Fréttablaðið - 08.05.2012, Page 18
8. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
GUÐBJARTUR RAFN EINARSSON
skipstjóri og útgerðarmaður,
Löngulínu 2B, Garðabæ,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut, miðvikudaginn 2. maí. Útför
fer fram frá Bústaðakirkju, fimmtudaginn 10. maí kl. 11.00.
Anna Sigurbrandsdóttir
Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir Ingi Jóhann Guðmundsson
Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir Steinar Ingi Matthíasson
barnabörn
Guðrún Einarsdóttir
Sigurður Einarsson
Stefán Einarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR S. M. SVEINSSON
fv. framkvæmdastjóri,
Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum föstudaginn 4. maí.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 11. maí
frá Víðistaðakirkju kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Ingveldur Óskarsdóttir
Ingigerður Einarsdóttir
Óskar Einarsson Unnur Gunnarsdóttir
Gyða Einarsdóttir Bjarni Ólafur Bjarnason
Hildur Einarsdóttir Sveinn Axel Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar og mágur,
HAUKUR ANGANTÝSSON
Kristnibraut 77, Reykjavík,
lést föstudaginn 4. maí síðastliðinn á
lungnadeild Landspítalans í Fossvogi.
Útförin fer fram föstudaginn 11. maí frá
Guðríðarkirkju í Grafarholti kl. 15.00.
Alúðarþakkir til starfsfólks á lungnadeild
Landspítalans í Fossvogi fyrir góða umönnun og hlýju.
Ibsen Angantýsson Hulda Guðmundsdóttir
Bára Angantýsdóttir Einar Sigurgeirsson
Auður Angantýsdóttir
Ólafur Angantýsson
Guðrún Angantýsdóttir Viðar Már Matthíasson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
LÁRA LÁRUSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Gullsmára 7 í Kópavogi,
lést á Líknardeild Landspítalans
laugardaginn 28. apríl. Útför hennar fer fram
frá Garðakirkju miðvikudaginn 9. maí kl. 15.00.
Erlingur Þór Sigurjónsson Margrét Þóra Baldursdóttir
Magnús Þór Erlingsson
Þuríður B. Sigurjónsdóttir Jóhannes Elíasson
Elísa Jóhannesdóttir
Sylvía Rut Jóhannesdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA SIGRÚN INGÓLFSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 4. maí.
Þórunn Friðriksdóttir
Zóphónías Hróar Björgvinsson Madi Björgvinsson
Svali H. Björgvinsson Inga Sigrún Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég er með fullkomnunaráráttu og
finnst ekkert nógu gott sem ég geri.
Þess vegna lendir yfirleitt allt ofan í
skúffu hjá mér sem ég teikna,“ segir
Ásrún María Óttarsdóttir sem hlaut
sigurverðlaun í myndasögusamkeppni
Borgarbókasafnsins og Myndlistaskól-
ans í Reykjavík. Dómnefndinni þótti
saga hennar um tölvuleikjaprinsess-
una ónefndu bera af öðrum fyrir sögu-
mennsku, litanotkun, sjónarhorn og að
sjálfsögðu teikningu. „Auk þess hittir
hún naglann á höfuðið með teygjanleg-
um mörkum alvarleika og aulahúmors,
sem er einkennandi fyrir ákveðinn
geira japanskra myndasagna,“ segir í
umsögn nefndarinnar.
Ásrún María er á 20. ári og er þessa
dagana að kljást við stúdentspróf í
Menntaskólanum í Reykjavík. Hinni
sígildu spurningu um hvað hún ætli að
verða þegar hún verður stór svarar hún
glaðlega: „Sameindalíffræðingur eða
efnafræði-eitthvað.“
Hún kveðst hafa byrjað mynda-
sögugerð um níu ára aldurinn og lýsir
aðdraganda þess. „Ég hafði alltaf gaman
af að teikna og langaði að teikna fólk en
var ekki nógu góð í því. Mamma fann
sniðuga bók sem heitir How to Draw
Manga, þá fór ég að æfa mig fyrir
alvöru og upp úr því spratt þetta tóm-
stundagaman mitt.“ Ekki kveðst hún
samt hafa gert margar heilar mynda-
sögur um ævina og enga þeirra birt,
ekki einu sinni í skólablaði MR. „Ég er
svo lítið fyrir að sýna það sem ég teikna.
Það munaði litlu að ég hætti við að taka
þátt í þessari keppni en svo ákvað ég að
vera hörð við sjálfa mig,“ segir hún. Hún
sér ekki eftir því núna enda fékk hún í
verðlaun Andrésar andarbók frá versl-
uninni Nexus og námskeið í Myndlista-
skóla Reykjavíkur.
Þótt tölvur hafi komið mikið við
sögu í teiknimyndagerð síðustu ára
kveðst Ásrún María ekki hafa ánetj-
ast þeirri tækni. „Ég nota tölvuna
aðeins en finnst langþægilegast að
gera þetta í höndunum. Ég byrja á að
ákveða hvernig umgjörðin á að vera,
svo fer ég að hugsa um hvað á að ger-
ast og persónurnar móta ég í lokin.“
Í keppnina bárust tæplega 60
sögur og myndir. Dómnefndina skip-
uðu Bjarni Hinriksson myndasögu-
höfundur, Björn Unnar Valsson bók-
menntafræðingur og Inga María
Brynjarsdóttir, grafískur hönnuð-
ur og myndhöfundur. Verðlaunaaf-
hendingin fór fram í aðalsafni Borg-
arbókasafnsins í Grófarhúsi og þar
hefur nú verið opnuð sýning á verk-
unum sem bárust í keppnina. Hún
stendur til 10. júní.
gun@frettabladid.is
ÁSRÚN MARÍA ÓTTARSDÓTTIR: SIGRAÐI Í MYNDASÖGUSAMKEPPNI
PERSÓNURNAR MÓTA ÉG Í LOKIN
VIÐ VERÐLAUNASÖGUNA „Ég er svo lítið fyrir
að sýna það sem ég teikna. Enda munaði
litlu að ég hætti við að taka þátt í þessari
keppni en svo ákvað ég að vera hörð við
sjálfa mig,“ segir Ásrún María Óttarsdóttir.
JOHN STUART MILL, heimspekingur, lést þennan dag árið 1873.
„Ég hef lært að nálgast hamingjuna með því að draga úr þörfum
frekar en að reyna að fullnægja þeim.“
Merkisatburðir
1636 Eldgos varð í Heklu.
1835 Fyrstu ævintýri H. C. Andersen voru gefin út í Danmörku,
þar á meðal Eldfærin og Prinsessan á bauninni.
1860 Kötlugos hófst sem olli litlu tjóni.
1933 Mohandas Gandhi hóf þriggja vikna hungurverkfall til að
mótmæla kúgun Breta á Indlandi.
1945 Síðari heimsstyrjöldinni lauk í Evrópu með uppgjöf Þjóð-
verja.
1948 Tröllafoss kom til landsins. Hann var stærsta skip sem
Íslendingar höfðu eignast, 5800 rúmlestir og 103 metrar á
lengd.
1970 Tólfta og síðasta breiðskífa Bítlanna, Let It Be, kom út.
Sírópsbragðtegund sem síðar varð uppistaðan í hinum
sívinsæla svaladrykk Coca-Cola var fundin upp þennan
dag árið 1886 af lyfjafræðingnum John Pemperton.
Hann átti við eiturlyfjafíkn að stríða og í vímuleit sinni
fór hann að vinna að heilsudrykk úr kókarunna (coca)
og cola-hnetum og fékk drykkurinn nafnið Pemper-
ton‘s French Wine Cola.
Árið 1866 var áfengisbann sett á í Bandaríkjunum.
Þar með þurfti Pemperton að breyta drykknum og
gefa honum nýtt nafn. Samstarfsfélagi hans, Frank
Robinson, átti hugmyndina að nafninu Coca-
Cola og Pemperton markaðssetti drykkinn sem
óáfengan, frískandi og endurnærandi gosdrykk.
Þegar áfengisbanninu var aflétt ári síðar hélt
hann áfram að vinna að fyrri drykknum en
eftirlét syni sínum, Charles, þróun á þeim
nýja.
Pemperton dó hinn 16. ágúst 1888,
aðeins nokkrum mánuðum eftir að Coca-
Cola fyrirtækið var stofnað.
ÞETTA GERÐIST: 8. MAÍ 1886
Coca-Cola fundið upp
AFMÆLI
ÁSGEIR
SIGURVINS-
SON knatt-
spyrnu-
þjálfari er
fimmtíu og
sjö ára.
VALGEIR
SKAGFJÖRÐ
leikstjóri og
tónlistar-
maður, er
fimmtíu og
sex ára.
ELLEN
KRISTJÁNS-
DÓTTIR
söngkona
er fimmtíu
og þriggja
ára.
MAGNÚS
TUMI GUÐ-
MUNDS-
SON
jarðeðlis-
fræðingur
er fimmtíu
og eins árs.
KRISTJÁN
FINNBOGA-
SON knatt-
spyrnu-
maður er
fjörutíu og
eins árs.
HALLUR
HALLSSON
blaða-
maður er
sextíu og
eins árs.