Þjóðviljinn - 24.12.1948, Síða 30

Þjóðviljinn - 24.12.1948, Síða 30
30 ÞJÓÐVILJINN Jólin 1948 versti og fom í skapi. Er allt eins víst að ein lífseig- asta fylgja íslenzkrar einangrunar, gestrisnin, sé honrnn svo runnin í blóð að manninum hafi vart ver- ið sjálfrátt um þessi ótímabæru veizluhöld, fremur en hitt að hann hafi beinlínis viljað virða að vsttugi þá augljósu bendingu sem skynsamir’ menn sáu fel- ast í fyrirkomulagi hinnar margauglýstu vígslu- hátíðar að Bessastöðum. Og þó er ekki á karlinn ætlandi í þessu.efná né öðrum. Þess er skemmst að minnast að hann hélt uppi þrálátum og hlálegum áróðri fyrir því að nota fagrar pg traustar bergteg- undir íslenzkar til húsagerðar og skrauts hér á landi á meðan rétt stjómarvöld vom örmurn kafin við það á myrkustu hættutímum styrjaldaráranna að safna í híbýli íslenzkra fyrirmanna husgögnum úr dánar- búum útlends andatrúarfólks. Á sama hátt vakti bóndi þessi á sér leiðinlega at'hygli með því að bregða búi til að gerast í verki málsvari einkaframtaks og frjálsrar verzlunar, löngu eftir að ýmsir helztu kaupsýslumenn höfuðstaðarins höfðu til hlítar lært allt annað F í allt öðru stafrófi viðskiptalífsins. Nú víkur sögunni enn á Reykjanes. Laugardaginn 30. október var ég staddur suður á Vatnsleysuströnd á heimili einyrkja bónda. Þegar ég hafði lokið erindi mínu undir klukkan tíu um kvöldið fannst mér kom- inn tími til heimferðar fyrir mig, enda skynsamlegur háttatími í sveit. Veiti ég því þá athygli að bóndinn sem verið hafði að gegningum úti við fram að þessu er kominn í betri fötin, kastar kveðju á fólkið og sj.ingur sálmabók í vasann um leið og hann snarast út í náttmyrkrið. Frétti ég eftir hvert næturferð bóndans væri heitið með slíkt veganesti og var tjáð að þá um kvöldið ætti að vera söngæfing hjá kirkju- kór' sóknarinnar. Virtist mér þetta fagur vottur um fjörugt og lifandi safnaðarlíf að hálfsjötugur bóndi sem eyddi ævi sinni á sjó fyrir daga vökulaganna ákyldi leggja þetta við 16 stunda erfiðan og erdlsam- an vinnúdag. (Söngur í sveitakirkju er ekki launað . starf). Óskaði ég sóknarpresti, sem vígðist ungur og óreyndur til þessara þinga, til hamingju með þennan góða árangurr;í frjálsu kirkjulegu starfi. Til þess aðiífirra sjálfan sig hugsanlegum áburði um trúarlegt ofstæki vill höfundur þessarar greinar taka fram að hann hefur ekki verið félagsmaður í þeim lögskipuðu samtökum sem kallast Þjóðkirkja íslands síðan hann varð fullveðja, né í nokkru öðru kirkju- eða trúarfélagi. Einnig skal þess getið, að hann hefur jafnan aðhyllzt fremur hina þokkafullu . sumargrænu mildi íslenzkra torfbæja en þá snoðnu sandfáðu tign sem auðkennir fornegypzk steinhús, og telur vandamál íslenzkra mannabústaða tímábærára verkefni félagsmála vorra heldur en ráðgátúr út- lendra konungagrafa. Hitt skal ekki síður játað að hann hefur frá blautu bamsbeini borið djúpa yirð- ingu fyrir þeirri trú alþýðu sem lýsir sér í óteljandi sjálfboðnum þögulum kærleiksverkum. " "7 Þá er að segja frá biskupi. Síðustu viku október- mánaðar varð heyrinkunnugt í Reykjavík og viðar að eitthvað mikið og óvenjulegt stæði til á' Bessa- stöðum handan Skerjaf jarðar, enda hélt forseti mik- inn blaðamannafund hjá sér hinn 28. okt. með til- heyrandi veizlu (þar sem gestum var borið smurt brauð og viskí). Var blaðamönnum afhent til birt- ingar fjölritað plagg um sumt varðandi kirkjuna og breytingar á henni í tíð núverandi valdamanna, og mun öll þessi kurteisi hafa átt að tryggja frpmt umtal blaðanna um fyrirtækið, og góðviljaða túlkun á því sem á eftir færi. En al- menningur vissi samk\*æmt auglýsingum, að sér- stök vígsluhátíð átti að fara fram'á Bessastaða- kirkju vegna þess að lokið var í bili hinum umdeildu, undarlegu og kostnaðarsömu breytingum á húsinu. Hefur biskupi án efa þótt mikið við liggja að athöfn þessi yrði hin eftirminnilegasta, og má telja víst að hann hafði notið fulltingis staðarhaldarans i þeirri viðleitni, enda völdu þeir til vígslunnar einmitt sama daginn og Marteinn Lúther hóf siðabótiria, Venjulega mun látið nægja að prófastar eða sókn- arprestar fremji þá athöfn sem er talin viðeigandi í gömlum kirkjum að Iokinni meiriháttar viðgerð, en annars mun ákvörðun um slíkt vera á valdi safnaðar- stjórnar. Bessastaðakdrkja er éngin undantekning í þessu efni. Hún hefur frá fornu fari verið bænda- kirkja, og þótt hún yrði ríkiseign árið 1941 þegar Sigurður Jónasson gaf ríkinu jörðina fyrir sálu sinni, varð engin breyting á aðstöðu safnaðarins. Kirkjan er eftir sem áður sóknarkirkja og graftarkirkja Bessastaðasóknar, og lýtur stjórn safnaðarins um allar kirkjulegar athafnir, þótt húsið lúti eins og önnur forsjá og umhirðu staðarhaldarans, enda er honum heimilt að krefja sóknarmenn um venjuleg kirkjugjöld. Menn skyldu því ætla að söfnuðurinn hefði fyrstur fengið að fagna guðshúsi sínu endur- heimtu eftir hinar seinlegu breytingar og staðið fyrir hinum kirkjulega þætti hátíðahaldanna, en sú varð ekki raunin. Þrír æðstu menn íslands: Biskup Þjóðkirkjunnar, forseti ríkisins og forsætisráðherra höfðu ákveðið

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.