Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 43

Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 43
afþreyingu eigum við að hafa á boðstólnum? Sumir halda því fram að söfnin eigi eingöngu að bjóða upp á fagurbókmennt- ir. Fólk hafi nú ekkert gott af því að vera að lesa svokallaðar sjoppubókmenntir. Ef við göngum nú út frá því að fólk hafi nú ekkert gott af sjoppubókmenntunum hvernig er þá best að fá fólk ofan af því að lesa þær? Með því að bjóða ekki upp á það á söfnunum? Það er skrítin stefna, því það er ljóst að þeir sem lesa léttmetið myndu einfaldlega bregðast þannig við að koma hreinlega ekki á söfnin. Þar með erum við búin að útiloka stóran hóp viðskiptavina sem hafa gaman að lesa, bara vegna þess að bókaverðinum fmnst að þeir ættu að lesa eitthvað annað. Ef þessari stefnu er fylgt á safni, þ.e. að fólk „eigi“ að lesa fagurbókmenntir, og nú er ég ekki að segja þetta sé endilega rétta stefnan, væri þá ekki betra að vera með létt- ar bókmenntir á söfnunum og reyna síðan að fá „aumingj- ans“ fólkið til að lesa eitthvað sem það hefði „gott af'? A hinum Norðurlöndunum þar sem ég þekki dálítið til, er bókaval erfiðara, þar sem bókaútgáfa er miklu meiri en hér og því ljóst að ekki er hægt að kaupa allt. Nemi í bókmennt- um við Kaupmannahafnarháskóla ætlaði að gera úttekt á Ib Cavling og fór á næsta almenningsbókasafn til að ná í bækur eftir hann. Bókavörðurinn horfði í forundran á nemann og sagði: „sádan boger har vi ikke“. Hins vegar hafði safnið bæk- ur eftir Alister MacLean. Danskir bókaverðir viðurkenna að það sé tilhneiging til að velja bækur sem henta körlum 30-60 ára því það er sá aldurshópur sem lætur sig vanta á söfnin. Til dæmis er John Grisham keyptur á dönsk bókasöfn en ekki Mary Higgins Clark. Þetta er umhugsunarefni. Nú eru Cavl- ing, Grisham og Mary Higgins Clark keypt á flestöll íslensk almennningsbókasöfn. Hins vegar eru ísfólkið og Rauða ser- ían ekki keypt alls staðar. Hver eru rökin fyrir því? Bækur í vasabroti endast illa. Þetta eru veik rök, því þær hafa enst merkilega vel á Bókasafni Seltjarnarness, miðað við verð. Það eru enn í útláni eintök sem keypt voru árið 1982. Bækurnar eru svo margar, 47 bækur af Isfólkinu og svo þyrfd að kaupa þessi reiðinnar býsn af hverri. Isfólksbækurnar standast ekki sögulega séð. Tja, ef við ætt- um að hreinsa út allar skáldsögur sem ekki standast sögu- lega, þá hefðum við nú nóg að gera. Þær eru bókmenntalega séð rusl. Það er nú svo margt annað og þá má líka spyrja hvort bókaverðir á Islandi hafi al- mennt menntun til að dæma um hvað sé rusl og hvað ekki. Og það er einnig spurning hvort það sé hlutverk bókavarða að ákveða hvað fólk hafi gott af að lesa. Daglega kemur fólk Bókasafn Seltjarnarness einungis vegna þess að við bjóðum upp á Isfólkið. Þetta eru oft foreldr- ar unglinga sem sýnt hafa áhuga á að lesa þessar bækur. Oft unglingar sem eru rétt búnir að ná tökum á lestri en vantar æfinguna. Seríur af þessu tagi henta einmitt ágætlega í þeirn tilgangi að ná upp lestrarhraða. Þær halda athygli og eru spennandi. Svo er ekkert að siðferðinu. Sandemo predikar að kynferðislegt ofbeldi af öllu tagi sé viðbjóður, allt ofbeldi af hinu vonda, þú átt að vera góður og gegn þegn, trúr þínum nánustu vinum og vandamönnum og elska náungan eins og sjálfan þig. Lifir þú eftir þessum reglum mun þér farnast vel. Fólk sem kemur eingöngu í þeim tilgangi að ná í Isfólks- bakurnar hættir ekki að koma þó það ljúki við að lesa serí- una. Það er þá orðið vant safninu, og finnur að þetta er eigin- lega svolítið gaman. Svo hefur það hent að unglingum fylgi foreldrar. Allir vita jú að unglingum í dag er ekið hvert á land sem er. Þegar einn pabbinn var búinn að aka dóttur sinni þrisvar ofan úr Grafarvogi til að ná í Isfólkið, spurði hann okkur varlega hvort hann mætti nokkuð kaupa sér lánsskír- teini og taka bækur. I dag er þetta einn af okkar traustustu lánþegum, maður sem annars hefði ekki vanið sig á að nota bókasöfn og er þar að auki á þessum aldri sem rannsóknir sýna að vanti á söfnin. Þess utan tekur hann eingöngu fræði- rit! I l.tbl. 1994 af Biblioteket i samhdlle (BIS) má lesa viðtal við Greta Renborg sem hefur verið í fararbroddi PR-bóka- varða (public relations; almannatengsl) í Svíþjóð. Hún hefur unnið í 47 ár við störf tengd bókasöfnum og segir m.a. í við- talinu að það sé ekki spurningin um mat á góðum eða léleg- um bókmenntum. Málið er að það verður að vera val til að geta greint þarna á milli. Hún er þá spurð að því hvort það séu óskir lánþeganna sem eiga að vera ráðandi í bókavali og hún svarar að það sé svo og hafi reyndar alltaf verið. Ekki má þó gleyma að kaupa inn efni sem ekki er spurt um. Almenningsbókasöfn eru rekin að bæjarfélögum og þar af leiðandi af fólkinu sem býr í þessum bæjarfélögum. Að mínu viti erum við skyldug til að þjóna öllum þessum hóp, einnig þeim sem kýs að lesa svokallaðar sjoppubókmenntir. Það er staðreynd að bókaverðir verða alltaf að velja og hafna í starfi sínu. Bókasöfnin eru mjög háð útlánatölum í baráttu sinni fyrir auknurn fjárframlögum. Utlánatölur eru eitthvað sem sveitarstjórnarmenn skilja vel. Bókaval almenn- ingssafna er og verður alltaf umdeilt, því er hætt við því að alltaf sé einhver sem finnst að við getum gert betur. Hins veg- ar er það spurning hvort við höfum efni á að hafna ákveðum tegundum bókmennta vegna fordóma okkar eða annarra. Bókaval verður alltaf að ráðast af framboði og eftirspurn upp að vissu marki ef við viljum halda útlánatölum safnanna háum. Heimildir: Brevik, Thomas. 1993. -Nei til formynderi i bibliotekene. Bok oz bibliotek 60(3): 14. Dahl, Willy. 1993. Om bibliotekarers bekymring for lánernes lyster. Bok og bibliotek 60(3): 11-13. Haugen, Morten.1993. Trivaldebatt og bokvalgskriterier. Bok og bibliotek 60(5): 38-39. Menntamálaráðuneytið: Bókafulltrúi ríkisins. 1993. Ársskýrslur almennings- bókasafua 1987-1991. Myrstener, Mats. 1994. Biblioteket ar samhállets hjártepunkt. Greta Ren- borg interjuvad av Mats Myrstener. BIS 119: 26-32. Naper, Cecilie. 1993. De vanskelige valget. Bok og bibíiotek 60(8): 6-10. Thanem, Rolf W. 1992. Á fj erne Sandemo er ikke sensur. Bok og bibliotek 59(7/8): 151. SUMMARY Book Selection and Popular Literature The criteria for book selection in public libraries and its relation to censorship is discussed. It is pointed out that public libraries get more and more competition from other media of entertainment and education, like television, videotapes and computers. The ultimate cause is status quo or decline in library lending figures. Nevertheless, according to Icelandic library statistic, there is a large increase in the lending figures for 1993, which might a.o. be due to better housing of the libraries, better services, increased unemployment in the country or people have simply enough of the new media and are going back to the libraries. The impact of book selection policy in public libraries on their lending figures is discussed. Deals further with the question of book selection vs. censorship, e.g. if popular and trivi- al literature should be excluded from public library collections. Refers to debates on the subject in the other Nordic countries and discusses several authors and publications in this regard. Concludes by stating that book sel- ection in public libraries has partially to go by supply and demand, at least if it is wished to keep lending figures high. Considers it not to be the role of the librarian to decide what is „good“ for the user to read. Bókasafnið 19. árg. 1995 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.