Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 42
NÆRMYND Það lýsir honum ef til vill best sem gamall samstarfsmaður hans sagði að hann væri sambland af sölumanni og verkfræðingi. Hann væri skipulagður eins og verkfræðingur en ekki ósveigjanlegur eins og þeir þykja gjarnan vera. Fundahöld með undirmönnum og öðrum starfsmönnum eru tíð og lætur nærri að fundur sé bókaður á hveijum degi fyrir fram. Þess utan eru óform- legir fundir með smærri hópum vegna verkefna í dagsins önn mjög tíðir. Vinnudagur Páls er því mjög langur eða á bilinu frá 11-13 tímar og stundum krefst starfið viðveru utan hefðbund- ins vinnutíma. Það hefur löngum tíðkast hjá Flug- leiðum að skipta mönnum í flokka eft- ir því hve hollir þeir eru fyrirtækinu. Er það þá lagt mönnum til lofs eða lasts eftir atvikum. Páll mun vera mik- ill „Flugleiðamaður“ og fullyrt er að það hafi átt sinn þátt í ráðningu hans. STJÓRNUNARSTÍLLINN Starfsmenn Flugfélagsins eru að stærstum hluta ungt fólk á bilinu 30 -35 ára. Sú spenna, sem fylgir fluginu, og sú uppbygging, sem þarna fer fram, hafa þjappað hópnum saman og gert andrúmsloftið á vinnustaðnum afslapp- að og þægilegt svo minnir á köflum á Páll hefur þurft að takast að við erf- ið verkefni í stjórn Flugfélagsins. son fjármálastjóri, Haukur Gíslason sölustjóri og Viðar Hjartarson tækni- stjóri. Helstu samstarfsmenn hans frá Flugleiðaárunum voru Kristinn Hall- dórsson, forstöðumaður tæknideildar í Keflavík, Guðmundur Pálsson, yfir- maður tæknisviðs, og Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- sviðs, en hann og Páll unnu saman í Ameríku. Þess má til gamans geta að Steinn Logi er sameiginlegur vinur Páls og Omars Benediktssonar, for- stjóra íslandsflugs, helsta keppinautar Flugfélagsins. Segja má að vinahópur Páls skiptist byggingameistari og Tryggvi Sverris- son smiður eru allir í þessum hóp. Auk þess hefur Páll mikið sam- band við félaga sem voru honum sam- tíða í framhaldsnámi í Ameríku. Það eru Arni Hermannsson, tölvunar- fræðingur í Keflavík, Þórir Lárusson, sem rekur Iðnaðartækni, Erlendur Halldórsson, flugvirki hjá Atlanta, Er- lingur Gunnarsson, flugstjóri hjá Car- golux og Hilmar Þórarinsson, flug- virki hjá Gæslunni. SKOKKAR MEÐ HUNDINN Páll hefur um þessar mundir lítið svigrúm til þess að rækja nokkur áhugamál að neinu ráði en er þó félagi í Rótarýklúbbnum Garðari í Garðabæ og er þar orðinn gjaldkeri. Hann á hund sem hann fer út að ganga eða skokka með þegar tækifæri gefast og heldur sér þannig í þjálfun en hefur einnig verið í tímum í Stúdíói Hrafns og Agústu. Páll hefur mikinn áhuga á sagnfræði og heimildarþáttum af ýmsu tagi. Páll er með töluverða veiðidellu og fer á hverju sumri á æskuslóðirnar í Steingrímsfirði og veiðir í Staðará, oft í fylgd með bræðrum sínum. Auk þess fer hann einnig í lax í Þverá og Kjarrá í Borgarfirði og fleiri þekktar veiðiár. SÖLUMAÐUR 0G VERKFRÆÐINGUR Gamall samstarfsmaöur hans sagði að hann væri sambland af sölumanni og verk- fræðingi. Hann væri skipuiagður eins og verkfræðingur en ekki ósveigjanlegur eins og þeir þykja gjarnan vera. stóra fjölskyldu þar sem brandarar og skot eru látin vaða í tölvupóstinum. Eftir stórar tarnir fara starfsmenn- irnir saman út að skemmta sér eða gera eitthvað sér til upplyftingar og þá lætur Páll sig ekki vanta. Mönnum ber saman um að hann leggi sig mjög mik- ið fram um að vera jafningi starfsmann- anna og félagi frekar en yfirmaður en sumum finnst hann enn ijarlægur og ópersónulegur. VINIRNIR Nánustu samstarfsmenn Páls hjá Flugfélagi Islands eru Thor Olafsson, sölu- og markaðsstjóri, Hlynur Elías- í nokkra hluta. Hann hefur mikið sam- band við systkini sín. Einnig eru nefndir mágar hans tveir, Kristján arkitekt og Haraldur, framkvæmda- stjóri Furu í Garðabæ, en milli fjöl- skyldnanna er mikill samgangur. Auk þessa eru Páll og kona hans hluti af hóp sem kynntist á sínum tíma í Flensborg í Hafnarfirði og hefur haldið tengslum síðan, bæði karlar og konur, og er það saumaklúbbur kvennanna sem hefur haldið hópnum saman. Gunnar Olafsson, móttökustjóri á Hótel Esju, Ásgeir Ulfarsson, smiður í Hafnarfirði, Guðlaugur Adolfsson Stjórnendur í þessari starfsgrein eru í vinnunni með einum eða öðrum hætti allan sólarhringinn og alltaf með hnút í maganum, eins og gamall Flug- leiðastarfsmaður lýsti því. Starfinu fylgja mikil ferðalög þó að þau séu ekki eins mikil eins og áður var í starfi Páls. PÁLL HEFUR STÁLTAUGAR Eftir því sem best verður séð hefur Páll þær stáltaugar sem þarf til þess að gegna þessu ábyrgðarmikla starfi og leggur sig allan fram um að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til hans. S3 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.