Morgunblaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2010
✝ Árni Freyr Guð-mundsson fæddist
29. apríl 1981. Hann
lést af slysförum 22.
október 2010.
Foreldrar Árna
Freys eru Guð-
mundur Jónsson, f.
31. október 1945, og
Ruth Árnadóttir, f. 1.
september 1949.
Systkini Árna Freys
eru: Árni Signar, f. 1.
janúar 1967, d. 21.
ágúst 1972. Stúlka, f.
15. apríl 1970, d. 16.
apríl 1970. Jón Örn, f. 30. sept-
ember 1971, dóttir Jóns er Bríet, f.
17. júní 2007, barnsmóðir hans er
Bryndís Hauksdóttir. Guðrún, f. 5.
janúar 1974, hennar sonur er Daní-
el Guðmundur, f. 2. mars 1996, fað-
ir Daníels var James Sean Nicholl,
d. 28. apríl 1998, unn-
usti hennar er Kjart-
an Sigurðsson.
Unnusta Árna
Freys er Auður Dögg
Bjarnadóttir, f. 10.
mars 1986.
Árni Freyr ólst upp
í Hafnarfirði. Eftir að
grunnskólanámi lauk
stundaði hann nám
við Flensborgarskóla
og Iðnskólann í Hafn-
arfirði en var jafn-
framt á sjó á sumrin.
19 ára gamall ákvað
hann að gera sjómennsku að ævi-
starfi sínu. Voru þeir feðgar sam-
skipa á togaranum Venusi alveg
fram á hans síðasta dag.
Útför Árna Freys fer fram frá
Víðistaðakirkju í dag, 2. nóvember
2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Elsku hjartans drengurinn okkar,
þessi sálmur er okkar hinsta kveðja
til þín.
Guð leiði þig, mitt ljúfa barn,
þú leggur út á mikið hjarn
með brjóstið veikt og hýrt og hlýtt,
og hyggur lífið sé svo blítt, -
Guð leiði þig.
Guð leiði þig, en líkni mér,
sem lengur má ei fylgja þér.
En ég vil fá þér englavörð,
míns innsta hjarta bænargjörð;
Guð leiði þig.
Guð verndi þig. En vak og bið
og varðveit, barn, þinn sálarfrið.
Á herrans traustu hönd þig fel.
Ef hann er með, þá farnast vel.
Guð leiði þig.
Guð leiði þig. Hans lífsins vald
á lög og jörð og himintjald,
hans auga sér, hans armur nær
um allan geiminn nær og fjær.
Guð leiði þig.
(Þýð. M. Joch.)
Mamma, pabbi, Jón Örn
bróðir og Bríet frænka.
Ég sit og hugsa um þig og hve lífið
er stundum ótrúlega ósanngjarnt. Af
hverju er tuttugu og níu ára gamall
strákur sem var yndislegur bróðir og
frábær vinur dáinn svona alltof
snemma? Af hverju breyttist
skemmtiferðin okkar í martröð? Við
sem höfðum hlakkað svo mikið til að
skemmta okkur saman í útlöndum.
Líklega fæ ég aldrei svör við þessu og
af hverju þú varst tekinn frá mér, en
eitt er víst að þín verður sárt saknað
og minningin um þig á eftir að lifa í
hjarta mínu.
Ég var sjö ára þegar þú fæddist og
um leið og ég sá þig fór mér að þykja
vænt um þig. Þú varst strax algjör
prakkari og ótrúlega stríðinn en ég
átti samt alltaf auðvelt með að fyr-
irgefa þér. Þú varst alltaf svo geðgóð-
ur og allir vildu vera vinir þínir, en í
þessi fáu skipti sem þú varst ósáttur
fórstu inn í herbergi og þagðir þang-
að til þú varst búinn að jafna þig. Þeg-
ar þú stækkaðir deildum við sömu
áhugamálum. Á unglingsárunum
spilaðir þú handbolta með FH og síð-
asta árið sem þú spilaðir handbolta
varstu valinn besti leikmaður deild-
arinnar. Við vorum bæði harðir
stuðningsmenn FH í fótbolta og fé-
lagar í FH-mafíunni. Þó héldum við
hvort með sínu liðinu í enska boltan-
um, ég með Arsenal, en þú varst
sannur Liverpool-aðdáandi, sama
hvernig gekk hjá liðinu. Með árunum
hvarf aldursmunurinn á okkur og við
vorum einstakir vinir þó að við hefð-
um oft ólíkar skoðanir á hlutunum. Þá
voru málin krufin og við vorum bæði
fullviss um það að við hefðum bæði
rétt fyrir okkur. En alltaf vorum við
samt sammála um lélega dómgæslu,
þegar FH gekk illa í leikjum, og eng-
inn hrópaði hærra en við þegar vel
gekk. Ár eftir ár sátum við í stúkunni
og hvöttum strákana okkar, ekkert
veður var svo slæmt að við færum
ekki á völlinn. Nú verðum við Danni,
sonur minn, og ég að hrópa fyrir þig
líka enda hefðir þú gert það sama fyr-
ir okkur.
Allt frá því að ég eignaðist Danna
hefur þú reynst honum frábærlega og
stutt hann eins og besti stóri bróðir.
Þú kenndir honum að spila fótbolta
eins og sönnum FH-ingi sæmir og það
er búið að vera ómetanlegt að hafa þig
við hlið sér. Við Danni eigum eftir að
rifja upp allar stundirnar sem við átt-
um öll saman.
Ég get ekki hugsað mér lífið án þín
en reyni að rifja upp allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman. Eitt veit
ég þó, að þú varst einstakur og ég
mun aldrei gleyma þér.
Góða nótt, litli bróðir. Hittumst síð-
ar.
Þín
Guðrún.
Elsku vinur minn – elsku mágur
minn Árni Freyr er dáinn.
Hann var vinur minn hann Árni
Freyr, besti skipsfélagi sem ég hef
átt, búnir að vera saman til sjós í þrjú
ár. Minningarnar um þig elsku vinur
minn eru svo ótal margar. Við fórum
saman í ræktina og þú sagðir alltaf
„við verðum flottastir“ eða „við erum
flottastir“. Það var alltaf stutt í grínið
í samskiptum okkar. En líka á hinn
veginn, þú varst alltaf til staðar Árni
Freyr sem vinur og skipsfélagi, hvar
sem við vorum. Um borð í skipinu
okkar áttum við margar góðar sam-
ræður á einlægum nótum og við gát-
um rætt okkar dýpstu mál, þú varst
sannur vinur sem ég gat rætt um allt
við og við náðum svo vel saman. Þín
verður sárt saknað elsku vinur minn
og það verður mikið tómarúm að hafa
þig ekki elsku Árni Freyr um borð í
Venus. Þú ert og varst Venus.
Hann varð líka seinna mágur minn,
eftir langa vináttu okkar kynntist ég
stóru systur hans í gegnum hann. Þá
sagði Árni Freyr við mig: „Við erum í
sama liði, enda ertu með systur
minni,“ mér fannst hann vera stoltur
með þennan ráðahag. Árni Freyr
gerði mig líka að FH-ingi, enda ekk-
ert annað í boði hjá FH-fjölskyldunni
í Þrastarásnum. Árni tók mig með sér
á fyrsta FH-leikinn minn og í FH-
treyju mætti ég með honum Árna
Frey vini mínum og mági á bikarúr-
slitaleikinn á þessu ári. Við unnum
hann líka, og þessi stund okkar saman
þá er ein af mörgum ómetanlegum
minningum sem ég á um Árna Frey.
Þakka þér elsku vinur minn og
mágur fyrir samfylgdina. Þakka þér
fyrir sanna vináttu, samvinnuna, sam-
ræðurnar okkar, þakka þér fyrir að
hafa alltaf verið til staðar fyrir mig.
Nú þarf ég að kveðja þig og vera
sterkur og stór, vera í sama liðinu, en
án þín. Ég breiði mig yfir fjölskylduna
okkar Árni Freyr minn og við stönd-
um saman sem eitt og styrkjumst í
sorginni með fallegum minningum um
þig.
Hvíldu í friði.
Þinn vinur og mágur,
Kjartan.
Elsku Árni, frændi og umfram allt
vinur. Seinustu dagar hafa verið í
móðu, það gerðist allt svo hratt að ég
hef ekki náð áttum og er enn að reyna
að átta mig á hlutunum, átta mig á því
að þú ert í raun farinn.
Það er svo erfitt að skilja af hverju
lífið tók þig svo fljótt frá okkur. Svo
ungur og lífsglaður; ég hef minning-
arnar.
Ég man þegar ég var lítill snáði og
þú og Haffi bróðir voruð að passa mig.
Ég þóttist vera sofnaður og þið tókuð
mig upp og ætluðuð að bera mig inn í
rúm. Þegar þið voruð að bera mig
fannst mér það rosa fyndið að opna
augun og láta ykkur bregða og þið
misstuð mig í gólfið. Það var fyndið.
Ég hlakkaði alltaf svo til að koma í
heimsókn til ykkar, fá að leika með
dótið þitt. Mér fannst þú nettasti
frændi í heimi. Ef það væri ekki fyrir
þig þá mundi ég ekki fíla 2pac sem
væri glatað.
Þú varst alltaf hressi gaurinn,
komst inn í dautt partí og gast rifið
upp stemninguna án þess að hafa fyr-
ir því.
Við vorum saman á sjó í 9 ár. Ég
man þegar ég byrjaði á sjónum sem
messatittur.
Við höfðum ekki verið í miklu bandi
í nokkur ár nema í einstaka fjöl-
skylduboðum en þú tókst mig strax
undir þinn verndarvæng og ólst mig
Árni Freyr
Guðmundsson
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum Hringbraut
laugardaginn 30. október.
Jarðarför auglýst síðar.
Konráð Ó. Kristinsson,
Sigurður Konráðsson, Kristín Jóhanna Harðardóttir,
Halldór Konráðsson, Þóra Þórhallsdóttir,
Konráð Konráðsson, Bryndís Hinriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
INGI R. JÓHANNSSON
löggiltur endurskoðandi
og skákmeistari,
Sævargörðum 2,
Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landakots laugardaginn
30. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
8. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Sigþrúður Steffensen og fjölskylda.
✝
Elskulegi faðir okkar, afi, sonur, bróðir, mágur og
vinur,
GUÐMUNDUR TEITUR GUÐBJÖRNSSON
frá Svalbarði á Vatnsnesi,
andaðist sunnudaginn 24. október. Útförin fer fram
frá Tjarnarkirkju föstudaginn 5. nóvember kl.14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörn Breiðfjörð og
Sigurlaug Helga Árnadóttir.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HENNING FINNBOGASON,
Ljósheimum 18,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
30. október.
Birgir Henningsson, Ómar Henningsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN ÞÓRHILDUR GUÐBRANDSDÓTTIR,
Mosgerði 14,
Reykjavík,
lést á Landakoti laugardaginn 30. október.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
8. nóvember kl. 13.00.
Arnór G. Jósefsson,
Sigursteinn Jósefsson, Ólöf Hilmarsdóttir,
Reynir Jósefsson, Unnur Bergþórsdóttir,
Ólafur G. Jósefsson, Anna María Markúsdóttir,
Arndís Jósefsdóttir, Jón Ragnarsson,
börn, barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og
langafi,
SVAVAR BERGMANN INDRIÐASON,
Eyrarvegi 27,
Selfossi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
mánudaginn 1. nóvember.
Útför auglýst síðar.
Jónína Valdimarsdóttir,
Bryndís Ágústa Svavarsdóttir, Gestur Jens Hallgrímsson,
Sigurður Bergmann Svavarsson, Þorbjörg Skúladóttir,
Kristín Sigurðardóttir, Kári Sigurbjörn Lárusson,
Ingibjörg Kristín Gestsdóttir,
Ásthildur Helen Gestsdóttir,
Sædís Svava Gestsdóttir,
Kolbrún Stella Gestsdóttir,
Jens Ingi Gestsson,
Gestur Bergmann Gestsson,
Dagmar Sigurðardóttir,
Hrönn Sigurðardóttir,
Íris Sigurðardóttir,
Veronika Líf Guðbjartsdóttir,
Bryndís Rósa Árnadóttir,
Ólöf Kristín Árnadóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir afi, og langafi,
SÆMUNDUR KRISTINN KLEMENSSON,
Vatnsholti 7a,
Reykjanesbæ,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut,
fimmtudaginn 28. október.
Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju, fimmtudaginn
4. nóvember kl. 15.00.
Soffía G. Ólafsdóttir,
Ólafur Gunnar Sæmundsson,Hjálmfríður Kristinsdóttir,
Klemenz Sæmundsson, Katrín Sigurðardóttir,
Hlíðar Sæmundsson,
Guðjónína Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.