Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 28

Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 28
. . cKKur jannstjaffeytJ>að semJoeimýannst Jjctt... nokkra eldri myndlistarmenn, til dæmis Ásmund Sveinsson og Kristján Davíðsson. Hann sagöist þó einnig vera í ágætu sambandi við yngri myndlistarmenn, svo sem Sigurð Örlygsson, Magnús Kjartansson og Einar Hákonarson. Hann var því næst spurður hvort þeir yngri leituðu eftir félagsskap þeirra eldri og sagði Þorvaldur það hafa komið eðlilega en bætti við: „Það eru eflaust einhverjir yngri listamenn sem ekki þola okkur og þeir banka ekki upp á.. ,“.38 í bók sem gefin var út árið 1989 í tilefni yfirlitssýningar á verkum félagsmanna SÚM 1965-1972 eru birt viðtöl við nokkra félaga i SÚM þar sem togstreitan milli þeirra og eldri listamanna er rædd. Þar má glögglega sjá að ekki var um persónulega óvild að ræða heldur þótti ungum listamönnum það sorglegt að menn, sem nokkrum áratugum áður höfðu barist fyrir viðurkenningu abstraktlistar, lifðu nú á fomri frægð og vildu ekki setja sig í spor þeirra sem róttækastir þóttu. Þetta má lesa í viðtölum við nokkra félaga í SÚM. Magnús Tómasson segir að ef að F.I.M. félögum hafi þótt SÚM vera stefnt gegn sér þá hafi það verið á misskilningi byggt.39 Segja má að Sigurður Guðmundsson komist einna best að orði þegar hann var í lok níunda áratugarins spurður um útistöður F.I.M. og SÚM: ,,[Sá] ágreiningur var á engan hátt pólítískur, heldur snérist hann um mentalitet. FÍM-aramir vom vinstrimenn og pólítísk viðhorf þeirra vom þau sömu og okkar.. .Munurinn var hins vegar sá, að okkur fannst fallegt það sem þeim fannst ljótt. Og öfúgt.“.40 ÚJeift um máfejni tencjcf fistum Það var ekki aðeins myndlistin sjálf sem olli nokkmm deilum á þeim tímabili sem hér er litið til. Nokkur málefni sem tengdust myndlist vom í umræðunni og má lesa um þau á síðum dagblaðanna árið 1972. Þannig deildu yngri og eldri listamenn ekki aðeins um það hvað kalla mætti list heldur sýndist sitt hverjum þegar kom að því hvemig hlúð var að listum og listamönnum í landinu. Snörp skoðanaskipti urðu til að mynda um úthlutun listamannalauna í febrúar 1972 en alls fengu 120 listamenn laun það árið. Afþeim 120 sem nutu listamannalauna árið 1972 vora 57 rithöfundar, 37 myndlistarmenn, 12 tónskáld og 14 listamenn sem lögðu stund á aðrar listgreinar.41 Athyglisvert er að skoða aldurs- og kynjaskiptingu þeirra listamanna sem launin hlutu. Af þessum 120 listamönnum vom aðeins 17 konur. Meðalaldur þeirra sem hlutu launin var fremur hár. 27 launþegar vom yfir sjötugu, 26 milli sextugs og sjötugs, 28 vom milli fimmtugs og sextugs, 27 á milli fertugs og fimmtugs, aðeins tíu vom á aldrinum þrjátíu til fjömtíu ára og tveir listamenn undir þrítugu hlutu listamannalaun. Af þessu má álykta að listamenn af yngri kynslóðinni hafi ekki átt greiða leið inn í kerfið sem stuðlaði að því að viðhalda fremur íhaldssömu menningarmati. Markmiðið með úthlutuninni var ekki að því að styrkja ungt listafólk í landinu þar sem aðeins féllu um 630 þúsund af heildampphæðinni (7.330.000 krónum) til þeirra 12 listamanna sem vom undir fertugu 42 Þrír af þeim listamönnum sem fengu úthlutað launum afsöluðu sér þeim en þeir vora allir af yngri kynslóðinni. Þeir vom Atli Heimir Sveinsson, Jón Gunnar Árnason og Jón Ásgeirsson.43 Þetta vom mótmæli við þann hátt sem hafður var á úthlutuninni. I yfirlýsingu Atla Heimis í Þjóðviljanum segir meðal annars: „Eg er algjörlega andvígur listamannalaunum í núverandi mynd og álít starfsstyrki raunhæfari aðstoð við skapandi listamenn.".44 Haft var eftir Jóni Gunnari á sama stað: ,,[N]úgildandi kerfi og framkvæmd er svo heimskuleg, að ómögulegt er að líta á það sem alvarlega tilraun ríkisvaldsins til að efla íslenzkt listalíf með almannafé. Þrátt fyrir mikla óánægju bæði meðal listamanna og almennings hefur gamla fyrirkomulagið haldist.".45 Myndlistarmönnum af eldri kynslóðinni hefur sjálfsagt ekki þótt ástæða til að tjá sig um málið en mikill kraftur var í yngri listamönnum sem bentu sífellt á það sem að þeirra mati mátti betur fara í styrkveitingum til listamanna í landinu. Mikil óánægja var á meðal þeirra með það hversu miklu pólitísk sjónarmið réðu í þessum efnum. Þeir töldu að embættismennimir sem sátu í úthlutunamefnd hefðu hvorki áhuga né vilja til að fylgjast með því sem var að gerast á sviði lista. í ffamhaldi af umræðunni um listamannalaunin má sjá nokkrar vangaveltur um listsköpun almennt og um það hvað list er. I Þjóðviljanum 5. mars birtist grein eftir Elísabetu Gunnarsdóttur (ritara SÚM) þar sem hún gerir grein fyrir tillögum um nýskipan á úthlutun listamannalauna. „íslandslag” eftir Svavar Guðnason frá 1944. Myndin var ein af þeim myndum sem sýnd var á tvíæringnum í Feneyjum árið 1972. Kjaminn í grein Elísabetar er sá að hún, sem málsvari yngri listamanna, vildi að úthlutun yrði færð úr höndum pólitískrar nefndar og listamenn fengju meiri áhrif. Úthlutunamefnd yrði veitt meira aðhald og bæri skylda til að rökstyðja val sitt, sem þeir þurftu ekki að gera samkvæmt gildandi reglum. Auk þess ætti ríkið að standa að kynningu á verkum þeirra listamanna sem hljóti laun um land allt, þannig að almenningur sæi þessi laun skila sér í einhverju formi. Elísabet gagnrýndi jafnframt að það viðgengist að launa lítt áberandi listamönnum en sniðganga unga og athafhasama listamenn. Nefndin hefði ekki sýnt viðleitni í þá átt að styrkja þá sem vom að koma fram á sjónarsviðið.46 Þann 10. mars 1972 birtist grein eftir Grétu Sigfúsdóttur rithöfúnd í Morgunblaðinu. Gréta sendi Elísabetu og ungum listamönnum tóninn í grein sinni og hryllti við því að verk ungra listamanna væm almenningi til sýnis. Þar ræddi hún sérstaklega um SÚM: „Flestir þessara ungu listamanna stæla erlendar niðurrifsstefnur...ættu menn að vera jafn vel á verði gagnvart mengun andans og mengun umhverfisins, því að hvort tveggja er af sömu rótum runnið, þ.e.a.s. hrömun vestrænnar menningar" 47 Nokkur lesendabréf birtust einnig í kjölfar umræðunnar um úthlutun listamannalauna i fjölmiðlum. I Þjóðviljanum birtist bréf, skrifað af Gunnari M. Magnús rithöfundi, sem hafði nokkra þekkingu á málinu. Hann fjallaði um fyrirkomulagið almennt í ljósi sögunnar en tók ekki afstöðu með eða á móti úthlutunamefndinni eða listamönnunum.48 í Morgunblaðinu birtist aftur á móti bréf í Velvakanda frá lesanda að nafni Unnur Benediktsdóttir í Auðsholtshjáleigu. Spumingin sem Unnur velti einkum fyrir sér var: Hver er listamaður? I greininni var höfúndur rasandi yfir þeirri heimtufrekju sem listamenn sem höfðu komið fram í þætti Ólafs Ragnars hefðu sýnt og þótti nær að styrkja listamennina alls ekki. Unnur skildi ekki „hvers vegna [var] verið að troða peningum upp á svona fólk?“ (Þ.e. listamenn - aths. höf.) í framhaldi setti Unnur fram spuminguna um hvað væri list og hverjir listamenn. í lokin á lesendabréfi sínu benti hún á að réttara væri að aðeins fáum útvöldum listamönnum eldri en 67 ára yrðu greidd listamannalaun „til að þeir geti lifað mannsæmandi lífi“.49 Umfjöllunin um úthlutun launanna í dagblöðunum sýna vel hversu ólíkar skoðanir menn höfóu á úthlutun þeirra. Morgunblaðið var nokkuð íhaldssamt í umræðu sinni og greinahöfúndar flestir rithöfundar af eldri kynslóðinni. I Vísi og Þjóðviljanum var aftur á móti meirihluti þeirra sem fjallaði um málið myndlistarmenn af yngri kynslóðinni. Vera má að þeir hefðu aldrei fengið greinar sínar birtar í Morgunblaðinu af pólitískum ástæðum. JL.istasafn jsfancfs < ifistin oy nyJ Innkaupastefna Listasafns Islands var annað mál á vegum ríkisins sem fékk harða gagnrýni. Enn vom það einkum yngri listamenn sem 26 'Jlajnir 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.