Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 27
nam hagnaður af sölu bréfanna í Tæknivali var um 60 millj- ónir króna.” - Hewlett Packard erlendis er orðið næststærsta tölvufyr- irtæki í heimi - næst á eftir IBM. Hverju þakkar þú hinn öra vöxt fyrirtældsins á heimsvísu? „Hewlett Packard hefur alla tíð verið mikið tæknifyrirtæki - verkfræðifyrirtæki. Nú er fyrirtækið orðið markaðsdrifnara og beittara í markaðssetningu. Það hugsar meira um mark- aðshlutdeild en áður. Það hefur farið inn á fjöldamarkaðinn með einkatölvur og prentara. Stefnan er að einangra sig ekki á ákveðnu sviði markaðarins heldur að halda sig þar sem Ijöld- inn er. Þess vegna vinnur það núna í mjög nánu samstarfi við Intel og Microsoft en það mun skila sér í örum vexti fyrirtæk- isins á næstu árum. Vörum fyrirtækisins tjölgar og stigin eru skref inn á ný svið. Eg get nefnt vörur á sviði ljósmyndunar og ljósritunar, þar hyggst fyrirtækið hasla sér völl á næstu miss- erum. Innan Hewlett Packard er rætt um að það verði nýtt „take-off’ tímabil hjá fyrirtækinu á næstu misserum, að það fari í 30% vöxtinn aftur. Það er engin ástæða til annars en að vera mjög bjartsýnn á viðskipti í þessu fagi í framtíðinni - það er margt í pípunum.” - Lýstu hinum nýja örgjörva sem Hewlett Packard er að vinna að í samvinnu við Intel og margir nefna sem tilefni mildllar bjartsýni í greininni á næstu árum? „Þetta er örgjörvi sem heitir Merced og er þróaður af Hew- lett Packard og Intel. Hann kemur á markað eftir eitt til tvö ár og mun stórauka afköst einkatölva en hann verður allt að 15 sinnum hraðvirkari en núverandi örgjörvar frá Intel. Hann verður samhæfður við núverandi hugbúnað sem auðveldar þeim viðskiptavinum, sem vilja nýta núverandi hugbúnað, að halda áfram á sömu braut. Tölvur með hinum nýja örgörva munu geta keyrt hugbúnað fyrir Windows NT og Unix sam- Frosti með syni sínum, Bergi, 2 ára. Frosti er giftur Hall- dóru Mathiesen kerfisfræðingi. I ftölskyldunni er einnig fóstursonur Frosta, Matthías Arni, 14 ára sonur Hall- dóru. Frá fyrra hjónabandi á Frosti tvö börn, Frey, 27 ára arkitekt, og Önnu Dóru, 22 ára sálfræðinema. Þá á Frosti sonarson - og heitir sá Viktor Þór. tímis. Þar með verður múrinn rofinn á milli þessara stýrikerfa sem eru núna í mikilli samkeppni á markaðnum.” - Víkjum að sjálfúm þér sem stjórnanda. Hvernig sérðu sjálfan þig í því hlutverki? Ertu harður eða lýðræðislegur stjórnandi? „Eg vona að ég teljist sanngjarn stjórnandi. Eg er af svo- nefndri ‘68 kynslóð sem upplifði frelsisbyltingu Bítlanna og Rolling Stones. Þessi bylting situr enn í þessari kynslóð. Eg vil eiginlega orða það svo að þetta hafi verið bylting gegn íhalds- semi - að það sé í lagi að breyta og gera hlutina öðruvísi en 1995 Eftir að Hewlett Packard í Danmörku átti ekki lengur í HP á íslandi var nafni fyrirtækisins breytt í Opin kerfi hf. 1995 Opin kerfi keyptu um 40% hlut ÍTeymi. Teymi er með umboð fyrir Oracle, ann- að stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi. 1996 Samstarf á milli Tæknivals og Opinna kerfa minnkaði. Opin kerfi seldu 20% hlut sinn í Tæknivali með um 60 millj- óna króna hagnaði. 1996 Opin kerfi keyptu 30% f hugbúnaðar- fyrirtækinu Þróun. 1997 í byrjun þessa árs föluðust Opin kerfi eftir hlutabréfum (Nýherja. 1997 Opin kerfi hafa keypt 51% hlut f Skýrr hf„ 40% í AC0 og 23% í Skímu-Mið- heimum. Eigendur Skýrr: Opin kerfi: 51%, ríkið 22%, starfsmenn Skýrr 5%, Rafmagns- veita Reykjavfkur og Reykjavíkurborg samtals 22%. Opin kerfi skráð á Verðbréfaþingi fs- lands. Hluthafar orðnir um 260 talsins. Gengi hlutabréfa um 40. Markaðsverð- mæti um 1.280 milljónir króna. h Núverandi hluthafar í Opnum kerfum: O Frosti um 26%, Þróunarfélagið um 31%, Pharmaco um 17% og aðrir um ri 26%. ... 0G 0PIN KERFI Hillukerfi -fyrir vörulagerinn, bílaverkstæðið, geymsluna -sniðiö að þínum þörfum B R Æ Ð U R N L R Lágmúla 9 • Simi: 533 2800 • Fax: 533 2820 BOSCH verslunin aökeyrsla frá Háaleitisbraut 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.