Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Blaðsíða 70
SKIPT U M SKOÐUN
undanfarna áratugi. Á Mynd 1 sést að um 1960 útskrifast álíka margir með sveins-
próf og stúdentspróf, en árið 1990 eru sveinsprófin aðeins um fjórðungur saman-
lagðra útskrifta.8 Fyrir hópinn, sem fæddur er 1969, virðist þetta hlutfall ætla að
verða talsvert lægra.
Það vekur athygli í Töflu 1 hve fáar skráningar eru á starfsnámsbrautir aðrar en
iðnnámsbrautir, en það má deila um hvar á að flokka sumar styttri bóknáms-
brautirnar, t.d. viðskiptabraut, sem hér er flokkuð sem almenn bóknámsbraut.
Til þess að átta sig betur á fyrstu skráningum nemenda á brautir er í Töflu 2 sýnt
hvernig nemendur skiptast á skóla og brautir. Skólum er hér skipt í fjóra flokka, þ.e.
fjölbrautaskóla, almenna bóknámsskóla, starfsmenntunarskóla og framhalds-
Tafla 2
Yfirlit yfir fyrstu skráningar og samantekt á námsferli
Fyrsta skráning Fjöldi* % Hafa lokið (%) stúd. prófi iðn- prófi af st.br. námi starfs- námi Eink. i samr. pr.
Fjölbrautaskólar bóklegt nám 1322 39,1 39,3 8,7 3,6 2,9 6,0
iðnnám 214 6,3 5,2 3,3 20,0 3,3 5,0
annað starfsnám 25 0,7 4,2 4,2 8,3 20,8 4,9
Bóknámsskólar (menntaskólar) 1238 36,6 67,6 2,7 2,4 1,9 6,9
Starfsm.skólar iðnnám 275 8,1 1,5 2,7 27,4 1,5 4,6
annað starfsnám 69 2,0 0,0 1,6 4,8 46,8 5,2
Framhaldsdeildir grunnskóla 221 6,5 27,9 6,6 8,1 7,6 5,5
Allir 3364 100,0 42,7 5,3 6,5 3,6 6,1
* Heildarfjöldi nemenda sem skrá sig er tæplega 3400 en sjaldnast er
hægt að sýna skiptingu alls þess hóps vegna þess að upplýsingar
vantar um ýmis atriði. Svolítið breytilegur fjöldi liggur því að baki
þeim meðal- og hlutfallstölum sem hér eru birtar, t.d. voru upplýs-
ingar um einkunnir í samræmdum prófum frá 3164 af þeim nemend-
um sem hér eru til athugunar. Þetta breytir í engu heildarmyndinni.
8 Tölur fengnar hjá menntamálaráðuneytinu (júlí 1994).
68