afla mér heimilda þá kom nú ekki mikið í ljós. Á íslensku fann ég eina grein og var hún þá um heimsókn greinarhöfundar í erlent fangelsi. Um íslensk fangelsi fann ég ekkert nema eina BA-ritgerð. Ég ákvað ann- arsvegar að leita heimilda á geisladisknum LISA (Library and Information Science Abstracts ) til að sjá hvernig þessari þjónustu er háttað erlendis. Til að afla heimilda um þessa þjónustu hér á landi varð ég hins vegar að gjöra svo vel og fara á staðinn eða hringja, sem og ég gerði. Allar íslenskar heimildir eru því byggðar á við- tölum. Borgarbókasafh Ég byrjaði á Borgarbókasafninu og ræddi þar við Einar Ó- lafsson starfsmann í sérútlánadeild safnsins. Hann sér um þessa þjónustu fyrir tvö fangelsi hér í Reykjavík, þ.e. Síðu- múlafangelsi og Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Hann var ekki viss um hvenær þessi þjónusta byrjaði en það elsta sem hann var með í höndunum þegar ég ræddi við hann voru gögn frá árinu 1971 en þá voru það Litla-Hraun og Hegningarhúsið sem nutu þessarar þjónustu. I dag á Litla- Hraun sjálft lítið safn og fær það jafnframt einhverja þjón- ustu frá Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi. Einar sagði að þessi þjónusta væri í raun mjög einföld og frjálsleg, þetta færi allt eftir samkomulagi milli hans og notendanna. Fyrir tvö fyrrgreind fangelsi velur hann u.þ.b. 200 bækur, þ.e. 100 fyrir hvort fangelsi og sendir þeim mánaðarlega. Fangarnir geta komið með óslcir en mun það heyra til undantekninga að svo sé gert og telur hann aðalástæðuna vera þá að þarna er nær eingöngu um skammtímavistun að ræða. Hann mundi þó eftir einu tilviki þar sem ósk hefði komið um að fá bækur um tungumálakennslu. Til að Einar geti fylgst með því hvað sé mest lesið, þá skrifa fangarnir númerið á klefanum sínum á vasann í bók- inni. Þannig sér hann hvort viðkomandi bók hafi yfirhöfuð farið í útlán eða hvort margir fangar lesið bókina. Eftir að Einar tók við þessu starfi kom það honum einna helst á ó- vart hversu mikið og fjölbreytilegt efni var lesið í fangelsun- um. Að sjálfsögðu eru léttir reyfarar vinsælasta efnið og einnig myndasögur. I því sambandi hafa fangaverðir sagt að margir fanganna séu óvanir að Iesa og ráði ekki við mikinn texta. Allt frá myndasögum uppí heimspekileg rit eru lesin, en sá flokk- ur bóka sem öllu jöfnu kæmi ólesinn til baka eru ævisögurn- ar. Einar sagði að mjög lítið væri um skemmdir á bókum frá fangelsunum Fjöldi bóka sem Borgarbókasafn lánaði þessum tveimur fangelsum á árinu 1993, eru sem hér segir: Síðumúlafangelsi 1100 bækur og Hegningarhúsið við Skólavörðustíg 906 bæk- ur. Þetta mun vera svipaður fjöldi og undanfarin ár. Einnig hefur Borgarbókasafn lánað í fangageymslurnar við Hverfisgötu vegna óska þaðan. Ekkert reglulegt form er á því þar sem þetta kemur einna helst upp ef um vikugæsluvarð- hald er að ræða. Síðumúlafangelsi Næst ræddi ég við Guðmund Zebitz fangavörð í Síðu- múlafangelsi til að fá að vita hvernig þeir koma bókunum á- fram til fanganna. Hann sagði, að þegar fangaverðirnir fá kassann frá bókasafninu fylgir honum listi yfir allar þær bæk- ur sem í kassanum eru. Þennan lista fá fangarnir og panta eft- ir honum. Þeir fá svo bækurnar afgreiddar annanhvern dag. Fangar sem eru í einangrun lesa mun meira, en þeir sem eru í gæsluvarðhaldi eða afplánun, þar sem þeir hafa ekki að- gang að sjónvarpi og dagblöðum heldur hafa þeir einungis bækurnar og tónlist af geisladiskum. Er ég spurði Guðmund hvaða gildi hann teldi bókalestur hafa fyrir fangana, þá svaraði hann því til að hann hefði ein- ungis afþreyingargildi fyrir þá. Hann var sammála Einari á Borgarbókasafninu um að lít- ið væri um það að fangarnir bæru fram óskir um lesefni. Amtsbókasafnið á Akureyri Á Amtsbókasafninu á Akureyri ræddi ég við Hörð Jó- hannsson, bókavörð og Hólmkel Hreinsson, bókasafnsfræð- ing. Sögðu þeir að fyrst árið 1979 væri getið um þessa þjón- ustu við lögreglustöðina í ársskýrslum safnsins. Hörður held- ur að þetta hafi byrjað eftir að ósk frá sýslumanni hafi borist þeim en þó var hann ekki alveg viss. Fyrst eftir að þessari þjónustu var komið á fót, fengu fang- arnir að koma á safnið í fylgd lögreglu og velja sér bækur sjálfir. Herði fannst þetta vera gott fyrirkomulag og það hefði Bókasafnið 19. árg. 1995 91

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.