Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 75

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 75
Jónína Hafsteinsdóttir safnvörður á Örnefnastofnun Þjóðminjasafns Kort í söfnum Inngangur Grein þessi var upphaflega skrifuð á námskeiði um sér- fræðisöfn í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands haustið 1993. Kennari var Kristín Geirsdóttir. Þeir þættir, sem voru teknir til athugunar í ritgerðinni, voru í fyrsta lagi skipulag kortasafns, þ. e. hvað helst þarf að hafa í huga við stofnun og uppsetningu slíks safns; í öðru lagi geymsla, varðveisla og meðferð korta í söfnum og loks í þriðja lagi rætt nokkuð um skráningu korta. Sagt er lítillega frá þremur erlendum kortasöfnum eða -deildum og loks farið í heimsókn í tvær íslenskar stofnanir, sem eiga og nota mikið af kortum. Þegar heimildaleit hófst kom fljótt í ljós að mikið hefur verið ritað um þetta efni undanfarin ár og áratugi. Bækur hafa verið skrifaðar, tímaritshefti eru helguð kortum og korta- vörslu og ráðstefnur hafa verið haldnar um efnið. Sá hængur var þó á að mjög margt af álitlegu og nýlegu efni, sem fannst við leit, reyndist vera í ritum sem ekki voru til t' bókasöfnum hér á landi, og ber ritgerðin að sjálfsögðu nokkur merki þess. Bót er þó í máli að drjúgur hluti þess efnis, sem hér um ræð- ir, þ. e. varðveisla og geymsla korta og skipulag safns, er þess eðlis að greinar um það geta verið í fullu gildi þótt komnar séu nokkuð til ára sinna. Kortasöfn; gerðir korta Kort af ýmsum gerðum eru vfða til í bókasöfnum, bæði almennings-, háskóla- og þjóðbókasöfnum, og sums staðar eru reknar sérstakar kortadeildir sem eru þá eins konar „safn í safninu“, með sérstakt húsrými og starfsfólk. Þá eru mjög víða kortasöfn í fræða- og vísindastofnunum ef starfsemi þeirra er af því tagi að korta sé þörf. Þar ber trúlega hæst stofnanir sem fást við hinar ýmsu greinar náttúruvísinda, s. s. jarðfræði, grasafræði og veðurfræði, svo og að sjálfsögðu landafræði og síðast en ekki síst land- og sjómælingar. Margt af öðru tagi er kortlagt, og má nefna búsetu manna í þéttbýli og dreifbýli og skiptingu fólks í hópa eftir tungumálum, trú- arbrögðum og kynþáttum. Þá eru gerð staðfræðikort, þ. e. kort með örnefnum hvers konar til upplýsingar fyrir þá sem þurfa og vilja kynna sér slíkt. Vega- og ferðakort eru algeng og ómissandi hjálpargögn öllum sem kynnast vilja umheim- inum af eigin sjón og raun. Kort hafa mikla sérstöðu meðal safnefnis vegna forms og oft vegna stærðar. Má nefna upphleypt kort og hnattlíkön sem dæmi um gripi með miklar „sérþarfir“ um geymslu og rými. Kort krefjast sérstaks búnaðar, hirslur verða að vera sér- hannaðar, og oft er erfitt í þröngum húsakynnum að koma kortum fyrir svo vel fari. Bæði þarf að hugsa fyrir varðveislu þeirra og aðgengi fyrir notendur. Þeir, sem annast kort í söfnum, þurfa að búa yfir ýmiss konar sérþekkingu, bæði fræðilegri og tæknilegri, en oft er þar misbrestur á. Þess verður víða vart í skrifum um þessi efni að sérmenntun „kortavarða“ (þetta orð er notað hér í sömu merkingu og e. map librarian eða map curator) hefur ekki verið sinnt í bókavarðaskólum. Menn verða að notast við heilbrigða skynsemi og þá tæknikunnáttu sem þeir hafa og þreifa sig áfram (Kidd, 1980 ; Garnes, 1990). Oft er getið um námskeið sem haldin eru fyrir kortaverði, sum stutt, önn- ur lengri, og mörgum, sem um þessi mál hafa fjallað, er Ijós þörf fyrir fræðslu um efnið meðal starfsfólks í söfnum. Skipulagning kortasafhs Sem fyrr segir er kortasafn afar rúmfrekt, og sérstakar hirslur þarf undir kort. Búnaður kortasafns er því talsvert frá- brugðinn því sem gerist í venjulegu bókasafni, og þarf að skipuleggja með tilliti til þess. Það, sem hér er sagt, er byggt á grein í Special libraries, 4. hefti 63. árgangs, sem út kom í apr- íl 1972. Höfundur hennar er Stanley D. Stevens, kortavörð- ur í háskólanum í Santa Crus í Kaliforníu. Stevens leggur á- herslu á að stofnun safns sé vel undirbúin og áætlun vand- lega unnin. Hafa þarf í huga ótal atriði sem skipta máli við rekstur safnsins. Hið sama á við ef eldra safn er endurskipu- lagt. Áætlun þarf að liggja fyrir þegar hönnuður (arkitekt) er fenginn til að hanna húsnæðið og þegar yfirstjórn safns (stofnunar) er gerð grein fyrir áformum, og geta bókaverðir vænst meiri árangurs ef áætlun er vönduð. Sá, sem áætlun gerir, þarf að kynna sér allt tiltækt efni um kortasöfn og heimsækja sem flest og skoða ýmsar gerðir búnaðar. Að lok- um ráðleggur Stevens skipuleggjanda að ráðgast við krist- alskúlu sína, sem hlýtur að vísa til þess að menn reyni að sjá fram í tímann. Gera þarf grein fyrir sögu og hlutverki kortasafnsins og tengslum þess við „móðurstofnun“. Er gert ráð fyrir að safn- ið vaxi frá henni eða sameinist e. t. v. öðrum einingum? Þá þarf að huga að því hverjir muni einkum nota safnið, hvert sé helsta áhugasvið þeirra og hvaða þjónustu safnið á að veita. Sé um að ræða safn við menntastofnun skiptir máli hvert skóla- stigið er og hvaða kort þarf að eiga. Sé hins vegar um almenn- ingssafn að ræða þarf að gera sér grein fyrir hve stór hluti gesta er af æðri skólastigum, og hvort aðrir hópar með sér- stök áhugasvið muni nota safnið. Menn þurfa að reyna að átta sig á því hvort safn muni þenjast út er tímar líða og þörf verði fyrir aukinn vinnukraft, hvort safnið muni verða áfram á sama stað og hvort breyting verði á ímynd og áherslum þess. Þá skiptir og máli hvað ann- að stendur til boða í stofnuninni, í héraðinu eða hægt er að útvega með millisafnaláni. Hversu langt er í næsta safn? Er ætlunin að vera með besta kortasafn á stóru svæði? Safnkostur: Gera þarf áætlun um safnkost - það, sem fyrir er, ef um endurskipulag eldra safns er að ræða — áætluð aðföng á ári og fyrirferð efnis. Auk kortablaða eru í safn- kosti kortasafns gjarnan atlasar, oft í mjög stóru broti, hnattlíkön af ýmsum stærðum, uppsláttarrit og tímarit. Þá eru í kortasafni oft loftmyndir og skyggnur. Hirslur og geymslur þarf að hanna með tilliti til fagætis og annars sem þarfsérstaka meðferð. Skýrt þarfað koma fram hvort safn er ætlað til kennslu. Húsnæði: Tryggja þarf hæfilegt húsrými og vinnuaðstöðu fyrir starfsmenn og gesti, geymslur, hirslur og nauðsynleg áhöld. Kortaherbergi ætti að vera aðskilið frá öðrum hlut- um bókasafns og mætti gjarnan hafa styttri opnunartíma. Hillur undir atlasa, blöð og tímarit geta verið þannig stað- Bókasafiiið 19. árg. 1995 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.