Morgunblaðið - 19.02.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GLITSKÝ glöddu augu margra íbúa Suðvest-
urlands í gærmorgun. Halldór Björnsson, veð-
urfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að
glitský hafi sést víðsvegar um allt landið í vet-
ur. „Við höfum fengið tilkynningar að austan
og frá Húsavík,“ sagði Halldór við Fréttavef
Morgunblaðsins og bætir við að óvenjumikið
hafi verið um þetta í vetur. Hann segir að
glitský séu ekki algeng sjón en hafi sést mikið
að undanförnu vegna þess að óvenjukalt hafi
verið í heiðhvolfinu á norðurhjara og því kjör-
skilyrði til myndunar glitskýja.
Halldór segir að margir hafi samband við
Veðurstofuna þegar glitský sjáist. „Við fáum
líka tölvupóstsendingar með myndum,“ segir
Halldór.
Fróðleik um glitský er að finna á vefsíðu
Veðurstofunnar. Þar segir að glitský séu ákaf-
lega fögur marglit ský sem myndast í heið-
hvolfinu, gjarnan í um 15–30 km hæð.
„Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sól-
arlag eða sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er
mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini,
þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð,“
segir á vefsíðunni. „Litadýrðin þykir minna á
þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á
sumum skeljum (s.n. „perlu-móður“-lag í
perluskeljum), og eru þau í ýmsum tungu-
málum því nefnd perlumóðurský,“ segir m.a. á
vefsíðunni.
Fjöldi lesenda Morgunblaðsins sendi því
ljósmyndir af glitrandi skýjum á morgunhimn-
inum. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir
hugulsemina.
Ljósmynd/Þórir Sigurgeirsson
Gullfalleg glitský á morgunhimni
Meira á mbl.is/itarefni
PFS hafnar
kröfu um bráða-
birgðaákvörðun
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur
hafnað kröfu Og fjarskipta um
bráðabirgðaákvörðun vegna við-
skiptavina sem voru með netþjón-
ustu hjá Margmiðlun en ADSL-
þjónustu hjá Símanum. Telur
stofnunin að skilyrði fyrir bráða-
birgðaákvörðun séu ekki fyrir
hendi.
Fram kemur að fyrirtækin hafi
um nokkurt skeið deilt um hvernig
líta beri á umrætt viðskipta-
samband. Ágreiningur aðila snúist
um það hvort líta beri á við-
skiptavini sem voru með netþjón-
ustu hjá Margmiðlun en ADSL-
þjónustu hjá Símanum sem við-
skiptavini Margmiðlunar, nú Og
Vodafone, eða hvort þeir séu við-
skiptavinir Símans.
Samkvæmt kærunni hafa um níu-
tíu beiðnir ekki verið afgreiddar af
þessum sökum.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær karlmann sem við-
urkennt hefur aðild að fimm versl-
unarránum í Reykjavík fyrr í
þessum mánuði í áframhaldandi
gæsluvarðhald þar til dómur fellur
í máli hans, þó ekki lengur en til 1.
apríl.
Lögreglan í Reykjavík stefnir á
að ljúka rannsókn málsins um
helgina og verða rannsóknar-
gögnin send ríkissaksóknara að því
loknu. Mun hann taka ákvörðun um
hvort maðurinn verði ákærður fyr-
ir ránin.
Áfram í gæslu
vegna rána
Rúmlega 50
vilja starfið
MIKILL áhugi er á stöðu fram-
kvæmdastjóra starfsvettvangs um
hönnun. Samkvæmt frétt frá iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu sótti
51 um starfið. Meginmarkmið vett-
vangsins er að efla þróun og ímynd
íslenskrar hönnunar á alþjóðlegum
vettvangi.
Um er að ræða þriggja ára þró-
unarverkefni sem hefur það hlut-
verk að staðfesta gildi hönnunar
fyrir íslenskt atvinnulíf og sam-
keppnishæfni þess, segir í frétt
ráðuneytisins.
Aðstandendur vettvangsins eru
FORM-Ísland, iðnaðarráðuneyti,
Reykjavíkurborg, Útflutningsráð,
Impra og Samtök iðnaðarins.
sjónvarpsstöðvum. Póst- og fjar-
skiptastofnun hefur nýlega ákveðið
að bjóða út rásir fyrir stafrænt sjón-
varp á UHF-tíðnisviðinu.
Fjallað er um þetta mál á vefnum
bb.is, en þar kemur m.a. fram að
Stöð 2 ætli sér að uppfæra alla nú-
verandi senda á landinu á einu ári yf-
ir í stafrænt form og með því gefist
tækifæri á því að fjölga til muna
þeim sjónvarpsrásum sem í boði séu
á landsbyggðinni.
Nægilegt rými
Ákvæði útvarpslaga getur þó sett
strik í reikninginn þegar kemur að
því að senda út erlendar sjónvarps-
rásir en þar er kveðið á um að „við-
stöðulaust, óstytt og óbreytt endur-
varp heildardagskrár erlendra
ÍSLENSK stjórnvöld telja að ekki
verði séð að knýjandi þörf sé á því að
viðhalda algeru banni á endurvarpi á
hefðbundnum sjónvarpsrásum eftir
að stafrænt sjónvarp hefur verið inn-
leitt hér á landi. Þetta kemur fram í
bréfi sem samgönguráðuneytið
sendi Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
vegna fyrirspurnar frá stofnuninni
um endurvarp erlendra sjónvarps-
stöðva með UHF-tækni. Bréfið er
sent í samráði við menntamálaráðu-
neytið.
ESA sendi fyrirspurn til íslenskra
stjórnvalda vegna ákvæðis í útvarps-
lögum sem bannar endurvarp er-
lendra sjónvarpsstöðva með UHF-
tækni. Sú tækni gerir kleift að sjón-
varpa mun fleiri rásum en með
núverandi tækni þ.m.t. erlendum
sjónvarpsstöðva skal einvörðungu
heimilað um þráð og/eða þráðlaust
um örbylgju“. Þetta þýðir að verði
útvarpslögum ekki breytt má ekki
endurvarpa beint erlendum sjón-
varpsstöðvum með UHF-tíðni.
„Þegar umrætt ákvæði var sett í
lög var rými á þessari tíðni mjög lítið
og því þótti rétt að setja skorður við
því að hugsanlega gætu erlendar
sjónvarpsstöðvar náð þessu tíðni-
sviði og þar með væri ekki pláss til
útsendinga á innlendum stöðvum.
Með aukinni tækni er nú hægt að
endurvarpa mörgum stöðvum á
hverri rás og því má segja að upphaf-
legar röksemdir eigi ekki við lengur.
Á Faxaflóasvæðinu er fjölda er-
lendra sjónvarpsstöðva endurvarp-
að. Þar er hinsvegar notuð örbylgja
og nú nýverið hóf Síminn að endur-
varpa erlendum sjónvarpsstöðvum
með ADSL-tækni,“ segir í frétt bb.is
um þetta mál.
Í bréfi samgönguráðuneytisins til
ESA um þetta mál, sem sent er í
samráði við menntamálaráðuneytið,
segir: „Ekki verður séð að knýjandi
þörf sé á því að viðhalda algeru banni
á endurvarpi á hefðbundnum sjón-
varpsrásum eftir að stafrænt sjón-
varp hefur verið innleitt hér á landi.
Þó þarf að vera tryggt að ákveðinn
lágmarksfjöldi sjónvarpsrása sé til
staðar fyrir innlendar dagskrár.“
Samkvæmt upplýsingum úr sam-
gönguráðuneytinu hefur engin
ákvörðun verðið tekin um hvort lagt
verður til við Alþingi að lögunum
verði breytt.
Ekki knýjandi þörf að viðhalda
algeru banni á endurvarpi
NÁMSKEIÐ um vesturfarana sem Mímir símenntun
heldur í samstarfi við Borgarleikhúsið hefur slegið í
gegn í vetur að sögn Sigríðar Einarsdóttur verkefna-
stjóra hjá Mími. Um 100 manns sóttu námskeiðið fyrir
áramót og nú eru um 30 manns á námskeiðinu en Böðvar
Guðmundsson, höfundur bókanna sem leikritið Híbýli
vindanna er m.a. byggt á, er meðal fyrirlesara á nám-
skeiðinu. Þá hefur áhugi á japönsku meðal yngri kyn-
slóðarinnar stóraukist undanfarin misseri.
Sigríður segir að námskeið Jóhönnu Kristjónsdóttur
blaðamanns og rithöfundar, Menningarheimur araba,
hafi einnig verið mjög vinsælt og færri komust að en
vildu í vetur. Jóhanna hefur einnig kennt arabísku hjá
Mími og hafa Íslendingar brugðist vel við því.
Að sögn Sigríðar eru tungumálanámskeið stærsta
deild Mímis og vinsældir ítölsku, spænsku og ensku eru
og hafa verið miklar undanfarin ár. Núna hefur hins veg-
ar áhugi ungs fólks og unglinga á japönsku tekið kipp og
telur Sigríður að skýringin sé áhugi unga fólksins á jap-
önskum teiknimyndum.
Matreiðslunámskeið hafa einnig verið vinsæl í vetur,
t.d. námskeið í indverskri matargerð og marokkóskri.
Þá er mjög mikil ásókn í námskeið Kristins R. Ólafs-
sonar fréttaritara í Madríd um þá borg. Er námskeiðið
haldið í samstarfi við ferðaskrifstofu. Segir Sigríður að
margir komi á námskeiðið og fái svo leiðsögn Kristins í
Madríd sumarið eftir.
Sigríður nefnir að svo virðist vera sem Íslendingar séu
sífellt að fá meiri áhuga á hönnun og skipulagi því nám-
skeið sem fjallar um það efni og Hrönn Sævarsdóttir
innanhússarkitekt heldur, er mjög vinsælt. Konur eru í
miklum meirihluta þeirra sem sækja námskeiðin.
Mikill áhugi á vesturförum,
japönsku og framandi matargerð