Íslendingaþættir Tímans - 03.08.1972, Page 16
SNÆBJÖRN JÓNSSON
F. l(i. sept. 1902. I). 13. maí 1972.
I)æm svo mildan dauða
Drottimi |)fnu barni
einsog léttu laufi
lyfti blær frá hjarni
einsog lílill lækur
Ijúki sinu bjali
þar sem lygn i leyni
liggur inarinn svali.
M.J.
Þannig bað þjóðskáldið fyrir andláti
sinu, og þér elsku bróðir var leyft að
deyja á þennan hljóðláta hátt eins og
þú hafðir óskað.
Megum við þvi, sem eftir lifum, vel
við una, og lofa guð fyrir, að þér var
hlift við löngu dauðastriði. Þú gekkst
þess ekki dulinn að stundin nálgaðist,
enda lengi búinn að kenna banameins-
ins. Þó að likamlegt þrek færi þverr-
andi, entist þér'andlegt fjör til hinztu
stundar.
Það er bjart yfir æskuminningunum,
er ég minnist elskulegra foreldra og
systkina, sem öll vorum mjög
samrýmd.
I leik og starfi hafðir þú oftast for-
ystuna og framkvæmdir þá ýmislegt,
sem við hin höfðum ekki hugrekki til
og tókst með karlmennsku afleiðing-
unum, sem ekki þóttu alltaf heppileg-
ar.
Haustið 1921 ætluðum við bæði i
Eiðaskóla, en á miðju sumri veiktist
ég og var rúmföst um nær átta
mánaða skeið. Þetta urðu okkur mikil
vonbrigði, og vildir þú helzt hætta
einnig við skólavist. Ég man gleði
mina er þú, komst heim i jólafriinu, og
færðir mér kvæðabækur góðskáld-
anna, Jónasar Hallgrimssonar og
Kristjáns Fjallaskálds. Að mér varð
þessi reynsla,betri undirbúningur und-
ir lifið en skólaganga, er önnur saga.
Það er margs að minnast og margt
að þakka, þegar kveðja skal góðan
bróður. Engan mann hefi ég vitað eins
óeigingjarnan, eins ólatan, eins hjálp-
fúsan og gjafmildan við þá, sem hall-
oka fóru i lifinu. Ég minnist lika
samveru og sambúðar okkar i Valla-
nesi, er þú studdir mitt heimili með
ráðum og dáð, og mikilli fórnfýsi um
mörg erfið ár, þakka einnig elskusemi
þina við ungar dætur minar. Aldrei
varstu svo þreyttur eða timabundinn
bóndi, Geitdal
að þú gætir ekki sinnt kvabbi þeirra og
verið þeirra hjálparhella, ef með
þurfti, til siðasta dags. Þær þakka þér
af öllu hjarta munu ávallt minnast þin,
er þær heyra góðs manns getið.
Eftir að þú fluttir i Geitdal, voru það
okkar sólskinsstundir er þú komst i
heimsókn, jafnvel þó að sól væri af
lofti. Þér fylgdi jafnan hressandi blær
athafna, góðlyndis og glaðværðar.
Þetta þökkum við allt og einnig fjöl-
margar yndisstundir á heimili ykkar
hjónanna, þar sem gestrisnin sat i
öndvegi.
Svo lofum við Drottin sem lausnina
gaf fyrir dáðrikt lif.
Krjúptu að fótum friðarboðans
fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa Guðs um geim.
B.J.
t
Upp af einum fegursta stórdal þessa
lands, Fljótsdalshéraði, skerst dalur
einn, sem nefnist Skriðdalur, en hann
deilist aftur ofar i tvo smádali, Suður-
dal og Norðurdal. Enda þótt siðar-
nefndi dalurinn sé nefndur Norður-
dalur i daglegu tali þar eystra þá heitir
hann þó i raun réttri Geitdalur, en þá'
nafngift má annars rekja allt aftur til
Landnámu. Skiptingin milli þessára
tveggja dala orsakast af hálendisrana
er gengur hérumbil i rétt norður út frá
hásléttunni milli Héraðsins og hinna
syðri Austfjarða. Rani þessi endar i
hamrahnjúk miklum,sem heitir Múla-
kollur og bera Múlasýslurnar nafn af
honum. Ekki er sérlega viðsýnt úr
Norðurdal innanverðum af láglendi
þar eð slakkar Hallormsstaðarhálss
loka honum að vissu leyti til norðurs.
Heldur er ekki hægt að segja, að
Norðurdalur liggi, eða hafi legið, i
þjóðbraut. heldur er hann þvert á móti
einn af afskekktari dölum landsins.
Engu að siður er hann fagur og friðsæll
með silfurtærum fjallalækjum,
grænum hliðum milli lagskiptra
hamrabelta, grösugum grundum og
mýraflákum að ógÍeymdrF Norður:
dalsánni. sem getur verið allt frá
meinlausum læk að kolmórauðu
foraði, allt eftir þvi i hvaða skapi
veðurvættirnir eru.
Skriödalurinn er harðbýl sveit og
þessi staðreynd hefur vafalaust sett
merki sin á ibúa hans, sem einkum
hefur birzt i fádæma dugnaði og þó
kannske einkum seiglu þeirra. Má
nefna það til marks, að Skriðdalurinn
er tvimælalaust bezt hýstur allra
byggöarlaga á Fljótsdalshéraði og að
Skriödalsbændur hafa haft afkomu,
sem þeir þurfa svo sannarlega ekki að
skammast sin fyrir samanborið við
aðra. sem búa i öðrum og mildari
sveitum.
Innst i Norðurdal stendur stórbýlið
Geitdalur. vestan Norðurdalsárinnar,
en beint andspænis bærinn Hátún, þar
sem sá sem linur þessar ritar lifði sin
unglingsár á timabilinu 1947 til um það
bil 1957. Eins og nærri má geta var
mikill samgangur milla bæjanna og
það kom okkur Hátúnsstrákunum
mjög til góða að eiga Geitdals-
strákana. syni Snæbjörns, sem leik-
íslendingaþættir
16