Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 64

Frjáls verslun - 01.07.1997, Blaðsíða 64
Bæjarins bestu pylsur eru elsti skyndibitastaður á íslandi og enginn veitínga- staður veltír meiru miðað við fermetratölu. Þarna hafa verið seldar pylsur frá 1930. lítilli aukningu undanfarin tvö ár eftir samdrátt margra ára sýnist óhætt að halda því fram að pizzuætur séu að bjarga mjólkurbændum en 10 lítra af mjólk þarf til að framleiða eitt kíló af osti. Þannig þarf tæpar íjórar milljónir mjólkurlítra til að framleiða ost á allar pizzur landsmanna. HVERJIR MINNKAOG HVERJIR STÆKKA? Kjartan Örn Kjartansson, sem rek- ur McDonald's á Islandi, sagði í blaða- viðtali fyrr á árinu að 1,2 milljónir manna hefðu átt viðskipti við McDon- ald's á síðasta ári. Þetta byggir á þeirri tölfræði að þrír einstaklingar séu bak við hveija afgreiðslu en þær voru um 400 þúsund. Sé horft á einstakar gerðir skyndi- matar og reynt að átta sig á þvi hvort markaður íyrir þær sé að stækka eða minnka verður fátt um tölur. Sé horft til fiölda staða, sem bjóða tiltekna tegund, og riijað upp hvort þeim hefur fjölgað eða fækkað má halda fram eftírfarandi: Pizzur eru enn i sókn en markaður- inn stækkar ekki eins hratt og hann gerði fyrir fáum árum. Kjúklingabitar njóta minni vinsælda en þeir gerðu áður en sýnast eiga sína föstu aðdáendur. Hamborgarar eru ekki eins vinsælir og þeir voru þegar veldi Tommaborgara reis hvað hæst. Mikill áhugamaður um skyndimat sagði við Fijálsa verslun að McDonald's væri 10 árum of seint á ferðinni á Is- landi. Aðrir segja að með tilkomu McDonald's og aukinni samkeppni í kjölfarið hafi markaðurinn tekið kipp og sala á hamborg- urum yfirleitt aukist. Samlokur og pítur eru lít- ill hlutí markað- arins. Pítur hafa dal- að en Subway samlokur sækja á. Júmbó- og Sómasamlokur eiga sína traustu kúnna í sjoppunum. Pylsurnar gömlu og góðu byggja á fornri frægð og seljast alltaf álíka mikið og þær gerðu áður. Það, sem í munni almennings heitír einu nafni Kínamatur, er í nokkurri sókn og heimsending á slíkum mat og framboð hefur aukist verulega. SAGNFRÆÐISKYNDIBITANS Það er ekki ætlun okkar með þessari grein að sökkva okkur djúpt í sagnfræði MÁ ÉG PANTA PIZZU? skyndibitans en elsti skyndibitinn í ís- lenskri matarmenningu er trúlega pylsa í brauði sem Danir kenndu okkur að borða. Á stríðsárunum spruttu upp í Reykjavík „fish and chips“ sjoppur með- an breski herinn var hér en þegar amer- ískir hermenn leystu þá af hólmi breytt- ist smekkurinn. Hamborgarinn kom hingað með am- eríska hernum en það var ekki fýrr en seint á sjötta áratugnum sem hamborg- arar fóru að fást á veitingastöðum. Á ár- unum milli 1960 og 1970 fóru að fást kjúklingar á veitingastöðum sem þóttí mjög framúrstefnulegt. Pizzur máttu heita óþekktar hér þar tíl Pizzahúsið var opnað íýrir rúmum 20 árum. Fyrir 20 árum máttí telja „skyndibita- staði“ í höfuðborginni á fingrum annarr- ar handar. Hlíðagrill í Suðurveri er mörgum í minni að ógleymdum Aski við Suðurlandsbraut en þar var fitjað upp á mörgum nýjungum. Bæjarins bestu pylsur hafa verið óijúfanlegur hlutí af borgarmenningunni í meira en 60 ár og verða áfram. Séríslenska útgáfan af skyndibitastað var lengi nætursalan á BSI þar sem hægt var að fá svið með rófustöppu eða kartöflumús all- an sólarhring- , inn. Á árunum milli 1981 og 1983 setti Tómas Tómasson veitingamaður met í sölu hamborgara og Tommaborgarar urðu hversdagsmatur og staðir merktir Tomma skutu upp kollinum út um allt land. Það er síðan á síðustu 5 árum sem segja má að sprenging verði á þessum markaði og erlendar keðjur fara að skjóta upp kollinum. Pizza Hut, Kent- ucky Fried Chicken, ChickKing, Amer- ican Style, Domino’s, Subway og nú síð- ast McDonald's eru nöfii sem flestir þekkja. Smátt og smátt myndast ákveðnir Niðurstöður okkar benda til þess að velta skyndibitamarkaðarins sé á bilinu 4,5 til 5,0 milljarðar. Það þýðir að hver fjölskylda eyðir 50-55 þúsund krónum á ári í skyndibita. 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.