Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1984, Page 4
4
DV. MÁNUDAGUR 25. JUNI1984.
Kvikmyndatökur
vegnaJames
Bond-
myndarínnar
hófustá
laugardaginn:
ÞYRLA BROTLENDIR A
ÍSNUM í SPRENGIGNÝ
Kvikmyndatökur vegna James
Bond-myndarinnar, A View to Kill,
hófust á Breiöamerkurlóni á laugar-
dag. Þá voru aöeins teknar myndir
af lóninu og umhverfi þess. Stefnt er
aö því að hef ja tökur á leiknum at-
riðumídag.
Eins og fram kom í DV á laugar-
dag veröur hluti af upphafsatriði
kvikmyndarinnar tekinn hérlendis.
Sýningartími atriðanna frá Islandi
veröur vart lengri en ein mínúta.
I upphafi myndarinnar er James
Bond á flótta undan sovéskum her-
mönnum. Hann sleppur naumlega í
fari bresku leyniþjónustunnar sem
dulbúiö er sem ísjaki. Áöur tekst
honum að granda herþyrlu sem brot-
lendir með mikilli sprengingu á
ísnum.
Gerviisjakinn, sem Bond bjargast
inn í, er slöngubátur klæddur
frauöplasti meö hlera ofan á. Þegar
Bond skriöur inn um hlerann kemur
hann inn í þægilegustu vistarveru og
hittir þar fagra stúlku. Þetta inniat-
riði í jakanum veröur tekiö upp inn-
anhúss í kvikmyndaveri.
Hrap þyrlunnar
Við Breiöamerkurjökul veröur
hrap þyrlunnar kvikmyndaö. Til að
ná því atriöi á filmu verða notuð litil
þyrlulíkön en einnig alvöruþyrla af
geröinni Messerschmitt Bölkow sem
væntanleg er til Hornafjarðar frá
Englandi í kvöld.
Auk staðgengils Rogers Moore,
Martins Grace, munu nokkrir
Islendingar vera framan viö mynda-
vélamar hérlendis. Islendingamir,
sjö vanir jöklamenn, munu leika
rússneska hermenn.
Staðgengillinn, Martin Grace,
hefur varamann. Ef Martin slasast,
eins og gerðist viö tökur á Octopussy,
síðustu Bond-myndinni, mun vara-
maöurinn hlaupa í skaröið.
Um fimmtíu manns vinna viö töku
myndarinnar hérlendis, þar af um
tuttugu Islendingar. Margir Hom-
firðingar tengjast myndinni óbeint.
Tólf íbúðir á Höfn eru leigðar út-
lendingunum fyrir um eitt þúsund
krónur á sólarhring aö jafnaöi.
Smiðir á Höfn fengu verkefni við aö
smíöa ýmsa hluti fyrir kvikmynda-
Þegar James Bond stendur á jökulbrúninni og óvinirnir nálgast opnast hleri á einum isjakanum á lóninu. Á myndinni má sjá hvar verið er að setja saman
gerviisjakann sem Bond flýr L DV-myndir: GVA.
■■ ; ■
Gerviísjakinn er útbúinn þannig að
frauðplast er sett utan um slöngubát,
eins og sést greinilega á myndinni.
liöið, þar á meðal flotbryggjur. Loks
má nefna björgunarsveit Slysa-
vamafélagsins á Höfn, en um tíu
félagar úr henni verða við Breiöa-
merkurlón meö sjö báta meðan á
tökum stendur.
Umboösaðili kvikmyndamannanna
hérlendis er Saga Film hf. Fram-
kvæmdastjóri Saga Film, Jón Þór
Hannesson, og Ágúst Baldursson,
starfsmaöur þess, em fyrir austan
til aöstoðar útlendingunum.
Frumsýnd nœsta vor
Framleiðandi James Bond-mynd-
arinnar er Albert Broccolli. Hann
hefur gert fjórtán Bond-myndir en
þessi er sú síöasta sem hann hefur
kvikmyndarétt á.
AðaÚeikstjóri er John Glenn en
hann kemur ekki til landsins. I hans
stað stjórnar Arthur Wooster
aðstoöarleikstjóri. Framkvæmda-
stjóri hélendis er Philip Kohler.
Veðrið mun ráöa því hve langan
tíma þarf til kvikmyndatökunnar við
Vatnajökul. Vonast er þó til að
verkinu ljúki á tiu dögum.
Kvikmyndin verður tekin upp víða
um heim, á Islandi, í Englandi,
Sviss, París, San Fransisco og víðar.
Stefnt er að því að frumsýna næsta
vor.
-KMU/-Jóna, Höfn.
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
Eggjaþjófurínn kominn heim
Þar lágum við laglega í því. Fálka-
eggjaþjófurinn á bak og burt,
kominn í bjórinn og súrkálið heima
án þess að taka út aðra refsingu en
þá að búa á Heraum í nokkrar vikur.
Það þýðir víst ekki að senda honum
reikninginn vegna sektarinnar úr
þessu, hvað þá að fara fram á að
hann skreppi hingað á Hraunið í
nokkra mánuði. Nei, við verðum að
bita í það súrá epli að eggjaþjófurinn
lék réttvísina grátt og gefur laganna
vörðum langt nef meö hjálp landa
sinna um borð í leiguskipi Hafskips.
Annars er kannski engin ástæða til
að sýta skyndilega brottför þjófsins.
Það var víst borin von að mann-
skrattinn gæti borgað hundruð
þúsunda króna í sekt og til hvers í
ósköpunum ættum við þá að halda
honum uppi í mat og húsnæði lung-
ann úr árinu. Farvel Frans, úr því
sem komið er. En hveraig ætli það sé
annars, er hægt að lýsa manninn per-
sona non grata hér á landi og þar
með á öðrum Norðurlöndum? Ætli
það sé ekki hægt fyrst honum var
ekki vísað úr landi — eða er það hægt
þó svo að hann hafi orðið fyrri tii og
hlaupist á brott? Kannski að við
gætum náð fram örlitilli hefnd með
þvi móti, en Dagfari er ekki svo
kunnugur milliríkjamálum af þessu
tagi, að hann bætti sér út i frekari
bollalegglngar um að bannfæra
eggjaþjófinn á öllum Norðurlöndum.
Ur þvi sem komið er mun skyn-
samlegast að láta þetta mál ekki
fara hátt á erlendum vettvangi. Það
er óþarfi að láta eggjaþjófa allra
landa sameinast um að hlsja að
okkur. En við eigum að bregðast við
á annað hátt þegar eggjaþjófar eru
gómaðir en hingað til hefur veriö
gert. Þegar eftir handtöku sliks
hyskis hériendis á að dreifa fréttum
af ódæði þeirra út um allar jarðir.
Senda út nöfn og myndir af þessu
pakki ásamt nákvæmum upplýs-
ingum um þau viðurlög sem iiggja
við brotum af þessu tagL Jafnframt
skal heitið háum verðlaunum
hverjum þeim er geti bent á eggja-
þjófa er hyggjast ieita fanga á
íslandi. Þetta gæti fengið einhverja
til að hugsa sig um tvisvar áður en
lagt er upp i ránsferð hingað til
lands.
Af einhverjum ástæðum fara
engar sögur af f ramgangi réttvísinn-
ar við að koma upp um hérlenda
aðstoðarmenn fálkaeggjaþjófa. Það
hefur oftar en ekki komið í ljós að
erlendir eggjaþjófar hafa haft undir
höndum svo nákvæm kort af þeim
stöðum þar sem fálkahreiður eru,
hárréttar upplýsingar um allar
akstursleiðir þar i grennd, svo
eitthvað sé nefnt, að ekki fer milli
mála að þeir hafa notið aðstoðar
héðan. Á þetta bafa einstaka menn
reynt að benda, til dæmis fuglafræð-
ingar, en það er eins og enginn vilji
taka mark á þeim visbendingum
sem fyrir liggja um aðild íslendinga
að fálkaeggjaþjófnaðinum. Vonandi
að yfirvöld fari nú að rumska því
óneitanlega eru meiri líkur á að hægt
sé að koma lögum yfir okkar eigin
landsmenn en þá þýðversku i málum
semþessum.
Ur þvi sem komið er skulum við
ekki gráta eggjaþjófinn snarráða.
Efiaust hefur manninum fundist
vistin daufleg á Heraum og þótt lítið
til koma þá hann fékk dagpeninga
sina greidda. Þeir gerðu víst varla
meira en nægja fyrir sígarettum. Því
mátti svo sem búast við að maðurinn
hygði á ódýra og þægilega heimferð
ef tækifæri byðist, þótt það hafi víst
ekki hvarflað að yfirvöldum.
Við skulum láta þetta okkur að
kenningu verða og dæma menn strax
eftir handtöku bæði í héraði og
hæstarrétti næsf þegar upp kemst
um eggjaþjófnað. Ef það er ekki
hægt þá skal vista þjófinn á Hótel
Holti með fríum aðgangi að bar og
matsal meðan dóms er beðið. Er þá
óliklegt að til brotthlaups komi.
Dagfari.