Andvari - 01.01.1939, Síða 107
Andvari
íslenzkt þjóðerni
103
virðast þó menn frá Norður-Noregi hafa byggt Aust-
firði og flestir vera frá Þrándheimi, en þó einnig all-
wargir frá Vors á Hörðalandi. Bendir margt til þess, að
á Vors hafi sænskar ættir tekið sér setu nokkru áður
en ísland byggðist, og má víst í því sambandi benda á
®ttir Hörða-Kára og Þorviðar Freyviðarsonar. Af fyrr-
nefndu kyni er Úlfljótur, fyrsti lögsögumaðurinn, talinn
að vera.
Svo sem kunnugt er, gáfu hinir gömlu íslenzku sagna-
ntarar þá skýringu á útflutningi manna frá Noregi til
íslands, að Haraldur konungur hafi tekið óðalsréttinn af
basndum og eignað sér allar jarðir í Noregi. »Undan
slíkri áþján og órétti flýðu hinir stærri bændur og höfð-
■ngjar land, þeir er ekki vildu gerast Ieiguliðar konungs*.
Þannig hljóðar þessi merkilega skýring á meginorsökinni
M þess, að ísland byggðist úr Noregi. Nú er það öld-
ungis víst, að íslenzku sagnaritararnir á 13. öld hafa
vitað góð skil á því, að óðalsréttur gilti í Noregi og að
svo hafði verið um ómunatíð. Snorri Sturluson telur því
Úákon Aðalsteinsfóstra veita bændunum óðalsrétt að
nvju og hin fornu óðöl sín. Þannig reynir hann að bjarga
við kenningunni um það, að landnámsmenn íslands hafi
Hfiið Noreg, sökum þess að þeir hafi ekki viljað vera
leiguliðar Haralds konungs. Vér sjáum, að það er engin
tilviljun, að Snorri hyggur það hafa verið Hákon kon-
Un9. sem gaf bændunum aftur óðölin. Hann tók einmitt
t<onungdóm um það bil sem landnámum lauk á íslandi
°9 var talinn hinn mesti löggjafi.
^að má heita sjálfgefið, að sú gamla kenning er röng,
Haraldur konungur hafi svipt þegna sína óðölum
teirra. Ef hann hefði reynt að koma fram slíku ofbeldi
9e9n yfirstétt landsins, mundi konungdómi hans hafa
Verið lokið á samri stundu. Hinir beztu fræðimenn hafa