Andvari - 01.01.1939, Side 22
18
Tryggvi Þórhallsson
Andvari
Með konu sinni, sem fyrr var geiið, átti hann sjö börn:
Klemens, Valgerði, Þórhail, Agnar, Ðjörn, Þorbjörgu og
Onnu Guðrúnu.
VII.
Fjörutíu og sex ár er ekki löng ævi, að því sem venju-
lega er talið. Það mun nú sannast, að þeir, sem lítt eða
ekki hafa afrekað fram til þess tíma ævi sinnar, muni
ekki vinna margt sér til ágætis, þótt þeim treynist ald-
ur enn um stund. En því meiri eftirsjá er að þeim mönn-
um, er svo ungir deyja frá miklum störfum og óloknum
ætlunum. Það varð hlutskipti Tryggva Þórhallssonar að
deyja á ungum aldri. Eigi að síður mun hans lengi
minnzt semeinsaf helztu áhrifamönnum merkilegs tíma-
bils í sögu þjóðarinnar. En einkum og sér í lagi verður
nafn hans tengt við straumhvörf þau, sem orðið hafa í
búnaði landsmanna. Þannig skyldi hann sjálfur hlutverk
sitt í íslenzkum stjórnmálum, og frá því markmiði kvikaði
hann aldrei.
Það hefir verið sagt um Tryggva Þórhallsson, að i
honum hafi verið efni í ágætan skólamann, og snjallan
sagnfræðing. Það er efalaust, að hann var ágætur kenn-
ari og olli þar miklu um framkoma hans, sem einkum
var mörkuð eðlilegri glaðværð, krafti og fjöri, sem örv-
aði alla. er á mál hans hlýddu. Þessara hæfileika naut
hann líka í stjórnmálastarfi sínu í ríkum mæli. Hann
var fríður sýnum og mikill á velli og þótti snemma hinn
glæsilegasti maður og laðaði þetta enn að honum menn.
Hann var félagslyndur og undi sér vel innan um marg-
menni og var þar jafnan hrókur alls fagnaðar. Kemur
hér skýrt í ljós, hve honum svipaði til föður síns um allt
þetta, og glögg áhrif frá hinu mannmarga æskuheimili
hans. En hitt olli vafalaust miklu, að hann var ungur