Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 23 Iþróttir íþróttir Sunderland missir Quinn í margar vikur Sunderland varð fyrir miklu áfalli um helgina þegar n-írski landsliösmaðurinn Niall Quinn meiddist á hné í leik gegn Coventry. Peter Reid, fram- kvæmdastjóri liðsins, sagði að svo gæti farið að Quinn yrði frá í margar vikur. Graham vill Brolin aftur til Leeds Utd George Graham, fram- kvæmdastjóri Leeds, hefur sett sig í samband viö umboðsmann sænska landsliðsmannsins Tom- asar Brolin. Graham ætlar að freista þess að fá Brolin aftur til Leeds. Brolin er sem stendur á þriggja mánaða samningi hjá svissneka liðinu FC Zíirich. Bierhoff krefst 160 milljóna á ári Blackbum, sem veriö hefur á höttunum á eftir Oliver Bierhoff, er mjög undrandi á launakröfum kappans. Heimildir herma að Blackburn og Udinese séu búin að semja um 500 milljóna króna kaupverð. Málið strandar á launakröfum Bierhoffs sem vill fá 160 milljónir í árslaun og halda eftir 100 milljónum eftir skatt. Blackbum var á sínum tíma tilbúið að greiða Júrgen Klinsmann 144 milljónir í árs- laun. Scholes óánægður Paul Scholes er ekki ánægður þessa dagana í herbúðum Manchester United. Hann hefur í haust ýmist veriö á bekknum hjá liðinu eða ekki einu sinni kom- ist á hann. Nú er svo komið að hann vill fara frá félaginu. „Það kemur ekki til mála. Hann er ný- búinn að skrifa undir fimm ára samning við okkur,“ sagði Alex Ferguson. Andrei Kanchelskis er ekki til sölu Joy Royle, framkvæmdastjóri Everton, sagöi um helgina í blaðaviðtali að Rússinn Andrei Kanchelskis væri ekki til sölu. Fiorentina á Ítalíu hefur boðið um 500 milljónir í hann. „Þótt tilboö upp á 800 milljónir kæmi í Rússann þá myndi ég ekki falla fyrir því,“ sagði Royle. Lið með Simpson undir smásjánni Pascal Simpson hjá AIK í Sví- þjóð, sem mætir KR í Evrópu- keppninni í vikunni, er undir smásjánni hjá nokkrum þekkt- um félagsliðum. Atletico Madrid, AC Milan og Tottenham hafa að undanfömu verið með útsendara til að fylgjast með kappanum. Mönnum sem sáu hann leika gegn KR í Reykjavík fannst lítið til þessa leikmanns koma. Reyndar er allt útliti fyrir að Simpson leiki ekki gegn KR vegna veikinda, að því er sænska sjónvarpið sagði i gærkvöld. Souness kaupir þrjá erlenda leikmenn Greame Souness fram- kvæmdastjóri hjá Southampton gerir allt til þess að lið hans megi standa sig í úrvalsdeildinni í vetur. Hann festi um helgina kaup á tveimur erlendum leik- mönnum. Paulo Alevs frá Sport- ing i Lissabon og ísraelska landsliösmanninum Eyal Berko- vitz. Souness ætlar ekki að láta þar við sitja því hann hefur ver- ið í samningaviðræðum við tékkneska landsliðsmanninn Pa- vel Kuka sem leilcur með Kais- erslautern í Þýskalandi. Kuka hefur mikinn áhuga á að leika meö liði í ensku úrvalsdeildinni. -JKS Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik: Fer eins og ég var búinn að spá - útilokað að tippa á verðandi meistara í vetur Ef marka má úrslit leikjanna í 1. deildinni í handknattleik á sunnu- daginn mega handboltaunnendur eiga von á mjög mjög jöfnu og skemmtilegu íslandsmóti. Mörg óvænt úrslit litu dagsins ljós. íslandsmeistarar Vals gerðu jafntefli á heimavelli gegn Selfoss, meistarakandítamir í Aftureldingu töpuðu fyrir Stjörnunni, bikar- meistarar KA biðu lægri hlut fyrir FHí Hafnarfirði og Haukar náðu aðeins jöfnu gegn HK í Kópavogi. Landsliðsþjálfarinn Þorbjörn Jensson hefur eins og gefur að skilja fylgst grannt með liðunum og leikjum þeirra í upphafi íslands- mótsins. Hvernig leggst handbolta- veturinn í hann? Liðin geta tekið stig af hvert öðru „Þetta fer nú bara eins og ég veu1 búinn að spá. Ég reiknaði með því að allir gætu tekið stig af öllum og það hefur orðið reyndin. Það urðu mörg óvænt úrslit um helgina og þannig held ég að þetta eigi eftir að verða í vetur. Óvæntustu tíðindin að mínu mati voru tap KA fyrir FH og að Afturelding skyldi liggja á heimavelli fyrir Stjömunni. Getur þú tippað á líklega meistara? „Ef ég ætti að tippa á verðandi meistara gæti ég það ekki. Ég yrði að setja öll liðin í pott og draga síð- an eitt nafn. Ég get í fljótu bragði ekki séð neitt lakara lið en annað. Menn voru að ímynda sér að ÍR-ing- ar væru kannski með eitt slakasta liðið en þeir unnu góðan sigur á Stjörnunni í 1. umferðinni.” Fullt af ungum og efnilegum strákum „Það er fullt af ungum og efnileg- um strákum að koma upp og nú er virkilega farið að reyna á þá í liðun- um. Ég er alls ekki tilbúinn að kyngja því að handboltin verði eitt- hvað lélegri þó svo að margir hafi yfirgefið deildina og haldiö út i at- vinnumennsku. Maður er búinn að fylgjast með þessu í mörg ár og það er einhvern veginn þannig að það kemur alltaf maður í manns stað.” Ekki góður handbolti hjá Aftureldingu og Stjörnunni - Hvernig hafa gæðin á hand- boltanum verið í þeim leikjum sem þú hefur séð? „Ég sá til dæmis fyrri hálfleikinn í leik Aftureldingar og Stjömunnar og mér fannst það ekki góður hand- bolti. Ég sá viðureign Hauka og KA. Það var ekkert sérstakur leikur en spennan var mikil og það er nú kannski það sem skiptir öllu máli líka. Þá sá ég seinni hálfleikinn hjá Val og Selfossi. Það var hörkuleikur og mikil barátta á báða bóga, þokka- lega góður sóknarleikur en varnar- leikurinn lélegur.” „Ég held að ég geti sagt að það kemur mér á óvart þó hvað byrjun- in á mótinu er góð og lofar góðu upp á að halda spennu í þessu í vetur,” sagði Þorbjörn að lokum. -GH Úrskurður Dómstóls ÍSÍ í máli Finns B. Jóhannssonar: Var dæmdur til lágmarks- refsingar B. Jóhannsson var í gær dæmdur i tveggja ára frá þátttöku í íþróttamótum á vegum sérsambanda innan íþróttasambands íslands. tók þátt í bikarkeppninni i frjálsum íþróttum í mánuði og keppti þar fyrir Ármann. Er Finnur keppni síðari keppnisdaginn var hann umsvifa- tekinn í lyfjapróf. Niðurstöður þess prófs leiddu síðan ljós að hann hafði neytt amfetamíns og kókaíns. Bannið tek- gildi frá og með 9. september og rennur því úr gildi sama dag 1998. Finnur viðurkenndi brot sitt. Samkvæmt heimildum DV hafði Finnur fengið frí frá keppni síðari keppnisdag bikarkeppninnar. Eftir að hart hafði verið gengið að Finni að keppa á síðari keppnisdegi lét hann til leiðast og var eftir þátttöku í mótinu tekinn í lyfjapróf. í fréttatilkynningu frá íþróttasambandi íslands, sem send var fjöl- miðlum í gær, segir: „Dómstóllinn taldi brotið alvarlegt, þar sem um var að ræða ólögleg fíkniefhi. Vegna þess að sýnt þótti að þeirra hefði ekki verið neytt í þeim tilgangi að ná betri árangri í íþróttum, var þó ákveðið að beita lágmarksrefsingu, sem er tveggja ára keppnisbann." f upphafi sömu fréttatilkynningar segir: „Dómstóll sem fram- kvæmdastjórn ÍSÍ skipaði vegna meints brots á lögum ÍSÍ um lyfja- misnotkun íþróttamanna hefur i dag dæmt frjálsíþróttamanninn Finn B. Jóhannsson úr Ármanni, sem kunnari er sem handknattleiksmað- ur með 1. deildar liði UMF Selfoss, í tveggja ára keppnisbann vegna neyslu ólöglegra lyf]a.“ - SK ^ Þýski handboltinn: Islendingarnir fóru sér hægt íslensku handknattleiksmennim- ir sem leika i þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik höfðu frekar hægt um sig í leikjum helgarinnar. Patrekur Jóhannesson skoraði eitt mark þegar lið hans, Essen, vann sigur á Niederwúrsbach, 27-24. Hvít-Rússinn Aleksandr Tutsckin fór fyrir leikmönnum Essen og skoraði 9 mörk. Essen er þvi á toppi deildarinnar með 6 stig eftir þrjá leiki. Héðinn Gilsson komst ekki á blað fyrir Fredenbeck þegar liðið steinlá á útivelli fyrir Hameln, 33-21. Þýöir ekki að örvænta strax Róbert Sighvatsson skoraði eitt mark og fiskaði fjögur vítaköst þeg- ar Schutterwald tapaði á heimavelli fyrir Minden, 29-32. „Við höfðum lengst af forystu í leiknum en undir lokin misstum við á skömmum tíma þrjá menn út af og leikmenn Minden sigu fram úr. Við höfum þar með tapað báðum leikj- um okkar í deildinni en það þýðir ekkert að örvænta strax,” sagði Ró- bert í samtali við DV. Kristján Arason sá lærisveina sína í Wallau Massenheim tapa á útivelli fyrir Nettelstedt, 30-25. Meistararnir í Kiel töpuðu óvænt fyrir Rheinhausen, 27-26, í hörku- leik. Með Kiel leika til að mynda sænsku landsliðsmennirnir Staffan Olsson og Magnus Wislander og er liðinu spáð einu af toppsætunum ásamt Magdeburg og Wallau Massenheim. Stórsigrar íslendingaliöanna í 2. deildinni í 2. deildinni fögnuðu Viggó Sig- urðsson, Ólafur Stefánsson og Dmitri Filippov í Wuppertal örugg- um sigri á Herdecke, 23-15, og Jason Ólafsson og samherjar hans í Lauterhausen kjöldrógu lið Frisen- heim og sigruðu með 17 marka mun, 28-11. -GH Sleppir Gullit Petrescu? ISLAND - RUMENIA 9. október kl. 19:00 Ronaldo hefur byrjað mjög vel í spænsku knattspyrnunni. Spænska knattspyrnan: Ronaldo stend- ur sig vel Brasilíska undrabarnið Ronaldo heldur áfram að gera góði hluti með Börsungum í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Á sunnudaginn hélt Ron- aldo upp á 20 ára afmæli sitt með því að skora tvö mörk í 3-2 sigri Barcelona á Real Sociedad. Börsungar eru í öðru sæti deildarinnar með 10 stig eins og Real Betis sem hefur betra markahlut- fall. Betis, sem hefur komið mjög á óvart f fyrstu leikjunum, lagði Celta, 2-0. Stórlið Real Madrid átti í hinu mesta basli með lið Rayo Vallecano á heima- velli sínum en tókst að knýja fram 1-0 sigur með marki Raul Gonzalez. Meistarar Atletico Madrid vöknuðu til lífsins eftir tvo tapleiki í röð og unnu góðan sigur á Logrones, 3-0. -GH Lárus Orri Sigurðsson heldur áfram að spila vel með Stoke. Markmiðið að kom- ast í úrvalsdeildina - segir Lárus Orri Sigurðsson hjá Stoke City Lárus Orri Sigurðsson fékk mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína i leiknum með Stoke City gegn Hudders- field í ensku 1. deildinni á sunnudag- inn var. Lárus Orri þótti komast vel frá leiknum og var hrósað í bresku pressunni í gær. „Það var gott að vinna þennan leik eftir að hafa verið 0-2 undir. Við sýnd- um vissan styrk að vinna þennan mun upp og gott betur. Með sigrinum end- urheimtum við fjórða sætið þar sem við höfum verið lengstum það sem af er mótinu. Þetta er allt koma eftir tvo tapleiki þar á undan. Auðvitað er það markmið liðsins að komast upp í úr- valsdeildina. Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu frá síðasta tímabili og það tekur alltaf einhvern tlma að stilla saman strengina," sagði Lárus Orri Sigurðsson í samtali við DV í gær. City aö reyna aö fá Macari Lárus Orri var inntur eftir fréttum i Englandi í gær þar sem fram kom að Manchester City lýsti yfir áhuga á að Lou Macari settist í framkvæmdastól félagsins. Macari er sem kunnugt er við stjómvölinn hjá Stoke. „Ég sá þetta í blöðum en hvort ein- hver fótur er fyrir þessari frétt hef ég ekki hugmynd um. Það hafa mörg nöfn verið nefnd í þessu sambandi," sagði Lárus Crri. Hann kemur til íslands eftir næstu helgi en landsliðshópurinn kemur all- ur saman hér á landi áður en haldið verður utan í leikinn gegn Litháen í riðlakeppni heimsmeistaramótsins en hann verður háður í Vilnius þann 5. október. -JKS Guömundur dæmir úrslitaleikinn Það kemur hlut Guðmundar Stefáns Mariassonar að dæma úrslitaleik Akumesinga og KR-inga um íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla í knattspymu á Akranesi á sunnudaginn. Guðmundur, sem dæmir fyrir Leikni, Reykjavík, er FIFA dómari og er með reyndari og betri dómurum í 1. deildinni. Aðstoðardómarar í leiknum koma af Suðurnesjum en það em FIFA aðstoðardómarinn Kári Gunnlaugsson og Sigurður Friðjónsson en þeir dæma báðir fyrir Keflavík. -GH ■ g%.■ BHk fl t'ýí wL*. ■ Sr lalwpP Lið Fram varð sigurvegari í 2. deild karla á Islandsmótinu í knattspyrnu. Hér er allur leikmannahópurinn kominn saman ásamt stjórn og Ásgeiri Elíassyni þjálfara eftir sigurleikinn gegn FH í iokaumferðinni en eftir leikinn féngu Framarar sigurlaunin fyrir sigurinn í deildinni. Ágætar aukagreiðslur hjá Ágústi og Birki Þrenna Þór- arins og staða íslands góð DV, Akranesi: Þrjú mörk Keflvíkingsins Þórarins Kristjánssonar tryggðu islandi 3-0 sigur á Lúxemborg á Akranesi í gær og nán- ast öruggt sæti í úrslitum Evrópu- keppni drengjalandsliða í knattspyrnu. Færeyingar eru einnig í riðlinum og þeir mæta Lúxemborg á morgun en ís- land og Færeyjar leika síðan á fostudag. Báðir leikirnir verða í Borgarnesi. „Aðalatriðið hjá okkur Vcir að halda hreinu og þá þarf aldrei mörg mörk til að bera sigur úr býtum. Þeir voru langt frá því að ógna okkur og við vorum sterkari aðilinn allan tímann. Við van- metum ekki Færeyinga og munum spila á fullu á móti þeim og ætlum okkur að vinna riðilinn með fullu húsi stiga,“ sagði Gústaf Björnsson, þjálfari drengjaliðsins, við DV eftir leikinn. Sigurinn hefði allt eins getað orðið stærri en Þórarinn, sem var besti mað- ur íslands, skoraði mörkin á lokamín- útu fyrri hálfleiks, 55. og 66. mínútu. Þeir Kristján Sigurðsson og Indriði Sig- urðsson léku einnig vel en hjá Lúxem- borg var markvörðurinn Scen Rein- hardt bestur. -DVÓ Takist Ágústi Gylfasyni, Birki Kristinssyni og félögum í Brann að vinna þrjá síðustu leiki sína í norsku úrvalsdeildinni og tryggja sér með því annað sætið fá þeir ágætar aukagreiðslur frá félaginu. Hver leikmaður hefur þegar tryggt sér um 340 þúsund krónur í auka- greiðslur, fyrir utan fost laun, og það eru um 260 þúsund krónur í pottin- DV, Suðurnesjum: Guðjón Skúlason var kosinn besti leikmaður Reykjanesmótsins í körfuknattleik sem lauk um liðna helgi. um enn þá. Frá þessu var skýrt í blaðinu Bergens Avis um helgina og sagt að tímakaup þeirra í þremur síðustu umferðunum gæti orðið tæpar 60 þúsund krónur. Þá fá leikmennirnir góðar auka- greiðslur ef þeir slá Cercle Brugge út úr Evrópukeppninni en á því eru góðir möguleikar þar sem Brann tap- aði útileiknum aðeins 3-2. í lið mótsins voru þessir leikmenn valdir: Guðjón Skúlason, Keflavik, Friðrik Ragnarsson, Njarðvík, Albert Óskarsson, Keflavík, Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavik og Shawn Smith, Haukum. -SK/-ÆMK Arnór með verðlaunamark? Mark sem Arnór Guðjohnsen skoraði fyrir Örebro gegn Oddevold í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum er eitt þriggja marka sem sænska ríkissjónvarpiö telur þau bestu í deildinni í haust. í íþróttaþætti í gærkvöldi var markið sýnt ásamt hinum tveimur og áhorfendur beðnir um að hringja inn og velja eitt þeirra sem besta mark haustsins. Niðurstaðan verður birt eftir nokkra daga. -EH/Svíþjóð Guðjón bar af öðrum Sportkorn Sjónvarpsslagur Slagur sjón- varpsstöðvanna um einkaréttinn eða forgangsrétt- inn á útsending- um frá hand- bolta og körfu- bolta hefur ekki farið fram hjá neinum síðustu dagana. Stöð 2 missti handboltann sem RÚV og Stöð 3 sameinuðust um en náði körfuboltanum í staöinn. Það hefur verið athyglisvert að fylgj- ast með „umfjöllun" Stöðvar 2 og Bylgjunnar um fyrstu um- ferðir 1. deildarinnar í hand- bolta í kjölfar þessara atburða. í fyrrakvöld var leikin heil um- ferð í handboltanum og mikið að gerast. Bylgjan sagði mest litið frá leikjunum morguninn eftir - taldi upp úrslitin í fljót- heitum síðast í íþróttapistlinum eftir aö hafa tíundað rækilega úrslitin í Vesturlandsmóti og Reykjanesmóti i körfubolta. Aðdáandi á línunni Yfirleitt reyna menn að gæta þess að dómarar í íþróttum séu hlutlausir og ef- laust er það markmiðið hjá þeim sem sjá um dómaramálin í Evrópuknattspymunni. Þeir sem raða niður alþjóðlegum leikjum gátu þó sennilega ekki séð það fyrir þegar þeir sendu harðan aðdáanda Liverpool sem aöstoðardómara á leik MyPa og Liverpool í Finnlandi á dögun- um. Þar var á ferð Egill Már Markússon sem styður „Rauða herinn“ með ráðum og dáð. Enda vann Liverpool leikinn! Umsjón: Víðir Sigurðsson Jíi, EHGIANP Wimbledon-Southampton . . . 3-1 1-0 Gayle (12.), 2-0 Ekoku (38.), 3-0 Ekoku (73.), 3-1 Oakley (77.) Wimbledon er komiö í sjötta sæti úr- valsdeildarinnar eftir fjóra sigurleiki í röö. \Z*' SVÍÞJÓD Helsingborg-Malmö.............1-2 Öster-Umeá...................3-0 Degerfors-Örgryte............3-1 Liö Örgryte var yfirspilað og slapp vel meö þessi úrslit. Rúnar Kristins- son var þó rétt búinn aö skora, átti hörkuskot sem var naumlega varið. Gautaborg 21 12 5 4 40-18 41 Helsingborg 21 10 5 6 31-19 35 Norrköping 21 9 6 6 29-21 33 Malmö 21 9 6 6 21-19 33 AIK 21 9 5 7 27-18 32 Halmstad 21 8 7 6 24-26 31 Öster 21 9 3 9 29-28 30 Örebro 21 9 3 9 25-24 30 Degerfors 21 8 6 7 26-32 30 Örgryte 21 8 5 8 25-22 29 Trelleborg 21 8 3 10 28-34 27 Umeá 21 5 5 11 23-40 20 Oddevold 21 5 4 12 17-30 19 Djurgárden 21 5 3 13 18-32 18 Hópferð á maraþon í Amsterdam Nokkur hópur íslenskra hlaupara hyggst taka þátt í Amsterdam-maraþoninu í byrj- un nóvember og farið verður þangað í sérstakri ferð á vegum Úrvals-Útsýnar. Hlaupið er heilt og hálft maraþon. Síðustu forvöð að skrá sig í ferðina eru í dag hjá Sigurði P. (s. 565-7635), Pétri (551- 2992) eða ívari (588-1155 og 896- 2266)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.