Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 91
Andvari
Blóm og aldin
87
an byr í seglin, verða þau helzt að vera allhátt frá
jörðu, enda eru slík aldin einna algengust á trjám. Þá
eru Ioks allmörg fræ og aldin, þar sem þyngdarpunkt-
urinn liggur utan miðlínu þeirra. Þegar þau fljúga,
hreyfast þau í alls konar vindulínum um leið og þau
snúast um sinn eigin ás. Margt fleira mætti telja um
aldin þessi, en þessi dæmi verða að nægja. Annars má
geta þess um vindsáningaraldin sem heild, að þau eru
létt, og oftast ósjáleg.
Þess var áður getið, að ýmis fræ dreifast eftir slétt-
um ís eða hjarni. Standa þær aldinskipanir oftast á há-
um stilk, sem brotnar af, þegar fram á veturinn kemur,
og geta slíkar aldinskipanir eða aldinin sjálf oft borizt
ótrúlega langar leiðir með þessu móti, t. d. yfir frosin
höf. A líkan hátt geta fræ og aldin oft borizt eftir víð-
lendum sléttum um alllangar leiðir.
Lítill vafi þykir leika á því, að vinddreifing fræjanna
er einhver mikilvægasti þáttur þess, að dreifa plöntun-
Uni um víða veröld, oft um ótrúlega langur leiðir. Það
er þannig furðu áberandi, hve mikill hluti plantna á
Ymsum eylöndum dreifir fræjum sínum með vindi. Bend-
,r slíkt óneitanlega í þá átt, að þessar tegundir hafi
tyrst náð þangað loftleiðis. Annars eru gáturnar um
landnám plantnanna mjög óráðnar enn, þrátt fyrir að
margir hinna ágætustu vísindamanna hafa rannsakað þá
^uti af kappi.