Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 18

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 18
Dóra Thoroddsen deildarstjóri, Bústaðasafns Borgarbókasafns og Kristín H. Pétursdóttir forstöðumaður, Skjalasafns Landsbanka íslands Ættfræði og almenningsbókasöfn Inngangur Ætrvísi og áhugi á ættfræði eru jafngömul landnámi. Þegar í Landnámabók voru ættir landnámsmanna skráðar og alltaf síðan. Þeir sem lögðu grunn að nútímaættfræði voru aðallega þrír menn: Ólafur Snóksdalín bóndi og ættfræðingur, Steingrímur Jónsson biskup og Jón Espólín sýslumaður og sagna- ritari, allir fæddir á 18. öld. I gegnum aldirnar hafa gamlir menn, sjaldnar konur, þær höfðu annað við tímann að gera, setið, samið og afritað niðjatöl og ættarskrár, héraðssögur og alls kyns fróðleik. Þessi fróðleikur barst milli manna og kynslóða, sumt komst á prent, annað varðveittist í handritum. Fjöldi heimila á í fór- um sínum gamlar handskrifaðar kompur með ættfræðilegum fróðleik. Hvað er ættfrœði? Skilgreining Arna Böðvarssonar í Islenskri orðabók er þessi: „Fræðigrein um uppruna, skyldleika og vensl manna (genea- logia)“. Menn greinir hins vegar á um, hversu virðuleg þessi fræðigrein getur talist, og margir, eink- um sagnfræðingar, Iíta niður á ættfræði og vilja afgreiða hana með því að kalla hana grúsk. Grúsk er hins vegar engan veginn neikvætt hugtak. Orðið að grúska skýrir Arni Böðvarsson með „iðka bókleg fræði, leggja stund á fræðiiðkanir (án sérstakrar stefnu), sökkva sér niður í (bókleg) áhugamál“. Sennilega munu flestir þeir sem stunda ættfræði játa sig grúskara og ekki eru nema örfáir menn sem kalla sig ætt- fræðinga á íslandi og hafa atvinnu af ættfræði. Vaxandi áhugi á ættfræði Ahugi á ættfræði hefur aukist stór- lega hin síðari ár, fjöldi niðjamóta er haldinn árlega og í tengslum við þau eru gefin út mismunandi vegleg og vönduð rit, allt frá nokkrum síðum í fjölriti upp í mynd- skreyttar prentaðar bækur. Einnig er mikil vakning í útgáfu ýmissa tegunda ættfræðirita, svo sem ættarskráa og stéttartala. Það vekur einnig dálitla undrun, að það er ekki, eins og flest- ir halda, einungis eldra fólk sem stundar þetta áhugamál, heldur tekur yngra fólkið einnig virkan þátt í því. Hverjar eru ástæðurnar fyrir þessum mikla og vaxandi áhuga? Ef til vill umrót nú- tímans, hinar miklu þjóðfé- lagslegu breytingar síðustu áratuga, atvinnubylting, bú- setuflutningar milli lands- svæða og landa. Einhvers konar andsvar við rótleysi og hraða, löngun til að ná tengslum við uppruna sinn, tilheyra, finna sitt og rætur sínar. Astæður geta líka verið miklu fleiri og allt aðrar, jafnvel leit vegna erfðasjúkdóms og ferli sjúkdóma. Heyrum álit nokkurra sérfræðinga: Sigurjón Björnsson, prófessor í sálarfræði og gagnrýnandi, telur í nýlegri bókaumsögn eina ástæðu efalítið mikla landlæga forvitni um fólk, aðra, að ættfræði sé einkar þægileg tómstundaiðja fyrir þá sem una innisetum og séu kannske ekki færir til átaka- verka. í þriðja lagi geri ættrakningar ekki miklar andlegar kröfur. Halldór Armann Sigurðsson, prófessor, skrifar nýlega rit- dóm um Reykjahlíðarættina. Þar hrós- ar hann höfundi fyrir að hafa tekist betur en öðrum með útgáfúformi sínu að gera ættfræðina að gamni almenn- ings en ekki aðeins fáeinna grúskara. Hann segir ekki ástæðu til að réttlæta áhuga á ættfræði, hún sé, eins og hún er alla jafna stunduð, einfaldlega bráð- skemmtilegt tómstundagaman og lík- ir henni við frímerkjasöfnun eða fót- boltagláp. Hins vegar segir Halldór að stunda megi ættfræði og persónusögu sem vísindi. Almenningsbókasöfn og ættfræði í vaxandi mæli sækir fólk nú inn á al- menningsbókasöfn í leit að upplýsing- um um áa og ættmenni. Aður voru það fremur skjalasöfn sem sátu með þau gögn sem komið gátu að notum við slíkar leitir, en með aukinni útgáfu á ættfræðiheimildum, betri aðstöðu safnanna, m.a. betri skráningu á safnkosti, menntaðra og þjálfaðra starfsliði, eru mörg bókasöfn nú í stakk búin til að taka á móti þessu fólki og veita því aðstoð. Ljósm.: Edda Sig. Snmir jjölga sér, aðrir ekki. 18 Bókasafnið 19. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.