Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1989, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989.
Uflönd
Lögregla
saurgar kirkju
Desmond Tutu, erkibiskup í Suð-
ur-Afríku, hefur sakað lögregluna
um að saurga dómkirkju í Höföaborg
þegar hún réðst til atlögu gegn
mannfjölda sem þar var saman kom-
inn og beitti hann svipum. Fólkið var
að mótmæla því að blökkumenn fá
ekki að taka þátt í kosningum sem
fram fara í landinu á morgun.
Tutu, sem var settur í varöhald
stutta stund í annað skipti á einni
viku, sagðist mundu endurvígja
kirkjuna í dag. Vitni sögðu að óeirða-
lögregla heföi umkringt dómkirkj-
una og meþódistakirkju í næsta ná-
grenni til að koma í veg fyrir mót-
mælafund gegn kynþáttaaðskilnað-
arstefnu stjómvaida.
„Þetta eru sönn hryðjuverk. Of-
beldi gegn óvopnuðum borgurum er
einkenni hryðjuverka. Vopnaðar ör-
yggissveitir komu inn á bænastað
þar sem talaö er um friö og guö er
tilbeðinn,“ sagði Tutu á fundi með
fréttamönnum í gærkvöldi.
Fyrr um daginn höfðu svipusveifl-
andi lögreglumenn elt vegfarendur í
heilan klukkuíma áður en fundurinn
átti aö byrja í meþódistakirkjunni.
Fundurinn hafði verið bannaöur
undir neyðarlögunum en hæstirétt-
ur leyfði hann þó á síðustu stundu.
Andófspresturihn Allan Boesak kom
að kirkjunni en var umsvifalaust
hent upp í lögreglubíl.
Mótmælaaðgerðir fóru víða fram í
Suður-Afríku í gær, m.a. í blökku-
mannabænum Soweto utan viö Jó-
hannesarborg, og í Durban dreifði
lögreglan stúdentum með vatns-
slöngum og táragasi.
Kosið verður til þriggja deilda suð-
ur-afríska þingsins á morgun, deilda
hvítra, litaðra og íbúa af asískum
uppruna. Tvö stærstu verkalýðsfélög
landsins hafa hvatt félaga sína til að
vera heima til að mótmæla kosning-
unum, sem búist er við að Þjóðar-
flokkurinn vinni einu sinni enn.
Hópur manna kom saman fyrir
utan ráðhús Jóhannesarborgar til að
mótmæla síðasta kosningafundi F.W.
de Klerk, starfandi forseta. Lögregl-
an skipaði mannfjöldanum að hafa
sig á brott og gerði hann það á frið-
samleganhátt. Reuter
Andófsmenn mótmæla fyrir utan fund F.W. de Klerks, starfandi forseta
Suður-Afríku, í Jóhannesarborg. Símamynd Reuter
BILAHOLLIN
FUNAHÖFÐA 1 — SÍMI 672277
M. Benz 190 E ’84, grár, bein-
skiptur, ABS, centrall. V.
1.050.000. Skipti ath.
BMW 316 '88, rauður, sóllúga,
centrall., ek. 27.000 km. V.
950.000. Skipti ath.
Toyota Corolla GTI ’88, svartur,
2]a dyra, ek. 48.000 km. V.
960.000. Skipti ath.
M. Benz 280 SE '83, grár, ek.
111.000, centrall., ABS, sjálfskipt-
ur, sóllúga, skipti ATH. V.
1.350.000.
Opiðfrá kl. 10-19
alla daga nema
sunnudaga.
Á mjóu slitlagi (einbreiöu)
þurfa báöir bílstjórarnir
aö hafa hægri hjól fyrir
utan slitlagið við
a;. mætingar.
*.:. cí’
Tala látinna orðin 139
Ungur Kúbverji leitar að líkum i braki flugvélarinnar sem fórst i Havana í
fyrrakvöld. Símamynd Reuter
Tala látinna í versta flugslysi Kúbu
er nú komin upp í að minnsta kösti
139. Yfirvöld skýrðu frá því í gær að
14 íbúar þorps í nágrenni flugvallar-
ins við Havana hefðu farist þegar
farþegaþota af gerðinni Ilyushin-62
skall niður á heimili þeirra.
Flugvéhn hrapaði aðeins nokkrum
andartökum eftir flugtak á sunnu-
dagskvöld. Um borð voru 126 manns,
þar af 113 ítalskir feröamenn á leið
heim úr fríi. Aðeins einn þeirra
komst lífs af. Hann liggur nú lífs-
hættulega slasaður á sjúkrahúsi í
Havana.
Aðeins hefur tekist að bera kennsl
á tólf ítölsku ferðamannanna en yfir-
völd segja að ítalskir sérfræðingar
séu á leið til Kúbu til aðstoðar við
að bera kennsl á líkin.
Vitni segja að flugvélin, sem var á
leiö til Malpensa, nærri Mílanó, virð-
ist hafa rekist á grindverk þegar hún
var að reyna að hefja sig til flugs.
Eldsneytisgeymar hennar sprungu
og eldtungur risu upp í loftiö. Alls
eyðilögðust 33 heimili í þorpinu þar
sem vélin kom niður. Auk þorps-
búanna fjórtán, sem létust, stórslös-
uðust 26 og þriggja er saknað.
Kúbanska stjórnin sendi flugvél
eftir ættingjum hinna látnu og fer
hún frá Ítalíu í dag.
Björgunarsveitir í Brasilíu halda í
dag áfram leit sinni að farþegaþotu
með 54 farþega um borð sem týndist
yfir Amasónsvæðinu á sunnudag.
Reuter
Hagen fúll og reiður
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Formaður Framfaraflokksins,
Carl I. Hagen, fær ekki sérlega háar
einkunnir fyrir frammistöðu sína í
norska sjónvarpinu í gær. Lögreglan
í Osló mætti liösterk á staðinn ef til
mótmæla skyldi koma þegar Hagen
átti að sitja fyrir svörum fyrir flokk
sinn.
Venjulega er Hagen sá stjómmála-
maður sem stendur sig langbest í
fjölmiðlum, ekki síst í sjónvarpi. En
í gær var hann bæði fúll og reiður.
Hann ásakaöi stjórnendur þáttarins
fyrir hlutdrægni og vændi annan
þeirra um heimsku. Hagen álítur að
ríkissjónvarpið sé einokunarfjölmið-
ill Verkamannaflokksins. Hann
sagði að alhr þeir sem vildu kasta
skít að Framfaraflokknum væru vel-
komnir í verkamannasjónvarpið en
sjálfur fengi hann aldrei aö koma
fram sínum málefnum.
Carl I. Hagen gerir sér grein fyrir
því að hin ótrúlega þróun hefur
stöðvast. Flokkur hans er hættur að
stækka. Og fram að kosningum ætlar
Hagen að einbeita sér að því að halda
þeim stuðningi sem hann nú hefur,
trúlega á mihi 15 og 16 prósent. En
hann segist líta svo á að fái hann
stuöning 10 prósent kjósenda eða
meira sé það stórsigur fyrir flokkinn.
Nú, þegar líða tekur á kosning-
abaráttuna, eru þyngri og alvarlegri
málefni ofarlega á baugi. í gær var
Carl I. Hagen meðal annars yfir-
heyrður um nýtt skipulag lífeyris-
sjóða og um skólamál. Uppáhalds-
málefni Hagens, skattalækkanir,
einkasjúkrahús og sníkjudýrin á
þjóöfélaginu, voru lítið rædd.
í upphafi kosningabaráttunnar,
þegar Carl I. Hagen komst hæst í
skoðanakönnunum, snerist umræð-
an mest um einstök og einfold atriði,
svo sem flóttamenn og lata unglinga
og hvort einstæöar mæöur nenntu
að vinna eða ekki. Vinsældir Hagens
jukust til mikiha muna á þessu tíma-
bili en nú virðist sem áhuginn fyrir
þessum atriðum hafi dvínað.
Kosningafræðingar telja að Carl I.
Hagen vanti lausnir á þeim málum
sem kjósendur eru mest uppteknir
af, umhverfisvernd, atvinnuleysi og
efnahagsvandanum.
Norsku þingkosningarnar 1985
Hundraöshlutfall og þingsæti
m s
Hundraðshlutfall
■ Sós. vinstrifl. 5,5%
M Verkamannafl. 40.8%
□ Vinstri 3,1%
E3 Miöjufl. 6,6%
M Kristil. þjóöarfl. 8,3%
□ Hægri 30,4%
g Framfarafl. 3,7%
Þingsæti
DVJRJ
Fylgi norsku þingflokkanna í skoðanakönnunum
í sumar
35%,
Sós. vinstrlfl. Vlnstrl
Verkamannafl.
Krlstil. þjó&arfl. Framfarafl.
Mi&jufl. Hwgrl DVJRJ
Þetta kökurit sýnir skipan á norska þinginu eftir kosningarnar 1985.
Framfaraflokkurinn er nú hættur að stækka og fram að kosningum ætlar
formaður hans, Carl I. Hagen, að einbeita sér að því aö halda þeim stuðn-
ingi sem hann nú hefur.