Þjóðviljinn - 24.12.1948, Page 41

Þjóðviljinn - 24.12.1948, Page 41
Jólin 1943 ÞJÖ þá voru húsln með grænu þakí sum voru með gráum strompi og kátum vindhana á burstinni og stúlkurnar áttu rauðar svuntur á kvöldin lögðu vegfarendur piali sína á vegbrún eða stein og horfðu hlutlaust á sólarlagið næturnar voru hlýjar og rósamaí eins og góðlyndar ömmur og yrðu dagarnir hver öðrum líkijr komu uppstroknir sunnudagar aðvífandi í bláum sparifötum. 3 Eg lét á hafið: grænar og ögrandj birtust þær hinar framandi strend.ur með blóm í hverjum glugga luku hinar ókunnu borgir fyrirheitsins upp glæstum hliðum sínum hversu vín borganna voru rauð og dætur borganna höfðu myrkur í hári og augu af logandi hrafntinnu en meðan þær syndguðu á strætunum og vínið flaut af skálum elskaði ég þig elskaði ég ykkur konurnar með rauðar svuntur konurnar með augun blá. 4 Hið bláa haf var alltaf grátt það er lygi þetta með borgirnar og húsin eru ekki lengur með grænu þaki það glamrar í sál heimsins: málmur. 5 í faxi hinnar myrku nætur leita ég hvíldar friðleysi mínu ÐVILJINN 41 ég sem elska þig og elska þig ekki ég sem hafði ætlað að safna brenni og tendra þér rauðan eld en nú er garðstígurinn þögull og runnarnir ellibleikir * litlaust grasið bæra kaldir vindar að ströndinni fellur svart brim. t \i. Ég dvaldi náttlangt á ströndinni Ég dvaldi náttlangt á ströndinni !. þar sem menn með horn hlupu fram t og aftur og lélcu að rauðum málmi en konur með spúnar klaufir vögguðu lendum sínum í sterklegum dansi á meðan mánaglottið féll á brjóst þeirra.’ & $ Ég stóð álengdar og nóttin leið. Ég virti fyrir mér leik þeirra hyrndu t og ég virti fyrir mér dans kvennanna sem tróðu á hvítum blómum sandsins. Ég stóð álengdar og strauk um enni mitt ?f strauk um enni mitt og aðgætti hvort mér hefðu ekki vaxið horn. '■ > Loks þegar morgunninn birtist í austrinu eins og rauðbirkinn fermingarstrákur sá ég livar drottinn almáttugur kom vestan flóann ríðandi á brokkgengum heildsala og lamdi fótastokkinn. ,•? • if Þá tók ég ofan 1 því ég er guðhræddur maður. »>• **"» m ' rtyi » i '■ TW<i •» 1W, J.. * * * —

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.