Fréttablaðið - 08.05.2012, Side 1
veðrið í dag
STJÓRNSÝSLA Embætti ríkisskatt-
stjóra vísaði málefnum sex félaga
sem ekki skiluðu ársreikningum
vegna ársins 2010 til frekari rann-
sókna hjá skattrannsóknarstjóra.
Öll félögin teljast stór í skilningi
reglna um ársreikningaskil.
Alls á 3.541 félag sem skráð er á
Íslandi, að frádregnum þeim sem
hafa orðið gjaldþrota eða búið er
að afskrá, eftir að skila inn árs-
reikningum vegna ársins 2010.
Auk þess eiga 1.897 félög eftir
að skila inn reikningum vegna
ársins 2009, 1.594 vegna ársins
2008 og 886 vegna ársins 2007.
Þetta kemur fram í svari em-
bættis ríkisskattstjóra við fyrir-
spurn Fréttablaðsins um málið.
Í reglugerð um ársreikninga-
skil kemur fram að félög þurfi
að skila ársreikningi eigi síðar
en átta mánuðum eftir lok hvers
reikningsárs. Þau félög sem gera
upp á hefðbundnu almanaksári
hafa því tækifæri út ágúst ár
hvert til að skila inn ársreikn-
ingi. Hafi hann ekki borist árs-
reikningaskrá innan tilskilins
frests er skorað á umrætt félag
að bæta úr vanskilum sínum
innan 30 daga. Skili það ekki
árangri á ársreikningaskrá að
leggja 250 þúsund króna fésekt
á umrætt félag. Ef félag skilar
ekki ársreikningi í tvö eða fleiri
reikningsár hækkar fjárhæðin
upp í 500 þúsund krónur fyrir
hvert ár.
Samkvæmt lögum er hægt
að vísa málum stærri félaga
til málsmeðferðar hjá embætti
skattrannsóknarstjóra. Til að
félag teljist stórt verður það að
uppfylla tvö af þremur stærðar-
mörkum; að eiga eignir sem nema
meira en 230 milljónum króna,
vera með rekstrartekjur sem
eru meiri en 460 milljónir króna
eða vera með yfir fimmtíu starfs-
menn.
Flest einkahlutafélög á Íslandi
eru stofnuð til eignaumsýslu, með
til dæmis hlutabréf, og hafa því
hvorki rekstrartekjur né marga
starfsmenn. Þau falla því ekki í
flokk stórra félaga. Einu úr ræðin
sem hægt er að beita slík félög
eru ofangreindar sektir.
Því var beitt í fyrsta sinn
vegna vanskila á árs reikningum
ársins 2009. Þær sektir voru
lagðar á í maí í fyrra og alls voru
3.296 félög beitt fésektum. Ekki
hefur enn verið sektað vegna
vanskila á ársreikningum vegna
rekstrarársins 2010. Í svari ríkis-
skattstjóra við fyrirspurn Frétta-
blaðsins kemur hins vegar fram
að búast megi við því að ákvarðað
verði um sektir í upphafi júní-
mánaðar. -þsj
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
skoðun 14
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Skólar & námskeið
veðrið í dag
8. maí 2012
107. tölublað 12. árgangur
HÖFUM VARANN Á ÚF-stuðull (UV-index)
mælir áhrif útfjólublárra geilsa á húðina. Því hærri
stuðull þeim mun minni viðveru í sólinni þolir húðin.
Á heimasíðu Húðlæknastöðvarinnar má sjá hver ÚF-
stuðullinn er hverju sinni. Sé hann 1-2 er sólarvörn
ekki nauðsynleg en um leið og hann er kominn upp í 3
eða meira þarf að nota sólarvörn, sólgleraugu og hatt og
jafnvel forðast sólina alveg.
M ágkona mín dró mig með sér í þetta. Sonur hennar var að æfa þarna og hún vildi aðeins kanna umhverfið sem kom svo í ljós að var hið besta. Ég kom þarna alveg til-búin í fínu íþróttaskónum mínum en sá svo að þarna voru fjörutíu til fimmtíu manns, sveittir að æfa berfættir á ein-hverjum dýnum. Ég hef lengi verið með mikla táfóbíu sem einkennist af því að ég get varla horft á tær hvað þá knálægt þ
Hafrún lætur mjög vel af námskeið-unum hjá Mjölni og andrúmsloftinu þar. Hún segir það vera það skemmti-legasta sem hún hafi prófað síðan hún
hætti í handboltanum en Hafrún er fyrr-
verandi landsliðskona í handbolta. „Ég
er í Víkingaþreki sem eru hefðbundnar
þrekæfingar samansettar á alls kyns máta. Maður notar mikið eigin þyngdketilbjöllu É
Boston
leður
svart, hvítt st. 35-48rautt st. 36-42blátt st. 36-47
Roma
Rúskinn
lj.blátt d.blátt 36-42
Monako
leður
svart, hvítt
rúskinn og
microfib.
st. 36-46
Paris
leður
svart, hvítt,
blátt
m/microfib og rúskinnssóla
st 36 42
Verð: 11.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 10.900 kr.
Verð: 6.990 kr.
teg SUGAR - rosalega fallegur og fæst í A, B, C, D skálum á kr. 8.680,-
Vel fylltur og glæsilegur
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga
TÁFÓBÍAN AFTRAÐI HENNI EKKIÆFIR Á TÁNUM Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur hefur undanfarið stundað
Víkingaþrek hjá Mjölni af kappi. Þar æfa allir berfættir.
Heilsusetur Þórgunnu552 1850 / 896 9653 · www.heilsusetur.is
Viðurkenndur sérmenntaður kennari með 20 ára reynslu
NÁMSKEIÐ ÍANDLITSNUDDI & INDVERSKU HÖFUÐNUDDI27 nóvember frá kl. 11.00 til 15.00
Upplýsingar í síma 896-9653 og á www.heilsusetur.is.il · . il .i
f l. . til .
l i í í . il .i .
laugardaginn 12. maí frá kl 11-15:00
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • .ise irberg
Rodalon sótthreinsun• Gegn myglusveppi• Eyðir lykt úr fatnaði
ÞREKÆFINGAR Hafrún æfir Víkingaþrek í Mjölni þar sem vel er tekið á því.
MYND/ERNIR
Kynningarblað Kindle eykur námsáhuga, skólaganga kvenna, faglegt söngnám, konur fjölmennar í háskólum, leiðsögumannanám, ofmetnar bækur.
SKÓLAR
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
&NÁMSKEIÐ
KLIFRAÐ HÆRRA Svanhildur Hlíf, Sunneva Björk og Þorbjörg
Salka skemmtu sér við að klifra í höggmyndinni Saltfiskstöflun eftir Sigur-
jón Ólafsson við Tækniskólann í veðurblíðunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sumartilboð
Fosshótela!
BÓKAÐU Á FOSSHOTEL.IS EÐA Í SÍMA 562 4000
EX
PO
•
w
w
w
.e
xp
o.
is
www.listahatid.is
Sex félög til
skattrann-
sóknarstjóra
Á fjórða þúsund félög hafa ekki skilað ársreikningi
vegna ársins 2010. Félögin verða sektuð í byrjun
júní. Enn fremur hafa hátt í þúsund félög enn ekki
skilað ársreikningi vegna ársins 2007.
félag, að frádregnum þeim
sem hafa orðið gjaldþrota
eða búið er að afskrá, hefur
ekki skilað ársreikningum
vegna ársins 2010.
3.541
Á faraldsfæti í sumar
Fjöldi íslenskra
tónlistarmanna spilar á
erlendum hátíðum í sumar.
popp 26
NA-ÁTT Víða hægur vindur á
landinu. Hiti nálægt frostmarki
N- og A-til og dálítil él. Nokkuð
bjart V-til, einkum fyrrihluta
dags. Stöku skúrir SV-til
seinnipartinn.
VEÐUR 4
2
5
3
3
4
SVEITARSTJÓRNIR Orlofsnefnd
Hafnar fjarðar gerir bæjaryfir-
völdum þar ríflega 2,5 milljóna
króna reikning vegna orlofs-
dvalar fyrir hafnfirskar hús-
mæður í sumar.
Engar ferðir voru farnar fyrir
atbeina orlofsnefndar Hafnar-
fjarðar í fyrra. „Eins og bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar veit jafn vel
og við í stjórn orlofsnefndar þá var
ekki orðið við beiðni nefndarinnar
um framlag til húsmæðraorlofsins
fyrr en eftir verulega eftirgangs-
muni og barst greiðslan ekki fyrr
en í janúar 2012,“ lýsir Svanhildur
Guðmundsdóttir, formaður orlofs-
nefndar Hafnar fjarðar, í erindi til
bæjarstjórnarinnar.
Sum sveitarfélög telja framlag
þeirra til orlofsnefnda húsmæðra
tímaskekkju og „í hróplegu ósam-
ræmi við gildandi lög um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla,“ eins og bæjarráð Hafnar-
fjarðar sagði í fyrra.
Frumvarp um afnám orlofsins
var lagt fram á Alþingi árið 2009.
Svanhildur bendir hins vegar á
að lög frá árinu 1972 séu enn í
fullu gildi. Samkvæmt þeim eigi
sveitarfélög að greiða 100 krónur
að þávirði á hvern íbúa til hús-
mæðraorlofsins. Hlutur Hafnar-
fjarðar sé 2.543.411 krónur og
bærinn sé vinsamlegast beðinn
um að virða gjalddaga sem sé 14.
maí.
„Meira er ekki um þetta að
segja,“ segir í innheimtubréfinu
sem bæjarráð tók ekki afstöðu til
á síðasta fundi. - gar
Bæjarfélög draga fæturna í útgreiðslu lögbundins framlags til húsmæðraorlofs:
Húsmæður vilja orlof á réttum tíma
Álögur á sjúklinga
Ár er síðan samningar
við sérfræðilækna runnu
út skrifar Guðmundur
Magnússon.
skoðun 16
Fær fleiri tækifæri í KR
Emil Atlason skipti úr FH
yfir í KR og byrjaði vel í
Vesturbænum.
sport 30