Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Blaðsíða 112

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Blaðsíða 112
ER SÉRKENNSLA TIL ÓÞURFTAR? Gagnrýni heiltæku stefnunnar beinist bæði að skipulagi og framkvæmd sér- kennslu, og einnig að því hugarfari sem fullyrt er að einkenni sérkennslustarf. Verða nú nefnd nokkur atriði gagnrýninnar eins og hún birtist í ritum Ainscow (1991 og 1992) og Kristínar Aðalsteinsdóttur (1993). Flokkun nemenda í samstæðar heildir m.t.t. kennslu og náms hefur, eins og fram hefur komið, lengi verið talinn eðlilegur og sjálfsagður þáttur í sérkennslu. Slík flokkun er harðlega gagnrýnd þar sem hún er talin fela í sér félagslega mismunun. Náms- og kennslufræðileg greining á vanda nemenda var líka löngum talin nauðsynlegur undanfari sérkennslu og var litið svo á að með henni væri markviss og skilvirk kennsla best tryggð. Þessi þáttur er einnig talinn fela í sér mismunun og skerða möguleika sérkennslunemenda til að læra það sama og önnur börn. Sérkennsla er gagnrýnd fyrir árangursleysi þótt erfitt sé að gera sér grein fyrir því hvort þá sé átt við námsárangur eða önnur uppeldisleg markmið sem skólastarf hlýtur að taka mið af og lög gera ráð fyrir að skólar sinni ekki síður en hinu bókega og verklega námi. Ágreiningur um hver sé orsök vandans, sem sérkennslunni hefur verið falið að glíma við, hefur líka verið í brennidepli umræðunnar. Þeir talsmenn heiltæku stefn- unnar sem telja að „vandamálin" eða „námsörðugleikana" sé ávallt unnt að rekja til umhverfisins, og þá fyrst og fremst til kennaranna, fullyrða að fram til þessa hafi það verið algengast innan sérkennslunnar að líta svo á að „vandinn" lægi fyrst og fremst hjá nemandanum. Fullyrt er að annarra skýringa sé ekki leitað. Með breyttri náms- og kennsluskipan (gjarnan í tengslum við þróunarstarf í skólum) sé hins vegar hægt að finna lausnir á öllum vandamálum og kenna öllum nemendum í al- mennum bekkjardeildum. TIL UMHUGSUNAR Við athugun á gagnrýni heiltæku stefnunnar verða strax eftirfarandi tvær spurn- ingar talsvert áleitnar: - í fyrsta lagi: Á sérkennsla rétt á sér - eða er hún e.t.v. gagnslaus eða jafnvel skaðleg börnum? - íöðru lagi: Ef sérkennsla er prátt fyrir allt talin eiga rétt á sér - hvar á hún pá að fara fram ? Áður en lengra er haldið verður staldrað ögn við þessar spurningar. Hvað fyrri spurninguna varðar eru það fyrst og fremst þeir sem ganga lengst í gagnrýni sinni á núverandi fyrirkomulag sérkennslu sem halda því fram að sérkennsla komi nem- endum að litlum notum eða sé beinlínis skaðleg. Þeir líta á sérkennsluna sem rót þess vanda sem við er að glíma í skólum þegar í hlut eiga börn sem þurfa á meiri aðstoð að halda en gengur og gerist. Meðan sérkennarar eru við störf og annast kennslu utan við almenna bekkjarkennslu eða inni í bekknum er talið að almennir kennarar finni sig ekki knúna til að taka á sig ábyrgð á kennslu þessara nemenda og telji sig skorta nægilega kunnáttu til þess. Þegar því er beinlínis haldið fram að sérkennsla geti verið nemendum til tjóns þar sem hún standi eðlilegri þróun innan skólanna fyrir þrifum er e.t.v. ekki um 110
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.