Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
23
Iþróttir
íþróttir
Sunderland missir
Quinn í margar vikur
Sunderland varð fyrir miklu
áfalli um helgina þegar n-írski
landsliösmaðurinn Niall Quinn
meiddist á hné í leik gegn
Coventry. Peter Reid, fram-
kvæmdastjóri liðsins, sagði að
svo gæti farið að Quinn yrði frá
í margar vikur.
Graham vill Brolin
aftur til Leeds Utd
George Graham, fram-
kvæmdastjóri Leeds, hefur sett
sig í samband viö umboðsmann
sænska landsliðsmannsins Tom-
asar Brolin. Graham ætlar að
freista þess að fá Brolin aftur til
Leeds. Brolin er sem stendur á
þriggja mánaða samningi hjá
svissneka liðinu FC Zíirich.
Bierhoff krefst
160 milljóna á ári
Blackbum, sem veriö hefur á
höttunum á eftir Oliver Bierhoff,
er mjög undrandi á launakröfum
kappans. Heimildir herma að
Blackburn og Udinese séu búin
að semja um 500 milljóna króna
kaupverð. Málið strandar á
launakröfum Bierhoffs sem vill
fá 160 milljónir í árslaun og
halda eftir 100 milljónum eftir
skatt. Blackbum var á sínum
tíma tilbúið að greiða Júrgen
Klinsmann 144 milljónir í árs-
laun.
Scholes óánægður
Paul Scholes er ekki ánægður
þessa dagana í herbúðum
Manchester United. Hann hefur í
haust ýmist veriö á bekknum hjá
liðinu eða ekki einu sinni kom-
ist á hann. Nú er svo komið að
hann vill fara frá félaginu. „Það
kemur ekki til mála. Hann er ný-
búinn að skrifa undir fimm ára
samning við okkur,“ sagði Alex
Ferguson.
Andrei Kanchelskis
er ekki til sölu
Joy Royle, framkvæmdastjóri
Everton, sagöi um helgina í
blaðaviðtali að Rússinn Andrei
Kanchelskis væri ekki til sölu.
Fiorentina á Ítalíu hefur boðið
um 500 milljónir í hann. „Þótt
tilboö upp á 800 milljónir kæmi í
Rússann þá myndi ég ekki falla
fyrir því,“ sagði Royle.
Lið með Simpson
undir smásjánni
Pascal Simpson hjá AIK í Sví-
þjóð, sem mætir KR í Evrópu-
keppninni í vikunni, er undir
smásjánni hjá nokkrum þekkt-
um félagsliðum. Atletico Madrid,
AC Milan og Tottenham hafa að
undanfömu verið með útsendara
til að fylgjast með kappanum.
Mönnum sem sáu hann leika
gegn KR í Reykjavík fannst lítið
til þessa leikmanns koma.
Reyndar er allt útliti fyrir að
Simpson leiki ekki gegn KR
vegna veikinda, að því er
sænska sjónvarpið sagði i
gærkvöld.
Souness kaupir þrjá
erlenda leikmenn
Greame Souness fram-
kvæmdastjóri hjá Southampton
gerir allt til þess að lið hans
megi standa sig í úrvalsdeildinni
í vetur. Hann festi um helgina
kaup á tveimur erlendum leik-
mönnum. Paulo Alevs frá Sport-
ing i Lissabon og ísraelska
landsliösmanninum Eyal Berko-
vitz. Souness ætlar ekki að láta
þar við sitja því hann hefur ver-
ið í samningaviðræðum við
tékkneska landsliðsmanninn Pa-
vel Kuka sem leilcur með Kais-
erslautern í Þýskalandi. Kuka
hefur mikinn áhuga á að leika
meö liði í ensku úrvalsdeildinni.
-JKS
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik:
Fer eins og ég
var búinn að spá
- útilokað að tippa á verðandi meistara í vetur
Ef marka má úrslit leikjanna í 1.
deildinni í handknattleik á sunnu-
daginn mega handboltaunnendur
eiga von á mjög mjög jöfnu og
skemmtilegu íslandsmóti.
Mörg óvænt úrslit litu dagsins
ljós. íslandsmeistarar Vals gerðu
jafntefli á heimavelli gegn Selfoss,
meistarakandítamir í Aftureldingu
töpuðu fyrir Stjörnunni, bikar-
meistarar KA biðu lægri hlut fyrir
FHí Hafnarfirði og Haukar náðu
aðeins jöfnu gegn HK í Kópavogi.
Landsliðsþjálfarinn Þorbjörn
Jensson hefur eins og gefur að
skilja fylgst grannt með liðunum og
leikjum þeirra í upphafi íslands-
mótsins. Hvernig leggst handbolta-
veturinn í hann?
Liðin geta tekið stig af hvert
öðru
„Þetta fer nú bara eins og ég veu1
búinn að spá. Ég reiknaði með því
að allir gætu tekið stig af öllum og
það hefur orðið reyndin. Það urðu
mörg óvænt úrslit um helgina og
þannig held ég að þetta eigi eftir að
verða í vetur. Óvæntustu tíðindin
að mínu mati voru tap KA fyrir FH
og að Afturelding skyldi liggja á
heimavelli fyrir Stjömunni.
Getur þú tippað á líklega
meistara?
„Ef ég ætti að tippa á verðandi
meistara gæti ég það ekki. Ég yrði
að setja öll liðin í pott og draga síð-
an eitt nafn. Ég get í fljótu bragði
ekki séð neitt lakara lið en annað.
Menn voru að ímynda sér að ÍR-ing-
ar væru kannski með eitt slakasta
liðið en þeir unnu góðan sigur á
Stjörnunni í 1. umferðinni.”
Fullt af ungum og efnilegum
strákum
„Það er fullt af ungum og efnileg-
um strákum að koma upp og nú er
virkilega farið að reyna á þá í liðun-
um. Ég er alls ekki tilbúinn að
kyngja því að handboltin verði eitt-
hvað lélegri þó svo að margir hafi
yfirgefið deildina og haldiö út i at-
vinnumennsku. Maður er búinn að
fylgjast með þessu í mörg ár og það
er einhvern veginn þannig að það
kemur alltaf maður í manns stað.”
Ekki góður handbolti hjá
Aftureldingu og Stjörnunni
- Hvernig hafa gæðin á hand-
boltanum verið í þeim leikjum
sem þú hefur séð?
„Ég sá til dæmis fyrri hálfleikinn
í leik Aftureldingar og Stjömunnar
og mér fannst það ekki góður hand-
bolti. Ég sá viðureign Hauka og KA.
Það var ekkert sérstakur leikur en
spennan var mikil og það er nú
kannski það sem skiptir öllu máli
líka. Þá sá ég seinni hálfleikinn hjá
Val og Selfossi. Það var hörkuleikur
og mikil barátta á báða bóga, þokka-
lega góður sóknarleikur en varnar-
leikurinn lélegur.”
„Ég held að ég geti sagt að það
kemur mér á óvart þó hvað byrjun-
in á mótinu er góð og lofar góðu upp
á að halda spennu í þessu í vetur,”
sagði Þorbjörn að lokum.
-GH
Úrskurður Dómstóls ÍSÍ í máli Finns B. Jóhannssonar:
Var dæmdur
til lágmarks-
refsingar
B. Jóhannsson var í gær dæmdur i tveggja ára
frá þátttöku í íþróttamótum á vegum
sérsambanda innan íþróttasambands íslands.
tók þátt í bikarkeppninni i frjálsum íþróttum í
mánuði og keppti þar fyrir Ármann. Er Finnur
keppni síðari keppnisdaginn var hann umsvifa-
tekinn í lyfjapróf. Niðurstöður þess prófs leiddu síðan
ljós að hann hafði neytt amfetamíns og kókaíns. Bannið tek-
gildi frá og með 9. september og rennur því úr gildi sama dag
1998. Finnur viðurkenndi brot sitt.
Samkvæmt heimildum DV hafði Finnur fengið frí frá keppni síðari
keppnisdag bikarkeppninnar. Eftir að hart hafði verið gengið að Finni
að keppa á síðari keppnisdegi lét hann til leiðast og var eftir þátttöku
í mótinu tekinn í lyfjapróf.
í fréttatilkynningu frá íþróttasambandi íslands, sem send var fjöl-
miðlum í gær, segir: „Dómstóllinn taldi brotið alvarlegt, þar sem um
var að ræða ólögleg fíkniefhi. Vegna þess að sýnt þótti að þeirra hefði
ekki verið neytt í þeim tilgangi að ná betri árangri í íþróttum, var þó
ákveðið að beita lágmarksrefsingu, sem er tveggja ára keppnisbann."
f upphafi sömu fréttatilkynningar segir: „Dómstóll sem fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ skipaði vegna meints brots á lögum ÍSÍ um lyfja-
misnotkun íþróttamanna hefur i dag dæmt frjálsíþróttamanninn Finn
B. Jóhannsson úr Ármanni, sem kunnari er sem handknattleiksmað-
ur með 1. deildar liði UMF Selfoss, í tveggja ára keppnisbann vegna
neyslu ólöglegra lyf]a.“
- SK
^ Þýski handboltinn:
Islendingarnir
fóru sér hægt
íslensku handknattleiksmennim-
ir sem leika i þýsku úrvalsdeildinni
í handknattleik höfðu frekar hægt
um sig í leikjum helgarinnar.
Patrekur Jóhannesson skoraði
eitt mark þegar lið hans, Essen,
vann sigur á Niederwúrsbach,
27-24. Hvít-Rússinn Aleksandr
Tutsckin fór fyrir leikmönnum
Essen og skoraði 9 mörk. Essen er
þvi á toppi deildarinnar með 6 stig
eftir þrjá leiki.
Héðinn Gilsson komst ekki á blað
fyrir Fredenbeck þegar liðið steinlá
á útivelli fyrir Hameln, 33-21.
Þýöir ekki að örvænta strax
Róbert Sighvatsson skoraði eitt
mark og fiskaði fjögur vítaköst þeg-
ar Schutterwald tapaði á heimavelli
fyrir Minden, 29-32.
„Við höfðum lengst af forystu í
leiknum en undir lokin misstum við
á skömmum tíma þrjá menn út af og
leikmenn Minden sigu fram úr. Við
höfum þar með tapað báðum leikj-
um okkar í deildinni en það þýðir
ekkert að örvænta strax,” sagði Ró-
bert í samtali við DV.
Kristján Arason sá lærisveina
sína í Wallau Massenheim tapa á
útivelli fyrir Nettelstedt, 30-25.
Meistararnir í Kiel töpuðu óvænt
fyrir Rheinhausen, 27-26, í hörku-
leik. Með Kiel leika til að mynda
sænsku landsliðsmennirnir Staffan
Olsson og Magnus Wislander og er
liðinu spáð einu af toppsætunum
ásamt Magdeburg og Wallau
Massenheim.
Stórsigrar íslendingaliöanna
í 2. deildinni
í 2. deildinni fögnuðu Viggó Sig-
urðsson, Ólafur Stefánsson og
Dmitri Filippov í Wuppertal örugg-
um sigri á Herdecke, 23-15, og Jason
Ólafsson og samherjar hans í
Lauterhausen kjöldrógu lið Frisen-
heim og sigruðu með 17 marka
mun, 28-11.
-GH
Sleppir Gullit
Petrescu?
ISLAND - RUMENIA
9. október kl. 19:00
Ronaldo hefur byrjað mjög vel í
spænsku knattspyrnunni.
Spænska knattspyrnan:
Ronaldo stend-
ur sig vel
Brasilíska undrabarnið Ronaldo
heldur áfram að gera góði hluti með
Börsungum í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu. Á sunnudaginn hélt Ron-
aldo upp á 20 ára afmæli sitt með því
að skora tvö mörk í 3-2 sigri Barcelona
á Real Sociedad. Börsungar eru í öðru
sæti deildarinnar með 10 stig eins og
Real Betis sem hefur betra markahlut-
fall. Betis, sem hefur komið mjög á
óvart f fyrstu leikjunum, lagði Celta,
2-0.
Stórlið Real Madrid átti í hinu mesta
basli með lið Rayo Vallecano á heima-
velli sínum en tókst að knýja fram 1-0
sigur með marki Raul Gonzalez.
Meistarar Atletico Madrid vöknuðu
til lífsins eftir tvo tapleiki í röð og
unnu góðan sigur á Logrones, 3-0.
-GH
Lárus Orri Sigurðsson heldur
áfram að spila vel með Stoke.
Markmiðið að kom-
ast í úrvalsdeildina
- segir Lárus Orri Sigurðsson hjá Stoke City
Lárus Orri Sigurðsson fékk mjög
góða dóma fyrir frammistöðu sína i
leiknum með Stoke City gegn Hudders-
field í ensku 1. deildinni á sunnudag-
inn var. Lárus Orri þótti komast vel
frá leiknum og var hrósað í bresku
pressunni í gær.
„Það var gott að vinna þennan leik
eftir að hafa verið 0-2 undir. Við sýnd-
um vissan styrk að vinna þennan mun
upp og gott betur. Með sigrinum end-
urheimtum við fjórða sætið þar sem
við höfum verið lengstum það sem af
er mótinu. Þetta er allt koma eftir tvo
tapleiki þar á undan. Auðvitað er það
markmið liðsins að komast upp í úr-
valsdeildina. Það hafa orðið miklar
breytingar á liðinu frá síðasta tímabili
og það tekur alltaf einhvern tlma að
stilla saman strengina," sagði Lárus
Orri Sigurðsson í samtali við DV í
gær.
City aö reyna aö fá Macari
Lárus Orri var inntur eftir fréttum i
Englandi í gær þar sem fram kom að
Manchester City lýsti yfir áhuga á að
Lou Macari settist í framkvæmdastól
félagsins. Macari er sem kunnugt er
við stjómvölinn hjá Stoke.
„Ég sá þetta í blöðum en hvort ein-
hver fótur er fyrir þessari frétt hef ég
ekki hugmynd um. Það hafa mörg nöfn
verið nefnd í þessu sambandi," sagði
Lárus Crri.
Hann kemur til íslands eftir næstu
helgi en landsliðshópurinn kemur all-
ur saman hér á landi áður en haldið
verður utan í leikinn gegn Litháen í
riðlakeppni heimsmeistaramótsins en
hann verður háður í Vilnius þann 5.
október. -JKS
Guömundur dæmir úrslitaleikinn
Það kemur hlut Guðmundar Stefáns Mariassonar að dæma úrslitaleik Akumesinga
og KR-inga um íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla í knattspymu á Akranesi á
sunnudaginn. Guðmundur, sem dæmir fyrir Leikni, Reykjavík, er FIFA dómari og er
með reyndari og betri dómurum í 1. deildinni.
Aðstoðardómarar í leiknum koma af Suðurnesjum en það em FIFA
aðstoðardómarinn Kári Gunnlaugsson og Sigurður Friðjónsson en þeir dæma báðir
fyrir Keflavík. -GH
■ g%.■ BHk fl t'ýí wL*. ■ Sr lalwpP
Lið Fram varð sigurvegari í 2. deild karla á Islandsmótinu í knattspyrnu. Hér er allur leikmannahópurinn kominn
saman ásamt stjórn og Ásgeiri Elíassyni þjálfara eftir sigurleikinn gegn FH í iokaumferðinni en eftir leikinn féngu
Framarar sigurlaunin fyrir sigurinn í deildinni.
Ágætar aukagreiðslur
hjá Ágústi og Birki
Þrenna Þór-
arins og staða
íslands góð
DV, Akranesi:
Þrjú mörk Keflvíkingsins Þórarins
Kristjánssonar tryggðu islandi 3-0 sigur
á Lúxemborg á Akranesi í gær og nán-
ast öruggt sæti í úrslitum Evrópu-
keppni drengjalandsliða í knattspyrnu.
Færeyingar eru einnig í riðlinum og
þeir mæta Lúxemborg á morgun en ís-
land og Færeyjar leika síðan á fostudag.
Báðir leikirnir verða í Borgarnesi.
„Aðalatriðið hjá okkur Vcir að halda
hreinu og þá þarf aldrei mörg mörk til
að bera sigur úr býtum. Þeir voru langt
frá því að ógna okkur og við vorum
sterkari aðilinn allan tímann. Við van-
metum ekki Færeyinga og munum spila
á fullu á móti þeim og ætlum okkur að
vinna riðilinn með fullu húsi stiga,“
sagði Gústaf Björnsson, þjálfari
drengjaliðsins, við DV eftir leikinn.
Sigurinn hefði allt eins getað orðið
stærri en Þórarinn, sem var besti mað-
ur íslands, skoraði mörkin á lokamín-
útu fyrri hálfleiks, 55. og 66. mínútu.
Þeir Kristján Sigurðsson og Indriði Sig-
urðsson léku einnig vel en hjá Lúxem-
borg var markvörðurinn Scen Rein-
hardt bestur.
-DVÓ
Takist Ágústi Gylfasyni, Birki
Kristinssyni og félögum í Brann að
vinna þrjá síðustu leiki sína í
norsku úrvalsdeildinni og tryggja
sér með því annað sætið fá þeir
ágætar aukagreiðslur frá félaginu.
Hver leikmaður hefur þegar tryggt
sér um 340 þúsund krónur í auka-
greiðslur, fyrir utan fost laun, og það
eru um 260 þúsund krónur í pottin-
DV, Suðurnesjum:
Guðjón Skúlason var kosinn besti
leikmaður Reykjanesmótsins í
körfuknattleik sem lauk um liðna
helgi.
um enn þá. Frá þessu var skýrt í
blaðinu Bergens Avis um helgina og
sagt að tímakaup þeirra í þremur
síðustu umferðunum gæti orðið
tæpar 60 þúsund krónur.
Þá fá leikmennirnir góðar auka-
greiðslur ef þeir slá Cercle Brugge út
úr Evrópukeppninni en á því eru
góðir möguleikar þar sem Brann tap-
aði útileiknum aðeins 3-2.
í lið mótsins voru þessir leikmenn
valdir: Guðjón Skúlason, Keflavik,
Friðrik Ragnarsson, Njarðvík,
Albert Óskarsson, Keflavík, Helgi
Jónas Guðfinnsson, Grindavik og
Shawn Smith, Haukum. -SK/-ÆMK
Arnór með verðlaunamark?
Mark sem Arnór Guðjohnsen skoraði fyrir Örebro gegn Oddevold í
sænsku úrvalsdeildinni á dögunum er eitt þriggja marka sem sænska
ríkissjónvarpiö telur þau bestu í deildinni í haust. í íþróttaþætti í
gærkvöldi var markið sýnt ásamt hinum tveimur og áhorfendur beðnir
um að hringja inn og velja eitt þeirra sem besta mark haustsins.
Niðurstaðan verður birt eftir nokkra daga. -EH/Svíþjóð
Guðjón bar af öðrum
Sportkorn
Sjónvarpsslagur
Slagur sjón-
varpsstöðvanna
um einkaréttinn
eða forgangsrétt-
inn á útsending-
um frá hand-
bolta og körfu-
bolta hefur ekki
farið fram hjá
neinum síðustu dagana. Stöð 2
missti handboltann sem RÚV og
Stöð 3 sameinuðust um en náði
körfuboltanum í staöinn. Það
hefur verið athyglisvert að fylgj-
ast með „umfjöllun" Stöðvar 2
og Bylgjunnar um fyrstu um-
ferðir 1. deildarinnar í hand-
bolta í kjölfar þessara atburða. í
fyrrakvöld var leikin heil um-
ferð í handboltanum og mikið
að gerast. Bylgjan sagði mest
litið frá leikjunum morguninn
eftir - taldi upp úrslitin í fljót-
heitum síðast í íþróttapistlinum
eftir aö hafa tíundað rækilega
úrslitin í Vesturlandsmóti og
Reykjanesmóti i körfubolta.
Aðdáandi á línunni
Yfirleitt reyna
menn að gæta
þess að dómarar
í íþróttum séu
hlutlausir og ef-
laust er það
markmiðið hjá
þeim sem sjá um
dómaramálin í
Evrópuknattspymunni. Þeir
sem raða niður alþjóðlegum
leikjum gátu þó sennilega ekki
séð það fyrir þegar þeir sendu
harðan aðdáanda Liverpool sem
aöstoðardómara á leik MyPa og
Liverpool í Finnlandi á dögun-
um. Þar var á ferð Egill Már
Markússon sem styður „Rauða
herinn“ með ráðum og dáð.
Enda vann Liverpool leikinn!
Umsjón: Víðir Sigurðsson
Jíi, EHGIANP
Wimbledon-Southampton . . . 3-1
1-0 Gayle (12.), 2-0 Ekoku (38.), 3-0
Ekoku (73.), 3-1 Oakley (77.)
Wimbledon er komiö í sjötta sæti úr-
valsdeildarinnar eftir fjóra sigurleiki
í röö.
\Z*' SVÍÞJÓD
Helsingborg-Malmö.............1-2
Öster-Umeá...................3-0
Degerfors-Örgryte............3-1
Liö Örgryte var yfirspilað og slapp
vel meö þessi úrslit. Rúnar Kristins-
son var þó rétt búinn aö skora, átti
hörkuskot sem var naumlega varið.
Gautaborg 21 12 5 4 40-18 41
Helsingborg 21 10 5 6 31-19 35
Norrköping 21 9 6 6 29-21 33
Malmö 21 9 6 6 21-19 33
AIK 21 9 5 7 27-18 32
Halmstad 21 8 7 6 24-26 31
Öster 21 9 3 9 29-28 30
Örebro 21 9 3 9 25-24 30
Degerfors 21 8 6 7 26-32 30
Örgryte 21 8 5 8 25-22 29
Trelleborg 21 8 3 10 28-34 27
Umeá 21 5 5 11 23-40 20
Oddevold 21 5 4 12 17-30 19
Djurgárden 21 5 3 13 18-32 18
Hópferð á maraþon
í Amsterdam
Nokkur hópur íslenskra
hlaupara hyggst taka þátt í
Amsterdam-maraþoninu í byrj-
un nóvember og farið verður
þangað í sérstakri ferð á vegum
Úrvals-Útsýnar. Hlaupið er heilt
og hálft maraþon. Síðustu forvöð
að skrá sig í ferðina eru í dag hjá
Sigurði P. (s. 565-7635), Pétri (551-
2992) eða ívari (588-1155 og 896-
2266)