Fréttablaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Kvennaskólinn í Reykjavík. Skólinn var fyrst stofnaður árið 1874 af Þóru Melsteð og
eiginmanni hennar Páli Melsteð.
SKÓLAGANGA KVENNA Á ÍSLANDI
Konur höfðu ekki fullan rétt til náms hér á landi á við karla fyrr en árið
1911. Árið 1987 urðu konur í fyrsta skipti fjölmennari en karlar í hópi
innritaðra stúdenta við Háskóla Íslands og hafa verið í meirihluta síðan.
Frá árinu 1984 hafa konur verið fjölmennari en karlar í hópi nemenda á
sérskóla- og háskólastigi á Íslandi, samkvæmt upplýsingum á Vísindavef
Háskóla Íslands.
Eftirfarandi staðreyndir um konur og skólagöngu á Íslandi eru fengnar af vef
Kvennasögusafns Íslands.
1872 Nicoline Weywadt lærði ljósmyndun í Kaupmannahöfn 1871-
1872, fyrst kvenna á Íslandi. Hún stundaði ljósmyndun í um þrjátíu
ár á Djúpavogi og kom sér upp vinnuaðstöðu á Teigarhorni.
1874 Kvennaskólinn í Reykjavík var stofnaður af Þóru Melsteð og
eiginmanni hennar Páli Melsteð, með fjárstuðningi íslenskra og
erlendra aðila. Skólinn var fyrsta menntastofnunin sem bauð
konum upp á formlega menntun. Fleiri kvennaskólar voru
stofnaðir næstu árin.
1889 Camilla Torfason lauk stúdentsprófi fyrst kvenna, eftir því sem
næst verður komist, frá Trier-menntaskólanum í Kaupmannahöfn.
1892 Ingibjörg H. Bjarnason lauk leikfimiprófi, fyrst Íslendinga, frá Poul
Petersens Institut í Kaupmannahöfn. Ári síðar hóf hún dans- og
leikfimikennslu í Reykjavík fyrir börn og ungar stúlkur.
1910 Ásta Kristín Árnadóttir lauk iðnmeistaraprófi í Kaupmannahöfn,
fyst Íslendinga. Ásta var jafnfram fyrsta íslenska konan sem lauk
iðnnámi.
1911 Lög um menntun kvenna og rétt til embætta voru samþykkt á
Alþingi. Konur fengu fullan rétt til menntunar og embætta með
þessum lögum.
1945 Geirþrúður Hildur Bernhöft lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands,
fyrst kvenna. Hún lét ekki vígjast til prests.
1945 Jórunn Viðar lauk prófi í tónsmíðum, fyrst kvenna, frá The Juilliard
School of Music í New York.
1946 Valgerður G. Þorsteinsdóttir tók sólópróf í flugi, fyrst kvenna.
1978 Guðrún Ólafsdóttir lauk sveinsprófi í rafvirkjun, fyrst kvenna.
www.kvennasogusafn.is
Það var Skólavefurinn sem setti af stað verkefnið ásamt Námsgagnastofnun. „Það
hefur sýnt sig að Kindle-lestölvan
hefur tvímælalaust aukið áhuga
nemenda á námi og lestri,“ segir
Jónína Ólöf Emilsdóttir, skóla-
stjóri Vogaskóla, og bætir við að
reynslan sé framar vonum.
„Báðir níundu bekkirnir hjá
okkur hafa verið með Kindle í
vetur og reynslan er mjög góð,
enda hefur verið haldið vel utan
um þetta tilraunaverkefni. Ingvar
Sigurgeirsson, prófessor hjá Há-
skóla Íslands, hefur komið hingað
reglulega og metið stöðuna. Hann
fylgist vel með hvernig verkefnið
gengur. Þessi eftirfylgni er afar
mikilvæg að mínu mati. Þar fyrir
utan er mikill pappírs sparnaður í
skólanum,“ segir Jónína og bætir
því við að möguleikar séu margir
með Kindle, hægt að stækka
og minnka letur eftir þörfum.
„ Nemendurnir geta náð sér í
forvitnilegar bækur til að lesa.
Strákar eru sérstaklega hrifnir af
öllum tækjum og lestölvan eykur
áhuga þeirra á lestri.“
Jónína segir að þetta tilrauna-
verkefni sé jákvætt á allan hátt og
sýni að lestölvur séu framtíðin í
skólastarfinu. „Ég vonast til að
verkefnið haldi áfram næsta vetur
hjá þessum hópi og að hann klári
grunnskólann með Kindle. Þetta
er að gefa það góða raun bæði hjá
kennurum og nemendum að við
vonum að þetta verði áfram.“
Þegar Jónína er spurð hvort
aðrir nemendur líti ekki öfundar-
augum á níundu bekkinga segir
hún svo vera. „Þessi hópur var
valinn því árgangurinn hentaði
betur en tíundi bekkur sem er að
klára grunnskólann í vor.“
Alls eru 42 nemendur sem nota
Kindle-lesbretti í Vogaskóla en það
er eini skólinn á landinu sem tekur
þátt í tilraunaverkefninu. Náms-
gagnastofnun útbjó nokkrar raf-
rænar námsbækur fyrir þennan
hóp. „Þetta er mjög áhugavert og
jákvætt verkefni sem er að skila
sér inn í skólastarfið,“ segir Jónína.
Kindle hefur jákvæð
áhrif á skólanámið
Öllum nemendum 9. bekkjar Vogaskóla var afhent Kindle-lesbretti í janúar til notkunar
á vorönn. Áhugavert og jákvætt verkefni, segir skólastjóri.
Nemendur níunda bekkjar Vogaskóla fengu Kindle-lesbretti í janúar og hefur tækið aukið áhuga þeirra á náminu.
Jónína Emilsdóttir, skólastjóri Vogaskóla.
í allar deildir fyrir veturinn 2012-2013
fara fram á tímabilinu 21-29. maí
INNRITUN
INNTÖKUPRÓF
SÖNGNÁM Klassík / Söngleikir / Þjóðlagatónlist
Unglingadeild yngri 11-13 ára
Unglingadeild eldri 14 -15 ára
Almenn tónlistardeild Grunn-/Mið-/Framhaldsnám
Háskóladeild Einsöngs-/Söngkennaranám
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka dagawww.songskolinn.is
Söngskólinn í Reykjavík
Með samstarfi við alþjóðlega fag-
háskóla í fimm löndum getum
við boðið mikið úrval námsleiða
og nám sem er í raunhæfum
tengslum við fyrirtæki sem starfa á
sviði hinna skapandi greina.
ÍTALÍA / SPÁNN
Istituto Europeo di Design.
ENGLAND
University of the Arts London •
Arts University College Bourne-
mouth • Bournemouth University.
SKOTLAND
The Glasgow School Of Art.
NOVA SCOTIA
Acadia University.
Dæmi um nám í boði:
Fatahönnun • Grafísk hönnun • Marg-
miðlun • Markaðsfræði Kvikmynda-
gerð • Arkitektúr • Innanhússhönnun
• Vöruhönnun • Blaðamennska • Við-
burðastjórn • Viðskiptafræði.
Nám í Hönnun, Sjónlistum,
Stjórnun og Tízku.
E N G L A N D • Í T A L Í A • K A N A D A • S K O T L A N D • S P Á N N