Þjóðviljinn - 24.12.1948, Side 42

Þjóðviljinn - 24.12.1948, Side 42
42 i— Þ JÓÐ VILJINN Jólin 1948 Bragi Sveinsson: ' r 'jf ' Sundriðið yfir Jökulsá á Fjöllum Jökulsá á Fjöllum hefur löngum verið talin óreið á milli fjalls og fjöru, enda munu fáir hafa lagt sig í faðm- lög hennar að nauðsynjalausu. Þó hafa einstaka afburða hestar fleytt eigendum sínum klakklaust yfir hana. Þannig er þess getið, að Magnús nokkur Gislason, skagfirzkur meraprangari, hafi sund- riðið hana rétt neðan við ferjustaðinri hjá Ferjubakka í öxarfirði, þegar Öxfirðingar ætluðu að taka hann hönd- um fyrir svik, sem hann hafði beitt þá. En kunnust er þó reið Hannesar Lárusar Þorsteins- sonar, prests á Víðihóli, yfir Jökulsá um hávetur laust fyrir jól 1889. Skal sagt frá þessu ferðalagi hans nokkuð nánar- Hannes var prestur á Hólsfjöllum 1886—’96 og átti heima á Víðihóli lengst af og mun hafa verið þar í hús- mennsku, því að hann kvæntist ekki og var aldrei við búskap. Hann var fjölhæfur atgervismaður, kjarkmikill og ófeilinn, en drykkfeldur í meira lagi. Þá bjó á Víðihóli Jón Árnason frá Staðarlóni í öxar- firði. Sonur hans hét Eiríkur. Hann var sullaveikur og var komið að Möðrudal til lækninga, en hann lézt þar eftir stutta dvöl 1. nóv. 1889 og var jarðsettur í Möðru- dal sunnudaginn 10. nóv. af Hannesi presti, því að Möðru- dalur lá þá undir Víðihólsþing. Um kvöldið reið Hannes prestur áleiðis heim til sín og með honum Árni bróðir Eiriks og ennfremur Kristján Kristjánsson mágur þeirra bræðra, sá er síðar fluttist til Ameríku. Þeir urðu nokkuð hreifir af víni og prestur töluvert drukkinn. Þegar þeir koma að Grímsstöðum á Fjöllum um Ihiðaftahleyti, varð þeihi sundurorða, því að þeir mágar vildu ríða heim að Grímsstöðum, en prestur vildi halda áfram heim. Reið séra Hannes þar frá þeim ofan við Grímsstaði vestur yfir sandöldurnar vestan við túnið á Gömlu Grímsst. Viðihóll er í stefnu frá Grímsstöðum rétt anstan við hánorður, en prestur reið alltaf vestar og vestar þvert af leið, og sást síðast til hans, að mann pg hest bar við himin í skini kvöldsólarinnar á sand- öldunum austan við Jökulsá. Þegar Kristján Kristjánsson kom heim að Grímsstöð- um, var hann spurður, hver hefð; riðið frá þeim. Sagði hann, að það hefði verið séra Hannes og bætti við, að hann mundi skila sér, Eftir það fóru þeir mágar leiðar sinnar, og var ekki meiri gaumur gefinn að ferð þeirra félaga. En það er frá presti að segja, að hann reið leiðar sinnar, þar til hann kom að Jökulsá. Hélt hann þá,‘að hann væri kominn að svo nefndri Hólsselsvatnsleysu, sem vera átti á leið hans að Víðihálsi. Bar hvorttveggja til, að sjón prests hefur ekki verið í sem beztu lagi og anhað hitt, að undir sól hefur verið að sjá. Reið prestur þvi umsvifalaust á kaf. Má nærri geta, hvemig honum hefur orðið við og hve notalegt baðið hefur verið. Á þessum slóðum rennur árin í stokk milli malaipia, en fellur þó meira að vesturlandinu, og hefur það váfa- laust orðið presti til bjargar. Enginn er til frásagnar um þessa sundreið, því a5 fáorður var prestur jafnan um hana, en hitt er víst að þar hefur verið að ræða um baráttu upp á líf og dauða. Hrossið, sem prestur reið, var hestur afburða traustur og vanur svaðilförum prests, og hefur hann .því verið betur fallinn í volkið en ella. Bárust þeir prestur með straumnum niður eftir, en náðu loks landi að vestan- verðu í svo kölluðum Kollhólalindum. Kalt hefur vérið fyrir prest að koma upp úr ísköldu jökulvatninu í héið- ríkju og hörkufrosti með Jökulsá að baki, en MýVatns- örævi endalaus fram undan. Eins og áður er sagt, var prcsttir drukkinn, þegar hann reið frá félögum sínum, en vafalaust hcfur runhið af honum í baðinu, svo að hann hefur hlotið að átta sig, á meðan hann var í ánnt Nokkru neðar með ánni er sæluhús, sem reist var 1884. Þangað leitaði nú prestur og iét þar fyrirberast. Kofinn var í þann tima í góðu standi, en ekki var hægt að tendra þar eld. Ferjur tvær voru þá við Jökulsá, önnur að austan, en hin að vestan.. En hvernig sem á því stóð, þá tók prestur ekki ferjuna, sem hans megin árinnar var, heldur hirðist hann í kofanum fram á miðvikudag. Þá loks rak hanr. hestinn í ána og tók ferjuna, komst klakklaust yfir og reið í skyndi heim, enda hafði hann þá verið matarlaus frá því á sunnUdag og ekki líklegt, að fötin hafi verið þomuð á honum. Skömmu eftir að prestur var farinn úr sæluhúsiiiú, kom þar að ánni Jóhannes Jónatansson póstur. Saknaði hann þar vinar í stað, er hann sá, að ferjan var farin og slóð eftir hest lá út í ána, Lét hann nú fyrirberast í

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.