Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1996, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
33
Myndasögur
c
rö
Eh
Ol996 by Wng f eatuiai Synd«ata. tnc. WorW righti íttarved.
Sérðu eitthvað
sem þig langar I?!
eKFS/Dislr.BUUS
( Ég heyri tregablandið kall frá sjónum
' -------v... kall sem ég get
fy? (ekki neitað aö A
O&w-i x'~—-^svara______
Burrrr!
Skakkt
númer.
nraiirS*
•i-H
&>
Ö)
• rH
Ifl
. .en ég er hræddur um'
að hattinum þlnum
finnist það ekki.
<M£i?
Veiðivon
Marteinn Geirsson meö 17 punda hænginn sem hann veiddi á fimmta
veiðisvæðinu í Vatnsdalsá um síöustu helgi. Laxinn tók maðkinn.
Vatnsdalsá:
Marteinn
settií
þann stóra
- fékk 17 og 14 punda laxa á maðkinn
Marteinn Geirsson, knatt-
spyrnuþjálfari og fyrrum lands-
liðsmaður í knattspymu, var við
veiðar í Vatnsdalsá á dögunum og
setti í þann stóra.
„Ég var við veiðar á fimmta
svæðinu og fékk góðan fisk, 14
punda hæng og annan sem var 17
pund.
Sá stærri var auðvitað meira
spennandi. Hann sýndi sig ekki
fyrr en nokkrum mínútum eftir að
hann tók og þá varð ég mjög tauga-
veiklaður og hræddur um að
missa hann. Það tók mig síðan um
tuttugu mínútur að landa honum
og ég var að vonum ánægður.
Þetta er langstærsti laxinn sem ég
hef veitt en sá stærsti áður var um
6 pund. Ég hef ekki gert mjög mik-
ið að því að veiða á stöng en tók
þetta þó af nokkurri alvöru í sum-
ar. Þetta var stórskemmtilegur
veiðitúr og ég er auðvitað í sjö-
unda himni,“ sagði Marteinn í
samtali við DV.
Marteinn er enn sem komið er
betur þekktur sem knattspymu-
þjálfari og fyrrum landsliðs- og at-
vinnumaður í knattspyrnu.
„Við veiddum lítið á laugardeg-
inum enda ég orðinn mjög ánægð-
ur með minn afla. Við þurftum að
komast í bæinn. Það voru áhuga-
verðir knattspyrnuleikir á dagskrá
og því dreif maður sig í bæinn,“
sagði Marteinn.
- Verður þessi afli ekki til þess
að þú fáir delluna endanlega?
„Ég veit það ekki. Ég hef ekki
enn lært að veiða á flugu og líklega
fæ ég ekki delluna fyrir alvöru
fyrr en mér tekst að fá lax á flug-
una. Það er næsta mál á dagskrá
og hver veit nema maður reyni
fluguveiði á næsta veiðitímabili,“
sagði Marteinn Geirsson.
-SK
Gæsa- og rjúpnaveiðin:
Gangnamenn hafa
séð mikið af fugli
Enn berast engar
fréttir af góðri gæsa-
veiði. Reyndar hafa
skotveiðimenn ekki
gert mikið að því að
fara til veiða enda
þýðir það lítið á með-
an gæsin heldur sig
til heiða.
Mikil hlýindi hafa
gert það að verkum
undanfarnar vikur að
gæsin hefur lítið sem
ekkert verið í túnum
og það hefur gert
veiðimönnum erfitt
fyrir.
DV veit um veiði-
menn sem fóru á gæs
í Borgarfirði um síð-
ustu helgi, en þar
hafði nokkuð sést af
gæs í túnum. Veiði-
mennirnir gripu hins
vegar í tómt því eng-
in gæs sást um morg-
uninn.
Gangnamenn, sem
DV hefur haft sam-
band við, segja marg-
ir að mikið sé af gæs
upp til heiða og hún
komi ekki niður fyrr
en ber skemmist í
frosti.
Hvernig veröur
rjúpnaveiöin?
Ekki eru nema
þrjár vikur þar til
veiðimenn mega
ganga til rjúpna.
Veiðitímabilið hefst
þann 15. október og
stendur fram að Þor-
láksmessu, 23. desem-
ber.
Eins og oft áður
segja menn að mikið
sé af rjúpu. Margir
taka þessar fréttir þó
með fyrirvara enda
hefur oft verið í gangi
mikil bjartsýni fyrir
veiöitímabilið og síð-
an hafa menn orðið
fyrir miklum von-
brigðum.
-G. Bender